Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2009, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2009, Page 12
miðvikudagur 25. mars 200912 Fréttir Friðarráðstefna nóbelsverðlaunahafa blásin af í Suður-Ameríku: dalai Lama bannað að mæta Suður-afrísk stjórnvöld neituðu að veita Dalai Lama vegabréfsáritun og því verður ekkert af friðarráð- stefnu nóbelsverðlaunahafa sem stóð til að halda í landinu. Dalai Lama var einn boðaðra gesta á ráð- stefnunni. Eftir að hann fékk ekki vegabréfsáritun og gat því ekki sótt ráðstefnuna hættu Desmond Tutu erkibiskup og F.W. de Klerk, fyrr- verandi forseti Suður-Afríku, við þátttöku í mótmælaskyni. Suðurafrískum stjórnvöldum er legið á hálsi fyrir að hafa látið Kín- verja kúga sig til hlýðni. Kínversk stjórnvöld hafa víða reynt að koma í veg fyrir ferðalög trúarlegs leiðtoga Tíbeta og þrýst á stjórnvöld um að ýmist hleypa honum ekki inn í land- ið eða sniðganga hann. Það rennir stoðum undir þessar grunsemdir að talsmaður suðurafrísku ríkisstjórn- arinnar lýsti því yfir að það sam- ræmdist ekki hagsmunum þar- lendra stjórnvalda að Dalai Lama kæmi í heimsókn til landsins. Hann rökstuddi það þó með þeim orðum að heimsókn Dalai Lama yrði til að draga athyglina frá því að heims- meistarakeppnin í knattspyrnu verður í Suður-Afríku á næsta ári. Friðarráðstefnan er einmitt haldin í tengslum við heimsmeist- arakeppnina á næsta ári. Nú hefur Desmond Tutu sagt það skammar- legt að veita Dalai Lama ekki vega- bréfsáritun. Hann sakar stjórnvöld líka um að beygja sig undir þrýsting kínverskra stjórnvalda. Kínverskir erindrekar höfðu sagt að heimsókn Dalai Lama kynni að verða til að skaða samskipti ríkjanna. Irvin Khoza, formaður skipu- lagsnefndar heimsmeistarakeppn- innar í knattspyrnu, sagði að þeim hefði tekist að telja Dalai Lama á að fresta heimsókn sinni til landsins þar til eftir keppnina á næsta ári. Vekur miklar deilur Ákvörðun stjórnvalda um að hleypa dalai Lama ekki inn í landið hefur valdið miklum deilum. Breska blaðið The Guardian hefur gert þrjár heimildarmyndir um innraás Ísraels- manna á Gaza-svæðið sem renna stoðum undir að Ísraelsher hafi framið stríðsglæpi í innrásinni. Blaðið hefur eftir þremur bræðrum að Ísraelsher hafi notað þá sem „mennska skildi“ í árásinni auk þess sem heilbrigðisstarfsfólk segist hafa verið skot- mörk Ísraelsmanna. Mannréttindasamtök telja Ísraelsher hafa framið stríðsglæpi í innrásinni. Ísraelsher neitar ásökunum. STRÍÐSGLÆPIR ÍSRAELA VERÐI RANNSAKAÐIR Breska blaðið The Guardian telur sig hafa sannanir fyrir því að Ísraelsher hafi framið stríðsglæpi þegar hann réðst inn á Gaza-svæðið fyrr á þessu ári. Blaðið greinir meðal annars frá því að palestínsk börn hafi verið not- uð sem „mennskir skildir“ auk þess sem Ísraelsher hafi vísvitandi beint árásum sínum á spítala og sjúkraliða til að koma í veg fyrir að þeir gætu hjúkrað þeim sem slösuðust í innrás- inni. Þetta er meðal þess sem kemur fram í þremur heimildarmyndum um árásina sem breska blaðið hefur gert