Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2009, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2009, Blaðsíða 8
Þriðjudagur 5. maí 20098 Fréttir Dómsmálaráðuneytið veitti Rúnari Þór Róbertssyni, meintum fíkniefnasmyglara, gjafsóknarleyfi í desember í fyrra til að höfða meiðyrðamál gegn fyrrverandi ritstjóra DV og blaðamanni DV. Málið höfðar hann vegna þess að hann var nefndur „kókaínsmyglari“ á forsíðu blaðsins. Rúnar er nú í gæslu- varðhaldi og er talinn einn af höfuðparunum í skútumálinu svokallaða. Björn Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra, vill ekkert tjá sig um málið. Dómsmálaráðuneytið veitti Rún- ari Þór Róbertssyni gjafsóknarleyfi 1. desember í fyrra til að höfða meið- yrðamál gegn Sigurjóni M. Egils- syni, fyrrverandi ritstjóra DV, og Erlu Hlynsdóttur, blaðamanni DV. Rúnar Þór krefst 2,5 milljóna króna í skaða- bætur og hefur gjafsóknarleyfið það í för með sér að hann fær greiddan málskostnað frá ríkinu þótt hann tapi málinu. Í raun og veru eru það því ís- lenskir skattgreiðendur sem greiða málsókn Rúnars. Meintur höfuðpaur í dópsmygli Rúnar Þór höfðar meiðyrðamál- ið vegna umfjöllunar DV í júlí árið 2007. Í blaðinu var fjallað um aðal- meðferð smyglmáls þar sem Rúnar Þór var sýknaður af ákæru um að hafa smyglað 3,8 kílóum af kókaíni í Mercedes Sprinter-bifreið sem flutt var inn frá Þýskalandi. Á umræddri forsíðu DV var Rúnar Þór nefnd- ur „kókaínsmyglari“ og í stefnu á hendur DV segir Rúnar Þór þessa nafngift, ásamt öðrum ummælum í greininni, hafa valdið sér miklu tjóni. Rúnar Þór er nú í gæsluvarð- haldi og er einn af sex sem grunað- ir eru í skútumálinu, einu stærsta fíkniefnasmyglmáli Íslandssögunn- ar. Þar er fimm Íslendingum ásamt Hollendingi gefið að sök að reyna að smygla 109 kílóum af fíkniefnum til landsins og er Rúnar Þór talinn einn af höfuðpaurunum í málinu. Þrátt fyrir það hefur lögmaður Rúnars Þórs, Þorsteinn Einarsson, hafnað því að meiðyrðamálið gegn fyrrverandi ritstjóra og blaðamanni DV verði fellt niður. Aðalmeðferð í málinu fer fram seinna í þessum mánuði og gjafsóknin stendur. Hægt að afturkalla gjafsókn Í reglugerð um skilyrði gjafsóknar og starfshætti gjafsóknarnefndar sem gefin er út 9. janúar á síðasta ári og undirrituð af þáverandi dómsmála- ráðherra, Birni Bjarnasyni, kemur fram að takmarka má gjafsókn við ákveðinn hluta málskostnaðar eða tiltekna fjárhæð ef „hagsmunir gjaf- sóknarbeiðanda af úrslitum máls eru litlir“. Í 128. grein í lögum um meðferð einkamála stendur að dómsmálaráð- herra megi afturkalla gjafsókn „ef í ljós kemur að hún var veitt að ófyrirsynju“ eða að „hagur gjafsóknarhafa breytist svo hennar sé ekki lengur þörf“. Dómsmálaráðherra skipar gjaf- sóknarnefnd til að veita umsögn um umsóknir um gjafsókn. Nefndin hef- ur ekki heimild til að veita gjafsóknar- leyfi, heldur getur hún einungis mælt með eða á móti því að ráðherra veiti gjafsóknarleyfi. Ráðherra er heim- ilt að synja veitingu gjafsóknarleyf- is þótt nefndin mæli með því. Ráð- herra getur ekki veitt gjafsóknarleyfi ef nefndin leggst gegn því að slíkt leyfi sé veitt, samanber 125. grein í lögum um meðferð einkamála þar sem seg- ir: „Dómsmálaráðherra veitir gjaf- sókn eftir umsókn aðila. Hún verður því aðeins veitt að gjafsóknarnefnd mæli með því.