Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2009, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2009, Page 8
Fimmtudagur 4. Júní 20098 Fréttir „Félagið stendur ágætlega“ Félagið Skipholt ehf. sem er í eigu Kjartans Gunnarssonar var einn af stærstu eigendum Landsbank- ans með 0,82 prósenta hlut. Til samanburðar átti Soffanías Cecilsson hf. 0,72 prósenta hlut. Skuldir Skipholts voru um 1.200 milljónir króna í árslok 2007. Litlar eignir eru eftir í félaginu fyrir utan fast- eign sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson leigir af félaginu auk 1.800 þúsund króna hluts í Decode. Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks- ins, átti í gegnum félag sitt Skipholt ehf. 0,82 prósenta hlut í Landsbank- anum. Kjartan var sem kunnugt er varaformaður stjórnar Landsbank- ans þar til bankinn var yfirtekinn í október. Félag Kjartans var stærri hluthafi í Landsbankanum en út- gerðarfyrirtækið Soffanías Cecilsson hf. á Grundarfirði sem átti 0,72 pró- sent í bankanum, eða 0,1 prósenti minna en Kjartan. Í árslok 2007 var hlutur Kjartans metinn á 3,2 milljarða króna sam- kvæmt ársreikningi Skipholts. Þegar ríkið tók bankann yfir í október var verðmæti hlutar Kjartans komið í um 1.800 milljónir króna. Eftir yfir- töku ríkisins á Landsbankanum varð sá hlutur verðlaus. „Félagið stendur ágætlega,“ sagði Kjartan þegar DV leitaði svara um hvernig félag hans stæði í dag. Decode eina hlutabréfaeignin Samkvæmt ársreikningi Skipholts í árslok 2007 var hlutur félagsins í Decode metinn á 17 milljónir króna, í Glitni á 49 milljónir króna, í Exista á 7,4 milljónir króna auk hlutarins í Landsbankanum sem metinn var á 3,2 milljarða króna. Allar þessar eign- ir eru í dag verðlausar nema hlutur- inn í Decode sem metinn er á 1.800 þúsund í dag. Skuld- ir félagsins 2007 voru í kringum 1.200 millj- ónir króna. „Það voru ekki veitt lán til stjórnenda vegna hlutabréfakaupa hjá Landsbank- anum,“ segir Ásmundur Stefáns- son, bankastjóri Landsbankans NBI. Hann segir það alveg ljóst að mörg eignarhaldsfélög sem komið var upp utan um hlutabréfaeignir standi mjög illa í dag og eigi ekki fyr- ir skuldum. Skipholt á hús Hannesar Árið 2005 keypti Kjartan hús Hann- esar Hólmsteins Gissurarsonar að Hringbraut 24 í Reykjavík. Athafna- maðurinn Jón Ólafsson stóð þá í málaferlum við Hannes í Bretlandi. „Þegar ég stóð andspænis því að greiða um 20–25 milljónir króna í málskostnað vegna málaferla Jóns Ólafssonar gegn mér úti í Bretlandi keypti Kjartan af mér hús mitt við Hringbraut svo að ég gæti staðið í skilum,“ sagði Hannes í samtali við DV í febrúar. Þegar DV hafði samband við Hannes sagðist hann vera staddur erlendis. Hann bað um að sér yrði sendur póstur þar sem dýrt væri að tala í síma. „Það er allt óbreytt,“ svar- aði Hannes þegar spurt var hvort einhver breyting hefði orðið á sam- komulagi hans við Kjartan Gunn- arsson um húsnæðið sem Hannes leigir af honum. Skipholt á sumarhúsið Árið 2001 var ríkisjörðin að Kvos- læk í Fljótshlíð seld fyrir 24 millj- ónir króna. Þá sagði Magnús Leo- poldsson fasteignasali í samtali við Morgunblaðið að hann hefði boð- ið í eignina í eigin nafni. Magn- ús er skráður stofnandi fé- lagsins Kvoslækur ehf. en Kjartan Gunnarsson á 38 prósent í því. Aðrir hluthaf- ar eru Hörður Sigurgests- son, fyrrverandi forstjóri Eimskips, Björn Bjarna- son, fyrrverandi dóms- málaráðherra, Stefán Pétur Eggertsson verk- fræðingur og Brynjólf- ur Bjarnason, forstjóri Skipta. Eiginkonur Harð- ar, Björns, Stefáns Péturs og Brynjólfs eru líka skráðar eigend- ur að félaginu. Auk þessarar eignar Kjartans á hann félagið Gunnlaugsstaði ehf. ásamt Rannveigu Rist, forstjóra Ísal, og Halldóri J. Kristjánssyni, fyrrver- andi bankastjóra Landsbankans. Félagið á jörðina Gunnlaugsstaði á Héraði. Þar er tæplega 70 hektara skógræktarsvæði. Konan hjálpar atvinnulausum Kjartan á lítinn son með konu sinni Sigríði Snævarr sem hlaut nafnið Kjartan Gunnsteinn í upphafi árs- ins. Sigríður er elst íslenskra kvenna til að ala barn svo vitað sé en hún var 55 ára þegar hún átti Kjartan Gunn- stein. Sigríður vakti nokkra athygli í fyrrahaust þegar hún stofnaði félag- ið Nýttu kraftinn ásamt Maríu Björk Óskarsdóttur viðskiptafræðingi. Félagið varð til eftir bankahrunið og byggir hugmyndafræði þess á því að styðja og hvetja einstaklinga sem misst hafa vinnuna. Markmið þess er að koma atvinnulausum sem fyrst út á vinnumarkaðinn aftur. Meðal samstarfsaðila félagsins eru Vinnu- málastofnun og VR. „Í árslok 2007 var hlutur Kjartans metinn á 3,2 millj- arða króna samkvæmt ársreikningi Skipholts. Þegar ríkið tók bankann yfir í október var verðmæti hlutar Kjartans komið í um 1.800 milljónir króna.“ annaS SiGmunDSSon blaðamaður skrifar: as@dv.is Á hátindinum Hér sést Kjartan gunnarsson við opnun útibús Landsbankans í Hong Kong haustið 2007. Þá var hlutur Kjartans í Landsbankanum metinn á um þrjá milljarða króna. Kjartan á hús Hannesar Félagið Skipholt ehf. keypti hús Hannesar Hólm- steins gissurarsonar við Hringbraut í reykjavík árið 2005 þegar Hannes stóð í málaferlum við Jón Ólafsson. 2007: Áætlað 2009: landsbankinn 3,2 milljarðar 0 Glitnir 49 milljónir 0 Decode 17,5 milljónir 1.800 þúsund Exista 7,4 milljónir 7.500 krónur Fasteignir 209 milljónir 209 milljónir Skuldir 1.200 milljónir Ekki vitað EiGnir SKipHoltS EHF. Árið 2007 oG 2009:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.