Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2009, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 2009 xxNeytendur
„Byggingarleyfi verður ekki gefið út nema sýnt sé að samþykki
allra liggi fyrir.“
Ekki klikka á
formsatriðum
GuðbjörG matthíasdóttir, lögfræðingur Húseigendafélagsins, svarar fyrirspurnum lesenda:
Sendið fyrirspurnir á neytendur@dv.is
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
30 days
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því
að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30
days saman.
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Oxy tarm
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama oxy tarmið
F l u g u l í n u d a g a r í Ve s t u r r ö s t
Sérverslun veiðimannsins Laugarveg 178 - sími: 551 6770
Afsláttur af flugulínum frá
hinum þekkta framleiðanda
RIO
á línudögum í Vesturröst
20%
Nýr kostur í DV eru þjónustuauglýsingar.
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR
Hringdu í síma 515 5550
og byrjaðu strax í dag!
smaar@dv.is
Ég er gjaldkeri húsfélags og er í smá-
vegis vandræðum. Málið er að það
bilaði ofn, eða ofnstillir, inni í einni
íbúð hér í blokkinni. Við vitum ekki
hvernig á að taka á málinu, en við-
komandi eigandi lét skipta um þetta
og sendi mér sem gjaldkera húsfé-
lagsins reikninginn. Ber húsfélaginu
að greiða þetta?
„Samkvæmt lögum um fjöl-
eignarhús teljast lagnir og búnaður
þeirra til sameignar allra þar til út
úr vegg eða upp úr gólfi er komið.
Ofnar og stillibúnaður þeirra inni
í íbúðum teljast því til séreignar.
Umræddur kostnaður er því alfarið
á ábyrgð viðkomandi eiganda.“
Ég bý á fyrstu hæð í eldra þríbýli
og langar að breyta stofuglugga
og bæta við hurð þannig að ég geti
gengið beint út í garð. Allir með-
eigendur mínir hafa verið mjög já-
kvæðir gagnvart hugmyndinni. Er
nauðsynlegt að fá formlegt sam-
þykki þeirra og þarf ég samþykki
allra?
„Allar breytingar á útliti húss sem
ekki er gert ráð fyrir á samþykktum
teikningum þurfa samþykki allra.
Taka þarf málið fyrir á húsfundi þar
sem teikningar af þessum breyting-
um eru bornar upp til samþykktar
eða synjunar íbúa. Þegar samþykki
allra liggur fyrir verður að sækja um
leyfi byggingaryfirvalda. Bygging-
arfulltrúi tekur við slíkum umsókn-
um og veitir byggingarleyfi eftir að
hafa gengið úr skugga um að tilskil-
ið samþykki meðeigenda liggi fyr-
ir. Byggingarleyfi verður ekki gef-
ið út nema sýnt sé að samþykki
allra liggi fyrir. Jafnvel þótt sátt ríki
um málið í dag og ekkert bendi til
þessa að meðeigendur muni gera
athugasemdir við þessar breyting-
ar er afar nauðsynlegt að ganga frá
öllum formsatriðum til að tryggja
þig gagnvart þeim sem síðar koma
í húsið. Sé ekki gætt að þessum at-
riðum getur hver og einn eigandi í
húsinu krafist þess að það verði fært
aftur til samræmis við samþykkt-
ar teikningar með fulltingi bygg-
ingaryfirvalda, enda um ólögmæta
framkvæmd að ræða. Mikilvægi
þessa verður aldrei of oft áréttað,
enda þekkist það að nýir eigendur
geri athugasemdir við breytingar
sem gerðar hafa verið á grundvelli
munnlegs samþykkis fyrri eiganda.
Þá er ekki óþekkt að eigendum, sem
áður hafa ljáð breytingum munn-
legt samþykki, snúist hugur. Gegn
slíku eru litlar varnir ef formsatriða
hefur ekki verið gætt.“
Ég bý í blokk en mikið tjón varð á
baðherberginu mínu. Það sprakk
lögn í vegg og ég kallaði til pípulagn-
ingamann sem stöðvaði leka en ljóst
er að það þarf að skipta um rörið í
veggnum. Hvað má ég gera sjálfur í
framhaldinu á kostnað húsfélagsins
án þess að bera það undir aðra og
hver ber tjónið á baðherberginu?
„Lagnir eru sameign allra og allt
tjón sem verður þegar þær bresta er
á ábyrgð húsfélagsins. Samkvæmt
lögum um fjöleignarhús má ein-
staka eigandi grípa til brýnna ráð-
stafana til að koma í veg fyrir yfir-
vofandi tjón sem ekki þola bið eftir
sameiginlegri ákvörðun húsfélag-
ins. Ef farið er í slíkar aðgerðir án
samþykkis húsfundar verður að
gæta þess að ráðstafanir verði ekki
umfangsmeiri en nauðsynlegt er.
Um er að ræða þröngt svigrúm og
hér er aðeins átt við bráðaviðgerðir
til að stöðva frekara tjón. Því miður
er erfitt að segja til um mörk í þess-
um efnum en meta verður hvert
tilfelli hverju sinni. Boða má til al-
menns húsfundar með minnst 4
sólarhringa fyrirvara og má því segja
að ákvörðun sem þolir þá bið verði
almennt að bíða. Öllum er heim-
ilt að stöðva leka án samráðs við
aðra og kostnaður vegna þessa telst
sameiginlegur kostnaður. Frekari
viðgerðir verður að taka ákvörðun
um á húsfundi til að tryggja sam-
eiginlega kostnaðarþátttöku. Varð-
andi tjón á baðherbergi og viðgerð
á lögninni að öðru leyti er þarft að
kanna hvernig tryggingamálum
er háttað. Jafnvel þótt þú sért ekki
tryggður má vera að húsfélagið sé
með húseigendatryggingu. Það
tjón sem ekki fæst bætt úr trygging-
um er á ábyrgð húsfélagsins sam-
kvæmt lögum um fjöleignarhús.
Allt að einu þarf að taka ákvörðun
um þessi atriði á húsfundi.“
Bilaður ofn Ofnar og stillibúnaður þeirra
inni í íbúðum teljast til séreignar.
Formsatriðin mikilvæg Nauðsynlegt er að
leita samþykkis allra fyrir breytingum á útliti
fjöleignarhúss, til dæmis vegna svalahurðar.