Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2009, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2009, Page 16
Þriðjudagur 5. maí 200916 Ættfræði Ólafur Arnarson rekstrarhagfræðingur Ólafur Arnarson hefur vakið mikla athygli með nýútkominni bók sinni um bankahrunið og kreppuna, Sof- andi að feigðarósi. Starfsferill Ólafur fæddist í Reykjavík 18.7. 1963 en ólst upp í Garðabænum. Hann var í Ískasskóla og Hlíðaskóla, lauk stúdentsprófi frá MR 1983, stund- aði nám í viðskiptafræði við HÍ, lauk BBA-prófi í hagfræði frá Baruch Coll- ege við City University of New York 1989 og MBA-prófi frá Vanderbilt University í Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum 1996. Ólafur var blaðamaður í erlend- um fréttum við DV 1986-89, frétta- ritari DV í Bandaríkjunum á sama tíma, fréttamaður á Ríkissjónvarp- inu 1989-90, var framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins 1990- 91, aðstoðarmaður menntamálaráð- herra Ólafs G. Einarssonar 1990-93, sinnti dagskrárgerð og ýmsum verk- efnum á Stöð 2 og við Ríkissjónvarp- ið 1993-93. Ólafur var fjármálastjóri hjá Procter & Gamble í Franfurt í Þýska- landi 1996-98, starfaði við hluta- bréfaafleiður hjá fjárfestingabank- anum Dresner Kleinwort Benson í London 1998-99, var framkvæmda- stjóri eignastýringar fyrir Norður- lönd hjá Lehman Brothers í London 1999-2002, starfaði síðan með ýms- um fjárfestum við verkefni í Bret- landi og á Norðurlöndum á árunum 2002-2004 og vann að verkefnum fyrir Íslandsbanka og SPRON á Ís- landi 2004-2005. Hann starfaði síðan með erlendum fjárfestum og sinnti verkefni fyrir Landic Property á ár- inu 2008. Ólafur sat í Stúdentaráði HÍ fyr- ir Vöku, sat í stjórn LÍN, var vara- formaður EDS, Lýðræðissinnaðra stúdenta í Evrópu, sat í stjórn Íslend- ingafélagsins í New York, var stjórn- arformaður Fulbright stofnunar- innar á Íslandi 1991-94, var fulltrúi Íslands í stjórn EURIMAGES, Kvik- myndasjóðs Evrópuráðsins 1991-94, og var félagi í City Club, Samtökum Íslendinga sem starfa í fjármála- hverfinu í London. Fjölskylda Eiginkona Ólafs er Sólveig Sif Hreið- arsdóttir, f. 24.12. 1964, viðskipta- fræðingur. Hún er dóttir Hreiðars Jónssonar, f. 21.10. 1916, d. 3.12. 2008, klæðskera í Reykjavík, og k.h., Þórdísar Jónu Sigurðardóttur, f. 15.10. 1926, húsmóður. Börn Ólafs og Sólveigar eru Örn Ólafsson, f. 16.1. 1989; Þórdís Sess- elja Ólafsdóttir, f. 8.7. 1992; Ólafur Hreiðar Ólafsson, f. 3.8. 1997; Er- lendur Ólafsson, f. 31.5. 1999. Alsystur Ólafs eru Guðrún Sess- elja Arnardóttir, f. 23.8. 1966, lög- maður í Reykjavík; Jóhanna Vigdís Arnardóttir, f. 26.5. 1968, leikkona og söngkona í Reykjavík. Hálfbræður Ólafs, samfeðra: Haukur Skúli, f. 3.8. 1952, búsetttur í Reykjavík; Árni C.Th., f. 18.7. 