Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2009, Page 16
miðvikudagur 25. mars 200916 Ættfræði
Elínbjörg Magnúsdóttir
fiskverkakona og varaborgarfulltrúi
Elínbjörg fæddist í Stykkishólmi en
ólst upp í Belgsholti í Melasveit. Hún
lauk gagnfræðaprófi frá Héraðsskól-
anum í Reykholti 1966.
Elínbjörg vann hjá ÍAV í Hvalfirði
1966-68, hjá Ísal í Straumsvík 1968-
71, hjá Hval hf. í Hvalfirði 1972-79
og hjá Íslenska járnblendifélaginu
1979-81. Hún vann síðan í frystihúsi
1982-98, fyrst hjá Heimaskaga hf. og
síðan hjá Haraldi Böðvarssyni hf.
eftir að fyrirtækin voru sameinuð,
starfaði hjá Verkalýðsfélagi Akraness
1998-2003 og hefur starfað hjá HB
Granda í Reykjavík frá 2003 og jafn-
framt á Grund frá 2007.
Elínbjörg hóf snemma afskipti
af verkalýðsmálum, var formaður
fiskvinnsludeildar Verkalýðsfélags
Akraness í nokkur ár og sat í stjórn
félagsins, var varaformaður Verka-
lýðsfélags Akraness og varaformað-
ur Fiskvinnsludeildar VMSÍ, hefur
setið í stjórn Fiskifélags Íslands og
er fyrsta konan sem sat Fiskiþing, og
hefur átt sæti í fjölda nefnda og ráða
á vegum verkalýðshreyfingarinn-
ar þar sem hún hefur einkum sinnt
starfsmenntamálum og átti sæti í
starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar.
Elínbjörg var varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins á Vesturlandi
1991-94, sat í Bæjarstjón Akraness
fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1994-2002,
sat í atvinnumálanefnd bæjarins og
í stjórn heilbrigðisnefndar Vestur-
lands, sat í stjórn Körfuknattleiksfé-
lags Akraness og er félagi í ÍA-vinum,
situr í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
frá 1997 en hún fékk flest atkvæði í
miðstjórn flokksins á þeim lands-
fundi, situr í stjórn Óðins, er vara-
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík frá 2006, situr í heilbrigð-
isnefnd og er varamaður í mennta-
ráði og velferrðarráði Reykjavíkur-
borgar.
Fjölskylda
Dóttir Elínbjargar er Anna Elín
Daníelsdóttir, f. 9.1. 1972, húsmóð-
ir í Reykjavík, gift Sigursteini Davíð
Gíslasyni, starfsmanni Eimskips og
þjálfara meistaraflokks Leiknis, en
þau eiga þrjú börn.
Systkini Elínbjargar eru Sigur-
björn Ólafur, f. 10.6 1946, bifreiða-
stjóri á Akranesi; Mjallhvít Guðrún,
f. 18.7. 1947, matráðskona í Hvera-
gerði; Þuríður Maggý, f. 20.3. 1950,
félagsráðgjafi á Reykjalundi í Mos-
fellsbæ; Anna Pálína, f. 7.11. 1951,
starfsstúlka á Akranesi; Haraldur
Magnús, f. 21.7. 1953, bóndi í Belgs-
holti; Þorvarður Breiðfjörð, f. 11.6.
1955, sölumaður hjá B&L; Friðrik
Þórir, f. 22.8. 1956, sjómaður og út-
gerðamaður á Akranesi.
Foreldrar Elínbjargar: Magnús
Ólafsson, f. 4.6. 1918, d. 30.8. 1996,
og Anna Ingibjörg Þorvarðardótt-
ir, f. 2.9. 1925, bændur í Belgsholti í
Melasveit frá 1950.
Ætt
Magnús var sonur Ólafs, b. á Þóris-
stöðum í Svíndal Magnússonar, b. í
Eyjum í Kjós Ólafssonar, b. á Vatns-
enda Ólafssonar.
