Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2009, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2009, Qupperneq 4
„Þetta kom mér mjög á óvart,“ seg- ir Vigdís Hauksdóttir, oddviti Fram- sóknarflokksins í Reykjavík suður fyr- ir komandi kosningar. Vigdís starfaði sem lögfræðingur hjá Alþýðusam- bandi Íslands þar til henni var gert að hætta vegna framboðs hennar fyr- ir Framsóknarflokkinn. „Þeir litu svo á að ef ég tæki þetta sæti jafngilti það uppsögn af minni hálfu. Ég sagði að það yrði þá svo,“ segir Vigdís. Mismunun Vigdís undrast að hún þurfi að hætta störfum hjá ASÍ vegna kosningabar- áttunnar á sama tíma og yfirlögfræð- ingur ASÍ, Magnús M. Norðdahl sem skipar skipar sjötta sæti á lista Sam- fylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi kosningar, starfar áfram hjá félaginu. Ljóst var að Vigdís tæki oddvita- sætið eftir kjördæmisþing framsókn- armanna helgina 6. til 7. mars. For- valsnefnd stillti upp þremur aðilum í fyrsta sætið og úr varð að Vigdís sigr- aði í kosningum á þinginu. Vigdís óskaði í kjölfarið eftir launalausu leyfi fram að kosningum til að sinna baráttunni en segir for- svarsmenn ASÍ hafa sett sig á móti því. „Í raun er verið að brjóta á rétti mínum og mismuna út af stjórn- málaskoðunum. Það er augljóst því við erum með lifandi dæmi í nútím- anum á þessum sama tíma, þar sem yfirlögfræðingurinn fær að halda áfram en ekki ég. Það er augljóst út af hverju þetta er. Það er af því að ég er framsóknarmaður,“ segir hún. Síðasti vinnudagur Vigdísar hjá ASÍ var 13. mars. Ekkert vandamál Gylfi Arnbjörnsson, formaður ASÍ, lítur hins vegar svo á að með því að taka að sér að leiða framboðslista sé Vigdís að taka að sér nýtt starf. „Það er ekki hægt að vera bæði þingmað- ur og starfsmaður Alþýðusambands- ins,“ segir Gylfi og bendir á að hún sé nú nokkuð örugg með að komast á þing. „Ég veit ekki til þess að það sé nokkurt vandamál á milli okkar Vig- dísar,“ segir Gylfi. „Við höfum gefið fólki frí til að taka þátt í prófkjöri en þegar fólk er komið í nokkuð öruggt þingsæti hef- ur það verið meginregla að þá ljúki veru þess hér,“ segir Gylfi. Hann tel- ur sig hafa veitt Vigdísi svigrúm með því að krefja hana ekki um að vinna uppsagnarfrest. „Uppsagnarfrestur- inn hefði runnið út viku eftir kosn- ingar og það er nokkuð ljóst að ef ég hefði krafist þess af henni hefði ég sett henni stólinn fyrir dyrnar í kosn- ingabaráttunni,“ segir Gylfi. Samfylkingarfólk Gylfi neitar því að sú staðreynd að Vigdís er framsóknarmaður hafi haft áhrif á skjót starfslok hennar hjá ASÍ. „Alls ekki. Það kemur mál- inu ekkert við. Vigdís er búin að vera lengi í miðstjórn Framsóknarflokks- ins og við gerðum enga athugasemd við það þegar hún var ráðin,“ segir Gylfi. „Mér þótti miður að missa hana og fannst þessi starfslok vera að hennar ósk,“ segir hann. Vigdís heldur þó fast við sína skoðun: „Þetta er skýrt dæmi um að það er verið að refsa starfsmanni fyrir sínar pólitísku skoðanir,“ segir hún. Að mati Vigdísar vekur mál- ið upp spurningar um hvort aðeins samfylkingarfólk hljóti frama innan ASÍ. Fyrir síðustu alþingiskosning- ar gaf Gylfi kost á sér í 3. til 4. sæti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Þá starfaði hann sem framkvæmda- stjóri ASÍ. Gylfi dró þó framboð sitt til baka og sagðist telja að framboð- ið samræmdist illa störfum hans og hlutverki sem framkvæmdastjóri og talsmaður ASÍ. Erla HlynSdóttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is „Það er ekki hægt að vera bæði þingmaður og starfsmaður Alþýðu- sambandsins.