Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.2009, Síða 13
Miðvikudagur 20. Maí 2009 13Fréttir
Þrátt fyrir að fríðindi breskra þingmanna séu ekki ný af nálinni
gefst breskum almenningi nú í fyrsta skipti tækifæri til að sjá
svart á hvítu í hvað peningar skattgreiðenda fara. Uppljóstran-
ir breska dagblaðsins The Daily Telegraph koma mörgum þing-
manninum illa og þingmenn stærstu flokkanna hafa áhyggjur
af því að hneykslið verði vatn á myllu jaðarflokkanna.
SeilSt í pyngju almenningS
Gordon Brown
Forsætisráðherra Bretlands virðist vera saklaus
af óhóflegri risnu. upphaflega sagði Telegraph
að Brown hefði greitt bróður sínum 6.577
sterlingspund fyrir að útvega hreingerningar-
þjónustu fyrir heimili hans í Lundúnum um 26
mánaða skeið. Síðar kom í ljós að bræðurnir
höfðu notað sömu hreingerningarþjónustu
og andrew, bróðir gordons, hafði séð um að
greiða fyrir hana, og fékk sinn hlut endur-
greiddan. Ekki var um að ræða vafasamt athæfi.
gordon Brown lagði tvisvar fram reikning
vegna sama pípulagningaverksins. Sagt var að
um mistök hefði verið að ræða og í ljósi þess
að ekki var um hærri upphæð að ræða en 150
pund verður skýringin að teljast líkleg.
david MiliBand
utanríkisráðherra Bretlands lagði fram
reikninga upp á um 30.000 pund, á fimm ára
tímabili, vegna endurbóta á kjördæmisheimili
sínu. Hann eyddi allt að 180 pundum á þriggja
mánaða fresti í garðinn við húsið.
að mati talsmanns davids Miliband fór hann í
einu og öllu eftir þeim reglum sem viðurkennd-
ar eru af þinginu.
Katherine „Kitty“
Ussher
kitty ussher, þingmaður
verkamannaflokksins fyrir
Burnley, hafði ekki setið á
þingi í eitt ár eftir að hún
var kosin 2005 þegar hún
lagði tveggja síðna lista
yfir „bráðnauðsynlegar
viðgerðir“ á viktoríanska
húsinu sínu í suðurhluta
Lundúna.
Þar kom fram að húsið
hefði verið „tiltölulega ódýrt“ en þarfnaðist
mikillar vinnu. Á meðal þess sem tilgreint var á
lista ussher var „fúinn“ gluggi sem hafði verið skipt um, og „óþrifalegt“ teppi í stiga.
ussher fékk endurgreidd 22.110 pund, en var sagt að hún yrði sjálf að standa straum af því að skipta út „skrýtnum“ pípulögnum
og smekklausri gifsáferð á veggjum eða lofti. í Telegraph segir að ussher hafi búið í húsinu í fimm ár áður en hún var kjörin á þing.
hóGværir ráðherrar
BBC nefnir þrjá ráðherra sem að þeirra mati skera sig úr vegna
„hógværra“ endurgreiðslukrafna vegna annars heimilis.
Ed Miliband orkumálaráðherra hefur aðeins lagt fram reikning
upp á 6.300 pund, árlega, vegna leigu á kjördæmisheimili hans
og ýmiss annars.
alan Johnson, ráðherra heilbrigðismála, leigði íburðarlitla íbúð,
en lagði fram reikninga vegna matar og einhverra húsgagna.
umhverfisráðherrann, Hillary Benn, nýtti aðeins 147,78 pund af
risnuheimildinni sem hljóðar upp á 24.000 pund á ári.
© GRAPHIC NEWSHeimild: The Green Book, Library Research Paper 08/31 Mynd: Getty Images
20.000 – 23.082 pundUndir 5.000
pundum
10.000 – 14.999 pund 15.000 – 19.999 pund
Laun og fríðindi í neðri deild þingsins (2007-08)
Grunnlaun þingmanns
Heimild v/ starfsmannah.
Heimild v/ óvæntra útgj.
Tölvubúnaður
Lundúnauppb. (74 þingm.)
Heimild v/viðbótarkostn.
61.820 pund
100.205 pund
21.339 pund
3.000 pund
2.812 pund
23.083 pund
Heimild vegna samskipta
Biðlaun þingmanna sem missa sæti sitt
Starfslokalaun – miðast við aldur og
starfsævi
Eftirlaun þingmanns eftir 20 ára þjónustu
10.400 pund
40.799 pund
32.383 til 64.766 pund
30.000 pund á ári
Stjórnmálamenn á Bretlandi kröfðust endurgreiðslu 11,58 milljóna punda
– 17.932 pund á mann að meðaltali - vegna kostnaðar sem tengist rekstri
annars heimilis þeirra
Hámarksheimild vegna viðbótar-
kostnaðar er 23.083 pund
Þingmenn
sem fullnýttu
heimildina
(Þeirra á meðal níu
þingmenn sem ekki
hafa lagt fram nokkra
reikninga)
Kostnaður breskra stjórnmálamanna vegna annars heimilis
5.000 – 9.999 pund
Heildarfjöldi
þingmanna
AllAr AlmennAr viðgerðir á
húsbílum og ferðAvögnum
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
hilary Benn
að mati BBC með hógværari ráðherrum með tilliti til risnu.
„Kitty“ Ussher
komst snarlega á
bragðið eftir að hún
var kjörin á þing.