Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2009, Qupperneq 14
Svarthöfði er svo góð sál og laus við rætni að honum sortnaði fyrir augum um daginn þeg-ar hann las minningargrein
refsinornarinnar Kolbrúnar Berg-
þórsdóttur um Frjálslynda flokkinn.
Auðvitað hefur það ekki farið fram hjá
neinum að þessi litli gremjuflokkur
sem spratt fullskapaður út úr haus-
num á Sverri Hermannssyni hefur átt
bágt undanfarin misseri en heldur
þótti nú Svarthöfða það ómaklegt af
Kolbrúnu að fagna dauða flokksins
á meðan enn bærðist pirrað lífsmark
með honum.
Svarthöfði hefur líka mikið álit á formanni flokksins honum Guðjóni Arnari enda fer ekki á milli mála að sá maður sem
tekur opnum örmum öllum þeim
villuráfandi pólitísku sauðum sem
fyllt hafa Frjálslynda flokkinn er með
stórt hjarta. Þessi góðmennska og
meðvirkni Guðjóns Arnars er þó því
miður að verða til þess að dómsdags-
spá eiturtungunnar
í Hádegismóum
er að rætast.
Aumingja
Addi Kitta
Gau gerði
þau mis-
tök að
hleypa
öllum í
flokkinn
en
hægt er að ganga að því gefnu að
Sverrir, forveri hans, hefði sagt ein-
hverjum ólátabelgjanna að vera úti og
éta óðs manns skít. Þessi farsæli skip-
stjóri frá Vestfjörðum sigldi létt milli
skers og báru á sjómannsárunum og
hafði stjórn á alls kyns liði í áhöfnum
sínum en hefur í landi ekki fengið við
neitt ráðið og undir hans stjórn hefur
Frjálslyndi flokkurinn breyst í lítið Tit-
anic sem steytir á hverju smáskerinu á
fætur öðru á leið sinni á botninn.
Þetta gat samt ekki annað en endað með ósköpum enda er sá stjórnmálaforingi sem safnar að sér öllu leiðinleg-
asta fólki landsins eiginlega í sjálfs-
morðsleiðangri. Þegar maður er með
Kristin H. Gunnarsson, Jón Magnús-
son, Ásgerði Jónu Flosadóttur, Sturlu
vörubílstjóra, Eirík Stefánsson, Magn-
ús Þór Hafsteinsson, Sigurjón Þórð-
arson, Grétar Mar Jónsson og jafnvel
stundum Ólaf F. Magnússon innan-
borðs blossa óhjákvæmilega nokkrar
uppreisnir upp á dag og siglingin get-
ur ekki endað með öðru en stórfeng-
legu skipbroti.
Guðjón Arnar er samt topp-maður og Svarthöfði vonar að hann sjái sér þann kost vænstan að stökkva frá
borði og synda einn síns liðs inn á
þing eina ferðina enn á meðan allir
hælbítarnir sogast niður með flakinu
af hinni löskuðu freygátu Sverris Her-
mannssonar.
Rætið lið, eins og það sem skrifar stundum í Moggann, er víst til þess að reyna að hengja allan uppreisnarskríl-
inn á blessaðan kafteininn og reyna
að gera hann ábyrgan fyrir öllu bull-
inu með því að nudda honum upp
úr málsháttum eins og „sýndu mér
hverjir eru vinir þínir og ég skal segja
þér hver þú ert“. Slíkur spuni er þó
ekki heiðarlegur vegna þess að foring-
inn á ekkert sameiginlegt með þeim
sem hafa stundað skemmdarverkin á
fleyinu með því að losa botnlokurnar.
Hann er ekki einu sinni lengur í sama
stjórnmálaflokki og verstu óhemjurn-
ar. Aflaklónni gömlu hlýtur samt að
vera það áhyggjuefni að henni tekst
ekki einu sinni að halda leiðinlegasta
fólki landsins með sér í liði.
Íslenskir kakkalakkar
Komið er á daginn hvers vegna ís-lenskum ráðamönnum er svona mikið í mun að tryggja að upplýs-ingar komist ekki upp á yfirborð-
ið. Þeir hafa eitthvað að fela.