“ Engin svör Björn Bjarnason, sem sat í embætti dómsmálaráðherra þegar Rúnar Þór fékk gjafsóknarleyfi, vildi ekki tjá sig um af hverju Rúnar Þór fékk leyfið og vísaði fyrirspurn blaðamanns til gjaf- sóknarnefndar. Björn vildi enn fremur ekki tjá sig um hvort kæmi til greina, í ljósi aðstæðna, að endurskoða eða afturkalla gjafsóknina. Ásgeir Thoroddsen hæstaréttar- lögmaður situr í gjafsóknarnefndinni. Aðspurður hvaða rök hefðu legið á bak við veitingu gjafsóknarleyfis Rún- ars Þórs vísaði hann alfarið á dóms- málaráðuneytið og þá sem færu með gjafsóknarmál. Ásgeir vildi ekki tjá sig um hvort afturkalla eða endurskoða ætti gjafsóknarleyfið. Blaðamaður DV sendi Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra fyr- irspurn fyrir helgi um hvort kæmi til greina að afturkalla eða endurskoða gjafsóknarleyfið. Ekkert svar barst við þeirri fyrirspurn og var hún ítrekuð í gær og bað blaðamaður einnig um upplýsingar um hvaða rök hefðu leg- ið á bak við veitingu leyfisins. Þegar blaðið fór í prentun í gær hafði ekkert svar borist. Björn gagnrýndur Björn Bjarnason var gagnrýndur vegna nýrrar reglugerðar um gjafsókn sem tók gildi á síðasta ári og er enn í gildi. Í reglugerðinni er gert ráð fyrir að aðeins einstaklingar með mánað- artekjur upp á rúmlega 130 þúsund krónur eða minna eigi möguleika á gjafsókn. „Sé umsækjandi í hjúskap eða sambúð ber að hafa hliðsjón af tekj- um maka og skulu samanlagðar árs- tekjur ekki nema hærri fjárhæð en sem nemur kr. 2.500.000,“ eða um 208 þúsund krónum í mánaðarlaun. Jónína fékk gjafsókn Gjafsókn nýtist einkum í skaðabóta- málum þar sem deilt er um skaðbóta- skyldu. Í forræðisdeilumálum sem fara fyrir dómstóla hefur gjafsókn verið mikið notuð og einnig í vinnu- launamálum. Þá fékk Jónína Benediktsdótt- ir gjafsókn í máli sínu gegn Frétta- blaðinu og Kára Jónassyni, þáverandi ritstjóra Fréttablaðsins, árið 2006. Málið höfðaði Jónína vegna umfjöll- unar blaðsins um efni úr tölvupóst- um hennar. Fjárhagsástæður Jónínu lágu til grundvallar umsókninni og var stuðst við skattframtal hennar við mat á umsókn um gjafsóknarleyfi. lilJa KatRín gunnaRsdóttiR blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is gJafsóKnaRnEfnd fRá 1. Júlí 2008 til og MEð 30. Júní 2012: Þorleifur Pálsson, formaður, skipaður án tilnefningar Ásgeir Thoroddsen, hæstaréttarlögmaður, tilnefndur af Lögmannafélagi íslands Varamaður: Ólafur gústafsson, hæstaréttarlögmaður. Helgi i. jónsson, héraðsdómari, tilnefndur af dómarafélagi íslands. Varamaður: Sigríður Ólafsdóttir, héraðsdómari. Ríkið boRgaR dómsmál meints dóp- smyglaRa BRot úR 5. gREin REglugERðaR uM sKilyRði gJafsóKnaR og staRfsHætti gJafsóKnaRnEfndaR: Þegar metið er hvort nægilegt tilefni sé til veitingar gjafsóknar skulu höfð til viðmiðunar eftirtalin meginsjónarmið: 1. málið sé þess eðlis að eðlilegt sé að málskostnaður verði greiddur af almanna- fé. að jafnaði skal ekki veita gjafsókn í máli þar sem ágreiningsefnið er eins og að neðan greinir nema sérstakar ástæður mæli með því: a. ágreiningsefnið varðar viðskipti umsækjanda er tengjast verulega atvinnu- starfsemi hans og hann hefur með aðgerðum sínum eða aðgerðarleysi komið sér í þá aðstöðu sem málsókninni er ætlað að bæta úr. 3. málsefnið sé þannig að nokkrar líkur séu