Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2009, Side 3
Áhyggjufullir stjórnarliðar
Stjórnarliðarnir Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir, Samfylkingunni, og
Lilja Mósesdóttir, VG, lýstu báð-
ar áhyggjum af framvindu mála.
Sigríður Ingibjörg sagði að skuld-
ir ríkissjóðs væru einnig skuldir
heimilanna. Fjölskyldur leituðu
leiða til að greiða skuldir sínar.
Verðtrygging væri séríslenskt fyr-
irbæri. Efnahagskreppa í öðrum
löndum framkallaði yfirleitt vaxta-
lækkun sem örva ætti atvinnulífið.
Þá lækkuðu einnig vextir af hús-
næðislánum. Hér væri glímt við
gjaldeyrishrun ofan á efnahags-
lægð og það hækkaði húsnæðis-
lánin vegna verðbótaþáttarins.
Óstöðugleikinn væri þungbærast-
ur.
Lilja gagnrýndi verðtrygging-
una og sagði að þjóðarsátt yrði
aldrei nema tekið yrði á skulda-
vanda heimilanna. Ef húsnæðis-
lán hefðu verið með föstum vöxt-
um til fimm ára án verðtryggingar
hefðu lánveitendur þurft að taka
skellinn. „Nauðsynlegt er að leið-
rétta höfuðstól húsnæðislána til
þess að draga úr fjölda þeirra sem
verða gjaldþrota og til að ná sann-
gjarnri skiptingu skuldabyrða af
völdum fjármálakreppunnar.“
Fimmtudagur 4. Júní 2009 3Fréttir
nágrannastríð um
óbyggðan bíLsKÚr
Ríkey Guðmundsdóttir og Sigurliði Guðmundsson fá ekki að byggja bílskúr við
heimili sitt þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Þau segja Kópavogsbæ taka afstöðu með
nágrönnum þeirra sem vilja ekki bílskúrinn og hafa komið af stað hatrömmum
nágrannaerjum. Málið hefur staðið í tæp tvö ár og segir Ríkey það taka mikið á þau
andlega.
„Við skiljum þetta ekki. Þetta er
illska og hún magnast. Hún er orð-
in svo mögnuð,“ segir Ríkey Guð-
mundsdóttir, íbúi við Löngubrekku
37 í Kópavogi.
Árið 2007 létu hún og sambýl-
ismaður hennar, Sigurliði Guð-
mundsson, teikna bílskúr fyrir sig
og fengu leyfi fyrir honum. Ná-
grannar þeirra vildu ekki bílskúrinn
og í kjölfarið var leyfið tekið af þeim
á þeim forsendum að lóðin væri of
lítil fyrir hann. Þau fengu að heyra
að nágrannarnir myndu sætta sig
við bílskúrinn ef hann væri mjórri
og styttri. Þau fengu því arkitekt til
að teikna annan bílskúr sem varð til
þess að skipulagsstjóri Kópavogs-
bæjar hringdi í þau og sagði ná-
grannana hafa kvartað. Þeir væru
ekki sáttir við bílskúrinn og hann
yrði aldrei samþykktur. Ennfremur
hefur bærinn reynt að minnka lóð
hjónanna og þar af leiðandi brjóta
þinglýstan lóðarsamning.
Gamla gefst ekki upp
„Ég held að nágrannarnir hafi
haldið að af því við erum fullorðin
gæfumst við upp. En gamla er svo-
lítið seig og gefst ekki upp,“ segir
Ríkey sem skilur hvorki upp né nið-
ur í þessu máli.
„Það eru bílskúrar við hvert hús
í götunni nema hér. Bílskúrinn við
hliðina á mér hinum megin er ná-
kvæmlega eins og sá sem við teikn-
uðum upphaflega og þeir lýstu því
yfir hjá bygginganefnd að hann gæti
ekki farið betur við húsið. Þeir hrós-
uðu mér fyrir hvað hann er fínn.
