Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2009, Blaðsíða 21
Undirbúningur vegna G8-ráðstefnu einkennist af ringulreið:
Ítalía fær ekki háa einkunn
Undirbúningur Ítala vegna G8-ráð-
stefnunnar sem verður haldin í fjalla-
bænum L’Aquila fær ekki háa einkunn
hjá vestrænum embættismönnum.
Að sögn þeirra hefur undirbúningur-
inn einkennst af svo mikilli ringulreið
að þrýstings gætir nú af hálfu annarra
aðildarríkja G8-samtakanna um að
víkja Ítalíu úr hópnum.
Á síðustu vikum aðdraganda ráð-
stefnunnar hefur skort á allt frum-
kvæði hjá gestgjöfunum hvað varð-
ar stefnumál ráðstefnunnar og hefur
það fallið í hlut Bandaríkjanna að axla
stjórnina.
Á vefsíðu The Guardian er haft eft-
ir ónafngreindum embættismanni
að G8 sé félagsskapur og í félagsskap
beri félagar ákveðnar skyldur. „Ítalía
hefur ekki uppfyllt þær,“ var haft eftir
embættismanninum.
Að tjaldabaki hefur sú tillaga ver-
ið viðruð á meðal óánægjuradd-
anna að Ítalíu skuli ýtt til hliðar og
að Spánn taki sess hennar.
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, hæfur sætt mikilli
gagnrýni fyrir að hafa aðeins látið
af hendi rakna þrjú prósent þeirrar
þróunaraðstoðar sem hann lofaði
fyrir fjórum árum, og fyrir áform um
50 prósenta niðurskurð á aðstoð Ít-
alíu erlendis.
Óhætt er að segja að einkamál
Silvios Berlusconi hafi fengið viða-
meiri umfjöllun þarlendra fjölmiðla
en þáttur Ítalíu í ráðstefnunni. Hæst
hefur borið fréttir af veisluhöldum
Berlusconis í félagsskap ungra fá-
klæddra kvenna, en einnig hafa ver-
ið bornar brigður á þá visku hans að
halda ráðstefnuna á svæði þar sem
enn gætir eftirskjálfta í kjölfar öflugs
jarðskjálfta fyrir þremur mánuðum.
Silvio Berlusconi Orðspor Ítalíu hefur
beðið hnekki vegna G8-ráðstefnunnar.
Mynd AFP
Vill öflugt Rússland
Barack Obama Bandaríkjaforseti
sagði í ræðu í gær að öflugt Rúss-
land væri gott fyrir Bandaríkin.
Barack Obama hélt ræðu í við-
skiptaskóla í Moskvu og á meðal
áheyrenda var fyrrverandi leiðtogi
Sovétríkjanna sálugu, Mikhail
Gorbatsjov.
Obama sagði að Bandaríkin vildu
vera í samstarfi með „sterku, frið-
samlegu og velmegandi Rúss-
landi“.
Bandarísku forsetahjónunum hef-
ur verið vel tekið í Rússlandi, en á
mánudaginn skrifuðu Obama og
Dmitry Medvedev Rússlandsfor-
seti undir samkomulag um fækk-
un kjarnorkuvopna.
Kaupir börn til sjálfsvígsárása
Að sögn bandarískra og pakist-
anskra embættismanna stund-
ar Baitullah Mehsud, háttsettur
leiðtogi talibana, kaup og sölu á
börnum til sjálfsvígsárása. Mehsud
hefur undanfarið notað börn til
árása í auknum mæli, en hefur auk
þess selt þau að lokinni þjálfun til
annarra leiðtoga talibana. Að sögn
embættismanna í pakistanska
hernum er verðið á bilinu 6.000 til
12.000 bandaríkjadalir, og eru sum
börnin ekki eldri en ellefu ára.
Að sögn Akhtars Abbas, talsmanns
pakistanska hersins, hefur Mehsud
viðurkennt að hann reki æfinga-
búðir til sjálfsvígsárása fyrir unga
drengi.
Svíni sleppt úr sóttkví
Eina svínið sem vitað er um í Af-
ganistan var sleppt lausu um síð-
ustu helgi eftir tveggja mánaða dvöl
í sóttkví vegna svínaflensunnar, og
leikur nú lausum hala í dýragarðin-
um í Kabúl, höfuðborg landsins.
Tilveru sína á svínið að þakka
forvitni landsmanna en svín og
svínaafurðir eru strangt til tekið
bönnuð í landinu enda talin tákn
trúleysis. Svínið var einangrað
vegna hræðslu gesta dýragarðsins
um að þeir gætu smitast af svína-
flensunni.
Á vefsíðu Reuters segir að dýra-
garðsgestir hafi dreifst um víðan
völl þegar svíninu var sleppt úr
sóttkvínni, og sýndist sitt hverjum.
Ný, endurbætt og pólitískt rétt útgáfa af járnkrossinum var
kynnt til sögunnar á síðasta ári og í byrjun vikunnar voru fjórir
þýskir hermenn sæmdir orðunni.
