Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2009, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2009, Síða 30
Miðvikudagur 24. júní 200930 suðurnes Fólkvangurinn í túnfætinum Umhverfisráðherra vill fá tillögur í hendur um stöðu Reykjanesfólkvangs og varnir gegn landspjöllum. Um 150 þúsund ferðamenn fara um fólkvanginn ár hvert og á döfinni er að herða eftirlit með umgengni innan hans um leið og leitast verður við að bjóða þar betri þjónustu. Svandís Svavarsdóttir um-hverfisráðherra hefur með erindisbréfi óskað eftir til-nefningum í starfshóp sem falið verður að setja fram tillög- ur um framtíð Reykjanesfólkvangs og aðgerðir til þess að hamla gegn umhverfisspjöllum þar. Í hópn- um eiga að sitja fulltrúar sveitar- stjórna, Reykjanesfólkvangs, Um- hverfisstofnunar, lögreglunnar og fleiri aðila. Honum er ætlað að skila tillögum sínum fyrir 1. september næstkomandi. Mikil umferð ferðamanna er innan hans vegna nálægðar við þéttbýlið og flugsamgangna milli landa á Keflavíkurflugvelli og þykir brýnt að bæta aðstöðu innan hans og eftirlit. Mörg undanfarin ár hef- ur fólkvangurinn aðeins haft tekjur af eins konar nefskatti sem tekinn er af íbúum sveitarfélaganna á suð- vesturhorni landsins. aukin aðsókn Að sögn Óskars Sævarssonar sem sæti á í stjórn fólkvangsins nema ár- legar tekjur af þessum nefskatti lið- lega fjórum milljónum króna. „Það hefur verið ákveðið að ráða fastan starfsmann frá 1. júlí næstkomandi. Verkefni hans eru ærin við að laga merkingar, hreinsa svæði og fleira. Menn verða að hafa í huga að inn á Reykjanesfólkvanginn koma 140 til 160 þúsund ferðamenn á ári.“ Óskar segir að háhitasvæðið í Seltúni í landi Krýsuvíkur sé mest sótt en aðrir staðir njóti einnig vax- andi vinsælda. „Ég get nefnd Króka- mýri við Vigdísarvelli á Djúpa- vatnsleið. Síðan komið var þar upp salernisaðstöðu og rennandi vatni fyrir nokkr- um misser- um hefur þetta orð- ið æ vin- sælla svæði fyr- ir tjald- gesti. Ég vil einnig nefna að ætl- unin er að koma upp þjónustuaðstöðu fyr- ir starfsmann Reykjanesfólkvangs á háhitasvæðinu við Seltún. Það vita það kannski ekki allir, en Krýsu- víkurberg er innan fólkvangsins en það er stærsta fuglabjargið í lands- hlutanum.“ Margt fleira er í deiglunni varð- andi Reykjanesfólkvang. „Nýr for- maður fólkvangsnefndarinnar er Ólafur Örn Haraldsson, útivistar- maður með mikla reynslu. Þá hef- ur sveitarfélagið Vogar lýst áhuga á nánara samstarfi um uppbyggingu fólkvangsins. Það getur meðal ann- ars orðið til þess að Keilir og svæðið þar í kring verði fellt undir fólkvang- inn, en það er býsna vinsælt úti- vistarsvæði. Ég get líka nefnt að til er nýleg skýrsla um Reykjanesfólk- vang þar sem finna má hugmyndir um umbætur og tillögur um fram- tíð hans. Á vef Reykjanesfólkvangs, reykjanesfolkvangur.is, er að finna aðra skýrslu frá árinu 2004 eftir Sig- rúnu Helgadóttur, en þar er fjallað ítarlega um upphaf, markmið og framtíð þessa landsvæðis.“ umgengni ábótavant Eitt alvarlegasta vandamál Reykja- nesfólkvangs er tengt mikilli fjölg- un torfærutækja hér á landi á undanförnum árum. Um utanvega- akstur og landspjöll var fjallað í DV í síðustu viku, en þar kom fram að áætlaður fjöldi innfluttra torfæru- tækja á undanförnum árum er um 14 þúsund, en einkum er um að ræða vélhljól og fjórhjól. Víðtæk- ustu skemmdirnar eru þó eftir bíla sem farið hafa um viðkvæmt gróð- urlendi. „Mest er um vert fyrir ríki og sveitarfélög að skilgreina hvað sé bílslóð og hvað ekki. Þetta þarf að vera ljóst í lögum og reglugerðum til þess að unnt sé að sækja menn til saka fyrir landspjöll sem hljót- ast af akstri vélknúinna tækja utan vega,“ segir Óskar og bindur von- ir við störf nefndarinnar sem skila á skýrslu sinni fyrir 1. september næstkomandi. Eitt alvarlegasta vandamál Reykja- nesfólkvangs er tengt mikilli fjölgun tor- færutækja hér á landi á undanförnum árum. Selvallafjall Mosagróið landið er sérstaklega viðkvæmt fyrir utanvegaakstri. Fólkvangur við bæjarmörkin Í túnfæti þéttbýlisins á suðvesturhorninu leynast margir áhugaverðir staðir fyrir náttúruunnendur og göngufólk. Hér er horft yfir Þrengsli. Umhverfisráðherra Svandís Svavarsdóttir hitti forsvars- menn Reykjanesfólkvangs fyrir skemmstu á Höskuldarvöll- um. Hún vill fá tillögur um aðgerðir gegn landspjöllum og framtíð fólkvangsins fyrir 1. september næstkomandi. Óskar Sævarsson „Menn verða að hafa í huga að inn á Reykjanesfólkvanginn koma 140 til 160 þúsund ferðamenn á ári.“ ÁStæða eR til ÞeSS að vekja atHygli Á koRtuM og lýSingu gönguleiða og vega, en SlÍkaR upplýSingaR eR beSt að nÁlgaSt Með ÞvÍ að leita eftiR oRðinu ReykjaneSfólk- vanguR Á netinu. ReykjaneSfólkvanguR HefuR ekki Stöðu ÞjóðgaRðS en vaR StofnaðuR SeM fólkvanguR ÁRið 1975. Hann eR uM 300 feRkÍlóMetRaR að StæRð og eR lang- StæRSta fRiðlýSta Svæði SinnaR tegundaR Á landinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.