Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2009, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2009, Qupperneq 17
xxx xxSport Brasilíski snillingurinn Robinho hef- ur hótað samlanda sínum, knatt- spyrnuhetjunni Pelé, lögsókn taki hann ekki til baka eiturlyfjaummæl- in um Robinho. Pelé sagði í viðtali á dögunum að Robinho og Ronaldo hinn brasilíski hefðu neytt eiturlyfja í einkateiti í Sao Paulo. „Það er ósann- gjarnt að tala um eiturlyf í fótbolta út af einu eða tveimur atvikum eins og hjá Ronaldo og Robinho sem eiga við þetta vandamál að stríða,“ sagði Pelé meðal annars. Hann skaut líka föstum skotum á Maradona og sagði hina fornu argentísku stjörnu vera slæma fyrirmynd. „Hann var frábær leikmaður en því miður hafa allir séð hvað hann gerði síðan við líf sitt,“ sagði Pelé um Maradona en sá brasilíski hefur alltaf haft horn í síðu Maradona og ósjald- an lýst yfir óánægju sinni með hann og það sem Maradona stendur fyrir. Talsmenn Robinhos þræta fyrir um- mælin og segja þau ekki eiga rétt á sér. Þeir vilja að Pelé útskýri þau frek- ar annars fari þeir í mál við hann. „Við krefjumst formlegs svars frá Pelé, það er ef ummæli hans voru ekki rangtúlkuð af brasilískum fjöl- miðlum. Ef Pelé stígur ekki fram og gerir grein fyrir sínum orðum verð- ur hann að svara fyrir þau fyrir rétti. Robinho er vonsvikinn og svekktur út í Pelé sem virðist hafa gleymt að hann er goðsögn í lifanda lífi,“ segir í yfirlýsingu á opinberri heimasíðu Robinhos. tomas@dv.is Allt vitlaust í Brasilíu vegna eiturlyfjaummæla Pelés: Robinho hótaR lögsókn king fóR heim Varnarmaðurinn hjá Tottenham Ledley King verður ekki með enska landsliðinu í leikjunum gegn Slóvakíu og Úkraínu en hann yfirgaf herbúðir landsliðsins í gær. Uppþot varð hjá Tottenham þegar kom í ljós að Fabio Capello hefði valið King sem á við krónísk hnémeiðsli að stríða, æfir aldrei heldur spilar bara leiki. Læknar enska landsliðsins skoðuðu King og sendu hann heim í kjölfarið. Eitthvað sem Harry Redknapp, stjóri Tottenham, gleðst væntanlega mikið yfir. „Báðir aðilar voru sammála um að það hentaði leikmanninum best að halda áfram að sinna sínum æfingum hjá sínu félagi,“ sögðu forsvarsmenn landsliðsins í gær. buRley missiR þRjá menn Það var eins gott fyrir George Burley, landsliðsþjálfara Skotlands í knattspyrnu, að velja tuttugu og sex manna landsliðshóp en nú þegar hafa þrír leikmenn þurft að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. Varnarmennirnir David Weir og Kirk Broadfoot drógu sig út úr hópnum ásamt vængmanninum Kris Commons. Breiðfótur skoraði einmitt þegar Ísland og Skotland mættust á Laugardalsvellinum í haust. Tíðindin ert afar góð fyrir Íslendinga þar sem allir þessir menn eru lykilpóstar í liði Skotlands og eru að leika afar vel með sínum félagsliðum. fRiedel spilaR Ameríski markvörðurinn Brad Friedel mun leika gegn Manchester United eftir tvær vikur þegar enska úrvalsdeildin heldur áfram eftir landsleikjahlé. Rauða spjaldið sem hann fékk í leiknum gegn Liverpool var tekið til baka og því fer hann eðli- lega ekki í neitt bann. Spjaldið fékk hann fyrir að brjóta á Fernando Torres en af upptökum mátti glöggt sjá að Friedel gerði allt til að koma sér frá framherjanum. Liverpool var mun betri aðilinn í leiknum og sigraði, 5-0. Rauða spjaldið hafði því engin áhrif á úrslit leiksins en hefði getað haft mikil áhrif á næsta leik gegn United. UMSjón: TóMAS ÞóR ÞóRðARSon, tomas@dv.is / sport@dv.is „Við vorum með mörg járn í eldin- um. Fusche