Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2009, Síða 14
Svarthöfði var í æsku sinni harður kommúnisti. Hann taldi þá að jöfnuður í sam-félaginu ætti að vera algjör.
Kannski var það vegna þess að hin-
um unga Svarthöfða blöskraði það
hvernig hlaðið var undir suma ein-
staklinga og stéttir í samfélaginu.
Samt var það aðeins hinn svokall-
aði Kolkrabbi sem hafði mest völd
og átti mestar eigur. Einhver reikn-
aði út að Kolkrabbaveldið væri
samsett úr 24 fjölskyldum sem
allar tilheyrðu Sjálfstæðisflokkn-
um. Mótvægi við Kolkrabbann var
Smokkfiskurinn en aðild að hon-
um átti slatti af fjölskyldum sem
áttu rætur í Framsóknarflokkn-
um. Flest viðskipti í samfélag-
inu voru annaðhvort á
vegum krabbans
eða smokksins. Og
það ríkti sátt í heimi
stjórnmála og við-
skipta um fyrirkomu-
lagið.
Hæst risu þessi tvö veldi þegar ríkisbankarnir, Landsbankinn og Bún-aðarbankinn vori einka-
væddir. Þá urðu þau hamskipti að
Smokkfiskurinn fékk nafnið S-hóp-
urinn sem í rauninni var þó að-
eins undirstofnun hinnar slímugu
sjávarlífveru. Undir bankasölunni
hljómaði fagurgali þeirra stjórn-
málamanna sem buðu almenn-
ingi að kaupa út á kennitölur sínar
til að tryggja dreifða eignaraðild.
Svarthöfði safnaði öllum þeim
kennitölum sem hann gat og ákvað
að verða eitt tannhjólið í Búnaðar-
bankanum. Þannig varð hann hluti
af Smokkfiskinum.
Augljóst var að fyrst Fram-sókn fékk Búnaðarbank-ann átti Kol-krabbinn rétt á
Landsbankanum. Og svo
varð. Á Íslandi hófst eitt
rosalegasta góðæri allra
tíma. Svarthöfði seldi kenni-
tölurnar og keypti sér nýtt
túbusjónvarp og utanlands-
ferð fyrir afganginn. Sama
gerðu þúsundir annarra
landsmanna. Allir þekkja nú
sögulokin á stærsta góðæri
Íslands. Í sömu mund og
myndlampinn sprakk í túbu-
sjónvarpi Svarthöfða hrundu
bankarnir með brauki og
bramli.
Nú er hreinsunarsveit Steingríms J. Sigfússonar og Jóhönnu Sigurðardótt-ur komin til valda. Sjálfu
afkvæmi Kolkrabbans af þriðju
kynslóð var hafnað í kosningum.
Æskudraumar Svarthöfða höfðu
fyrir löngu vikið fyrir þeirri tegund
skynsemi sem meðal annars fékk
hann til að kjósa Sjálfstæðisflokk-
inn. Nú er enginn Kolkrabbi og
enginn Smokkfiskur. Skilanefnda-
kóngar og bankamenn ríkisins
ráða öllu í umboði stjórnmála-
manna. Endurreistir ríkisbankar
selja steypu, gefa út dagblöð og
stunda kennitöluhopp. Sá virðulegi
Íslandsbanki yfirtók steypustöð
og skyldi skuldirnar eftir á annarri
kennitölu. Steypubankinn beinir
síðan viðskiptavinum í góðsemi
að eigin steypu. Sami banki lagði
Morgunblaðinu, dagblaði á brauð-
fótum, til rekstrarfé mánuðum
saman, felldi niður milljarðaskuld-
ir, og seldi síðan fyrirtækið á spott-
prís. Annar banki yfirtók einokun-
arrisa á sviði bókasölu, skipti um
kennitölu og sveik bókaútgáfur um
jólapeningana.
Hin nýja valdastétt í boði ríkisins hegðar sér í hví-vetna eins og þeir sem komu landi ísa og elda á
kaldan klaka. Nú hafa æskudraum-
ar Svarthöfða ræst í einhverri
svæsnustu matröð lífsins. Ríki sós-
íalismans er alls staðar en það eru
þó ekki allir jafnir. Sumir eru miklu
jafnari en aðrir.
