Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2009, Page 12
Þriðjudagur 5. maí 200912 Fréttir
Dýrkeypt ökuferð
Í stað þess að beygja örugglega
inn hliðargötu ók Janis Brown,
frá Freemont í Bandaríkjunum,
á girðingu og missti vald á bif-
reið sinni. En þar með lauk ekki
þessari ökuferð, síðastliðinn
fimmtudag, því Janis ók síðan á
símastaur, þaðan á bílskúr, síðan
á aðra girðingu, annan bílskúr
og að lokum á íbúðarhús.
Samkvæmt Associated Press
skildi Janis Brown eftir sig slóð
eyðileggingar sem hugsan-
lega nemur um tuttugu og sex
þúsund bandaríkjadölum, sem
svara til rúmlega þriggja millj-
óna króna. Varla þarf að taka
fram að við þá upphæð bætist
tjón á bifreið ökuþórsins. Lög-
reglan grunar Janis Brown um
ölvun undir stýri og var hún því
handtekin.
Vilja betri veðurspá
Íbúar lítils samfélags í skosku
Hálöndunum eru ekki sáttir við
veðurspá BBC og segja að hún
fæli ferðamenn frá svæðinu
og stofni lífsafkomu íbúanna í
hættu.
Þorpsbúar í Carrbridge,
skammt frá Aviemore, halda því
fram að þorpið hafi sitt eigið
veðurkerfi og segja veðurstofu
BBC horfa framhjá þeirri stað-
reynd og segja að veðurlýsing
BBC einskorðist við Aviemore.
„Veður getur verið mismun-
andi í Carrbridge og Aviemore
sem er í aðeins sjö kílómetra
fjarlægð,“ sagði Andrew Kirk,
formaður viðskiptaráðs Carr-
bridge, og bættir við að BBC
þættist gefa út veðurspá fyrir allt
svæðið, en miðaði eingöngu við
Aviemore.
„Látum hana
fitna“
„Látum hana fitna“ er slagorð
sádiarabískra kvenna í barátt-
unni gegn aðgerðum stjórnvalda
gegn heilsuræktarstöðvum fyrir
konur. Ráðuneyti sveitarstjórna
hugnaðist ekki sú fjölgun sem
átt hafði sér stað í leyfislausum
heilsuræktarstöðvum fyrir kon-
ur og greip til þess ráðs að loka
tveimur stöðvum í borgunum
Jeddah og Amman. Þátttaka
kvenna í íþróttum er ekki vel séð
í landinu.
Abdullah al-Maneea, með-
limur æðstaráðs trúarlegra
fræðimanna, sagði: „Knatt-
spyrna og körfuknattleikur eru
íþróttir sem krefjast mikillar
hreyfingar og stökka,“ og bætti
við að slíkt gæti skaðað stúlkur
sem væru enn hreinar meyjar og
jafnvel valdið því að þær misstu
meydóminn.
Veronica Lario Berlusconi, eiginkona
Silivos Berlusconi forsætisráðherra
Ítalíu, hefur staðfest að hún hyggist
sækja um skilnað frá eiginmanni sín-
um. Eftir henni er haft að hún geti ekki
verið með manni sem „leggur lag sitt
við ófullveðja“, en hún mun hafa látið
þau orð falla í kjölfar frétta af Berlusc-
oni í afmæli átján ára vinkonu hans.
Silvio Berlusconi er ekki alls óvan-
ur því að um hann gusti, en þó má
ætla að hann horfist nú í augu við erf-
iðara mál en oft áður. Enn hefur ekki
fennt yfir deilur hjónanna vegna fyr-
irætlana hans um að velja ungar, fal-
legar konur með takmarkaða reynslu
af stjórnmálum sem frambjóðendur
vegna komandi kosninga til Evrópu-
þings.
Kornið sem fyllti mælinn
Nú virðist sem Veronicu sé endanlega
ofboðið og dagblaðið La Stampa hefur
eftir henni að hún hafi verið „neydd til
að stíga þetta skref“.
