Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2009, Qupperneq 6
Þriðjudagur 5. maí 20096 Fréttir
TVEIR AUÐMENN ÍHUGA
SVISSNESKT RÍKISFANG
Samkvæmt heimildum DV hyggj-
ast Sigurður Einarsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Kaupþings banka,
og Ólafur Ólafsson í Samskipum
sækja um ríkisborgararétt í Sviss á
næstunni.
Í samtali við DV vill Sigurður að-
spurður ekki tjá sig um hvort þetta sé
rétt. „Ég tjái mig ekkert um það.“ Sig-
urður segir síðar í samtalinu að þetta
sé „tóm þvæla“.
Sigurður, sem dvalið hefur lang-
dvölum í Lundúnaborg frá banka-
hruninu í haust, segir hins vegar að
hugmyndin sé ekki galin. „Hins veg-
ar gæti þetta verið góð hugmynd.
Kannski ætti ég bara að kanna þetta,
þegar þú segir það,“ segir Sigurður.
Ólafur horfir einnig
á svissneskt ríkisfang
Heimildir DV herma einnig að Ól-
afur Ólafsson í Samskipum ætli sér
að sækja um svissneskt ríkisfang en
heimilisfang hans er skráð í Bret-
landi. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
hefur DV hins vegar ekki náð í Ólaf
eða konu hans, Ingibjörgu Kjartans-
dóttur, til að spyrja þau út í hvort þau
ætli að sækja um svissneskan ríkis-
borgararétt.
Ólafur og Ingibjörg eru stödd í
Sviss um þessar mundir og munu
þau vera alflutt þangað samkvæmt
heimildum DV. Þau yfirgáfu landið í
síðustu viku og er ekki búist við þeim
heim aftur fyrr en í sumar í fyrsta lagi.
Börn Ólafs og Ingibjargar sækja auk
þess skóla í Sviss.
Sigurður og Ólafur hafa löngum
verið nánir viðskiptafélagar og voru
meðal annars báðir nokkuð í eldlín-
unni í byrjun árs þegar upp komst
að Mohamed bin Khalifa Al-Thani
hefði keypt 5 prósenta hlut í Kaup-
þingi fyrir 22,5 milljarða nokkrum
dögum áður en bankinn var yfirtek-
inn af íslenska ríkinu. Féð sem not-
að var til kaupanna fékk Al-Thani að
láni frá Kaupþingi og eignarhaldsfé-
lagi í eigu eins stærsta hluthafa þess,
Ólafs Ólafssonar.
Sigurður situr auk þess í stjórn
velgerðarsjóðsins Auroru sem þau
hjónin Ólafur og Ingibjörgu settu á
laggirnar árið 2007.
Ört stækkandi hópur
Ef það reynist rétt að Sigurður og
Ólafur sæki um svissneskt ríkisfang
bætast þeir í ört stækkandi hóp fjár-
mála- og auðmanna sem hyggjast
yfirgefa Ísland með einum eða öðr-
um hætti. En í síðustu viku greindi
DV frá því að Halldór J. Kristjánsson,
fyrrverandi bankastjóri Landsbank-
ans, hygðist flytja burt frá Íslandi því
honum byðist ekki starf við hæfi hér
á landi. Jafnframt greindi DV frá því
að Magnús Þorsteinsson, fyrrverandi
kjölfestufjárfestir í Landsbankan-
um og stjórnarformaður Eimskips,
hefði skráð lögheimili sitt í Rúss-
landi stuttu eftir að gjaldþrotakrafa
Straums-Burðaráss gegn honum var
send til Héraðsdóms Norðurlands
eystra í byrjun mars.
Reynt að forðast gjaldþrot
Því er ljóst að nokkrir af þeim fjár-
mála- og auðmönnum sem hafa ver-
ið framarlega í viðskiptalífi landsins
á liðnum árum og hafa átt nokkuð
undir högg að sækja eftir efnahags-
hrunið ætla sér að vera mestmegn-
is annars staðar en á Íslandi á næstu
árum. Auk þess getur það komið sér
vel að vera skráður til heimilis í öðru
landi eða hafa ríkisborgararétt í öðru
landi.
Með því að skrá lögheimili sitt
eða sækja um ríkisborgararétt í öðru
landi geta þeir jafnframt hugsanlega
komið í veg fyrir að hægt verði að
sækja útistandandi skuldir þeirra fyr-
ir dómstólum hér heima, en Magnús
Þorsteinsson reyndi meðal annars
að sleppa við að vera keyrður í þrot
hér heima með því að skrá lögheimili
sitt í Rússlandi. Það gekk þó ekki eftir
hjá Magnúsi og var hann úrskurðað-
ur gjaldþrota í gær.
„Hins vegar gæti þetta
verið góð hugmynd.
Kannski ætti ég bara að
kanna þetta, þegar þú
segir það.“
IngI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Heimildir DV herma að sigurður Einarsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Kaupþings, og Ólafur Ólafsson í Sam-
skipum ætli sér að sækja um svissneskan ríkisborgara-
rétt á næstunni. Sigurður segir að það sé „þvæla“
að hann ætli sér að sækja um ríkisborgararétt í
Sviss en líst annars nokkuð vel á hugmyndina.
Margir af helstu auð- og fjármálamönnum
Íslands virðast hugsa um að segja end-
anlega skilið við landið.
neitar flutningum til sviss Sigurður
Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður
Kaupþings, segir að hann sé ekki að
fara að sækja um svissneskan ríkisborg-
ararétt líkt og heimildir dV herma.
horfir til meginlands Evrópu Ólafur Ólafs-
son í Samskipum mun einnig vera að velta því
fyrir sér hvort hann eigi að gerast svissneskur
ríkisborgari en fjölskylda hans býr nú í Sviss.
