Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2009, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2009, Side 16
Miðvikudagur 24. júní 200916 suðurnes Breytingin hefur gengið vel en það er fyrirtækinu mjög mikilvægt að geta unnið með stöðugan gjaldmiðil. Rekstur Bláa lónsins hefur einnig gengið vel það sem af er ári og mun betur en á sama tíma og í fyrra,“ segir Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins. Bláa lónið brá á það ráð síðasta haust að hafa gjaldskrá staðarins í evrum. Auk þess fær- ir fyrirtækið ársreikning sinn í evr- um sem hefur bætt fjárhagslegan og rekstrarlegan stöðugleika fyrir- tækisins. Bláa lónið hafði þó um ára- bil óformlega miðað verðskrána við 20 evrur sem er að sögn Gríms sambærilegt við gjaldskrá erlendra heilsulinda þar sem aðgangur er gjarnan á bilinu 20 til 45 evrur. Mikil fjölgun gesta Grímur segir að vissulega hafi það verið djarft skref að breyta verð- skránni í evrur en það hafi engu að síður verið eðlilegt miðað við ytra umhverfi fyrirtækisins. Aðsókn í Bláa lónið hefur aukist um sjö pró- sent það sem af er ári í samanburði við árið í fyrra. 127 þúsund gestir heimsóttu Bláa lónið á fyrstu fimm mánuðum ársins í samanburði við 119 þúsund á sama tíma í fyrra. Til viðbótar við aukna aðsókn segist Grímur verða var við aukna neyslu erlendra ferðamanna. Bæði kaupi þeir meira af vörum sem Bláa lónið framleiðir, íslenskum hönn- unarvörum, auk þess sem þeir leyfa sér meiri munað í mat og drykk. tilboð fyrir Íslendinga „Við leggjum ríka áherslu á tveir fyr- ir einn tilboð og birtast þau reglu- lega í fjölmiðlum en markmið okk- ar er að hafa tilboðin aðgengileg sem flestum,“ segir Grímur. Auk þess bjóði Bláa lónið 13 ára og yngri í fylgd með forráðamönnum frían aðgang. „Þá njóta fjölskyldukort- in okkar einnig aukinna vinsælda,“ segir hann. Grímur segist verða var við það að fleiri fyrirtæki hérlendis bæði hótel og afþreyingarfyrirtæki birti nú verðskrá sína í evrum. „Ferða- þjónustan er mikilvæg atvinnugrein þegar kemur að gjaldeyrissköpun og því er þetta afar jákvæð þróun fyrir land og þjóð,“ segir hann. evruvæðingin hefur gengið vel Bláa lónið brá á það ráð síðasta haust að taka upp gjaldskrá í evrum. Grímur Sæmundsen forstjóri segir að reksturinn hafi gengið mun betur það sem af er ári í samanburði við í fyrra. Hefur gestum fjölgað um sjö prósent. Bláa lónið birtir reglulega tilboð í fjölmiðlum og er markmiðið að þau séu aðgengileg sem flestum. Aukin aðsókn Gestum Bláa lónsins hefur fjölgað um sjö prósent á fyrstu fimm mánuðum ársins í samanburði við sama tíma árið 2008. Erlendir ferðamenn Forráðamenn Bláa lónsins verða varir við aukna neyslu erlendra ferðamanna. Farsæl breyting Að sögn Gríms Sæmundsen, forstjóra Bláa lónsins, hefur evruvæðing fyrirtækisins reynst farsæl. Myndir róbErt rEyniSSon KOMDU Í ÁSKRIFT Hringdu í síma 515 5555 eða sendu tölvupóst á askrift@birtingur.is eða farðu inn á www.birtingur.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.