1954, forritari í Reykjavík; Örn, f. 9.11. 1955, d. 2007; Ingvi Þór, f. 6.8. 1957, kerfisstjóri í Reykjavík. Foreldrar Ólafs: Örn Clausen, f. 8.11. 1928, d. 11.12. 2008, hrl., og Guðrún Erlendsdóttir, f. 3.5. 1936, fyrrv. hæstaréttardómari. Ætt Tvíburabróðir Arnar var Haukur tannlæknir, faðir Ragnheiðar Elínar Clausen, fyrrv. þulu og fréttamanns. Hálfbróðir Arnar var Alfreð Clausen söngvari. Örn var sonur Arreboe Clausen, ráðherrabílstjóra, bróður Óskars rithöfundar og Axels Clau- sen kaupmanns, afa Andra heit- ins Clausen, leikara og sálfræðings, og Michaels Clausen barnalæknis. Arreboe var sonur Holgers Peters Clausen, gullgrafara, kaupmanns og alþm. Hanssonar A. Clausen, borg- arráðsmanns í Kaupmannahöfn Holgerssonar, kaupmanns í Hæsta- kaupstað á Ísafirði. Móðir Holgers Peters var Ása, dóttir Óla, kaup- manns í Reykjavík Sandholt. Móðir Óla var Anike, dóttir Ola sænska og Carinu grænlensku. Móðir Ásu var Guðrún Árnadóttir, kaupmanns í Reykjavík Jónssonar. Móðir Arreboe var Guðrún Þorkelsdóttir, prófasts á Staðastað Eyjólfssonar, og Ragn- heiðar, systur Páls, langafa Péturs Sigurgeirssonar biskups Móðir Arnar var Sesselja Clau- sen Þorsteinsdóttir. Móðir Sess- elju var Arnheiður, systir Böðvars á Laugavatni, langafi Guðmundar Steingrímssonar alþm. Guðrún Erlendsdóttir er systir Sigríðar sagnfræðings, móður Jó- hönnu Vigdísar Hjaltadóttur, frétta- manns og gæðakokks, og Ragnhild- ar Hjaltadóttur, ráðuneytisstjóra samgönguráðuneytisins. Guðrún er dóttir Erlends, sjómanns í Reykja- vík Ólafssonar, trésmiðs í Reykjavík Erlendssonar. Móðir Erlends sjó- manns var Guðríður Þorsteinsdótt- ir, b. á Sperðli Sigurðssonar. Móðir Guðrúnar var Jóhanna Vigdís Sæmundsdóttir, b. í Lækjar- botnum á Landi, bróður Katrínar, ömmu Signýjar Sæmundsdóttur óp- erusöngkonu. Bróðir Sæmundar var Guðbrandur, afi Hauks Morthens og langafi Bubba Morthens og Tolla listmálara. Sæmundur var sonur Sæ- mundar, ættföður Lækjarbotnaættar Guðbrandssonar. Móðir Jóhönnu Vigdísar eldri var Sigríður Theódóra, systir Sigríðar, langömmu Jóhanns Sigurjónssonar, forstjóra HAFRÓ. Sigríður var dóttir Páls, hreppstjóra á Selalæk á Rangárvöllum, bróð- ur Jóns í Hlíð, afa Jóns Helgasonar, prófessors og skálds. Páll var sonur Guðmunds, ríka á Keldum Brynj- ólfssonar, af Víkingslækjarætt for- sætisráðherranna Davíðs Oddsson- ar og Jóhönnu Sigurðardóttur. Móðir Sigríðar var Þuríður Þorgilsdóttir frá Rauðnefsstöðum. Ingvar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp, lengst af í Vogahverfinu. Hann var í Langholtsskóla, stundaði nám við Verzlunarskóla Íslands og lauk þaðan stúdentsprófi, lauk hag- fræðiprófi frá HÍ 2003, stundaði nám í verðbréfamiðlun við HR og lauk þaðan prófum sem löggildur verð- bréfamiðlari og stundar nú MS-nám í hagfræði við HÍ. Ingvar starfaði hjá Þjóðhags- stofnun með háskólanámi en að námi loknu við greiningardeild Ís- landsbanka 2003-2007, vann við gjaldeyrisafleiður hjá Landsbank- anum 2007-2008 og sinnir nú eigin rekstri með MS-náminu. Fjölskylda Kona Ingvars er Kristjana Rós Guð- johnsen, f. 19.3. 