Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2009, Blaðsíða 18
Miðvikudagur 8. júlí 200918 tóMstundir
NorðurlaNd
Hólsvöllur Siglufirði
Hjónagjald: 1.500 kr.
Par: 34
Hlíðarendavöllur Sauðárkrókur
Hjónagjald: 4.000 kr.
Par: 36
Ásbyrgisvöllur Ásbyrgi
Hjónagjald 2.500 kr.
Par: 36
Katlavöllur Húsavík
Hjónagjald 4.000 kr.
Par: 35
Skeggjabrekkuvöllur Ólafsfirði
Hjónagjald 2.500 kr.
Par: 33
arnarholtsvöllur Svarfaðardal
Hjónagjald 3.000 kr.
Par: 34
Austurland
Silfurnesvöllur Hornafirði
Hjónagjald 4.000 kr.
Par: 32
Grænanesvöllur Norðfirði
Hjónagjald: 3.500 kr.
Par: 35
Ekkjufellsvöllur Fellabæ
Hjónagjald 4.000 kr.
Par: 33
SuðurlaNd
Gufudalsvöllur Hveragerði
Hjónagjald 3.000-3.500
Par: 35
Svarfhólsvöllur Selfossi
Hjónagjald 2.400 kr.
Par: 35
Haukadalsvöllur
Hjónagjald 2.800-3.300 kr.
Par: 35
Úthlíðarvöllur
Hjónagjald 3.800 kr.
Par: 35
VESturlaNd
Fróðárvöllur Ólafsvík
Hjónagjald 3.000 kr.
Par: 34
Húsafellsvöllur Húsafelli
Hjónagjald 3.000 kr.
Par: 35
Víkurvöllur Stykkishólmi
Hjónagjald 3.300 kr.
Par: 35
VEStFirðir
Vesturbotnsvöllur Patreksfirði
Hjónagjald 2.250 kr.
Par: 36
Syðridalsvöllur Bolungarvík
Hjónagjald 2.000 kr.
Par: 35
Skeljavíkurvöllur Hólmavík
Hjónagjald 2.000 kr.
Par: 35
SuðVESturlaNd
Setbergsvöllur reykjavík
Hjónagjald 4.500 kr.
Par: 34
Bakkakotsvöllur Mosfellsbæ
Hjónagjald 4.000-5.000 kr.
Par: 35
Nesvöllur Seltjarnarnesi
Hjónagjald 4.000-5.000
Par: 36
Ódýrar
9 holur
Gjald fyrir hjón á níu holu golfvelli á Íslandi er
á bilinu 1.500 til 5.000 krónur, samkvæmt at-
hugun DV. Dýrari og stærri vellir á höfuðborgar-
svæðinu eru margir hverjir þétt setnir, auk þess
sem ekki hafa allir kylfingar efni á því að spila
golf reglulega á stóru völlunum eða vera félags-
menn í vinsælum golfklúbbum. DV kannaði
hvað það kostar fyrir hjón að leika á nokkrum
af um fimmtíu níu holu völlum á Íslandi.
Víðs vegar um landið geta hjón leikið níu holu golfvöll fyr-ir um eða undir þrjú þúsund krónum. Á þeim er
misjafnt hvort um daggjald
eða einn hring er að ræða.
Á Hólsvelli á Siglufirði
greiða hjón aðeins 1.500
krónur fyrir að leika á
níu holu velli. Á Vest-
fjörðum greiða hjón
víða um 2.000 krónur
fyrir að spila á níu
holu velli.
Vinsæl
íþrÓtt
Golf er afþrey-
ing sem að
lágmarki 64
þúsund Ís-
lendingar
hafa stundað,
samkvæmt
niðurstöðum
lífsstílskönn-
unar sem
Gallup birti
árið 2006.
Vinsæld-
ir íþróttar-
innar hafa
aukist hratt
undanfarin
ár og því má
gera ráð fyrir
að iðkendum
hafi fjölgað
nokkuð.Þá voru
63 golfvellir á Ís-
landi, þar af þrettán
átján holu vellir. Gjald
fyrir stakan hring á
nokkrum af íburð-
armeiri 18 holu golf-
völlum landsins get-
ur numið allt að 6.800 krónum. Í því
efnahagsástandi sem nú ríkir er ekki
víst að allir þeir sem eiga golfkylf-
ur hafi efni á því að spila á slíkum
völlum. Því tók DV saman hversu
hátt gjald hjón þurfa greiða á 22 níu
holu völlum víðs vegar um landið.
alls kyns afslættir
Teknir voru fyrir nokkrir níu holu golf-
vellir í hverjum landshluta, af handa-
hófi. Í ljós kom að gjaldið sem hjón
greiða fyrir hring eða jafnvel heilan
dag á níu holu golfvelli nemur á bil-
inu 1.500 til 5.000 krónum, en hafa
ber í huga að mjög misjafnt er hversu
mikil vinna liggur að baki völlunum
og hvaða þjónusta er í boði á hverjum
stað.
Við upplýsingaöflun var notast við
heimasíðu Golfsambands Íslands,
sem er stútfull af fróðleik um golf
á Íslandi. Einnig var stuðst við
upplýsingar á nat.is, sem
er íslenskur menn-
ingar- og upplýs-
ingavefur um allt
mögulegt á Ís-
landi.
Þeir sem eru félagsmenn í golfklúbbi
innan Golfsambands Íslands fá í mörgum
tilvikum afslætti á aðra velli. Þá njóta ungl-
ingar, örorku- og ellilífeyrisþegar oft sérkjara,
auk þess sem afslætti er oft og tíðum hægt að
fá fyrir hópa. Þá er víða hægt að kaupa kort sem
gildir í viku á hagstæðu verði. Algengur afslátt-
ur fyrir maka er 50 prósent.
baldur@dv.is
Golf er frábær skemmtun
Golfarar mæla út flötina á
Hvaleyrarvelli.
Fjórhjólaferðir í einstakri náttúru á
Reykjanesinu aðeins 5 mín. frá Bláa Lóninu.
Frábær tilboð í gangi - opið alla daga -
enginn lámarksfjöldi í ferðir.
Fjórhjólaævintýri Ehf
www.atv4x4.is · info@atv4x4.is
(+354)857-3001