„Þetta vekur mér furðu því hann
kom ekki í átján ára afmælisveislur
barna sinna, þrátt fyrir að vera boðið,“
hafði blaðið eftir Veronicu vegna áð-
urnefndrar afmælisveislu, en Berlusc-
oni er sagður hafa gefið afmælisbarn-
inu, Noemi Letizia, gullhálskeðju
skreytta demöntum í afmælisgjöf, en
þess má geta að vinskapur ku hafa ríkt
með Berlusconi og fjölskyldu Noemi
til langs tíma.
Berlusconi var að vonum ekki
lengi að finna sökudólginn í ákvörðun
eiginkonu sinnar og sagði hana vera
fórnarlamb „bellibragða vinstrisinna“
sem hafi breitt út ósannar frásagnir af
hans þætti í frama kvenna úr skemmt-
anaiðnaðinum.
Mætast stálin stinn
Hjónaband Veronicu og Silvios er
óhefðbundið. Veronica sést sjaldan
í fylgd eiginmanns síns og heldur til
í eigin villu skammt frá Mílanó. Að
auki hafa þau ekki stundað að fara í
frí saman.
Hjónaband þeirra hefur löngum
gefið tilefni til vangaveltna og nú er út-
lit fyrir að það hafi endanlega steytt á
skeri. Silvio Berlusconi fer ekki í graf-
götur með þá skoðun að úlfaldi hafi
verið gerður úr mýflugu, bæði hvað
varðar afmælisveisluna og áform
hans hvað varðar fulltrúa flokks hans
fyrir komandi kosningar í Evrópu. Að
hans mati ber Veronicu að biðjast af-
sökunar, en ekki honum, og ljóst að
hann hyggst snúa vörn í sókn.
Aðspurður hvort líkur væru á að
hjónabandinu yrði bjargað sagði
Silvio Berlusconi: „Það hygg ég ekki.
Ég veit ekki hvort ég vil það núna. Ver-
onica verður að biðja mig afsökunar
opinberlega. Og ég er ekki viss hvort
það væri nóg.“
Slæmt veganesti í kosningar
Silvio Berlusconi sagðist þeirrar skoð-
unar að hann væri fórnarlamb sam-
særis um að fella hann á hátindi
ferils síns. „Þetta er í þriðja skipti í
kosningabaráttu sem hún [Veronica]
bregður á þennan leik. Það er orðið of
mikið,“ sagði Berlusconi.
Vissulega hefur Silvio Berlusconi
fulla ástæðu til að hafa áhyggjur og í
herbúðum hans hefur vaknað ótti um
að eiginkona hans ýti úr vör allsherj-
ar sókn á hendur honum, með við-
tölum í tímaritum og spjallþáttum í
sjónvarpi þar sem hulunni yrði svipt
af vandræðalegum leyndarmálum og
viðkvæmum upplýsingum.
Silvio Berlusconi sagði vegna
málsins að spurning væri hvort hann
höfðaði ekki meiðyrðamál á hendur
eiginkonu sinni, en dró þó í land með
þær vangaveltur.
Sakaður um kvenfyrirlitningu
Tvennt er það sem virðist Silvio
Silvio Berlusconi er ekki alls óvanur því að gusti um hann. Nú hefur eiginkona hans
fengið sig fullsadda af háttalagi eiginmannsins og hyggst hún sækja um skilnað. Þetta
er ekki í fyrsta skipti sem slær í brýnu með hjónunum vegna dálætis hans á fallegum,
ungum konum.
Kornið sem
fyLLti mæLinn
Silvio Berlusconi sagði vegna málsins að spurn-
ing væri hvort hann höfðaði ekki meiðyrðamál á
hendur eiginkonu sinni, en dró þó í land með þær
vangaveltur.
KolBeinn þorSteinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
john F. Kennedy, forseti Banda-
ríkjanna frá 1961 þar til hann var
ráðinn af dögum 1963, var bendlaður
við fjölda kvenna þegar hann var
kvæntur jacqueline Bouvier. Á meðal
þeirra sem talið var að hann hefði
átt í ástarsambandi við var marilyn
monroe og fékk sá grunur byr undir
báða vængi þegar hún söng „Happy
Birthday, mr. President“ í afmælis-
veislu hans 1962.
Sagt var að François mitterrand,
forseti Frakklands frá 1981 til 1995,
hefði átt í nokkrum ástarsamböndum
utan hjónabands. Langtímasambandi
hans og Önnu Pingeot, sem hann
eignaðist dóttur með, var haldið
leyndu á meðal franskra fréttamanna
í tvo áratugi.
