Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2009, Side 12
Miðvikudagur 20. Maí 200912 Fréttir
SeilSt í pyngju almenningS
Reiði almennings í Bretlandi vegna
risnureikninga þingmanna kann að
reynast ríkisstjórn landsins óþæg-
ur ljár í þúfu í viðleitni hennar til
að takast á við fjárlagahalla ríkis-
ins. Sérhverri tilraun til að draga úr
opinberum útgjöldum á kostnað
skattgreiðenda kann að verða svar-
að með spurningunni: „Af hverju,
á krepputímum, ættu gráðugir og
síngjarnir stjórnmálamenn að kom-
ast upp með að krefjast fórna af allra
hálfu nema þeirra eigin?“
Mörgum er til efs, í ljósi and-
ans sem svífur yfir vötnum, að end-
urbætur á fríðindakerfi þingsins
hrökkvi til og háttvirtir þingmenn
kunna jafnvel að neyðast til að horfa
til fyrirrennara sinna í starfi, árið
1931, þegar þingmenn samþykktu,
í fyrsta skipti í sögu Westminster, að
laun þeirra yrðu lækkuð. Það sem
gerði samþykktina enn merkilegri
var sú staðreynd að þeir voru ekki
sérstaklega vel launaðir fyrir og ár-
leg laun þeirra, 400 sterlingspund,
höfðu ekki hækkað í tuttugu ár.
Vegna versnandi efnahags bresku
þjóðarinnar var þess krafist að þing-
menn færu fyrir þjóðinni með góðu
fordæmi.
Látnir taka pokann sinn
Hvort breskir þingmenn grípi til
jafnmikilla örþrifaráða og forver-
ar þeirra gerðu upp úr 1930 verður
tíminn að leiða í ljós. En án vafa hef-
ur orðspor margra beðið hnekki og
að sögn Davids Cameron, leiðtoga
íhaldsmanna, er ekki loku fyrir það
skotið að þingmenn Íhaldsflokksins
verði látnir taka pokann sinn vegna
óhóflegra risnureikninga. Camer-
on sagði mögulegt að hann fyrir-
skipaði endurkosningar í ákveðnum
kjördæmum þar sem risna sitjandi
þingmanns hefði „valdið verulegum
áhyggjum“.
Enn sem komið er hefur eng-
inn þingmaður Íhaldsflokksins sætt
tyftun vegna risnumálsins nema
Andrew Mackay, aðstoðarmaður
Camerons.
Farið á skjön við reglur
Samkvæmt frétt í dagblaðinu The
Daily Telegraph hefur fjöldi þing-
manna lagt fram reikninga upp á
þúsundir sterlingspunda vegna hús-
gagnakaupa vegna annars heimil-
is, eins og leyfilegt er. En húsgögn-
in voru síðan send til lögheimilis
þeirra.
Einn þeirra sem fór þannig á
skjön við reglur er Ed Vaizey, þing-
maður Íhaldsflokksins og banda-
maður Davids Cameron. Vaisay lét
senda húsgögn að andvirði 2.000
punda, tæplega 400 þúsund króna, á
heimili sitt í Lundúnum þegar hans
annað heimili er í Oxford.
Madelaine Moon, þingmaður
Verkamannaflokksins, hafði sama
háttinn á og lét senda húsgögn á
heimili sitt í Wales, en annað heim-
ili hennar er skráð í Lundúnum.
Báðir þingmenn munu hafa full-
yrt við The Daily Telegraph að um-
rædd húsgögn hefðu verið keypt fyr-
ir þeirra annað heimili.
Stuðningsaðilar loka veskinu
Verkamannaflokkurinn stend-
ur frammi fyrir mögulegum fjár-
skorti eftir að helstu styrktaraðil-
ar tilkynntu að þeir myndu hundsa
flokkinn.
Anthony Bailey, almannafulltrúi
sem landaði milljón punda styrk frá
Mahmoud Khayami, og gaf að auki
72.000 pund sjálfur, sagði að hann
hefði „engin áform“ um að láta eitt
einasta pens í viðbót renna til Verka-
mannaflokksins.
Gulam Noon, sem lánaði Verka-
mannaflokknum 250.000 pund í tíð
Tonys Blair, sagði að hann hefði ekki
gert upp hug sinn. Gulam Noon er
umsvifamikill í matvælaframleiðslu
í Lundúnum og var sakaður um að
reyna að kaupa sér virðingu, en var
síðar hreinsaður af þeim áburði.
„Ég var yfirheyrður af lögreglunni
fyrir að lána fé, þannig að þeir sem
taka það úr pyngju almennings ættu
svo sannarlega að vera yfirheyrðir.
Hegðun flokksmanna Verkamanna-
flokksins hefur verið yfirgengileg,“
sagði Noon í viðtali við The Guar-
dian.
Þingmenn Verkamannaflokks-
ins
Verkamannaflokkurinn hefur ekki
farið varhluta af risnuhneykslinu.