Núna vilja nágrannarnir að við fær-
um bílskúrinn miklu aftar en það er
svo mikil klöpp hér og engan veg-
inn forsvaranlegt að sprengja hana
upp. Þetta er það leiðinlegasta sem
ég hef lent í á ævinni.“
Svikin um lóð
„Leyfi fyrir fyrsta bílskúrnum var
synjað á þeim forsendum að lóðin
væri of lítil. Þá vildi Kópavogsbær
meina að við ættum fjörutíu sentí-
metrum minni lóð en lóðaleigu-
samningurinn segir til um. Bærinn
fór á fullt að reyna að semja við okk-
ur um að fara milliveg með lóðina
okkar. Núna loksins er ég búin að
fá rétta lóð sem allir vissu. Þetta er
þinglýstur samningur sem ekki er
hægt að breyta. Það er ekki hægt að
breyta þinglýstum lóðarsamningi
nema bærinn ætli að nota lóðina
sem er ekki í þessu tilviki.“
Spilling í Kópavogi
„Þau vilja ekki að bílskúrinn skyggi
á hjá þeim. Málið er að hann
skyggir ekki á neitt hjá þeim. Þetta
er bara ofboðslega frekja og þeir hjá
Kópavogsbæ standa með þeim,“ segir
Ríkey sem er ekki sátt við framgöngu
starfsmanna Kópavogsbæjar í mál-
inu. Þegar deilan byrjaði var kona
sem sat í bygginganefnd Kópavogs
að vinna fyrir nágrannana að sögn
Ríkeyjar. Ríkey kvartaði undan kon-
unni með þeim afleiðingum að hún
var látin fara úr nefndinni.
„Bærinn er alltaf að smjaðra fyr-
ir nágrönnunum. Það er spilling í
þessu öllu. Arkitekt sem hefur unn-
ið fyrir bæinn er að vinna fyrir þau.
Það kom yfirlýsing frá honum þeim
í hag. Ég veit ekki hvernig þau fara
að því að snúa þessu fólki. Svo sagði
Gunnar Birgisson við mig um dag-
inn þegar ég talaði við hann um
málið: „Ríkey mín, ég sárvorkenni
þér að þurfa að búa við hliðina á
þessu fólki“. Að afgreiða bæjarbúa
svona er ekki hægt.“
Tekur á
Ríkey ákvað að fá sér lögfræðing og
tilkynnti Kópavogsbæ það. Þá vildi
bærinn borga fyrir hana allan lög-
fræðikostnað. Hún segir arkitekt sinn
ekkert skilja í þessu máli.
„Arkitektinn sem teiknaði báða
bílskúrana hefur teiknað í fjölda-
mörg ár og teiknað hundrað bíl-
skúra. Hann hefur aldrei upplif-
að aðra eins vitleysu. Og að reyna
að taka af mér lóð sem er þinglýst.
Þetta er ekki hægt,“ segir Ríkey sem
er orðin þreytt á þessu máli.
„Ég er búin að senda hundrað
bréf út af lóðinni og búin að standa
í stríði við bæinn. Þetta er búið að
taka mjög mikið á.“
Vegna sumarfría fengust engin
svör frá Kópavogsbæ.
„Þetta er bara of-
boðsleg frekja og
þeir hjá Kópavogsbæ
standa með þeim.“
lilja GuðmundSdóTTiR
blaðamaður skrifar lilja@dv.is
Hafa reynt sættir „Það var reynt að
koma á sáttum en það er hatur hjá
þeim,“ segir ríkey um nágranna sína.
mynd SiGTRyGGuR aRi jóHannSSon
Hafa reynt allt ríkey keypti gamla rútu
sem er svipuð að stærð og bílskúrinn
sem þau vilja byggja til að sýna nágrönn-
unum að hann muni ekki skyggja á þá.
mynd SiGTRyGGuR aRi jóHannSSon
Pappírsflóð Hjónin í Löngubrekku 37 eiga
vænan bunka af gögnum tengdum málinu sem
þau segja einkennast af spillingu í Kópavogsbæ.
HÚsnæðisstritið mestu
verðmæti banKanna
jóhanna Sigurðardóttir „Fram kemur
að tillögur um flata niðurfellingu skulda
séu enda ómarkvissar og kostnaðarsam-
ar leiðir til að leysa úr vanda þeirra sem
brýnast þurfi á slíku að halda.“
Fasteignaveðlán eru
umtalsverður hluti
eigna nýju bankanna
... Án þeirra stæðu
eftir bankar sem
væru enn berskjald-
aðri gagnvart
sveiflum á gengi
krónunnar en
nýju bankarn-
ir eru nú.