“ Bauð sig fram GylfiArnbjörnsson bauðsigframfyrirSamfylkinguísíðustu kosningumendróframboðiðsíðantil baka. REKIN VEGNA FRAM- BOÐS Oddviti hjá Framsókn VigdísHauksdóttirteluraðflokkspólitíkséráðandiinnanAlþýðusambandsÍslandsogaðhennisémismunaðþvíhúnséíFramsókn. Mynd HEiða HElgadóttir Vigdís Hauksdóttir þurfti að hætta störfum sem lögfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands eftir að hún tók oddvitasæti hjá Framsóknarflokknum. Henni finnst skjóta skökku við að á sama tíma heldur Magnús norðdahl áfram störfum hjá samband- inu en hann skipar sjötta sæti á lista Samfylkingar í Reykjavík. gylfi arnbjörnsson tekur fyrir að málið sé flokkspólitískt. miðVikudAGur25.mArS20094 Fréttir Fjölskylda stúlku sem kærði séra gunnar Björnsson segir sig úr þjóðkirkjunni: Siðareglurpresta„handónýtar“ Fjölskylda annarrar stúlkunnar sem kærði séra Gunnar Björnsson, sókn- arprest á Selfossi, fyrir kynferðislega áreitni hefur sagt sig úr þjóðkirkjunni í kjölfar sýknudóms yfir Gunnari og tilkynningu frá Biskupsstofu um að hann muni snúa aftur til starfa í Sel- fosskirkju þann 1. maí. Móðir stúlkunnar sagði í viðtali í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að sér fynd- ust þessi málalok sorgleg. Fjölskyld- an ráði hins vegar hvorki við lands- lög né Biskupsstofu. Hún segir þau þó vita hvað gerðist í raun og veru og fjölskyldan hafi því sameinast um að segja sig úr þjóðkirkjunni með bréfi í gær. Fjölskyldan „tilheyri því ekki þessu trúfélagi lengur“. Þegar móðir stúlkunnar var spurð hvort hún teldi að þjóðkirkjan hefði brugðist fjölskyldunni í málinu sagði hún að endurskoða þyrfti siðareglur presta ofan í kjölinn. Greinilegt væri að þær siðareglur sem nú eru í gildi væru „handónýtar.“ Móðirin sem kaus að koma ekki fram undir nafni sagði kirkjustarfi dóttur sinnar hafa lokið með þeim atburði sem leiddi til þess að hún kærði séra Gunnar og að málið allt og eftirmálar þess hefðu haft áhrif á dóttur sína. Réttargæslumaður stúlknanna tveggja sem kærðu prest- inn fyrir áreitni sagði á sínum tíma að brot Gunnars, sem hófust þegar stúlkurnar voru í fermingarfræðslu fyrir nokkrum árum, væru alvarleg. Aðspurð um grunsemdir margra bæjarbúa á Selfossi um að stúlkurn- ar tvær hefðu logið kynferðisáreitn- inni upp á Gunnar sagði móðirin við fréttamann Stöðvar 2 að slíkar vanga- veltur væru vandamál þeirra sem þannig hugsuðu. Það væri vitaskuld „töff fyrir unga stúlku“ að ganga í gegnum þetta en dóttir hennar væri „ótrúlega dugleg“ því hún vissi hvað gerðist í raun og veru. gunnar Björnsson Ervænt- anlegurtilstarfaviðmisjafnar undirtektir. Mynd Sigtryggur Takmarkaður auglýsingakostn- aður Stjórnmálaflokkarnir sem eiga fulltrúa á Alþingi hafa gert með sér samkomulag um að tak- marka auglýsingakostnað í að- draganda alþingiskosninganna 25. apríl næstkomandi. Heild- arkostnaður hvers flokks vegna auglýsingabirtinga í dagblöðum, netfjölmiðlum og ljósvakamiðl- um má ekki verða hærri en 14 milljónir króna. Samningurinn gildir frá 30. mars 2009, þegar allir flokkar hafa lokið sínum landsfundum, til 26. apríl 2009. Jafnframt er samkomulag um að óháður aðili verði fenginn til að hafa eftirlit með framkvæmd- inni. Börðu dreng með kúbeini Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt tvo pilta á nítjánda ald- ursári í tveggja mánaða skilorðs- bundið fangelsi fyrir líkamsár- ás. Piltarnir veittust að sextán ára pilti á hjólabrettasvæði við Sundhöll Selfoss að kvöldi sunnudagsins 6. apríl í fyrra. Annar piltanna sló fórnarlamb- ið þremur höggum í andlitið en hinn pilturinn sló hann í bakið með kúbeini. Piltarnir játuðu báðir á sig sakirnar fyrir dómi samkvæmt ákæru. Piltunum var gert að greiða fórnarlambi sínu 100 þúsund krónur í skaðabæt- ur fyrir árásina og rúmar 200 þúsund krónur í sakarkostnað. Dómurinn yfir piltunum er skil- orðsbundinn til tveggja ára. Ný lög um ráð- herraábyrgð Jóhanna Sigurðardóttir forsæt- isráðherra hefur óskað eftir því bréflega við forseta Alþingis að sett verði ný lög um ráðherraá- byrgð og landsdóm, en gildandi lög eru frá árinu 1963. Nefnd á vegum þingsins er að störfum og kannar hvernig skerpa megi eftirlit milli löggjafar- og fram- kvæmdavaldsins. „Við óskuðum eftir því að þessari nefnd yrði falið að leggja fram nýjar tillög- ur um ráðherraábyrgð þar sem höfð verði hliðsjón af þeim lög- um sem um það gilda í okkar ná- grannalöndum. Við höfum ósk- að eftir því að þeirri vinnu verði hraðað sem mest,“ sagði Jóhanna á blaðamannafundi í gær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.