Útrásarvíkingurinn Pálmi Haralds-
son óskaði eftir því í lok síðustu viku
að félag hans Fons yrði tekið til gjald-
þrotaskipta. Eitt helsta afrek Fons var
að kaupa danska flugfélagið Sterl-
ing á fjóra milljarða króna og selja FL
Group það sex mánuðum síðar á 15
milljarða króna. Síðan keypti Fons aft-
ur Sterling af FL Group ári síðar á 20
milljarða króna. Skuldir Fons eru tald-
ar nema 20 milljörðum króna en eign-
ir eru meðal annars fjórir milljarðar í
handbæru fé.
Pálmi flutti til Íslands árið 1991 til
að taka við Sölufélagi garðyrkjumanna
sem þá stóð höllum fæti. Var hann á
þeim tíma að ljúka meistaranámi í
rekstrarhagfræði frá Gautaborgarhá-
skóla og var sérsvið hans í náminu
endurreisn gjaldþrota fyrirtækja. Hætti
hann við fyrirhugað doktorsnám til að
taka við sem framkvæmdastjóri Sölu-
félagsins. Eins og frægt er orðið var fé-
lag Pálma dæmt fyrir grænmetissam-
ráð árið 2001.
Nú má telja líklegt að 18 ára af-
skiptum Pálma af íslensku viðskipta-
lífi fari brátt að ljúka. Félag hans Feng-
ur sem rekur Iceland Express hefur
þó ekki verið úrskurðað gjaldþrota
en það hefur ekki skilað ársreikningi
í fjögur ár. Ekki liggur fyrir hvar Pálmi
ætlar að nýta sérsvið sitt frá Gauta-
borgarháskóla í endurreisn gjaldþrota
fyrirtækja á næstunni.
Fyrir rúmum átta mánuðum seldi
Fons eignir fyrir 100 milljarða króna.
Inni í því var sala á hlut félagsins í
Iceland-keðjunni í Bretlandi og var
hagnaður félagsins vegna þeirrar
sölu sagður vera 77 milljarðar króna.
Hluti af þessum viðskiptum var við
Stoðir sem greiddi meðal annars
Fons með 35 prósenta hlut sínum í
ferðafélaginu Northern Travel Hold-
ing (NTH). Helstu eignir NTH á þeim
tíma voru flugfélögin Sterling og Ice-
land Express. Við gjaldþrot Sterling
var NTH leyst upp og er Iceland Ex-
press nú undir félaginu Fengur eins
og áður var nefnt.
as@dv.is
Pálmi haraldsson er með meistarapróf í endurreisn gjaldþrota fyrirtækja:
Fons óskar eftir gjaldþrotaskiptum
Pálmi haraldsson Þrátt fyrir að vera með meistarapróf í endurreisn gjaldþrota
fyrirtækja þurfti hann að óska eftir gjaldþrotaskiptum Fons í síðustu viku.
50 tommu flat-
skjá stolið
Lögreglunni á Selfossi var til-
kynnt um níu þjófnaði í síðustu
viku. Evinrude-utanborðsmót-
or og 25 lítra bensíntanki var
stolið úr bátaskýli í Miðfelli við
Þingvallavatn.Brotist var inn í
sumarbústað við Lækjarbakka
í Grímsnesi og þaðan stolið 50
tommu flatskjá. Þá var DVD-
spilara stolið úr sumarbústað
í Vaðneslandi. Þrjú fyrirtæki á
Selfossi voru heimsótt af þjófum
sem höfðu lítið upp úr krafsinu.
Þá var brotist inn í tvær bifreið-
ar sem stóðu við Réttarheiði í
Hveragerði og af lóð í sömu götu
var stolið gaskút sem tengdur
var við útigrill.
Óskipað í
ráðningarnefnd
seðlabankastjóra
Forsætisráðherra hefur ekki enn
skipað þriggja manna nefnd
sem ætlað er að meta hæfni um-
sækjenda um stöðu seðlabanka-
stjóra og aðstoðarseðlabanka-
stjóra. Líklegt þykir að skipað
verði í nefndina í dag, en ljóst
var frá byrjun að ekki yrði skipað
í stöðu seðlabankastjóra fyrr en
eftir þingkosningarnar og ný rík-
isstjórn tæki við. Umsóknarfrest-
ur rann út 31. mars. Svein Har-
ald Öygård var settur í stöðuna
til bráðabirgða.
10 mánuðir
fyrir dópsmygl
Tvær belgískar konur, 25 og
31 árs, hafa verið dæmdar
í tíu mánaða fangelsi fyrir
smygl á 353 grömmum af
kókaíni til landsins. Konurnar
voru handteknar sunnudag-
inn 12. apríl og voru úrskurð-
aðar í gæsluvarðhald daginn
eftir. Konurnar játuðu báðar
brot sín en sögðust hafa verið
burðardýr en í dómnum segir
að þær hafi verið samvinnu-
þýðar við rannsókn málsins.
Önnur hafi meðal annars
bent á mynd hjá lögreglu af
þeim sem átti að hafa skipu-
lagt innflutninginn.
Engin svína-
flensa á Íslandi
Engin tilfelli svínainflúensu
hafa verið staðfest hér á landi
samkvæmt því sem fram kemur
í fréttatilkynningu frá sóttvarna-
lækni. Viðbúnaðarstig vegna
yfirvofandi heimsfaraldurs er
óbreytt hér á landi og er ekki
áformað að grípa til róttækari
aðgerða en þegar hefur verið
gert. Rétt er þó að minna á að hin
árlega inflúensa, sem gekk hér
í vetur, er enn í gangi á Íslandi
og hafa nokkur slík tilfelli verið
greind hér á síðustu dögum.