Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2009, Blaðsíða 16
Sigfinnur Þorleifsson
sjúkrahúsprestur og lektor í sálgæslu
Sigfinnur fæddist í Reykjavík. Hann
lauk stúdentsprófi frá MR 1968,
embættisprófi í guðfræði við HÍ
1973, stundaði framhaldsnám í
guðfræði við Edinborgarháskóla
1973-74 og við St. Paul í Minnesota
í Bandaríkjunum og lauk þaðan
MTH-prófi í sálgæslu.
Sigfinnur var sóknarprestur í
Stóra-Núpsprestakalli 1974-85 og
hefur verið sjúkrahúsprestur við
Borgarspítalann (síðan Sjúkrahús
Reykjavíkur og Landspítalann) frá
1985.
Þá hefur Sigfinnur kennt við guð-
fræðideild HÍ frá 1989 og er nú lekt-
or þar í sálgæslu.
Fjölskylda
Sigfinnur kvæntist 26.12. 1968 dr.
Bjarnheiði Kristínu Guðmunds-
dóttur, f. 1.5. 1948, örverufræðingi
við tilraunastöð HÍ á Keldum. Hún
er dóttir Guðmundar H. Jónssonar,
f. 1.8. 1923, d. 22.11. 1999, forstjóra
BYKO, og Önnu Bjarnadóttur, f.
28.5. 1920, húsmóður.
Börn Sigfinns og Bjarnheið-
ar eru Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, f.
23.9. 1969, viðskiptafræðingur, bú-
sett í Kópavogi, gift Böðvari Þóris-
syni hagfræðingi og eru börn þeirra
Sigfinnur, Kristín og Ingunn; Guð-
mundur Sigfinnsson, f. 2.9. 1974,
kennari og hagfræðingur, búsettur
í Kópavogi en kona hans er Gunn-
ur Róbertsdóttir sjúkraþjálfari og
eru börn þeirra Róbert Þorri, Finn-
ur Gauti og Sara Kristín; Stefán Þór,
f. 10.4. 1984, tónlistarnemi í Kópa-
vogi.
Hálfsystkini Sigfinns, samfeðra:
Ragnar Björgvin, f. 1917, d. 1.12.
1930; Jóhanna, f. 31.7. 1918, látin,
var búsett í Hafnarfirði; Sigríður, f.
25.7. 1921, húsmóðir í Hafnarfirði;
Björn, f. 28.11. 1922, d. 21.11. 1995,
stýrimaður í Hafnarfirði; Jón, f. 8.10.
1927, sjómaður í Reykjavík.
Alsystkini Sigfinns eru Valborg,
f. 31.10. 1938, lífeindafræðingur,
búsett í Kópavogi; Guðríður, f. 9.9.
1943, hjúkrunarfræðingur í Reykja-
vík; Kristófer, f. 15.7. 1946, sérfræð-
ingur í geðlækningum við geðdeild
Landspítalans.
Foreldrar Sigfinns voru Þorleifur
Jónsson, f. 16.11. 1896, d. 29.9. 1983,
lögregluþjónn, málflutningsmaður
og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, fram-
kvæmdastjóri á Eskifirði og í Stykk-
ishólmi og sveitarstjóri á Eskifirði,
og Hrefna Eggertsdóttir, f. 15.6.
1906, d. 18.3. 1965, húsmóðir.
Ætt
Þorleifur var sonur Jóns, b. í Efra-
Skálateigi í Norðfirði Þorleifssonar,
b. þar Jónssonar, b. á Sómastöðum
Þorleifssonar, b. í Ormsstaðahjá-
leigu Stefánssonar. Móðir Jóns á
Sómastöðum var Þuríður Jóns-
dóttir. Móðir Þorleifs í Efra-Skála-
teigi var Oddný Andrésdóttir, b. á
Karlsstöðum í Reyðarfirði Jónsson-
ar, og Sólveigar Jónsdóttur. Móðir
Jóns í Efra-Skálateigi var Guðrún
Þorsteinsdóttir, b. á Ísólfsstöðum
Jakobssonar. Móðir Þorsteins var
Vigdís Jónsdóttir, systir Þorsteins,
föður Jóns, ættföður Reykjaættar.
