Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2009, Blaðsíða 23
Eina albestu greiningu á Icesave-
vanda íslensku þjóðarinnar er nú að
finna á vefsíðu Jóns Baldvins Hanni-
balssonar jbh.is.
Ólafur, bróðir Jóns Baldvins, rit-
aði ekki síður athyglisverða grein um
málið í Morgunblaðið síðastliðinn
mánudag. Í raun og veru ættu þess-
ar greinar að vera skyldulesning,
ekki síst fyrir þá sem starfa á vegum
rannsóknarnefndar Alþingis. Eins
er með rannsakendur á þeim bæ
og vísindamenn á rannsóknarstofu;
þeir sjá oft ekki neitt markvert undir
smásjánni fyrr en búið er að benda
þeim á hvað þar getur að líta. Megn-
ið af daglegum veruleika venjulegra
borgara er líkt og sjálfgefinn. Hann
er reyrður í daglegar venjur, siði og
gildismat sem fæstir bjóða byrginn
frá degi til dags. Hann er ósýnilegur
uns bent er á hann.
Undir þessu sjónarhorni er
verðugt að staldra við eftirfarandi í
greiningu Jóns Baldvins: „Hver bar
á því höfuðábyrgð, við einkavæð-
ingu ríkisbankanna, að afhenda
Björgólfsfeðgum Landsbankann
á gjafverði? Hvers vegna var nán-
asti samstarfsmaður Davíðs, Kjart-
an Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, skilinn eftir
við einkavæðinguna sem varafor-
maður bankaráðsins? Var það ekki
til þess að tryggja, að forráða-
menn bankans væru „í pólitísku
talsambandi“ við Flokkinn, úr
því að Búnaðarbankinn hafði
samkvæmt helmingaskipta-
reglunni verið framseldur
í hendurnar á S-hópnum,
mönnunum sem stukku frá
borði, áður en SÍS var dysjað á ösku-
haugum sögunnar?“
Venslanet sérhagsmunanna
Jón Baldvin heldur áfram og segir
að varla hafi umrætt talsam-
band við Flokkinn stirðnað
við einkavæðingu bank-
anna. „Listinn yfir
nánustu samstarfs-
menn bankastjóra
Landsbankans
lítur út – eftir á að
hyggja - eins og
„hver er maður-
inn?“ yfir valda-
kerfi Flokksins úr
Orator, Vöku og
Stúdentaráði inn í
bankana og ráðu-
neytin... Það tók
þetta þéttriðna
venslanet sérhagsmunanna, und-
ir verndarvæng Sjálfstæðisflokks-
ins, bara sex ár frá einkavæðingu að
kollvarpa efnahagslegu sjálfstæði
Íslands og orðspori gagnvart um-
heiminum.“
Greining Jóns Baldvins svar-
ar einkar vel til ýmissa yfirlýsinga
Evu Joly. Hún heldur því meðal
annars fram, að valdakerfi þeirr-
ar forréttinda- og valdastéttar sem
Jón Baldvin ræðir búi við eins kon-
ar refsileysi; dómstólar nái ekki til
sérhagsmuna hennar. Fyrir þessa
stétt, íslensku nómenklatúruna, er
auðvelt að kalla eftir löghlýðni og
dómstólaleið. Dómskerfið á yfirleitt
við um aðra en hana. Davíð Odds-
son vill til dæmis að íslenskur
dómstóll rétti í Icesave-mál-
inu. Vill hann kannski
að málið fari fyrir Hér-
aðsdóm Norðurlands
eystra?
Samtryggingin um
völdin og auðinn er
fyrirfram gefin. Hún
umlukti og gegnum-
sýrði störf manna eins og
Sigurjóns Þ. Árnasonar,
fyrrverandi bankastjóra
Landsbankans, og Jónasar
Fr. Jónssonar, sem um svip-
að leyti voru formenn
Vöku og í for-
ystu fyrir
stúdenta í HÍ; Jónas 1989 og Sigur-
jón ári síðar. Báðir voru þeir með
flokksskírteini Sjálfstæðisflokksins
upp á vasann, aðgöngumiðann að
íslensku nómenklatúrunni, hinni
ráðandi stétt. Var hægt að ætlast til
þess að Jónas Fr. hefði raunverulegt
eftirlit með Sigurjóni?
Sumir eru jafnari en aðrir
Nú hefur þessi nómenklatúra
lagt íslenskt efnahagslíf í rúst hvað
svo sem hún segir sjálf um alþjóða-
kreppu, gallað regluverk ESB og
hryðjuverkalög Breta sem frumor-
sök hrunsins. Hollustan við valdið
hefur verið lykill hinna útvöldu að
forréttindunum.
Hollusta almennings átti að vera
við forstjórana, embættismennina
og landsföðurlegu stjórnmálafor-
ingjana sem réðu ferðinni. Holl-
usta óbreyttra borgara átti ekki að
vera við meðbræður og samfélag-
ið. Aftur á móti sýnir nómenklatúr-
an íslenska – hin íslenska ráðandi
stétt – aðeins hollustu innan úrvals-
hópsins. Hollusta þeirra liggur lá-
rétt; tryggð stjórnenda og annarra
innvígðra er við hver annan. Þeir
tryggja hver öðrum eftirsóttar stöð-
ur, jafnvel þótt þeir hafi framið af-
glöp og klúðrað málum. Þeir stjórn-
armenn sem örlátir eru á kaupauka
fyrir forstjórana fá örlætið ríkulega
endurgoldið.
Íslenska kunningjaveldið og
klíkuþjóðfélagið er hið undirliggj-
andi mein og orsök hrunsins. Það
á eftir að koma betur í ljós. Aug-
ljóslega geta menn, sem eru hluti
af íslensku nómenklatúrunni, ekki
rannsakað þetta mein og dregið
réttar ályktanir um ábyrgð.