og hægt er að sjá á á vefsíðu blaðsins. Árásin hófst með sprengjuárásum í lok desember á síðasta ári en í byrjun janúar réðst Ísraelsher svo inn í land- ið og dvaldi þar í 23 daga. Árásinni var beint að Hamas–samtökunum sem á liðnum árum hafa ógnað öryggi íbúa í Ísrael með eldflaugaárásum frá Gaza- svæðinu. Þeir sem urðu fyrir barð- inu á aðgerðum Ísraelsmanna á Gaza voru hins vegar ekki Hamas-liðar heldur fyrst og fremst óbreyttir borg- arar á Gaza-svæðinu, en um 1400 Pal- estínumenn, þar af 300 börn, létu lífið í innrásinni. Þrír bræður notaðir sem „mennskir skildir“ Blaðið hefur meðal annars greint frá vitnisburði þriggja bræðra úr al- Attar-fjölskyldunni sem lýstu því hvernig þeir voru færðir af heimilum sínum með valdi, látnir krjúpa fyrir framan skriðdreka Ísraelshers til að koma í veg fyrir að hermenn Hamas réðust á þá. Bræðurnir greindu jafn- framt frá því að þeir hefðu verið send- ir inn í hús á undan liðsmönnum ís- raelska hersins svo þeir myndu frekar verða fyrir skotum en þeir. „Þeir létu okkur fara á undan þeim þannig að ef einhver skyti á þá myndu kúlurn- ar fara í okkur en ekki þá,“ segir einn af bræðrunum, hinn 14 ára gamli Al’a al-Attar. Ráðist á spítala The Guardian greinir einnig frá vitnisburði sjúkraliða og bílstjóra sjúkrabíla sem segja að þeir hafi orð- ið fyrir árásum Ísraelsmanna þegar þeir reyndu að hjálpa þeim Palestínu- mönnum sem slasast höfðu í árásun- um, en 16 heilbrigðisstarfsmenn féllu í innrásinni. Samkvæmt Alþjóða- heilbrigðisstofnuninni urðu meira en helmingur af þeim 60 sjúkrahús- um sem eru á Gaza-svæðinu fyrir skemmdum í sprengjuárásum Ísra- elsmanna. Ísraelski herinn hefur gefið út yf- irlýsingar þar sem því er vísað á bug að herinn hafi framið stríðsglæpi í árásinni en herinn heldur því fram að alþjóðalögum hafi verið framfylgt í hvívetna. Ísraelsher verði rannsakaður Mannréttindasamtökum, þar á meðal Amnesty International, ber hins vegar saman um að Ísraelsher hafi framið megnið af glæpunum sem framdir voru í innrásinni. Að þeirra mati var innrásin á Gaza alltof harkaleg viðbrögð við eldflaugaárás- um Hamas-samtakanna á Ísrael sem leiddu til innrásarinnar á Gaza. Frá árinu 2002 hefur 21 Ísraelsmaður látið lífið í eldflaugaárásum Hamas-sam- takanna en um 1400 Palestínumenn létu lífið á rúmlega 20 dögum í innrás Ísraelsmanna, eins og áður segir. Donatella Rovera, hjá Amne- sty International, sem rannsakaði meinta stríðsglæpi Ísaraelsmanna um tveggja vikna skeið, segir að ein- göngu rannsókn á vegum öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna geti tryggt samvinnu Ísraelsstjórnar við rann- sókn málsins og að einhver verði ákærður fyrir glæpina. „Án almenni- legrar rannsóknar verður ekkert sem fyrirbyggir að slíkt endurtaki sig. Skilaboðin verða þau sömu: Það er allt í lagi að gera þetta, afleiðingarnar af því verða engar.“ Heimildarmyndirnar þrjár um meinta stríðsglæpi Ísraelsmanna í innrásinni má sjá á vefsíðu blaðsins, guardian.co.uk. „Þeir létu okkur fara á undan þeim þannig að ef einhver skyti á þá myndu kúlurnar fara í okkur en ekki þá.