ÞýSKi JáRnKRoSSinn
í nýRRi útgáfu
Í fyrsta skipti síðan í heimsstyrjöldinni
síðari geta Þjóðverjar hampað stríðs-
hetjum sínum og sæmt þá nýrri og
endurhugsaðri útgáfu af járnkrossin-
um, svonefndum heiðurskrossi. Járn-
krossinn var nældur á þýska hermenn
frá 1813 til loka síðari heimsstyrjald-
ar, en í lok síðari heimsstyrjaldar var
Vestur-Þýskalandi bannað samkvæmt
stjórnarskrá að taka þátt í hernaði á
erlendri grundu og Þjóðverjar forðuð-
ust í lengstu lög að tengjast hernaði af
nokkru tagi. Einu viðurkenningarnar
sem í boði voru fyrir þýska hermenn
tengdust lengd herþjónustu og farsæl-
um ferli og minntu einna helst á merki
umsjónarmanna í skólum.
Nú hefur fjórum þýskum hermönn-
um verið veittur heiðurskrossinn, ný
og pólitískt rétt útgáfa af járnkrossin-
um, fyrir hetjudáð sem þeir drýgðu í
Afganistan.
nú er öldin önnur
Eftir sameiningu þýsku ríkjanna varð
ljóst að ekki var lengur hægt að kom-
ast hjá því að taka þátt í alþjóðlegri
friðargæslu, en tákn drýgðra hetju-
dáða skorti, engar hefðir herdeilda
voru til staðar, engir gunnfánar með
heiðurstáknum og engar fyrirmynd-
ir.
Hermennirnir fjórir sem sæmdir
voru heiðurskrossinum í vikubyrjun
höfðu komið til hjálpar eftir að þýskt
eftirlitsfarartæki varð fyrir sjálfsvígs-
árás 20. október á síðasta ári. Hættan
mun hafa verið augljós en hermenn-
irnir skeyttu ekki um eigið öryggi og
komu til hjálpar bæði félögum sín-
um og óbreyttum borgurum. Atvikið
átti sér stað einungis tíu dögum eftir
að hinn nýi kross var kynntur til sög-
unnar.
Heiður í stað járns
Þess ber að geta að umrædd orða
er í laginu eins og járnkrossinn, en
er kallaður heiðurskross, og varð-
ar að mörgu leyti breytingu á sjálfs-
mynd Þjóðverja. Vegferðin að heið-
ursmerkinu hefur ekki verið einföld
því margir hafa bent, réttilega, á að
hann minni of mikið á járnkrossinn
sem var úthlutað í milljónum ein-
taka í fyrri heimsstyrjöldinni. Á með-
al þeirra sem sæmdir voru járnkross-
inum var Adolf Hitler.
Enn sem komið er hefur ríkis-
stjórn Þýskalands komist hjá því að
segja orðið „stríð“ í tengslum við Af-
ganistan, en ef aðgerðir í Afganist-
an breytast í stríð með öllu sem því
fylgir gæti Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, átt í erfiðleikum með að
vinna fylgi þingheims með aðgerð-
um þýskra hermanna þar. Að auki
kynni hún að tapa mikilvægum at-
kvæðum í almennum kosningum í
september.
En nú virðist sem þýskar stríðs-
hetjur séu boðnar velkomnar enn á
ný, svo lengi sem þær minnast ekki
á stríð.
Heiðurskrossinn Svipar óneitanlega til
járnkrossins. Mynd AFP
fréttir 8. júlí 2009 miðvikudagur 21
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
30 days
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því
að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30
days saman.
Byggð á
tilfinningavinnu og
slökunaröndun.
Sjálfshjálparbók.
Námskeið fyrir fagfólk
og aðra.
Þaulreynd og
árangursrík
sjálfstyrking!
Sjá nánar
www.baujan.is
Sími 699 6934
Baujan, sjálfstyrking
Tabula gratulatoria
Öðlingurinn og hljómlistarmaðurinn Guðmundur Steingrímsson - oft
kallaður Papa Jazz - verður áttræður þann 19. október nk. Af því tilefni
verða gefnar út endurminningar hans, skráðar af Árna Matthíassyni
blaðamanni, og eru þær um margt samofnar þróun jazz- og dægurlaga-
tónlistar á Íslandi. Þessi bók ætti því að verða mikill fengur fyrir áhuga-
menn um tónlist, sem og atvinnumenn í greininni, en þarna verður
reyndar víða komið við; margar óborganlegar sögur rifjaðar upp, jafnt
úr skugga stríðsáranna í Hafnarfirði sem og af sviðinu og er þá einungis
fátt nefnt.
Það verður Bókaútgáfan Hólar sem gefur bókina út og mun hún koma
út á áttræðisafmæli Papa Jazz. Í bókinni verður heillaóskaskrá (Tabula
gratulatoria) og þeir sem vilja senda þessum frábæra tónlistarmanni
kveðju í tilefni tímamótanna geta fengið nafn sitt skráð þar og þá vita-
skuld gerst áskrifendur að bókinni um leið, en verð hennar verður
kr. 5.900 (sendingargjald innifalið).
Hægt er að gerast áskrifandi
í síma 581-1964/698-6919
eða í netfangi bbaldur@simnet.is
PAPA JAZZ
holar@simnet.is
Oxy tarm
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama oxy tarmið
Nýr kostur í DV eru
þjónustuauglýsingar.
Það borgar sig að
auglýsa í DV!
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR
Hringdu í síma 515 5550
og byrjaðu strax í dag!