Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2009, Blaðsíða 10
Fimmtudagur 4. Júní 200910 Neytendur
Handbók
neytenda
Á heimasíðu Neytendasamtak-
anna má finna þriðju útgáfu af
Handbók neytenda. Um hana
ættu allir neytendur að vera með-
vitaðir. Þar má finna upplýsingar
um fjölmörg atriði sem snúa að
neytendamálum. Ferðalög, bílar,
hús og íbúðir, skaðsemisábyrgð,
opinber þjónusta, tryggingar og
samningar eru dæmi um kafla í
bókinni, sem aðgengileg er á net-
inu. Vertu meðvitaður um rétt-
indi þín og skyldur í viðskiptum.
ókeypis
leiðsögn
Afþreying og fræðsla þarf ekki
alltaf að kosta peninga. Í kvöld
sér Anna Margrét Elíasdóttir
garðyrkjufræðingur um leiðsögn
um Grasagarðinn í Reykjavík.
Gangan verður helguð börnum
og þau kynnt fyrir helstu plöntum
sem vaxta í garðinum. Að lokinni
fræðslu er boðið upp á pipar-
mintute en þátttaka er öllum
opin og kostar ekkert. Ef til vill
geturðu lært eitt og annað sjálfur
um íslenskt gróðurfar.
n Lastið fær Select
verslun Skeljungs í
Öskjuhlíð. Svangur
viðskiptavinur keypti
sér beikonvafða pylsu
með kartöflusalati.
Þegar hann renndi yfir
kvittunina sá hann að tvær
matskeiðar af kartöflusalati
kostuðu hvorki meira né
minna en 125 krónur. Hann
hafði
varla lyst
á pylsunni.
n Kona hafði samband við DV og vildi
lofa tryggingafélagið VÍS. Íbúð hennar
varð fyrir miklu vatnstjóni svo
iðnaðarmenn hafa unnið þar
samfleytt í tvær vikur. Hún
vildi lofa þá fyrir topp
þjónustu og góða umgengni.
Þrátt fyrir að bókstaflega allt
hafi verið rifið út hefur
snyrtimennskan
verið í fyrirrúmi.
SEndiÐ LOF EÐa LaSt Á nEYtEndur@dV.iS
Dísilolía
grafarvogi verð á lítra 181,3 kr. verð á lítra 171,7 kr.
skeifunni verð á lítra 179,8 kr. verð á lítra 170,2 kr.
akranesi verð á lítra 181,3 kr. verð á lítra 171,7 kr.
bensín
dalvegi verð á lítra 172,6 kr. verð á lítra 163,0 kr.
Fjarðarkaupum verð á lítra 172,7 kr. verð á lítra 163,1 kr.
skógarseli verð á lítra 181,3 kr. verð á lítra 171,6 kr.
umSJón: BaLdur guÐmundSSOn, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
Foreldrar á tjaldferðalagi með þrjú börn mega gera ráð fyrir því að nóttin kosti að jafn-
aði 2.500 krónur. DV kannaði verð á 20 vinsælum tjaldsvæðum víðs vegar um landið.
Nóttin fyrir tvo fullorðna og börn sem eru 5, 10 og 15 ára gömul kostar á bilinu 1.600 til
3.600 krónur á þeim tjaldsvæðum sem athuguð voru. Þjónusta á tjaldsvæðum er mjög
misjöfn og tekur verðið yfirleitt mið af því.
TjaldgisTing
kosTar 2.500
Tjaldgisting fyrir fimm manna fjöl-
skyldu kostar að meðaltali 2.500
krónur, ef marka má verðkönnun DV
á vinsælum tjaldsvæðum víðs vegar
um landið. Verð voru athuguð á tut-
tugu af helstu tjaldsvæðum lands-
ins. Tjaldsvæði á Íslandi eru svo til
óteljandi svo ákveðið var að skoða
nokkur af þeim sem eru vinsælust.
Við öflun upplýsinga var stuðst við
vefsíðurnar tjald.is og tjalda.is, auk
þess sem hringt var á nokkra staði.
Verðin eru því með þeim fyrirvara
að réttar upplýsingar hafi fengist
gefnar upp.
Margt innifalið í Breiðavík
Þjónusta á þeim tjaldsvæðum sem
athuguð voru er ákaflega mis-
munandi. Þess vegna er erfitt að
bera saman hversu mikla þjónustu
fólk kaupir sem gistir á mismun-
andi tjaldsvæðum. Tjaldgisting fyr-
ir fimm manna fjölskyldu; tvo full-
orðna og börn sem eru 5 ára, 10 og
15 ára gömul, kostar á bilinu 1.600
til 3.600 krónur á þeim tjaldsvæðum
sem athuguð voru. Miðað er við að
fjölskyldan hafi meðferðis og gisti
í tveimur tjöldum. Á dýrasta tjald-
svæðinu, Breiðavík, er þjónusta við
tjaldsvæði á meðal þess sem best
gerist á landinu. Þar kostar gisting
1.200 krónur fyrir fullorðna en inni-
falið er frítt internet, kaffi, fullbúið
eldhús, rafmagn og aðstaða í matsal.
Slík aðstaða verður seint borin sam-
an við tjaldsvæði þar sem einungis
er kalt vatn og klósettaðstaða.
Hálft gjald fyrir
grunnskólabörn
Undantekningalaust gista börn á
leikskólaaldri frítt á tjaldsvæðum.
