Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2009, Qupperneq 4
miðvikudagur 24. júní 20094 Fréttir
Karlmaður á fimmtugsaldri var kærður til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
fyrir að byrla konu lyf og nauðga henni í lok febrúar. Kæran leiddi ekki til ákæru
vegna skorts á sönnunargögnum. Fimm til sjö tilfelli um lyfjanauðgarnir koma inn
á borð til Neyðarmóttöku nauðgana árlega.
„ÞAÐ VERÐUR AÐ
STÖÐVA ÞESSA MENN“
„Við höfum aldrei
getað sýnt fram á
það.“
Karlmaður á fimmtugsaldri var
kærður til lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu fyrir að byrla konu
á miðjum aldri ólyfjan, hugsanlega
Rohypnol, og nauðga henni í lok
febrúar síðastliðins. Kæran leiddi
hins vegar ekki til ákæru eftir rann-
sókn lögreglunnar því skortur var
á sönnunargögnum og vitnum að
hinni meintu nauðgun.
Að sögn verkefnisstjóra Neyðar-
móttöku nauðgana, Eyrúnar Jóns-
dóttur, koma um fimm til sjö tilfelli
slíkra lyfjanauðgana inn á hennar
borð á ári en aldrei hefur tekist að
sýna fram á að fórnarlömbunum
hafi verið verið byrluð lyf. „Við höf-
um aldrei getað sýnt fram á það,“
segir Eyrún.
Lyfin hverfa fljótt
úr líkamanum
Eitt af vandamálunum við rann-
sókn málsins sem um ræðir hér var
meðal annars að of langur tími leið
frá því að hin meinta nauðgun átti
sér stað þar til fórnarlambið leit-
aði á sjúkrahús. Ummerki um Roh-
ypnol og sambærileg lyf greinast að-
eins í blóði í um sólarhring eftir að
að efnið hefur verið innbyrt að sögn
Eyrúnar. Engin ummerki um lyf-
ið fundust í líkama konunnar sem
kærði hina meintu nauðgun, sam-
kvæmt heimildum DV.
Orð konunnar sem kærði hina
meintu nauðgun voru gegn orði
mannsins sem var kærður, sam-
kvæmt heimildum DV, og því gat
lögreglan ekki aðhafst meira í mál-
inu. „Því miður höfum við ekki getað
sýnt fram á að fólki hafi verið byrluð
lyf því ummerki um þau finnast ekki.
Þá er þetta bara orð gegn orði og þá
er það bara mat lögreglunnar að það
hafi lítinn tilgang að fara lengra með
málið,“ segir Eyrún.
Konan og maður-
inn málkunnug
Konan og maðurinn voru málkunn-
ug og höfðu hist á skemmtistað í
Reykjavík þar sem þau tóku tal sam-
an. Samkvæmt heimildum DV var
konunni byrluð ólyfjan á skemmti-
staðnum en hin meinta nauðgun
átti sér stað í heimahúsi eftir það.
Konan sem lagði fram kæruna man
lítið eftir atburðinum en minnisleysi
er ein af afleiðingum inntöku lyfja
eins og Rohypnols.
Eyrún Jónsdóttir segir að afleið-
ingin af inntöku nauðganalyfja eins
og Rohypnols sé að þau byrji að virka
mjög fljótt og að fórnarlömbin falli í
mjög djúpan svefn og viti ekki af sér
í þrjá eða fjóra tíma. „Sönnunarmat-
ið í þessum málum er því gríðarlega
erfitt því oft á tíðum muna konurnar
ekkert hvað gerðist. Og af því hvað
þær muna lítið er erfiðara fyrir þær
að fara af stað og segja frá einhverju
sem þær muna ekki almennilega
eftir,“ segir Eyrún.
Mikilvægt að leita sér aðstoð-
ar sem fyrst
Eyrún segir að það sé afar mikilvægt
að fólk komi sem fyrst á Neyðarmót-
töku nauðgana ef það telur að það
hafi lent í slíkri lyfjanauðgun. Hægt
sé að finna ummerki um inntöku
slíkra svefnlyfja með blóð- og þvag-
prufu ef skjótt er brugðist við og að
það styrki vissulega framburð þeirra
ef nauðgunarkæra er lögð fram, að
sögn Eyrúnar.
Hún segir til dæmis að í þekkt-
asta tilfellinu um lyfjanauðganir hér
á landi, máli Stefáns Hjaltested, hafi
ekki verið hægt að styðja framburð
þeirra kvenna sem Stefán nauðg-
aði með lyfjasýnum því ummerki
um þau hafi ekki fundist. Fjöldi
þeirra kvenna sem leituðu til Neyð-
armóttöku nauðgana með svipað-
ar frásagnir eftir kynni sín af Stefáni
leiddi hins vegar til þess að hann
var ákærður. „Engar lyfjamælingar
studdu frásögn þeirra stúlkna; það
var fjöldi mála, kæra og samdóma
frásagna fórnarlambanna.“
Í tilfellum slíkra lyfjanauðgana er
því mikilvægt að leggja fram kæru þó
svo að hún leiði ekki beint til ákæru
því þá fái árásarmennirnir viðvörun
og lögreglan fær upplýsingar um að
grunur leiki á um að þeir hafi brotið
af sér, að sögn Eyrúnar. „Það verður
að stöðva þessa menn,“ segir Eyrún.
IngI F. VILhjáLMsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Kærður fyrir lyfjanauðgun karlmaður á
fimmtugsaldri var kærður til lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu fyrir lyfjanauðgun
í lok febrúar. maðurinn var ekki ákærður
vegna skorts á sönnunargögnum. myndin
tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Mátti leita hjá
Hannesi
Héraðsdómur Reykjavík-
ur úrskurðaði í gær að húsleit
efnahagsbrotadeildar ríkislög-
reglustjóra á tveimur heimilum
Hannesar Smárasonar að Fjöln-
isvegi 9 og 11 hafi verið lögmæt.