Fréttaflutningur Ríkisútvarpsins af fjár-
framlögum til stjórnmálaflokka sýnir að
Sjálfstæðisflokkurinn hefur meðal annars
fengið veglega fjárstyrki frá fyrirtækjum í rík-
iseigu og stripprekstri. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur barist markvisst gegn því að upplýsing-
ar um fjárframlög til stjórnmálaflokka verði
opinberar. Nú vitum við hvers vegna.
Upplýsingar um einkavæðingu bankanna
hafa verið óaðgengilegar blaðamönnum og
almenningi, þar til Morgunblaðið fékk þær á
dögunum. Nú vitum við ástæðuna. Einhvern
veginn fór einkavæðingin þannig að Búnað-
arbankinn komst í hendurnar á valdablokk
innan Framsóknarflokksins, þess hins sama
og var í ríkisstjórn. Leyndin var réttlætt með
því að hagur fyrirtækjanna lægi við. En það
er fyrst og fremst hagur spilltra fyrirtækja
að viðhalda leyndarhjúp um samskiptin við
stjórnmálamenn.
Í valdatíð Sjálfstæðisflokksins var útilok-
að að fyrrnefndar upplýsingar rötuðu upp á
yfirborðið. Ráðamenn í flokknum lögðu sig
fram um að hindra að upplýsingar kæmust
til almennings. Ástæðan fyrir slíku háttalagi
ráðamanna er yfirleitt að þeir hafa eitthvað
að fela, eins og í þessu tilfelli.
Það er kominn tími til að horfast í augu
við að Íslendingar eru fórnarlömb spilltra
manna. Það var pólitísk og síðar viðskiptaleg
spilling sem leiddi til hruns íslenska efna-
hagslífsins. Ef ekki hefði verið fyrir spilling-
una og siðleysið hefðu réttar upplýsingar
komið upp á yfirborðið og íslensku bönkun-
um hefði aldrei verið leyft að skuldsetja þjóð-
ina með þeim hætti sem þeir gerðu.
Íslenskir blaðamenn eru vanir því að
reka sig á veggi þegar þeir leita upplýsinga
um aðgerðir hins opinbera. Þeir eru jafn-
vel beittir refsingum fyrir að birta upplýs-
ingar. Blaðamaður Vikunnar sem kaus að
fela ekki frásögn súludansara af Goldfinger
var nýlega dæmdur til að greiða um millj-
ón króna fyrir að ritskoða
ekki frásögn dansar-
ans af reynslu sinni
af staðnum. Í stað
þess að kerfið
brygð-
ist við
með því að
rannsaka frásögn
dansarans greip
það til aðgerða til
að banna slíkar
frásagnir.
Spilling er
eins og kakka-
lakkar. Hún
sækir í myrk-
ur. Stjórnmála-
menn sem slökkva
ljósin í samfélag-
inu bera jafnmikla
ábyrgð á spilling-
unni og þeir sem
iðka hana.
Spilling er eins og kakkalakkar. Hún sækir í myrkur.
miðvikudagur 25. mars 200914 Umræða
Óvinafagnaður
svarthöfði
spurningin
„Já, við erum báðir
ljóshærðir. En ég er
ekki frá því að
hann sé
huggulegri í útliti
en ég þó ég voni
nú að innræti mitt
sé betra en hans,“
segir Helgi
Seljan
sjónvarpsmaður
sem leikur ofbeldistudda sem heitir
manni volgu í kvikmyndinni rokland
sem gerð er eftir samnefndri
skáldsögu Hallgríms Helgasonar.