Miðvikudagur 6. Maí 200914 Umræða
Ríki kennitöluhoppsins
svarthöfði
spurningin
„Samkvæmt
tölum okkar fluttu
fjórir íslenskir
ríkisborgarar til
Sviss og sjö
erlendir á fyrstu
þremur mánuðum
ársins,“ segir
Ómar Harðar-
son, deildarstjóri
Mannfjölda- og
manntalsdeildar Hagstofunnar. dv
sagði frá því í gær að ört stækkandi
hópur fjármála- og auðmanna hygðist
yfirgefa ísland með einum eða öðrum
hætti og einhverjir horfðu til Sviss í því
sambandi.
eRu maRgiR faRniR
til sviss?
sandkorn
n Björgólfur Guðmunds-
son, áður ríkasti maður Ís-
lands, þykir hafa sýnt karl-
mennsku með því að upplýsa
um skuldir sínar og eignir. Í
ljós kemur
að ekk-
ert er eftir
af auðn-
um sem
yfirgnæfði
allt annað
á Íslandi.
Björgólf-
ur sendi
út yfirlýs-
ingu sína eftir að fyrrverandi
viðskiptafélagi hans, Magn-
ús Þorsteinsson, hvarf til
Rússlands og var úrskurðaður
gjaldþrota á Íslandi. Magnús
er nú orðinn Rússi sem vænt-
anlega gerir Evu Joly og öðr-
um rannsakendum banka-
hrunsins erfitt fyrir.
n Gylfi Magnússon viðskipta-
ráðherra er í undarlegri stöðu
sem helsti andstæðingur
skuldugra
húseig-
enda. Á
meðan stór
hluti al-
mennings
er að kikna
undan
húsnæðis-
skuldum og
einhverjir
standa í greiðsluverkfalli er
ráðherrann harður á að ekki
sé meira hægt að gera. Gylfi
komst á ráðherrastól í fram-
haldi af harðri og óvæginni
gagnrýni sinni á stjórnvöld en
er nú orðinn eitt helsta andlit
óvinarins, kerfisins.
n Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra og Stein-
grímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra hafa fundið
lausnina
á Evrópu-
málinu,
ef marka
má fréttir.
Þar er um
að ræða
að vera
sammála
um að vera
ósammála
og láta nýjan meirihluta á
þinginu útkljá málið. Inn-
an Samfylkingarinnar gætti
nokkurrar fýlu vegna þeirrar
leyndar sem hvíldi yfir Evr-
ópulausninni en einungis
örfáir vissu hvað var að gerast
og að í rauninni gerðist ekki
neitt.
n Lára Hanna Einarsdóttir er
á meðal öflugustu álitsgjafa
landsins. Bloggið hennar er
óvenjulegt að því leyti að hún
birtir úrklippur og brot úr
sjónvarpsþáttum með skýr-
ingum. Nú hefur Lára Hanna
stigið enn eitt skrefið fram á
við með því að nota athuga-
semdakerfið undir spurning-
ar og svör. Fyrstur sat fyrir
svörum Haraldur Líndal Har-
aldsson en í gærkvöld var það
hagfræðingurinn Michael
Hudson sem svaraði í beinni.
LyngHáLS 5, 110 reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur Helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.iS
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Á dýrmætu
augnabliki í
nóvember 2007
las Heath Ledger
hlutverk Steins.“
n Margrét Hrafnsdóttir, framleiðandi
myndarinnar Kill The Poet sem fjallar um ævi
Steins Steinars. Hún segist bíða eftir svari frá
tveimur risa Hollywood-leikurum varðandi
hlutverk í myndinni. - DV
„Loka Bessastöð-
um.“
n Jónína Ben á heimasíðu
sinni um þær sparnaðaraðgerðir
sem ætti að ráðast í hið snarasta.
Hún vill líka sameina bankana í tvo og selja
annan þeirra til erlendra aðila. - DV
„Mér er sagt að
það sé hollast
að fara að öllu
með gát hérna.“
n Jóhanna Guðrún Jónsdóttir um stórborgina
Moskvu en hún er þar að undirbúa sig fyrir
Eurovision 2009. - visir.is
„Hann þorði ekki annað
en að láta þá fá lyklana.“
n Eyþór Grétar Birgisson um son sinn þegar
menn frá Vörslusviptingum ehf tóku bíl hans
ófrjálsri hendi. Fyrri eigandi bílsins hafði orðið
gjaldþrota en Eyþór hafði keypt bílinn af honum
og greitt hann að fullu. Eyþór fær bílinn aftur en
engar skýringar. - DV
„Gott er, að hann gerist
loks heiðarlegur á gamals
aldri.“
n Jónas Kristjánsson um Björgólf Guðmunds-
son og þau orð að Björgólfur vilji vera heiðarlegur.