Berlín, Göppingen og Pick Szeged til dæmis. En svo fór of mikill tími í að sjá hvað myndi ger- ast í Þýskalandi. Fjárhagsumhverf- ið er bara þannig í Þýskalandi að maður vissi ekki hvað myndi ger- ast,“ segir handknattleiksmaður- inn Kári Kristján Kristjánsson sem í gær samdi til tveggja ára við sviss- nesku meistarana í ZMC �micitia. Hann heldur utan í júlí og mun setjast að í Zurich með fjölskyldu sinni. „�micitia sýndi mér mikinn áhuga og var ákveðið í að fá mig. Svo er samningurinn góður, land- ið fallegt og borgin góð þannig að það var ekkert annað í stöðunni en að kýla á þetta,“ segir Kári Kristján glaður. Fyrir utan að vera ríkjandi meistari í Sviss er �micitia efst í deildinni og komið í átta liða úrslit Evrópukeppni bikarhafa. Tekur við af „Lauknum“ Kára bíður krefjandi verkefni en hann mun þurfa að leysa af hólmi einn besta sóknarlínumann heims- ins í dag, Norðmanninn Frank Loke, sem yfirgefur væntanlega fé- lagið eftir tímabilið. Kári er með skemmtilegt viðurnefni á Loke. „Laukurinn [Loke] er væntanlega að fara til hans Gumma í GOG. Það verður svolítið fróðlegt fyrir mig og áskorun að taka við af Lauknum. Hann er náttúrulega besti sóknar- línumaður heims í dag en það er vonandi að þeir fái örlítið meira fyrir peninginn með mig því ég get spilað vörn fyrir þá. Laukurinn spil- ar enga vörn,“ segir Kári Kristján en auk Lokes er �micita með marga svissneska landsliðsmenn ásamt Þjóðverjum, slóvenskum lands- liðmönnum og Litháa í markinu. „Þetta er ruddalið,“ segir Kári. Bíður eftir að reima landsliðsskóna Kári Kristján hefur fengið fá tæki- færi með landsliðinu enda línu- stöðurnar í sókn og vörn afar vel mannaðar hjá íslenska landslið- inu. „Maður getur voða lítið sagt um þetta. Guðmundur þjálfari ræður þessu algjörlega en ég er alveg óþreyjufullur að fá að reima á mig landsliðsskóna og spreyta mig,“ segir Kári Kristján sem vill enda sitt lokatímabil á Íslandi með Íslandsmeistaratitli. „Við Haukarnir höfum verið á góðu skriði, unnið einhverja tólf eða þrettán leiki í röð og það hef- ur verið allt annað að sjá til liðs- ins eftir áramót. Svo gæti orðið mikil uppstokkun í Haukunum eftir tímabilið þannig að það er ekkert annað í boði en að kveðja bara með stæl,“ segir Kári Kristján Kristjánsson. Tekur við af „Lauknum“ Haukamaðurinn og Vestmannaeyingurinn Kári Kristján Kristjánsson samdi í gær við svissneska meistaraliðið ZMC Amicitia til tveggja ára. Þar leysir hann af hólmi einn albesta sóknarlínumann heims, Frank Loke, eða „Laukinn“. TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Sókn Kári er með betri sóknarmönnum landsins og er ávallt með frábæra nýtingu. MYND AME Ekki sáttur Robinho er vægast sagt óánægður með goðið sitt, Pelé. MYND GETTYiMAGES ameRíka getuR kennt liðunum um Engin keppni í Formúlu 1 fer fram í Bandaríkjunum eða Kanada og hefur ekki gert síðustu ár. Það geta löndin kennt liðunum í Formúlunni um, segir Bernie Ecclestone, einráður íþróttarinnar, en liðin vilja of mikinn pening fyrir að keppa þar. „Peningar voru vandamálið. Liðin vilja svo ævintýralega háar upphæðir fyrir að keppa í Bandaríkjunum,“ segir Ecclestone í viðtali við þýskt dagblað. nú þegar peningar eru ekki aðalatriðið í Formúlunni lengur vegna mikils niðurskurðar segir Ecclestone að hægt sé að snúa aftur til Bandaríkjanna hafi liðin áhuga á því. nú snýst þetta einungis um auglýsingar. „Við erum að ræða þetta en liðin vilja ekki fleiri en sautján keppn- ir,“ segir Ecclestone.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.