“ IngI F. VIlhjálmsson blaðamaður skrifar ingi@dv.is Þrýstingurinn eykst um 1400 Palest- ínumenn létu lífið í innrás Ísraelshers á gaza-svæðið fyrr á árinu, meðal annars 43 í sprengjuárás á skóla sem sameinuðu þjóðirnar ráku. Þrýstingur á sameinuðu þjóðirnar um að meintir glæpir Ísraelsmanna í innrásinni verði rannsakaðir hefur aukist verulega, meðal annars vegna umfjöllunar breska blaðsins The guardian. Selur meydóm- inn á netinu Hin átján ára gamla Alina Per- cea frá Caracal í Rúmeníu hefur ákveðið að selja meydóm sinn á veraldarvefnum til hæstbjóð- anda. Hún vonast til að geta fengið rúmar 7,5 milljónir króna en þegar þrír dagar eru eftir af uppboðinu stendur hæsta boðið í 750 þúsund krónum. „Ég er 54 kíló, 1,72 á hæð, brúneygð stúlka frá Rúmeníu. Ég reyki ekki og ég á staðfestingu frá kvensjúk- dómalækni um að ég sé enn hrein mey. Ég vil að fyrsta skipt- ið mitt verði sérstakt og ekki of snubbótt,“ segir Percea í aug- lýsingunni sem birt er á þýskri stefnumótasíðu. Rekinn fyrir vindgang Fimmtán ára piltur frá Polk- sýslu í Flórída má ekki ferðast með skólarútu skólans í þrjá daga eftir að hafa leyst vind í rútunni. Frá þessu greinir AP-fréttastofan. Í bréfi sem bílstjórinn rit- aði foreldrum hans kemur fram að pilturinn hafi leyst vind til að koma öðrum börn- um til að hlæja. Þá hafi hann skapað svo vonda lykt að bíl- stjórinn hafi átt erfitt um vik með að anda. Skólayfirvöld í Polk-sýslu segja að engin lög beinlínis banni vindgang fólks, en til séu lög gegn því að valda óspektum í rútunni. Unglingurinn sem var gerður brottrækur úr rútunni segist vera alsaklaus. Milljónir til höf- uðs glæpafor Mexíkósk yfirvöld hafa heitið milljónum dala fyrir upplýsingar sem geta leitt til handtöku eftir- sóttustu glæpamanna landsins. Um er að ræða 24 einstaklinga og hafa stjórnvöld heitið tveimur milljónum dala, eða 220 milljón- um króna, fyrir upplýsingar sem leiða til handtöku hvers og eins. Á meðal þeirra glæpamanna sem yfirvöld leggja áherslu á að koma lögum yfir er Joaquin „el Chapo“ Guzman sem er leið- togi Sinaloa-glæpasamtakanna. Hann er á lista Forbes-tímarits- ins yfir ríkustu menn í heimi en auð sinn má að stóru leyti að rekja til viðskipta með fíkniefni. Býr enn hjá mömmu Hinn 25 ára gamli Mart- in Gruber, sem nýlega var kjörinn bæjarstjóri Kappel am Krappfeld í Austurríki, er að öllum líkindum yngsti bæjarstjóri Evrópu. Hann er sonur bændafólks og býr enn heima hjá mömmu sinni og deilir herbergi með litla bróður sínum. Kappel am Krappfeld er smábær í suð- urhluta Austurríkis en íbúar þar eru einungis rúmlega tvö þúsund talsins. Gruber var kjörinn bæjarstjóri fyrr í þessum mánuði en hann seg- ir að nú sé kominn tími til að fljúga burt úr hreiðrinu. „Ég mun flytja út vegna þess að það lítur ekki vel út fyrir bæ- inn ef móðir bæjarstjórans lætur hann hafa nesti með í vinnuna og þvær þvottinn fyrir hann,“ segir hann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.