1981, myndlistar- maður. Systkini Ingvars eru Kristín Arnardóttir, f. 16.7. 1966, kennari og ráðgjafi hjá tölvufyrirtæki í Reykja- vík; Halldór Arnarson, f. 31.7. 1977, nemi í Reykjavík. Foreldrar Ingvars eru Örn Ingv- arsson, f. 16.10. 1946, verkfræðingur í Reykjavík, og Hildur Halldórsdóttir, f. 15.3. 1946, kennari í Reykjavík. Örn er sonur Ingvars, vélstjóra í Reykjavík Magnússonar, verka- manns á Sauðárkróki Jónssonar, og Kristínar Kristinsdóttur, sjómanns í Neskaupstað Ívarssonar. Hildur er dóttir Halldórs, kenn- ara í Reykjavík Guðjónssonar, og Vilborgar Guðmundsdóttur hús- móður. Ingvar Arnarson hagfræðingur í reykjavík Sólrún Lilja Hannesdóttir í Hafnar- firðinum sem vinnur á leikskóla er búin að skipuleggja afmælið sitt fyr- ir þrjá daga. Í morgun tók hún sjálfan afmælisdaginn snemma, fór í klipp- ingu, fór síðan í vinnuna og ætlar svo út að borða í kvöld með manninum sínum, Jens Kristjánssyni, sem starfar á vörubíla- og vinnuvélaverkstæði. En er búið að ákveða hvar á að borða? „Já, já. Við förum á Ruby Thues- day.“ Og ertu búin að ákveða hvað þú ætlar að fá þér? „Nei, að vísu ekki. Ég verð nú fyrst að sjá matseðilinn.“ Og á svo að gera eitthvað fleira? „Já. Á föstudaginn verður fjöl- skyldan með afmæliskreppukvöld- verð, súpu og brauð.“ Verður það bara venjuleg pakka- súpa? „Ónei. Það verður nú reyndar mjög fín, heimalöguð súpa sem frænka mín hefur lofað að hjálpa mér með.“ Ertu með uppskriftina? „Nei, þú verður að fá hana hjá frænku minni. En ég fullyrði að þetta verður mjög góð afmæl- issúpa. Ég ætla hins vegar ekki að baka brauðið. En það verður samt gott brauð, sótt í eitthvert gott bakarí. Á laugardagskvöldið fáum við svo vini og kunningja í heim- sókn, svona fimmtán til tuttugu manns. Þá ætlum við að fá okkur aðeins í glas, slaka svolítið á, skemmta okkur og skála. Með partíinu á laugardag lýkur svo afmælishaldinu en þá hefur líka verið gert sitt lítið af hverju, í þrjá daga. Geri aðrir betur.“ 30 ára í dag Sólrún Lilja skipulagði: Þrefalt Þrítugsafmæli 30 ára n Björn Guðmundsson Kirkjuvöllum 3, Hafnarfirði n Úlfur Blandon Þorragötu 5, Reykjavík n Daníel Sindri Sigurðsson Skipholti 48, Reykjavík n Birkir Þór Sveinsson Álfheimum 52, Reykjavík n Heimir Örn Árnason Andrésbrunni 13, Reykjavík 40 ára n Jeraldine Tolo Torres Hraunbraut 30, Kópavogi n Waldemar Baginski Hjallavegi 3a, Njarðvík n Sivaraj Thankappan Snorrabraut 22, Reykjavík n Sigurður Vigfússon Drafnarbraut 3, Dalvík n Baldur