Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2009, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 5. maí 2009 17Sport
AnnAr titillinn á hálfri viku FH-ingar fara vel af stað þetta keppnistíma-
bilið og hafa nú hampað tveimur bikurum á fjórum dögum. íslandsmeistarnir gerðu sér
lítið fyrir og unnu bikarmeistara Kr með þremur mörkum gegn einu í meistarakeppni
KSí. FH-ingar komust í 3-0 og skoraði Tryggvi guðmundsson tvö fyrstu mörk liðsins
áður en honum var skipt út af eftir um hálftíma leik. Björn daníel Sverrisson
skoraði þriðja mark FH-inga þegar stundarfjórðungur var liðinn af seinni
hálfleik. jónas guðni Sævarsson minnkaði muninn fyrir Kr en nær komust
bikarmeistararnir ekki. Þetta er sem fyrr segir annar titill FH-inga á fáeinum
dögum, þeir unnu deildabikarinn 1. maí.
umSjón: TómaS Þór ÞórðarSon, tomas@dv.is / Sveinn Waage, swaage@dv.is
„Þegar inn á völlinn er komið eru
menn „óvinir“ í 90 mínútur, svo er
það búið,“ segir Sigursteinn Gísla-
son, þjálfari Leiknis, í gamansöm-
um tón um þá staðreynd að fimm af
tólf liðum 1. deildar eru undir stjórn
gamalla Skagamanna. Manna sem
léku hlið við hlið árum saman og eru
margir hverjir góðir vinir í dag en
mætast í sumar sem þjálfarar and-
stæðra liða.
Auk Sigursteins eru Skagaþjálf-
ararnir í 1. deildinni þeir Arnar og
Bjarki Gunnlaugssynir á Akranesi,
Gunnlaugur Jónsson sem þjálfar Sel-
foss, Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari
Þórs, og Dean Martin, þjálfari KA.
Allir nema Dean eru uppaldir Skaga-
menn, Lárus Orri reyndar fæddur á
Akureyri en hann ólst upp á Skagan-
um meðan Sigurður Lárusson, faðir
hans, var jaxlinn í vörn sigursæls liðs
ÍA á níunda áratugnum.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari ÍA,
segir að þetta sé sérstakt en komi sér
í raun ekki á óvart. „...sýnir jafnframt
hvar Skaginn stóð fyrir nokkrum
árum. Það segir sig sjálft að því betra
sem liðið var í gamla daga, og ól af
sér betri leikmenn, því meiri séns var
á að menn færu í þjálfun.“ Auk þeirra
sex sem eru nefndir hér að framan
má nefna Ólaf Þórðarson sem þjálfar
lið Fylkis í efstu deild.
Vinna deildina
Skagaliðið hefur tekið miklum breyt-
ingum frá því liði sem féll úr efstu
deild í fyrra. „Útlendingarnir eru farn-
ir og gamlir refir hafa hætt. Við ætlum
að treysta á okkar ungu leikmenn og
móta framtíðarstefnu á næstu árum.
Það er nógu gott lið þarna til að gera
góða hluti,“ segir Arnar. Gengi ÍA var
kaflaskipt á undirbúningstímabilinu
en liðinu hefur gengið vel að undan-
förnu. Arnar segir að hann og Bjarki,
bróðir hans og meðþjálfari, hafi ekki
verið að horfa í úrslit á undirbúnings-
tímabilinu heldur unnið í ákveðn-
um málum og reynt að slípa liðið til.
Markmiðið er líka einfalt. „Það er að
vinna deildina og komast sem lengst
í bikarnum,“ segir Arnar.
Fyrsti leikur ÍA er einmitt gegn
Þórsurum undir stjórn Lárusar Orra
Sigurðssonar. Hann og tvíburarn-
ir léku saman í yngri flokkum ÍA og
eru af frægum ‘73 árgangi sem skil-
aði af sér mörgum afreksmönnum á
Skaganum. Lárus verður þó ekki með
í þeim leik því hann verður í banni.
