Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2009, Page 2
þurrt sunnanlands
2 miðvikudagur 29. júlí 2009 fréttir
„Ef ég ætti að velja einhvern stað til að
vera á, þar sem ég sækist eftir hægum
vindi, hlýindum og sól, þá myndi ég
velja svæðið vestan Eyjafjalla og yfir til
Borgarfjarðar til vesturs. Þetta myndi
einhver kalla suðvesturhornið á góð-
um degi. Inni á þessu svæði höfum
við til dæmis Þórsmörk, hálendisstaði
hér sunnanmegin og einhverjar úti-
hátíðir,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson,
veðurfréttamaður á Stöð 2, stundum
kallaður Siggi stormur.
Hann segir að landinn megi búast
við meinhægu og þokkalegu veðri um
verslunarmannahelgina, sem er lík-
lega mesta ferðahelgi ársins.
Sólskin alla helgina
„Við getum sagt að það horfi almennt
mjög vel með veður. Á heildina litið
erum við að mestu leyti laus við alla
vinda um helgina. Það er alltaf gott
þegar við erum lausir við lætin í veðr-
inu,“ segir Siggi en bætir þó við að
norðvestanlands gæti orðið stinning-
ur. „Þá erum við að tala um kannski
5-10 metra á sekúndu, sem er nú ekki
mikið. Að því leytinu til er þetta nokk-
uð gott,“ segir hann.
Þegar Siggi rýnir í úrkomuspána
segir hann að suðurhelmingur lands-
ins komi betur út, þessa miklu ferða-
helgi. „Við erum að tala um sólskin
alla helgina, með köflum þó, ým-
ist hálfskýjað eða léttskýjað helgina
á enda, frá föstudegi til mánudags.
Áberandi best verður veðrið vest-
an Mýrdalsjökuls, yfir suðvestanvert
landið og upp í Borgarfjörð. Þetta
verða bestu svæðin,“ útskýrir hann af
sinni alkunnu snilld.
Rigning fyrir norðan
Siggi segir að þykkna muni upp fyrir
norðan eftir því sem á helgina líður.
„Á sunnudag og mánudag eru horf-
ur á því að þar verði töluverð rigning,
annan daganna eða báða, auk þess
sem skúrir munu líklega falla á föstu-
daginn,“ segir hann en á Akureyri mun
hin árlega Ein með öllu fara fram. Þar
er von á fjölmenni, venju sam-
kvæmt, enda dagskráin glæsi-
leg rétt eins og á Siglufirði
þar sem Síldarhátíðin
fer fram með pompi
og prakt.
Siggi segir að gróft á litið megi
skipta landinu í tvennt; norður og
suður. „Norðurhelmingurinn verð-
ur þungbúnari en fyrir sunnan verð-
ur mun bjartara og þurrara,“ útskýrir
hann. Siggi segir þó að á föstudaginn
sé hætt við síðdegisskúrum inn til
landsins á Suðurlandi. Það sé þó ekki
öruggt.
Þurrt á þjóðhátíð
Fjölmargar útihátíðir og samkomur
verða á landinu um verslunarmanna-
helgina. Á Suðurlandinu verður nóg
um að vera. Þar má nefna Sæludaga
í Vatnaskógi, fjölskylduhátíð SÁÁ að
Hlöðum í Hvalfjarðarsveit, Innipúk-
ann og Dillon í Reykjavík, Göngu-
hátíð í Grindavík, ball með Stjórn-
inni í Þrastalundi og Færeyska daga á
Stokkseyri. Þá munu Ljótu hálfvitarn-
ir leika á Flúðum og harmonikkuhátíð
verður í Árnesi.
Í Vestmannaeyjum verður líklega
fjölmennasta samkoman, sjálf þjóð-
hátíðin í Vestmannaeyjum. Í fyrra
voru þar um 13 þúsund gestir en í
fréttum hefur komið fram að sú tala
verði nokkuð hærri í ár. Spurður hvort
það verði rigning í Eyjum segir Siggi
svo ekki verða. „Það gæti hugsanlega
rignt aðeins í formi skúra á föstu-
daginn í Eyjum en svo ekki
söguna meir. Það er helst
inn til landsins
að síð-
degisskúrirnar poti sér niður. Það er
eðli síðdegisskúra að þær falli þar sem
hitauppstreymi er ört. Það er frek-
ar inn til landsins en út með strönd-
um. Ég held að Vestmannaeyingar fái
veðurhelgi sem er með því besta sem
hægt er að hugsa sér miðað við Ísland
og þá breiddargráðu sem við búum á,“
segir hann.
Miðlungs veður fyrir austan
Í Neskaupstað verður fjölskylduhá-
tíðin Neistaflug haldin í 17. sinn. Siggi
segir að Austfirðingar og gestir þeirra
megi búast við miðlungs veðri. „Þeir fá
ágætt veður í Neskaupstað. Mér sýnist
að á Austurlandi verði bjart með köfl-
um og þurrt að mestu. Þeir geta bara
vel við unað,“ segir hann en bætir
þó við að á sunnudaginn og kannski
mánudag verði líklega rigningarveður
á Austurlandi. „Hitinn hjá þeim verð-
ur á bilinu 12 til 14 stig um helgina.
Það er reyndar kaldur sjór austur af
landinu sem getur skemmt hitaspána
í formi hafgolu. Þá færi hitinn niður
undir 10 stig en hafgolan verður ekki
mikil,“ segir hann enn fremur.
Blautt í mýrinni
Á Ísafirði verður venju samkvæmt
keppt í mýrarbolta, sem
er fót-
bolti í
Á Suðvesturlandi verður hlýjast og besta veðrið um verslunar-
mannahelgina að sögn Sigurðar Þ. Ragnarssonar veðurfrétta-
manns. Fjölmargar útihátíðir verða á landinu um helgina. Á
þjóðhátíð í Vestmannaeyjum mun tæpast koma dropi úr lofti en
á Akureyri og á Ísafirði gæti rignt töluvert þegar líður á helgina.
Siggi stormur ætlar sjálfur að vera á Suðurlandi.
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Væta fyrir vestan Það verður hart tekist á í mýrarboltanum á Ísafirði. Þar verður
sísta veðrið.
Sólarmegin í lífinu Siggi stormur, veður-
fréttamaðurinn góðkunni, ætlar í jeppaferð í
uppsveitir á Suðurlandi um helgina.