Hannes fór fram á að húsleit
og haldlagning gagna á heimili
hans yrði úrskurðuð ólögleg.
Efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra gerði húsleit á heim-
ilum Hannesar 3. júní í tengsl-
um við möguleg skattalagabrot
félaganna Oddaflugs og Primus-
ar sem Hannes Smárason átti að
sögn Morgunblaðsins.
Reiðarslag fyrir
verktaka
Verktakastarfsemi á Íslandi
blæðir út og niðurskurður í
vegagerð er reiðarslag að mati
stjórnar Samtaka iðnaðarins
sem senda frá sér ályktun um
stöðu mála.
„Við núverandi aðstæður á
alls ekki að hætta við allar fram-
kvæmdir,“ segir í ályktuninni og
þar er brýnt fyrir stjórnvöldum
„... að velja af kostgæfni verk-
efni sem eru mannaflsfrek og
arðsöm og til þess fallin að auka
samkeppnishæfni íslensks sam-
félags þegar fram í sækir. Skora
Samtök iðnaðarins á ríkisstjórn-
ina að taka ákvörðun sína um
12 milljarða niðurskurð til sam-
göngumála til endurmats.“
Bílprófslaus
fullur á bíl
Tíu ökumenn voru teknir fyrir
ölvunarakstur í umdæmi lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu um helgina, þar af einn sem
aldrei hafði öðlast ökuréttindi.
Þetta voru níu karlar á aldrinum
18–35 ára og ein kona, 18 ára.
Einn þessara ökumanna hafði
aldrei öðlast ökuréttindi.
Þá stöðvaði lögreglan för
fjögurra ökumanna í umdæm-
inu um helgina en hinir sömu
voru allir undir áhrifum fíkni-
efna. Þetta voru karlmenn á
þrítugs-, fertugs- og sextugsaldri
en tveir þeirra höfðu þegar verið
sviptir ökuleyfi. Þess má geta að
einn fjórmenninganna ók á bíl
sem var búinn nagladekkjum
og verður því sektaður fyrir það
að auki.
Leiðrétting
Nöfn tveggja höfunda vant-
aði við greinar þeirra í DV
á þriðjudag. Lýður Árna-
son skrifaði kjallaragrein-
ina „Skundum á Þingvöll“ á
leiðaraopnu. Ingi Freyr Vil-
hjálmsson skrifaði bókadóm-
inn „Hroðvirknisleg bók um
hrunið“ á Fókussíðu.
Ósáttur maður hótaði félagsráðgjafa og fjölskyldu hans með skilaboðum úr tölvu:
dæmdur fyrir SmS-hótanir
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í
gær 39 ára gamlan karlmann í þriggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir
hótanir í garð kvenkyns félagsráð-
gjafa og starfsmanns Barnaverndar
Reykjavíkur. Sendi maðurinn ógn-
andi smáskilaboð í síma eiginmanns
félagsráðgjafans og í síma ólögráða
sonar hennar.
Konan hafði farið með málefni
barna mannsins. Sonur hans hafði
verið í tímabundnu fóstri en það var
með leyfi móður sem fór með for-
sjá hans. Maðurinn hafði hins vegar
leyfi til að hitta son sinn undir eftir-
liti Barnaverndar sem hann var afar
ósáttur við.
Það var 29. desember 2006 sem
SMS-sendingar hófu að berast í síma
barna konunnar og eiginmanns
hennar. Skilaboðin voru öll sett fram
sem spurningar og voru á þá leið að
konan væri barnaníðingur, þjófur og
morðingi. 11 ára tvíburasonum kon-
unnar bárust flest skilaboðin. Eig-
inmanni konunnar bárust skilaboð
þess efnis að hún væri að halda fram
hjá honum. Konan óttaðist um fjöl-
skyldu sína og sagði í skýrslu sinni til
lögreglu að börn hennar lifðu í stöð-
ugum ótta sökum þessa.
12. febrúar 2007 kvað Héraðs-
dómur Reykjavíkur upp úrskurð þess
efnis að Símanum hf. yrði gert skylt
að upplýsa um IP-tölu þeirrar tölvu
eða þeirra tölva sem umrædd SMS-
skilaboð voru send úr af heima-
síðu Símans. Reyndist umrædd IP-
tala vera skráð á nafn mannsins hjá
Vodafone.
Í yfirheyrslu hjá lögreglu kvaðst
maðurinn ekkert kannast við að
hafa haft samband við konuna á
netinu.
Kvaðst hann vita til þess að dótt-
ur hans væri í nöp við konuna og
hefði hún haft aðgang að netteng-
ingu á tölvu hans á þeim tíma sem
rannsóknin beindist að. Væri hon-
um hins vegar ekki kunnugt um að
hún hefði sent SMS-skilaboð eða
önnur boð til kæranda.
Í niðurstöðu Héraðsdóms
Reykjavíkur segir að maðurinn sé
sakfelldur fyrir að viðhafa hótanir
gagnvart starfsmanni Barnavernd-
ar. Brotið sé einkum ófyrirleitið þar
sem hótanirnar beindust að barn-
ungum tvíburasonum konunnar.
Um hafi verið að ræða gróft brot
gegn friðhelgi einkalífs konunnar
og fjölskyldu hennar.
Ógnvekjandi spurningar Skeytin voru sett fram sem spurningar sem ollu ugg
fjölskyldumeðlima.