Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2009, Qupperneq 2
miðvikudagur 25. mars 20092 Fréttir
Fjórir framkvæmdastjórar hjá
gamla Glitni fengu 2,6 milljarða
króna kúlulán í maí í fyrra til að
kaupa hlutabréf í bankanum. Þeir
starfa allir ennþá hjá Íslandsbanka.
Frægt er orðið þegar „tæknileg
mistök“ urðu í hlutabréfakaupum
Birnu Einarsdóttur við kaup á hlut
í Glitni sem metinn var á 186 millj-
ónir króna. Kaup þriggja af þessum
framkvæmdastjórum voru þó mun
stærri en kaup Birnu.
Kúlulán til eignarhaldsfélaga
Rósant Már Torfason, framkvæmda-
stjóri áhættustýringar, lánaeftirlits
og lögfræðisviðs Íslandsbanka, segir
í samtali við DV að eignarhaldsfélag
í hans eigu hafi fengið 800 milljóna
króna kúlulán hjá Glitni í fyrrasum-
ar. Hann stofnaði félagið Strandatún
ehf. 6. maí í fyrra. „Ég á hlut í tveim-
ur eignarhaldsfélögum. Stranda-
túni ehf. og Ströndum ehf. Félagið
Strandatún hefur fengið kúlulán til
hlutabréfakaupa í Glitni,“ segir Rós-
ant. Hann segir að hlutabréfakaup-
in hafi verið hugsuð sem þriggja til
fjögurra ára fjárfesting.
Tveir aðrir framkvæmdastjórar
fengu líka 800 milljóna króna kúlu-
lán fyrir hlutabréfakaupum í Glitni.
Vilhelm Már Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Ís-
landsbanka, og Jóhannes Baldurs-
son, framkvæmdastjóri fjárstýringar
og markaðsviðskipta Íslandsbanka.
KPMG sá um að stofna félagið AB
154 ehf. fyrir Vilhelm 6. maí í fyrra.
Þá stofnaði Jóhannes félagið Gnóma
ehf. sama dag.
Þrír Akureyringar
Vilhelm er sonur fyrrverandi eig-
anda Samherja, Þorsteins Vilhelms-
sonar, sem seldi hlut sinn í Sam-
herja á sínum tíma og er í dag stærsti
hluthafinn í Atorku. Nokkra athygli
vekur að þeir Rósant, Vilhelm og Jó-
hannes eru allir fæddir árið 1971 og
allir frá Akureyri. Stefán Sigurðsson,
framkvæmdastjóri eignastýringar
Íslandsbanka, fékk síðan 170 millj-
óna króna kúlulán á sama tíma og
þeir. Félag hans var líka stofnað af
KPMG og heitir AB 135 ehf.
Í samtali við DV sagði Árni Tóm-
asson, formaður skilanefndar Glitn-
is, að innlend lán sem Glitnir hefði
veitt væru í höndum nýja bankans.
Ekki náðist í Birnu Einarsdóttur við
vinnslu fréttarinnar.
Höfðu trú á Glitni
Rósant Már Torfason segir stöðu
Strandatúns ekki góða. „Það er ljóst
að eiginfjárstaða þessa félags er
verulega neikvæð,“ segir hann. Að-
spurður um hvar mál Strandatúns
standi hjá bankanum segir hann að
verið sé að skoða þetta mál eins og
öll önnur sem snúa að starfsmönn-
um gamla Glitnis. „Ég geri ráð fyr-
ir að þetta lán verði skoðað eins og
önnur lán sem menn hafa veitt til
hlutabréfakaupa og hafa tapast,“
segir hann.
Þegar þessir fjórir framkvæmda-
stjórar fengu kúlulán fyrir hluta-
bréfakaupunum í Glitni í fyrra var
gengi félagsins 17. Það hafði hæst
farið í 30,9 í lok júlí 2007. Gengi fé-
lagsins hafði því lækkað um 45 pró-
sent á níu mánuðum þegar þeir
keyptu bréfin. Nokkuð hefur verið í
fréttum að íslensku bankarnir hafa
haldið hlutabréfaverði sínu uppi
STÓRSKULDUGIR
STJÓRNENDUR
AnnAs siGmundsson
blaðamaður skrifar: as @dv.is
Eignarhaldsfélög í eigu fjögurra af núverandi framkvæmdastjórum Íslandsbanka fengu kúlulán upp á 2,6
milljarða í maí árið 2008. Útistandandi lán Glitnis til stjórnenda bankans fóru úr 1800 milljónum árið 2007 í
níu milljarða árið 2008.
Útistandandi lán Glitnis til stjórn-
enda bankans 2006: 5726 milljónir
Útistandandi lán Glitnis til stjórn-
enda bankans 2007: 1832 milljónir
Útistandandi lán Glitnis til stjórn-
enda bankans 2008: 9066 milljónir
*Tölur samkvæmt árshlutareikn-
ingi Glitnis fyrir annan ársfjórðung
2008 og ársskýrslu 2007.
Birna Einarsdóttir
Bankastjóri Íslandsbanka
Félag hennar melkorka ehf. fékk 184
milljóna kúlulán
Jóhannes Baldursson
Framkvæmdastjóri fjárstýringar og
markaðsviðskipta
Félag hans gnómi ehf. fékk 800 milljóna
kúlulán
Vilhelm már Þorsteinsson
Framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs
Félag hans aB 154 ehf. fékk 800
milljóna kúlulán
Rósant már Torfason
Framkvæmdastjóri áhættustýringar,
lánaeftirlits og lögfræðisviðs
Félag hans strandatún ehf. fékk 800
milljóna kúlulán
stefán sigurðsson
Framkvæmdastjóri eignastýringar
Félag hans aB 135 ehf. fékk 170
milljóna kúlulán
LáN TIL hELSTU STJoRNENDa GLITNIS