Bill Clinton
Lenti í slæmum málum vegna
kvensemi sinnar.
Bill Clinton, forveri george W. Bush
í embætti forseta Bandaríkjanna,
neyddist til að viðurkenna villu síns
vegar og játa „óviðeigandi samband“
sitt við monicu Lewinsky, fyrrverandi
lærling í Hvíta húsinu.
Fyrrverandi forsætisráðherra
Bretlands, john major, viðurkenndi að
hafa átt í fjögurra ára sambandi við
Edwinu Currie, fyrrverandi þingmann.
„Þetta er það í lífi mínu sem ég
skammast mín mest fyrir og hef lengi
óttast að yrði opinbert,“ sagði major
vegna málsins.
Jacob Zuma
Fer ekki í felur með eiginkonur sínar.
Nýkjörinn forseti Suður-afríku, jacob
Zuma, á tvær eiginkonur hið fæsta
og er talinn hafa kvænst allt að fimm
sinnum, og á allt að átján börn.
„Fjöldi stjórnmálamanna á hjákonur
og börn og heldur þeim í felum með
það fyrir augum að þykjast vera einn-
ar konu menn. Ég kýs gagnsæið. Ég
elska eiginkonur mínar og er stoltur
af börnunum mínum,“ sagði Zuma.
HáLt á sVeLLinu
Berlusconi afar hugleikið; fallegar
konur og sólbrúnka, og hann hefur
oftar en ekki verið gagnrýndur fyrir
ummæli sín hvað hvort tveggja varð-
ar.
Árið 2007 gekk hann fram af eigin-
konu sinni þegar hann, við kvöldverð
vegna verðlaunaafhendingar, snéri
sér að Möru Carfagna, fyrrverandi
dansara og berbrjósta fyrirsætu, og
sagði við annan gest: „Líttu á hana! Ég
myndi kvænast henni ef ég væri ekki
kvæntur nú þegar.“ Í kjölfarið krafðist
Veronica afsökunar í opnu bréfi í dag-
blaðinu La Repubblica.
Ári áður þegar Carfagna náði kjöri
sem frambjóðandi flokks Berluscon-
is, Forza Italia, sagði Berlusconi: Við
höfum reglu í Forza Italia, regluna um
„ius primae noctis“. Þar vísaði Berlusc-
oni til hinnar fornu reglu sem kvað á
um rétt lénsherra til að svipta nýgiftar
konur á landareign þeirra meydómn-
um fyrstu nótt hjónabands þeirra.
Sígild ummæli Berlusconis
Í kjölfar jarðskjálftanna í L’Aquila í
síðasta mánuði, sem kostuðu á þriðja
hundrað mannslíf og eyðilögðu heim-
ili um 17.000 manns, sagði Berlusc-
oni: „Þau hafa allt sem þau þarfnast,
þau hafa læknisaðstoð, heitan mat...
Að sjálfsögðu eru húsaskjólið tíma-
bundið, en þau eiga bara að líta á
þetta sem útilegu.“
Örfáum dögum síðar sagði hann
við kvenkyns lækni á hamfarasvæð-
inu: „Ég hefði ekkert á móti því að þú
blésir lífi í mig.“
Einnig hrósaði Berlusconi þel-
dökkum presti á jarðskjálftasvæðinu
fyrir sólbrúnku og sagði: „Ég vildi að
ég hefði tíma eins og þú til að verða
sólbrúnn.“
Í nóvember var Berlusconi í heim-
sókn hjá Dmitry Medvedev, forsætis-
ráðherra Rússlands, og útskýrði fyr-
ir honum hví hann áliti að Barack
Obama, verðandi forseti Bandaríkj-
anna, yrði góður bandamaður: „Hann
er ungur, myndarlegur og er jafnvel
fallega sólbrúnn.“ Þá sem gagnrýndu
ummælin kallaði Berlusconi „fá-
bjána“ og sagði að ummælin hefðu
verið sögð Obama til hróss.
Veronica og Silvio Berlusconi
Veronica er endanlega búin
að fá sig fullsadda af háttsemi
eiginmannsins.