Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2009, Side 9
Miðvikudagur 20. Maí 2009 9Fréttir
Besti kjúklingaborgarinn í bænum?
Opnunartími :
Alla daga frá 11:00-21:30
Allta
f góð
ur!
Björgólfur Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Icelandair, segist von-
ast til þess að veðkall Íslandsbanka
í 42 prósent hlutabréfa í félaginu
muni ekki hafa áhrif á starfsemi fé-
lagsins. Hann segist hafa vitað af því
um nokkurn tíma að eittvað kynni að
gerast í málefnum helstu hluthafa
félagsins í ljósi þeirra breytinga sem
hafa átt sér stað í íslensku efnahags-
lífi á liðnum mánuðum sem meðal
annars hafi leitt til þess að hlutabréf í
Icelandair hafi hríðfallið í verði.
Biðlaði til starfsmanna
Forstjórinn segist hafa sagt það við
starfsmenn félagsins að þeir ættu
ekki að velta breytingum á hluthafa-
hópnum of mikið fyrir sér. „Við erum
fyrst og síðast að reka þetta félag og
reyna að gera eins vel í því og við get-
um. Ég lifi alltaf í þeirri von að starfs-
mennirnir hugsi fyrst og síðast um
starfsemi þess en séu ekki að velta
því fyrir sér hver eigi það þó auðvit-
að spili það alltaf eitthvað inn í,“ seg-
ir Björgólfur en það er mál manna að
hann hafi staðið sig vel sem forstjóri
félagsins frá því hann tók við því.
Íslandsbanki gaf það út á mánu-
dag, þegar greint var frá því að bank-
inn hygðist leysa til sín 42 prósent
hlutafjárins í Icelandair, að starfsemi
félagsins myndi ekki raskast fyrir vik-
ið.
Hlutur bankans verður seldur
Björgólfur vonast til þess að bank-
inn muni gera eins mikið úr eignar-
hlut sínum í Icelandair og mögulegt
er svo hann verði heppilegri söluvara
í kjölfarið en talið er líklegt að bank-
inn selji eignarhlutinn sem bankinn
leysti til sín eins fljótt og hann get-
ur. „Ég vona því að við séum ekki
að horfa upp á truflun í daglegum
rekstri þó það eigi eftir að koma í
ljós hvernig bankinn hagar aðkomu
sinni að félaginu. Ég reyni að berjast
í því með kjafti og klóm að við höld-
um áfram að sinna okkar starfi eins
vel og mögulegt er. Síðan verður bara
að koma í ljós hverjir koma að borð-
inu, hvort breytingar verði gerðar á
félaginu og í hverju þær felist,“ segir
Björgólfur.
Staða Finns skýrist á næstunni
Nær öruggt þykir að Gunnlaugur Sig-
mundsson, framkvæmdastjóri Mátt-
ar, láti nú af störfum sem stjórnar-
formaður Icelandair en samningur
hans við félagið rann út í lok árs 2008
en hann hefur samt sem áður gegnt
starfinu síðan meðan verið var að
leita að eftirmanni hans. Einnig þyk-
ir ljóst að Einar Sveinsson hætti sem
varaformaður stjórnar félagsins.
Íslandsbanki mun væntanlega
leita að nýjum stjórnarmönnum til
að taka við af Sigmundi og Einari á
næstunni sökum þess að bankinn
á nú ráðandi hlut í félaginu. Líklegt
er að boðað verði til hluthafafundar
á næstunni þar sem gera má ráð fyr-
ir að þessar breytingar muni meðal
annars verða gerðar.
Eins er talið afar líklegt að gamli
Landsbankinn muni á næstunni
leysa til sín tæplega 24 prósent hlut
fjárfestingafélagsins Langflugs í Ice-
landair, en félagið er að tveimur
þriðju hlutum í eigu Finns Ingólfs-
sonar. Samkvæmt heimildum DV
hafa samningaviðræður á milli
gamla Landsbankans og Langflugs
staðið yfir upp á síðkastið og er veð-
ið fyrir láninu sem félaginu var veitt
til að kaupa hlutabréfin í Icelandair
í bréfunum sjálfum. Langflug hefur
ekki lagt fram frekari tryggingar fyrir
láninu þrátt fyrir að beðið hafi verið
um það.
IngI F. VIlHjálmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Íslenska ríkið er orðið stærsti hluthafinn í Icelandair eftir að Íslandsbanki leysti til sín 42 prósent hlutabréf-
anna með veðkalli á mánudaginn. Forstjóri Icelandair telur að breytingarnar á eignarhaldinu muni ekki raska
starfsemi félagsins. Hann segir mikilvægt að starfsmennirnir hugsi ekki of mikið um eignarhald félagsins.
Líklegt er að boðað verði til hluthafafundar í Icelandair á næstunni þar sem stjórn þess verður stokkuð upp.
FORSTJÓRI ICELANDAIR
BERST MEÐ KJAFTI OG KLÓM
„Ég reyni að berjast í því
með kjafti og klóm að
við höldum áfram að
sinna okkar starfi eins
vel og mögulegt er.“
Forstjórinn ekki svartsýnn Björgólfur Jóhannsson, forstjóri icelandair, segist hafa
beint þeim tilmælum til starfsmanna félagsins að þeir láti breytingar á hluthafahópn-
um ekki hafa of mikil áhrif á sig.
missir bráðum hlut
sinn í Icelandair
Langflug, félag
Finns ingólfs-
sonar, mun
missa hlut sinn
í icelandair
yfir til gamla
Landsbankans
en bankinn á veð
í hlutabréfunum.