„Það er fínt. Þá þarf maður ekki að
spila gegn honum,“ segir Arnar og
hlær.
Hefur þjálfað þrjá hinna
Sigursteinn Gíslason þjálfar Leikni í
Breiðholti. „Þetta er ungt lið, óreynt
lið. Nánast allt uppaldir Leiknis-
menn,“ segir Sigursteinn. Hann seg-
ir að hópurinn sé ekki stór. „Það get-
ur virkað jákvætt og neikvætt,“ segir
Sigursteinn. Þetta geti reynst erfitt ef
menn lendi í meiðslum en annars vel
því þetta geti þjappað hópnum vel
saman. Hann segir þó ekki loku fyr-
ir það skotið að eitthvað bætist í leik-
mannahópinn áður en keppnistíma-
bilið hefst.
Sigursteinn vill engu spá um gengi
liðsins á Íslandsmótinu. „Þetta er
alltaf bara næsti leikur. Það er gamla
tuggan sem er hjá öllum. Við setjum
okkur markmið sem hópur, en það
er bara fyrir okkur.“ Hann spáir því
að ÍA og HK verði í toppbaráttunni.
„Svo finnst manni restin vera spurn-
ingamerki.“
Sigursteinn hefur spilað með öll-
um Skagamönnunum sem hann mæt-
ir sem þjálfurum í 1. deildinni í sumar.
Hann hefur hins vegar gert gott bet-
ur. „Ég þjálfaði Gulla í 4. flokki,“ segir
hann. Gulli sem hann nefnir er Gunn-
laugur Jónsson, núverandi þjálfari
Selfoss. Þar að auki tók Sigursteinn
við þjálfun KR á lokasprettinum 2005
eftir að Magnús Gylfason var rekinn.
Þá voru meðal manna í leikmanna-
hópnum bræður að nafni Arnar og
Bjarki Gunnlaugssynir.
Allt að smella saman
Akureyrarliðin eru bæði undir stjórn
gamalla leikmanna ÍA. Ólíkt hinum
þjálfurunum sem hér eru nefndir
náði Lárus Orri Sigurðsson þó aldrei
að leika með meistaraflokki ÍA á Ís-
landsmóti heldur flutti með föð-
ur sínum aftur til Akureyrar. „Und-
irbúningurinn hefur gengið mjög
vel,“ segir hann um Þórsliðið. Þetta
er fjórða árið sem hann þjálfar Þór
en ólíkt fyrri árum hefur liðið lítið
breyst milli ára. Lárus Orri segir því
allt að smella saman núna og segir
markmiðið að lágmarki það að vera
í toppbaráttunni. Þegar hann tók við
þjálfun liðsins sagðist hann ætla að
taka sér fimm ár í að fara með liðið
upp um deild.
Eins og flestir viðmælendur DV
gerir Lárus Orri ráð fyrir HK og ÍA
sterkum. „Víkingar eiga örugglega
eftir að vera sterkir, þeir voru töluvert
undir getu í fyrra. Svo eru alltaf ein-
hver lið sem koma á óvart, líkt og Sel-
foss í fyrra.
Lárus bjó á Akranesi í ellefu ár.
„Maður vill leggja Skagann. Það er
alltaf tekið vel á móti mér þegar ég
kem á Skagann og ég er spenntur fyr-
ir þeim leikjum.“
Allir vilja vinna
Dean Martin, þjálfari KA, segir það
hafa gert liðinu erfitt fyrir að hafa
misst nokkra leikmenn frá síðasta ári.
„Það er mjög erfitt að fá leikmenn til
KA í dag, út af atvinnumálum og fleira.
Það er mjög dýrt að fá leikmenn frá
Reykjavík. Þetta hefur samt gengið
ágætlega.