á því að málið vinnist fyrir dómi. í 126. grein laga um meðferð einkamála segir að gjafsókn verði aðeins veitt ef málstaður umsækjanda gefur nægilegt tilefni til málshöfðunar eða málsvarnar og öðru af tveimur skilyrðum er fullnægt, en annað þeirra er: – að úrlausn máls hafi verulega almenna þýðingu eða varði verulega miklu fyrir atvinnu, félagslega stöðu eða aðra einkahagi umsækjanda. í gæsluvarðhaldi rúnar Þór er talinn einn af höfuðpaurunum í skútusmyglinu svokallaða. Þingið komi saman strax „Ég sem þingmaður óska eftir því að Alþingi verði kallað saman strax og löggjafarvaldið verði virkt á þeim tímum sem nú eru,“ segir Ragnheiður Ríkharðsdótt- ir, þingmað- ur Sjálfstæð- isflokksins, á bloggsíðu sinni. Ragn- heiður furðar sig á því að nýr stjórnar- sáttmáli hefur ekki litið dagsins ljós. „Hvað er að? Hvers vegna lít- ur nýr stjórnarsáttmáli ekki dags- ins ljós? Er það virkilega að gerast sem fyrr að menn á þeim bænum geta ekki komið sér saman um grundvallaratriðin? Ekki að það komi sérstaklega á óvart en ég hélt að þeir væru komnir lengra í samkomulagsátt en raun ber vitni,“ segir Ragnheiður. Afskipti ríkisbankanna af rekstri fyrirtækja valda vaxandi áhyggjum: ríkisbankar virði samkeppni „Þetta er augljóst áhyggjuefni. Það þarf að sjá til þess að þessi sérstaka staða, þegar fjöldi fyrirtækja er í rauninni rek- inn af ríkinu, komi ekki niður á þeim sem enn reyna að sprikla. Aðgerðirn- ar mega síst af öllu verða til þess að slík fyrirtæki verði fyrir tjóni og hrek- ist líka í þrot,“ segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra um aukna hættu á bjögun samkeppnisskilyrða eftir því sem ríkisbankarnir taka við rekstri fleiri fyrirtækja. Stjórn Samtaka iðnaðarins sendi fyrir helgi ríkisbönkunum bréf og ósk- aði eftir upplýsingum varðandi fjár- hagslega og viðskiptalega meðhöndl- un fyrirtækja á samkeppnismarkaði sem eru að hluta til eða öllu leyti í eigu bankans. Stjórn SI vill vita hvort þessi fyrir- tæki sitji við sama borð og önnur fyrir- tæki um fyrirgreiðslu og hvort bankinn beiti sér fyrir því að beina viðskiptum þriðja aðila til þeirra. Fyrirspurnin var send í kjölfar sögu- sagna um að bankarnir veittu eigin fyrirtækjum ríflega fjárhagslega fyrir- greiðslu og beindu jafnvel viðskiptum til þeirra á kostnað starfandi fyrirtækja á markaði. Skil milli eðlilegrar bankastarfsemi og eignarhalds á samkeppnisfyrirtækj- um gæti þannig blandast með óeðli- legum hætti. Samkeppniseftirlitið mæltist til þess þegar í nóvember síðastliðnum að bankarnir hefðu hliðsjón af því að samkeppni gæti þrifist á sem flestum sviðum. Þeir ættu að hafa til hliðsjón- ar reglur þar að lútandi, meðal annars um að ráðstafanir þeirra röskuðu sam- keppni sem minnst, hlutlægni réði í ráðstöfun eigna og hagsmunir tveggja keppinauta væru ekki á hendi sömu aðila. Samkeppniseftirlitið segir að bönkunum beri að gera opinberlega grein fyrir ferlum og vinnureglum sem miða eiga að heilbrigðri sam- keppni. Viðskiptaráðherra tekur undir með Samkeppniseftirlitinu að ríkisbank- arnir verði að huga vel að verklagsregl- um sínum í þessu sambandi. Viðskiptaráð- herra „Það þarf að sjá til þess að þessi sérstaka staða komi ekki niður á þeim sem enn reyna að sprikla.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.