Eruð þið Manni
volgu líkir, HElgi?
sandkorn
n Hannes Hólmsteinn Gissur-
arson prófessor er snarbrattur
þrátt fyrir skipbrot hugmynda-
fræði hans. Í
miðju hrun-
inu hamrar
hann á því
að ástand-
ið sé vegna
slæmra
kapítalista
en ekki
kapítal-
isma. Hannes Hólmsteinn sat,
merkilegt nokk, í bankaráði
Seðlabankans um árabil og svaf
væntanlega á verðinum eins
og aðrir. Þessa dagana er hann
bókstaflega heltekinn af norska
seðlabankastjóranum Svein
Harald Øygard sem hann kallar
„fjallamann“ sem sé ákvörðun-
arfælinn og taugaóstyrkur.
n Sjálfstæðisflokkurinn fann sig
tilneyddan til að endurgreiða
Neyðarlínunni 300 þúsund
kall sem sá dyggi flokkshestur
Þórhallur Ólafsson, fyrrverandi
aðstoðarmaður Þorsteins Páls-
sonar, reiddi af hendi fyrir hönd
ríkisfyrirtækisins. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur áður endur-
greitt styrki en það var þegar
óvinur flokksins, Jón Ólafsson
athafna-
maður,
laumaði um
aldamót-
in inn styrk
í gegnum
sjálfstæðis-
félagið á Ak-
ureyri. Þegar
upplýst var
um það lét Kjartan Gunnarsson,
þáverandi framkvæmdastjóri,
endurgreiða Jóni bæjó.
n Skagamenn eru óhressir með
niðurstöður í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins þar sem þeirra menn
náðu vart á blað. Vestfirðingar
eiga þrjá af fjórum efstu mönn-
um þar sem Einar K. Guðfinns-
son, Eyrún Sigþórsdóttir og
Birna Lárusdóttir raða sér í ann-
að til fjórða sæti. Aðeins Vest-
lendingurinn Ásbjörn Óttarsson
frá Rifi náði inn en hann skaust
að vísu upp fyrir Einar K. Eftir
situr að Akranes, stærsti byggða-
kjarninn, og allt Norðurland
vestra eru án þingmannaefna.
n En það eru ekki allir Vest-
firðingar sáttir við sín örlög í
prófkjörum. Flokkaflakkarinn
Kristinn H. Gunnarsson sér
væntan-
lega fram á
endalok síns
pólitíska
ferils eftir að
hann lenti í
frjálsu falli
í prófkjöri
Framsókn-
arflokks-
ins. Orðrómur er reyndar uppi
um að dagana eftir að Kristinn
yfirgaf Frjálslynda flokkinn hafi
hann boðið Sjálfstæðisflokknum
krafta sína en það hafi ekki verið
þegið. Þá hafi hann boðist til að
fara í framboð fyrir Samfylkingu
en ekki uppskorið áhuga. Þá
hafi hann nauðlent í Framsókn
með þeim afleiðingum að vera
sleginn af.
LyngHáLs 5, 110 reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur Helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Ég hef aldrei á 25 ára
starfsferli mínum séð jafn
lélegt og illa skrifað plagg.“
n Sigurður Einarsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Kaupþings, um trúnaðarskjal
frá Seðlabankanum sem birtist nýlega og segir að
ráðamenn hafi vitað um hættuna í febrúar í fyrra.
- DV
„Ný viðmið í
fantabrögðum
og ofbeldi.“
n Helgi Seljan um ógæfu- og
ofbeldismanninn Manna Volgu sem hann leikur í
myndinni Rokland. Helga hefur alltaf langað til
þess að vera leikari. - DV
„Mér finnst að það eigi að
senda alla á
Alþingi á dans-
námskeið.“
n Samúel Jón Samúelsson,
kenndur við sveitina Jagúar. Hann
dansar afródans af kappi og er handviss um að
heimurinn myndi batna ef alþingismenn
Íslendinga fylgdu hans fordæmi. - DV
„Líklegt er talið að hún sé
veik á geði haldi í raun að
hún sé Hallgerður Lang-
brók.“
n Egill Einarsson oft nefndur Störe í
fréttatilkynningu sem hann sendi frá sér á
heimasíðu sinni. Þar varar hann við konu sem
hann nefnir „Yrsu“ sem gengur um bæinn og
kallar snyrtingu kynfæra „tísku“. - gillz.is
„Ég er gagnkyn-
hneigður.“
n Baldvin Vigfússon, kærasti
Vals Einarssonar sem er á leið í
kynskiptaaðgerð. Baldvin hefur
alla tíð litið á Val, eða Völu öllu heldur, sem
stelpu. - Stöð 2
Leiðari
JÓn TrausTi rEynisson riTsTJÓri skrifar.
bókstafLega