Fjögur lið koma upp í hugann þeg-
ar Dean er spurður um hverjir verða
í toppbaráttunni. „ÍA, HK, Víkingur
og Selfoss. Öll lið í kringum Reykjavík
eiga séns.“
Dean segir spennandi að mæta
gömlum félögum í sumar. „Alla fyrr-
verandi leikmenn langar að fara til
baka og vinna á gamla heimavellin-
um. Ég er alveg eins,“ segir Dean sem
er spilandi þjálfari. Hann segir líka
skemmtilegt að hitta vini sína og fyrr-
um samherja undir þessum merkjum.
Saman á námskeiðum
„Við Deano vorum saman, minnir
mig á KSÍ 3, vorum herbergisfélagar
saman á KSÍ 6 úti í Englandi í byrjun
ársins,“ segir Gunnlaugur Jónsson,
þjálfari Selfoss. Til marks um hversu
lítill heimurinn er hjá þjálfurum í 1.
deildinni hafa þeir Gunnlaugur og
Dean Martin ekki aðeins spilað sam-
an heldur líka verið saman á þjálf-
aranámskeiðum. Lið þeirra, Selfoss
og KA, mætast í fyrstu umferðinni á
sunnudag.
„Mér líst vel á liðið. Ég tók við síð-
asta haust og tók við góðu búi frá
fyrrum samherja mínum, [Zoran]
Miljkovic [sem lék með ÍA]. Engu að
síður höfum við misst töluvert mikið
frá í fyrra, af ýmsum ástæðum,“ segir
Gunnlaugur. Hann kannar nú mögu-
leika á að styrkja hópinn með láns-
mönnum. Selfoss var hársbreidd frá
því að tryggja sér sæti í úrvalsdeild
í fyrra en vegna mikilla breytinga á
leikmannahópnum segir Gunnlaug-
ur markmiðið nú að festa liðið í sessi
í deildinni. „Vonandi þurfum við að
endurskoða það.“
Gunnlaugur segir líklegt að lið-
in sem komu niður úr úrvalsdeild
verði sterk í 1. deildinni í ár. „Svo
sýnist mér að Víkingar séu búnir að
styrkja sig svo vel og séu ekki hætt-
ir þannig að þeir verði kandídatar.“
Síðan á hann von á að það ráðist af
fyrstu umferðunum hvaða lið blanda
sér í baráttuna.
Brynjólfur Þór GuðmundSSon
fréttastjóri skrifar: brynjolfur@dv.is
Fimm þjálfarar fjögurra liða í 1. deild karla vöktu fyrst athygli sem efnilegir leikmenn ÍA á níunda og tíunda
áratug síðustu aldar. Þjálfari fimmta liðsins á einnig að baki nokkur ár sem leikmaður ÍA. Það er því ljóst
að gamlir samherjar og vinir eiga eftir að heyja marga baráttuna á leikvöllum 1. deildarinnar í sumar. DV
ræðir við þjálfarana um komandi sumar og tengsl þeirra innbyrðis.
innbyrðisleikir í 1. umferð
Þór-ÍA
SelfoSS-KA
„Það er að vinna deild-
ina og komast sem
lengst í bikarnum.“
Í banni í fyrsta leik Lárus orri fær ekki
að stýra sínum mönnum gegn gömlu
félögunum sínum. Hann er í banni frá í
fyrra. mynd SiGtryGGur Ari
tvíburarnir á Skaganum arnar og Bjarki
gunnlaugssynir stýra Skagaliðinu. Þeir mæta fjórum
gömlum félögum sínum úr ía sem þjálfa í 1. deild.
lærðu saman til þjálfara
„deano er mikill snillingur og
vonandi fær maður tækifæri
til að vinna með honum ein-
hvern tíma,“ segir gunnlaugur
um gamlan félaga hjá ía sem
hann mætir á sunnudag.
mynd HeiðA
treystir á heimamenn Sigursteinn
gerir í Breiðholti eins og oft hefur
verið gert á akranesi, treystir á unga
heimamenn. mynd HeiðA
skAGAmennirnir
við stJÓrnvÖlin