Ætlar þú til útlanda í sumar?
„Ég ætla bara að ferðast um Ísland.
Hef mun meiri áhuga á að ferðast um
landið.“
Margrét HallgríMSdóttir
45 ára þjóðminjavörður
„Ég er búin að fara. Fór til Danmerkur.
þar var heitt og gott.“
óSk JónSdóttir
50 ára HeimavinnanDi
„nei, ekkert til útlanda. við höfum ekki
efni á því.“
Eiríkur guðni ÁSgEirSSon
32 ára lögreglumaður
„nei, það ætla ég ekki að gera.“
Búi guðMundSSon
70 ára ellilÍFeyrisþegi
Dómstóll götunnar
SigurBJörn HrEiðarSSon,
leikmaður vals, var hetja liðsins þegar
hann skoraði sigurmarkið á 117.
mínútu í framlengingu í bikarkeppn-
inni gegn Ka á mánudaginn. Hann
var guðsfeginn að sjá boltann inni
því hann var aðframkominn af þreytu
þegar hann tók skotið.
Vill Vinna 500
milljónir í lottó
„við ætlum að fara til Boston í eina viku
í ágúst.“
Hlín HólM
42 ára sÉrFræðingur Hjá Flugmála-
stoFnun ÍslanDs
maður Dagsins
Hinir ósnertanlegu
kjallari
1. Baltasar fékk ekki jörðina
lilja Pálmadóttir og Baltasar Kormákur
töpuðu dómsmáli sem þau höfðuðu
vegna eignarréttar á landspildu.
2. kúlulánsfólk forðar fasteignum
sínum
margir af fyrrverandi stjórnendum
Kaupþings færðu fasteignir sínar yfir á
maka sína nokkru fyrir bankahrunið.
3. Vilja endurgreiða kaupþings-
arðinn
tveir af fyrrverandi starfsmönnum
Kaupþings vilja endurgreiða arðinn sem
þeir fengu af hlutabréfakaupum.
4. kærasta Peters Crouch í litlum
sundbol - myndir
Knattspyrnukappinn hávaxni Peter
Crouch baðaði sig í sólinni ásamt unnustu
sinni á skútu við ibiza. sundbolur hennar
var afar efnislítill.
5. dissar davíð
þorkell máni, útvarpsmaður á X-inu, sagði
ekki koma á óvart að Davíð oddsson setti
út á gamla sáttmála.
6. obama gerir mistök
stjórnmálaskýrendur eru sumir á því að
Barack obama hafi gert alvarleg mistök
þegar hann lýsti vladimir Pútín sem manni
gærdagsins.
7. Stærsta „slanga“ Barcelona -
myndband
eiður smári guðjohnsen sagði í viðtali við
pilt úr vinnuskóla akureyrar um helgina
að andreas iniesta væri með „stærstu
slönguna“ í liði Barcelona.
mest lesið á Dv.is
JóHann
HaukSSon
útvarpsmaður skrifar
„Davíð Oddsson vill
til dæmis að íslen-
skur dómstóll rétti í
Icesave-málinu. Vill
hann kannski að málið
fari fyrir Héraðsdóm
Norðurlands eystra?“
umrÆða 8. júlí 2009 miðViKudaGur 23
Hver er maðurinn? „sigurbjörn
örn Hreiðarsson.“
Hvar ertu uppalinn? „á Dalvík.“
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? „lambakjötið, maður!
lambahryggur og lambalæri
klikkar aldrei.“
Ertu duglegur í húsverkunum?
„tja, konan er nú kannski ekki
sammála mér með það en ég er
þokkalegur. Ég er svona rétt um
meðaltalið myndi ég halda.“
Hvað eldaðir þú síðast? „Ég var
með soðna ýsu í hádeginu.“
Hvar langar þig helst að búa?
„mér líður frábærlega þar sem ég er
í vatnsendahverfinu í Kópavogi. þar
er stórkostlegt að búa.“
Býrðu yfir einhverjum leyndum
hæfileikum?„nei. Ég hef ekki orðið
var við þá allavega. þeir koma
kannski í ljós síðar þegar ég þarf á
þeim að halda.“
Áhugamál utan knattspyrnunn-
ar?„það eru bara aðrar íþróttir og
ferðalög með fjölskyldunni. og
bókalestur.“
Ef ekki Valur, þá hvaða lið?„þá veit
ég bara ekki hvað. Ég skal ekki
segja, þessu hef ég aldrei pælt í.
sennilega bara Dalvík.“
Á bikarkeppnin sérstakan sess í
þínum huga?„já, hún á það. mér
finnst bikarkeppnin frábær og
mikill sjarmi yfir henni. að komast í
bikarúrslitaleik er frábært og í
rauninni hápunktur hvers sumars.“
Hvernig var að sjá boltann
inni?„það var eiginlega alveg
magnað. Ég var alveg aðframkom-
inn af þreytu þarna. þegar ég sá að
boltinn stefndi í hornið var ég alveg
guðsfeginn.“
Ætti markið ekki að tryggja
byrjunarliðssæti hjá nýja
þjálfaranum?„Ég vona að þetta
hafi gert það, jú. allavega í næsta
leik sem er gegn Kr. það eru alltaf
skemmtilegustu leikir sumarsins. “
Hver er draumurinn? „Hann var að
spila með roma á Ítalíu. Í dag veit
ég það ekki. mig langar allavega
mjög mikið að vinna 500 milljónir í
lottó.“
mynDin
ung og leikur sér þessi unga hnáta naut lífsins í blíðunni laus við þær áhyggjur sem nú þrúga fólk innan veggja stjórnarráðsins.
Mynd kriStinn