Börn á grunnskólaaldri greiða oft á
tíðum hálft gjald en þó er algengt að
börn eldri en 13, 15 eða 16 ára greiði
eins og fullorðnir; fullt gjald. Á fá-
einum tjaldsvæðum skiptir fjöldi
þeirra sem gista ekki máli heldur
fjöldi tjalda eða vagna. Á Arnarstapa
kostar til dæmis 2.000 krónur fyr-
ir vagn en 1.500 fyrir tjöld og gildir
þá einu hversu margir gista í tjald-
inu. Í dæmi fjölskyldunnar, sem hér
er um talað, kostar nóttin því 3.000
krónur, þar sem þau gista í tveimur
tjöldum.
Miðað við þessa verðkönnun
kostar tjaldgisting, í viku hringferð
um landið, 17.500 krónur fyrir fimm
manna fjölskyldu. Hægt er að kom-
ast af með minni pening fyrir gist-
ingu þar sem þjónusta er minni.
Annað uppihald, svo sem bensín
og matur, er þó vitanlega ekki inni í
þeirri tölu.
Þvottavélar og internet
Mörg tjaldsvæði selja alls kyns
þjónustu sem er gagnleg fyrir
ferðalanga. Þannig selja tjaldsvæð-
in í Ásbyrgi og í Skaftafelli aðgang
að þvottavél ásamt þvottaefni fyrir
300 krónur. Þá er á betri tjaldsvæð-
um hægt að komast í sturtu fyrir
svipaða upphæð en hafa ber hug-
fast að mörg tjaldsvæðin eru í ná-
munda við sundlaugar. Aðgang að
interneti er sums staðar hægt að
kaupa á sanngjörnu verði, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Þá ber þess að geta að á Bíldu-
dal, Breiðdalsvík, í Garði, á Skaga-
strönd, og eflaust víðar, má tjalda
ókeypis.
„Miðað við þessa verðkönnun kostar tjaldgisting,
í viku hringferð um landið, 17.500 krónur fyrir
fimm manna fjölskyldu.“
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Tjaldsvæðið í Ásbyrgi
Fullorðnir: 850 kr.
13-16 ára: 400 kr.
12 ára og yngri: 0 kr.
Samtals 2.100 kr.
Tjaldsvæðið á Akur-
eyri – Þórunnarstræti
Fullorðnir: 900 kr.
13 ára og yngri: 0 kr.
Samtals 2.700 kr.
Þórsmörk
Fullorðnir: 800 kr.
5-12 ára: 400 kr.
4 ára og yngri: 0 kr.
Samtals 3.200 kr.
Bakkaflöt – Varmahlíð
Fullorðnir: 800 kr.
12 ára og yngri: 0 kr.
Samtals 2.400 kr.
Tjaldsvæðið
Hallormsstaðaskógi
– Höfðavík
Fullorðnir: 750 kr.
14 ára og yngri: 0 kr.
Samtals 2.250 kr.Tjaldsvæðið í
Skaftafelli
Fullorðnir: 850 kr.
13-16 ára: 400 kr.
12 ára og yngri: 0 kr.
Samtals 2.100 kr.
Tjaldsvæðið
Laugalandi
Fullorðnir: 800 kr.
12 ára og yngri: 0 kr.
Samtals 2.400 kr. Tjaldvæðið Kleifar Kirkjubæjarklaustri
Fullorðnir: 750 kr.
13 ára og yngri: 0 kr.
aukatjald eða bíll: 750 kr.
Samtals 3.000 kr.
Tjaldsvæðið
Þingvöllum
Fullorðnir: 700 kr.
14 ára og yngri: 0 kr.
Samtals 2.100 kr.
Tjaldvæðið á
Blönduósi
tjald: 1.400 kr.
Samtals 2.800 kr.
Tjaldsvæðið við Menntaskólann á Ísafirði
Fullorðnir: 800 kr.
Börn: 0 kr.
Samtals 1.600 kr.
Tjaldsvæðið í
Laugardal
Fullorðnir: 1.000 kr.
12 ára og yngri: 0 kr.
Samtals 3.000 krónur.
Tjaldsvæðið
Húsafelli
Fullorðnir: 900 kr.
7-17 ára: 400 kr.
6 ára og yngri: 0 kr.
Samtals 2.600 kr.
Tjaldsvæði
Seyðisfjarðar
Fullorðnir: 600 kr.
12-15 ára: 400 kr.
Samtals 1.600 kr.
Arnarstapi
Vagn: 2.000 kr.
tjald: 1.500 kr.
Samtals 3.000 kr.
Breiðavík
Fullorðnir: 1.200 kr.*
6-12 ára: 600 kr.
11 ára og yngri: 0 kr.
Samtals 3.600 kr. Hveravellir á Kili
Fullorðnir: 1.000 kr.
7-16 ára: 500 kr.
6 ára og yngri: 0 kr.
Samtals 3.000 kr.
Tjaldsvæðið Þakgil
Fullorðnir: 850 kr.
11 ára og yngri: 0 kr.
Samtals 2.550 kr.
Ferðamiðstöðin á
Flúðum
Fullorðnir: 850 kr.
13-16 ára: 400 kr.
12 ára og yngri: 0 kr.
Samtals 2.100 kr.
Tjaldsvæðið í
Reykholti
Fullorðnir: 750 kr.
12-16 ára: 350 kr.
11 ára og yngri: 0 kr.
Samtals 1.850 kr.
*frítt internet, kaffi,
þvottavél, fullbúið
eldhús, rafmagn og
aðstaða í matsal.
miÐaÐ ViÐ Fimm manna
FJöLSkYLdu í útrEikningum.