Á föstudaginn ákvað dómsmála-
ráðherrann, Shahid Malik, að segja
starfi sínu lausu á meðan fjárreiður
hans verða rannsakaðar. Malik, sem
mun sitja áfram á þingi, hefur feng-
ið endurgreidd 66.000 pund, vegna
þriggja ára kostnaðar vegna annars
heimilis hans, í Lundúnum, og er
þar um að ræða hámark leyfilegrar
endurgreiðslu. Um að ræða um 430
pund á viku, sem svara til um 85.000
króna.
Þeir eru fleiri úr röðum þing-
manna Verkamannaflokksins
sem þurft hafa að bíta úr nálinni
vegna óeðlilegra risnugreiðslna.
Á fimmtudaginn skar flokkurinn á
tengsl við Elliot Morley, þingmann
fyrir Scunthorpe, sem hafði viður-
kennt að hafa fengið endurgreidd-
ar um 15.000 punda vaxtagreiðslur
af veði sem þegar var búið að greiða
að fullu.
Phil Hope, ráðherra í heilbrigðis-
ráðuneytinu, endurgreiddi tæplega
39.000 pund sem hann hafði feng-
ið vegna húsgagna og heimilistækja,
eftir að Telegraph hafði opinberað
upplýsingar þar að lútandi. Hope
sagði að hann vildi ekki að vegið
yrði að heiðarleika hans. Gárungar
höfðu á orði að sennilegra væri að
hann hefði áhyggjur vegna kosning-
anna á næsta ári.
Þingmenn Verkamanna- og
Íhaldsflokksins, sem og frjálslyndir
demókratar óttast að risnuhneyksl-
ið verði vatn á myllu jaðarflokka á
borð við Sjálfstæðisflokk Stóra Bret-
lands og Breska þjóðernisflokkinn.
Þess má geta að þetta vandræða-
mál varð til þess í gær að Michael
Martin þingforseti sagði af sér, en
hart hafði verið lagt að honum að
gera það.
KoLbeinn ÞorSteinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Madelaine Moon, þingmaður Verkamanna-
flokksins, hafði sama háttinn á og lét senda hús-
gögn á heimili sitt í Wales, en annað heimili henn-
ar er skráð í Lundúnum.
Gordon brown
við fyrstu sýn virðist sem hann
hafi ekki seilst of djúpt í pyngju
almennings.
David Miliband
Fór að sögn talsmanns
síns í einu og öllu eftir
reglum þingsins.
Vinsældir víns í
dós aukast
Víngæðingar fá eflaust hroll
við tilhugsunina um að drekka
eðalvín úr dós en engu að síður
virðist sem það njóti vaxandi
vinsælda að taka upp dós af víni
og njóta eins glass í senn í stað
þess að opna heila flösku.
Sala á dósum til vínframleið-
enda hefur aukist stórum og að
sögn Johns Revess hjá Rexam,
einum stærsta dósaframleið-
anda heims, seldi fyrirtæki hans
sex milljónir dósa til vínfram-
leiðenda árið 2006, en sú tala
hækkaði í 35 milljónir dósa á
síðasta ári. Revess reiknar með
að salan fari yfir 100.000 á næstu
tveimur árum.
Revess sagði að dósin myndi
ekki leysa flöskuna af hólmi,
en „... það eru ótal tækifæri þar
sem flaskan er óhentug,“ sagði
Revess.
Varð fyrir eld-
ingu og dó
Sextíu og fjögurra ára karlmaður
lést á mánudaginn eftir að hafa
orðið fyrir eldingu þegar hann
lék golf í Skørping á Jótlandi.
Félagi hans varð einnig fyrir eld-
ingu en slapp með brunasár.
Fjölda eldinga sló niður
í Danmörku á mánudaginn,
nánar tiltekið 2.745 eldingum
samkvæmt vefsíðu Ekstrabladet.
Þrátt fyrir þennan mikla fjölda
eldinga telur norskur vísinda-
maður, Frank Dahlsett, að það
hafi fyrst og fremst verið mein-
leg óheppni að hinn látni varð
fyrir eldingu; hann hafi einfald-
lega verið á röngum stað á röng-
um tíma. Vissulega eru það orð
að sönnu.
Fékk gervigogg
Storkur með skaddaðan gogg
hefur fengið nýjan gervigogg,
þökk sé sérfræðingum á fugla-
spítala í Ungverjalandi. Gogg-
ur storksins skaddaðist vegna
óhapps og var farið með fuglinn
á Hortobagy-fuglaspítalann, um
180 kílómetrum austur af höfuð-
borginni Búdapest.
Neðri hluti goggsins var lag-
aður með aðgerð, en sérfræð-
ingur í gervitönnum smíðaði
nýjan efri hluta úr gerviefni.
Ef fuglinn nær fullum bata
verður honum sleppt á ný út í
náttúruna. Spítalinn hefur ver-
ið starfræktur síðan 1991 og 40
prósent sjúklinga hans hafa snú-
ið aftur út í náttúruna.