Móðir Magnúsar var Guðrún Ól-
afsdóttir, b. í Leirvogstungu Ólafs-
sonar. Móðir Ólafs á Þórisstöðum
var María Margrét Jónsdóttir, b. í
Lambhaga Jónssonar, og Margrétar
Sveinsdóttur. Móðir Magnúsar var
Þuríður, systir Sigurðar, afa Ólafs
Guðmundssonar, aðstoðarforstjóra
Rannsóknarstofnunar landbún-
aðarins. Þuríður var dóttir Guðna,
hreppstjóra í Eyjum Guðnasonar, b.
í Eyjahóli Jónssonar. Móðir Guðna
var Guðrún Gísladóttir. Móðir Þur-
íðar var Guðrún, systir Þórarins,
langafa dr. Guðna Georgs Sigurðs-
sonar eðlisfræðings. Annar bróðir
Guðrúnar var Þórður, afi Péturs Þórs
Ingjaldssonar, fyrrv. prófasts á Hös-
kuldsstöðum, föður viðskiptafræð-
inganna Jóns Halls, og Péturs Ingj-
alds framkvæmdastjóra. Guðrún var
dóttir Ingjalds, b. í Eyjum Ingjalds-
sonar, og Guðrúnar Grímsdóttur.
Anna Ingibjörg er dóttir Þorvarð-
ar, fiskmatsmanns í Stykkishólmi,
bróður Sigfúsar, föður Friðriks, fyrrv.
yfirtollstjóra í Keflavík. Þorvarður var
sonur Einars, b. í Blönduhlíð Guð-
mundssonar, b. í Dunki Guðmunds-
sonar. Móðir Einars var Kristín Ein-
arsdóttir. Móðir Þorvarðs var Björg,
hálfsystir Sigurðar Skjaldbergs, stór-
kaupmanns í Reykjavík, og hálfsyst-
ir Hjartar, föður Guðmundar seðla-
bankastjóra og Önnu Pálmeyjar,
ömmu Margrétar Frímannsdótt-
ur, forstöðumanns á Litla-Hrauni.
Björg var dóttir Þorvarðs, hrepp-
stjóra á Leikskálum í Dölum Berg-
þórssonar, b. þar Þorvarðssonar, b.
þar Bergþórssonar, b. þar Þorvarðs-
sonar, bróður Finns, langafa Guð-
laugar, langömmu Jóhannesar úr
Kötlum. Móðir Bjargar var Kristín
Jónasdóttir, b. á Innra-Leiti á Skóg-
arströnd Þorsteinsonar.
Móðir Önnu Ingibjargar var Elín-
björg Jónasdóttir, b. á Kársstöðum í
Helgafellssveit Márussonar, b. á Haf-
ursstöðum Márussonar, b. í Kirkju-
skógi Marteinssonar.
Gunnar fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Garðabænum. Hann var í
Barnaskóla Garðahrepps, Gagn-
fræðaskóla Garðahrepps, lauk
stúdentsprófi frá Flensborg í Hafn-
arfirði og lauk prófi í viðskipta-
fræði við Viðskiptafræðideild HÍ.
Gunnar starfaði hjá hagdeild
Hafskips 1985-86, var fjármála-
stjóri Globus 1986-95 og hefur ver-
ið fjármálastjóri Vélavers frá 1995.
Gunnar starfar í Oddfellow-
stúkunni Bjarni riddari í Hafnar-
firði.
Fjölskylda
Eiginkona Gunnars er Sigurborg
Hrönn Sævaldsdóttir, f. 12.12.
1958, grunnskólakennari við Hval-
eyrarskóla.
Börn Gunnars og Sigurborg-
ar Hrannar eru Sævaldur Arn-
ar Gunnarsson, f. 4.6. 1983; Þóra
Kristín Gunnarsdóttir, f. 26.2.
1985; Lilja Hrönn Gunnnarsdóttir,
f. 22.11. 1996.
Hálfbróðir Gunnars, samfeðra,
er Sigurður Ingi Geirsson, f. 24.11.
1953, verkfræðingur hjá Sjóvá.
Alsystkini Gunnars eru Krist-
jana Geirsdóttir, f. 17.12. 1955,
verktaki; Arna Guðrún, f. 16.6.
1963, þjónustufulltrúi hjá Vistor.
Foreldrar Gunnars: Geir Ólafur
Oddsson, f. 7.1. 1931, húsasmíða-
meistari, og Hervör Karlsdóttir, f.