Gunnlaugsson Hásölum 7, Kópavogi n Helga H Sigurjónsdóttir Bröttuhlíð 2, Mosfellsbæ n Guðmundur Mar Magnússon Tröllaborgum 11, Reykjavík n Guðjón Jóhannesson Hvannakri 6, Garðabæ n Svavar Skarphéðinn Guðmundsson Einigrund 14, Akranesi n Andrzej Henryk Walewski Hólabraut 10, Reykja- nesbæ n Lidia Najgebauer Engjaseli 87, Reykjavík n Elísabet Richter Arnardóttir Viðarrima 24, Reykjavík n Hörður Örn Bragason Naustabryggju 14, Reykjavík n Haukur Þór Bragason Fagrahjalla 60, Kópavogi n Yngvi Þór Sigurjónsson Óðinsgötu 24, Reykjavík n Herbert Erling Pedersen Krókabyggð 13, Mos- fellsbæ n Steinar Örn Sigurðsson Strandvegi 9, Garðabæ 50 ára n Stanislaw Lech Krawczyk Eyravegi 14, Selfossi n Helga Björg Hallgrímsdóttir Súlunesi 33, Garðabæ n Gróa Erla Ragnvaldsdóttir Tröð, Borgarnesi n Tómas Rúnar Andrésson Suðurgötu 65, Akranesi n María M Sigurðardóttir Álfatúni 35, Kópavogi n Heimir Sæberg Loftsson Dúfnahólum 4, Reykjavík 60 ára n Sveinbjörg Guðmundsdóttir Eskihlíð 23, Reykjavík n Helgi Eyjólfsson Kríuási 15, Hafnarfirði n Þorsteinn S Ásmundsson Logafold 96, Reykjavík n Halldóra Sigurðardóttir Mávanesi 23, Garðabæ n Júlíana G Kristjánsdóttir Huldugili 32, Akureyri 70 ára n Sigrún Garðarsdóttir Lækjamóti, Húsavík n Halldór Hafsteinsson Brekkubæ 40, Reykjavík n Júlíana Sigurðardóttir Fjóluhvammi 2, Hafnarfirði n Guðrún Jónasdóttir Suðurbraut 16, Hafnarfirði n Sigurður Björgvin Björgvinsson Eyravegi 5, Selfossi n Kristinn Benediktsson Strandvegi 19, Garðabæ 75 ára n Guðrún M Björnsdóttir Austurbrún 2, Reykjavík n Bryndís Jónasdóttir Asparfelli 6, Reykjavík n Ragnheiður Sigvaldadóttir Hólavegi 7, Dalvík n Erla Baldursdóttir Hvannhólma 16, Kópavogi n Steingerður Steinsdóttir Fellsmúla 8, Reykjavík n Stefán Þór Óskarsson Grænuhlíð 3, Reykjavík n Ragnar Guðlaugsson Merkilandi 6, Selfossi n Sólveig Alexandersdóttir Skúlagötu 66, Reykjavík n Runólfur Lárusson Öldustíg 16, Sauðárkróki n Hjördís Jónasdóttir Eyjabakka 5, Reykjavík 80 ára n Gunnar Lárusson Jörundarholti 16, Akranesi n Gunnar Guðmundur Einarsson Skeiðarvogi 19, Reykjavík n Borgþór S Olsen Naustabryggju 27, Reykjavík n Óskar Guðmundsson Laxabakka 3, Selfossi n Lúðvík R K Guðmundsson Efstalandi 2, Reykjavík n Guðrún Ágústa Óskarsdóttir Ásavegi 2g, Vest- mannaeyjum n Sigurgeir Ingimarsson Borgartanga 3, Mosfellsbæ 85 ára n Þórir Davíðsson Hvassaleiti 58, Reykjavík n Kjartan Ólafsson Hlaðhamri 1, Stað n Ólafur Ólafsson Öldugerði 18, Hvolsvelli n Guðborg Franklínsdóttir Hlíðarvegi 45, Siglufirði n Sesilía Þorsteinsdóttir Víðilundi 20, Akureyri Til hamingju með afmælið! fólk í fréTTum Sólrún Lilja Hannesdóttir Verður með súpu og brauð á föstudag en bregður svo fyrir sig betri fætinum á laugardag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.