Hann segir Björgólf margoft hafa misnotað
aðstöðu sína til að ritskoða bækur og hafa áhrif á
útgáfu þeirra. - jonas.is
Bankaræðið á Íslandi
Leiðari
Í þeim aðstæðum sem búnar hafa verið til í íslensku samkeppnisumhverfi þurfa vel rekin fyrirtæki oft að þola samkeppni frá fyrirtækjum sem eru niðurgreidd af
ríkinu í formi afskrifta skulda og lánaívilnana
handan náttúrulegra markaðssjónarmiða.
Fjölmiðlageirinn er ein af mörgum birting-
armyndum þess sem nú viðgengst á Íslandi,
þar sem ríkisstjórnin og bankarnir kjósa að
hlúa helst að völdum fyrirtækjum sem eru
einna verst stödd, á kostnað þeirra varfærnu
og hagkvæmu.
Ákveðið hefur verið að DV fækki útgáfu-
dögum um einn í sumar, til að tryggja að út-
gáfan skili hagnaði og safni ekki skuldum.
Þar með hefur DV fækkað útgáfudögum um
tvo til að bregðast við afleiðingum efnahags-
hrunsins á Íslandi. Athyglisvert er að á sama
tíma hefur einn helsti samkeppnisaðilinn,
Morgunblaðið, ekki gripið til sambærilegra
ráðstafana, jafnvel þótt, eða kannski vegna
þess, að ákveðið var að afskrifa um þriggja
milljarða króna skuldir útgáfunnar.
Það er í sjálfu sér skiljanlegt að bankarnir
reyni að halda lífi í fyrirtækjum sem skulda
þeim mikið, svo ekki þurfi að afskrifa allar
skuldir þeirra. Hins vegar er það hættulegt
fyrir samfélagið í heild sinni að refsa heil-
brigðum fyrirtækjum en mylja undir þau
óarðbæru.
Þegar kemur að fjölmiðlum er sérstak-
lega mikilvægt að þeir lifi á eigin verðleikum,
það er að segja að þeir lifi á þeim forsendum
að almenningur kjósi að nota þá. Það er hin
lýðræðislega leið. Hin leiðin er hættulegri.
Niðurgreiðslur ríkisins eða auðmanna á fjöl-
miðlum vega beint eða óbeint að sjálfstæði
þeirra, og um leið kippa þær fótunum undan
fjölmiðlum sem lifa á forsendum almennings
sem kýs þá. Ef fjölmiðlar eiga að vera sjálf-
stæðir verða þeir um leið að vera fjárhagslega
sjálfstæðir, en ekki eiga líf sitt undir náð og
miskunn valdastofnana eða valdafólks í sam-
félaginu.
Þótt það sé annarra að fullyrða að DV eitt
og sér skipti máli fyrir lýðræðislega umræðu á
Íslandi, gildir annað um það heilbrigða sam-
keppnisumhverfi sem er forsenda þess að
blaðið þrífist. Sú almenna regla að ríkið eigi
að tryggja heilbrigt samkeppnisumhverfi, en
ekki vinna gegn því, er samfélaginu í heild til
hagsbóta. Þessi regla ætti að vera grunnfor-
sendan fyrir endurreisn efnahagslífsins, því
hliðarverkanir þess að brjóta hana eru al-
menn ósanngirni og óhagkvæmni, sem sýkir
hagkerfið og veikir atvinnulífið til lengri tíma.
Ríkisstjórnin beitir fyrir sig þeim nauð-
hyggjurökum að ástandið sé svo slæmt að
fórna þurfi réttlætinu gagnvart húsnæðiseig-
endum og heilbrigðu samkeppnisumhverfi
til þess að bankarnir nái aftur vopnum sín-
um. Þjóðfélag sem setur velferð banka í for-
gang fremur öllu öðru, þar sem fulltrúi lánar-
drottna heimsins er hafinn yfir ríkisstjórnina
og þar sem bankar stjórna örlögum fjölda
fólks og flestra fyrirtækja, ætti umfram allt að
kallast bankaræði. Líta þarf á heildarmynd-
ina til að skilja skyndilega brenglun stjórn-
málanna og viðskiptalífsins. Hér hefur átt sér
stað fjárhagslegt hernám og stjórnin framfylg-
ir hagsmunum lánardrottna nauðug viljug.
Jón tRausti Reynisson RitstJóRi skRifaR. Hér hefur átt sér stað fjárhagslegt hernám.
bókstafLega