29.10. 1934, húsmóðir.
Hrafnhildur fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Kópavogi. Hún lauk grunn-
skólaprófi frá Snælandsskóla 1995,
útskrifaðist frá MK af skrifstofubraut
1998, og af hagfræðibraut 2000, út-
skrifaðist sem snyrtifræðingur frá
Snyrtiskólanum í Kópavogi 2003 og
lauk prófum sem nuddari frá Nudd-
skóla Íslands vorið 2004.
Hrafnhildur starfaði sjálfstætt við
veitingarekstur 1997-2002, starfaði
hjá Flugfélagi Íslands 2004-2006 en
er nú flugfreyja hjá Iceland Express.
Fjölskylda
Maður Hrafnhildar er Hafþór Aðal-
steinsson, f. 17.1. 1964, flugstjóri.
Bræður Hrafnhildar eru Halldór
Örn Magnússon, f. 25.3. 1982, flug-
maður, en kona hans er Sigurbjörg
Helga Gunnbjörnsdóttir, f. 31.10.
1976, byggingafræðingur; Hlynur
Már Magnússon, f. 2.12. 1989, stúd-
ent frá MK, en kona hans er Jóna
Sigríður Halldórsdóttir, f. 27.2. 1989,
nemi við MK.
Foreldrar Hrafnhildar eru Magn-
ús Gíslason, f. 11.6. 1957, fjármála-
stjóri, og Elín Kristinsdóttir, f. 1.10.
1957, húsmóðir.
Hrafnhildur verður að heiman á
afmælisdaginn.
Gunnar Þór Geirsson
fjármálastjóri vélavers
Hrafnhildur Ósk
Magnúsdóttir
flugfreyja
Eggert, í saltfiskvinnslunni Hafbliki
á Ólafsfirði, á ekki afmæli í dag.
Hann var hins vegar langt kominn
með að sprella illilega með starfsfé-
laga sinn, Heiðar Gunnólfsson, sem
er þrítugur í dag, vinnur hjá Haf-
bliki, vinnur við löndun hjá Ramma,
leikur með meistaraflokki KS Leift-
urs og er vallarstjóri golfvallar Golf-
klúbbs Ólafsfjarðar.
Eggert tók sig til og laug því að
blaðamanni DV að hann væri stóri
bróðir Heiðars og væri búinn að
skipuleggja stóra veislu í Húsi eldri
borgara á Ólafsfirði. Þar yrði opið
hús annað kvöld með léttum veit-
ingum en Heiðar vissi bara ekki af
því. Það ætti að koma á óvart.
Staðreyndin er hins vegar sú að
Eggert er ekki stóri bróðir Heiðars
og hefur ekki verið að skipuleggja
veislu fyrir hann enda verður engin
veisla í Húsi eldri borgara. Heiðar og
kona hans, Júlía, sem starfar í Kaup-
félaginu, eyða hins vegar kvöldinu,
ásamt vinum sínum, William og
konu hans, með rólegum afmælis-
kvöldverði.
Heiðar komast á snoðir um
sprellið og tókst að uppræta það á
síðustu stundu. En verður ekki Egg-
ert boðið í kvöldverðinn?
„Nei, ætli hann hafi unnið til
þess?“ segir Heiðar sem er ekki
skemmt. „En æ sér gjöf til gjalda.
Eggert á nefnilega afmæli í apríl. Ég
ætla að auglýsa það afmæli rækilega
í DV. Líklega verður Eggert með opið
hús á KEA á Akureyri og borgar sjálf-
ur sætaferðir frá Ólafsfirði og Dalvík.
Elton John mun leika fyrir dansi og
svo verður flugeldasýning um mið-
nættið. Hér eftir eiga afmæli Eggerts
eftir að verða afmæli aldarinnar hér
á Norðurlandi, sannaðu til.“
50 ára í dag 30 ára í dag
Heiðar á Ólafsfirði er þrítugur í dag:
afmælissprellið sem mistókst
30 ára
n Pavol Cekan Neshaga 7, Reykjavík
n Piotr Brzozowski Drekavöllum 20, Hafnarfjörður
n Svetlana Skirta Sjávargrund 10b, Garðabær
n Arnar Þór Jóhannesson Vanabyggð 2h, Akureyri
n Sif Sverrisdóttir Klettaborg 14, Akureyri
n Björg Jóhannesdóttir Hjallabraut 43, Hafnar-
fjörður
n Stefán Sverrir Hallgrímsson Heiðarholti 12d,
Reykjanesbær
n Ketill Árni Ketilsson Nesvegi 46, Reykjavík
n Jónas Árni Lúðvíksson Laugarnesvegi 106,
Reykjavík
n Dröfn Harðardóttir Gvendargeisla 17, Reykjavík
n Jóhannes Davíð Hreinsson Staðarhrauni 45,
Grindavík
40 ára
n Claudia Dobra Frostafold 6, Reykjavík
n Hrund Rudolfsdóttir Drekavogi 14, Reykjavík
n Sigrún Sveinsdóttir Birkigrund 5, Selfoss
n Gunnar Guðmundsson Drekavöllum 12, Hafn-
arfjörður
n Lilja Dís Guðbergsdóttir Hraunbergi 5, Reykjavík
n Árni Baldur Ólafsson Eyjahrauni 20, Þorlákshöfn
n Guðlaug Ólafsdóttir Álfatúni 12, Kópavogur
n Guðjón Guðmundsson Arnarási 8, Garðabær
50 ára
n Malgorzata Maria Bystrek Hlíðarvegi 40, Kópa-
vogur
n Sigurlín Rósa Óskarsdóttir Gnoðarvogi 88,
Reykjavík
n Bryndís Guðmundsdóttir Kópubraut 34, Njarðvík
n Hafþór Svendsen Viðarrima 16, Reykjavík
n Páll Ólafsson Dofrabergi 23, Hafnarfjörður
n Magnús Guðjónsson Miðstræti 23, Neskaupstaður
n Friðjón Guðmundsson Hallsstöðum, Búðardalur
n Skúli Theodór Haraldsson Álfaskeiði 92, Hafn-
arfjörður
n Halldór Þorgeir Jónatansson Engimýri 8,
Garðabær
n Böðvar Hrólfsson Áslandi 22a, Mosfellsbær
n Pétur Sævar Jóhannsson Áshamri 43, Vest-
mannaeyjar
n Haraldur Steinn Rúriksson Klyfjaseli 7, Reykjavík
n Sveinbjörn Lárusson Brekkutanga 22, Mosfellsbær
n Leyla Eve Gharavi Dalalandi 11, Reykjavík
n Deirdre Anne Kresfelder Blómsturvöllum 36,
Neskaupstaður
60 ára
n Jón Gauti Kristjánsson Stigahlíð 8, Reykjavík
n Jóna Jenny K Waage Reykjavegi 52, Mosfellsbær
n Svanlaug Halldórs Árnadóttir Berjarima 4,
Reykjavík
n Oddur Jónas Eggertsson Hlynsölum 5, Kópavogur
n Kristbjörg Helgadóttir Bleiksárhlíð 37, Eskifjörður
70 ára
n Björn Þórðarson Lóulandi 9, Garður
n Halldór Guðmundsson Aðalstræti 28, Akureyri
n Friðjón Pálsson Blómvangi 5, Hafnarfjörður
75 ára
n Samúel Alfreðsson Efra-Landi, Grindavík
n Ingunn Guðmundsdóttir Kjalarlandi 11, Reykjavík
80 ára
n Hedwig Elísabet Meyer Fljótaseli 8, Reykjavík
n Margrét Eiríksdóttir Nesbakka 6, Neskaupstaður
90 ára
n Samúel Jóhann Elíasson Torfnesi Hlíf 1, Ísafjörður
n Fjóla Aradóttir Hjarðarnesi, Höfn
n Ingibjörg Sigurjónsdóttir Skólabraut 3, Sel-
tjarnarnes
n Sigurbjörg Sigurðardóttir Skólastíg 14a, Stykk-
ishólmur
100 ára
n Margrét Halldórsdóttir Mánabraut 16, Þorláks-
höfn
Til
hamingju
með
afmælið!
60 ára í gær
Heiðar Gunnólfsson afmælisbarn
dagsins og starfsfélagi Eggerts sem
á það til að fara með rangt mál.