Móðir Þorleifs var Guðríður
Pálsdóttir, bókbindara Pálsson-
ar, og Helgu Friðfinnsdóttur, b. á
Gunnarsstöðum Eiríkssonar. Móð-
ir Helgu var Ingibjörg Ormsdóttir.
Hrefna var dóttir Eggerts, tré-
smiðs á Melstað Böðvarssonar, gest-
gjafa í Hafnarfirði, bróður Þorvalds,
afa Haralds Böðvarssonar, útgerð-
armanns á Akranesi, föður Haralds,
útgerðarmanns, föður Sturlaugs,
fyrrv. framkvæmdastjóra H. Böðv-
arssonar & Co. Böðvar var sonur
Böðvars, prófasts á Melstað, bróður
Þuríðar, langömmu Vigdísar Finn-
bogadóttur. Böðvar var sonur Þor-
valds, prófasts í Holti Böðvarssonar,
pr. í Holtaþingum Presta-Högna-
sonar, prófasts á Breiðabólstað Sig-
urðssonar. Móðir Böðvars gestgjafa
var Elísabet, systir Guðrúnar, móð-
ur Hallgríms Sveinssonar biskups
og ömmu Sveins Björnssonar for-
seta. Önnur systir Elísabetar var
Ingibjörg, langamma Sigurðar, föð-
ur Halldórs Gröndal prests. Elísabet
var dóttir Jóns, prófasts í Steinnesi
Péturssonar, og Elísabetar Björns-
dóttur, ættföður Bólstaðahlíðarættar
Jónssonar. Móðir Eggerts trésmiða-
meistara var Guðrún, systir Arn-
dísar, ömmu Þorvalds Skúlasonar
listmálara. Guðrún var dóttir Guð-
mundar, pr. á Melstað Vigfússonar,
og Guðrúnar, systur Jakobs, lang-
afa Vigdísar Finnbogadóttur. Annar
bróðir Guðrúnar var Ásgeir, langafi
Lárusar Jóhannessonar hæstarétt-
ardómara, og Önnu, móður Matthí-
asar Johannessen, skálds og fyrrv.
Morgunblaðsritstjóra. Guðrún var
dóttir Finnboga, verslunarmanns í
Reykjavík Björnssonar, og Arndís-
ar Teitsdóttur, ættföður Vefaraættar
Jónssonar. Móðir Hrefnu var Guð-
finna Jónsdóttir. Þorleifur heldur
upp á afmælið með fjölskyldunni.
Ragnheiður fæddist í Reykjavík en
flutti á fyrsta árinu með foreldrum
sínum til Ólafsvíkur. Þar byggðu
foreldrar hennar húsið Sólvelli og
bjó fjölskyldan þar til ársins 1947.
Þá tóku þau sig upp og fluttu í
Kópavog, á Digranesveg 36 er síðar
varð númer 62. Ragnheiður hefur
búið í Kópavogi æ síðan, fyrst hjá
foreldrum sínum en síðan með eig-
inmanni sínum að Bræðratungu 2,
á árunum 1960-76, Birkigrund 63,
1976-2001 og að Geirlandi við Suð-
urlandsveg frá 2001.
Ragnheiður hóf skólagöngu sína
í Ólafsvík en gekk síðan í Kópavogs-
skóla. Hún lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðiskóla verknáms 1956 og
verslunarprófi frá Verzlunarskóla
Íslands 1973.
Ásamt barnauppeldi og hús-
móðurstörfum hefur Ragnheiður
lengst af unnið við skrifstofustörf,
s.s. hjá Kristjáni O. Skagfjörð, Frysti-
húsinu Barðanum, Þroskaþjálfa-
skóla Íslands, Gísla Johnsen, Kol-
sýruhleðslunni og Netverki. Hún
rak verslunina Karel á Laugavegi
13, á árunum 1988-91. Þau hjónin
stofnuðu Bifreiðaverkstæðið Kamb
1973, síðan Kamb ehf. Ragnheiður
hefur alla tíð séð um bókhalds- og
launamál hjá fyrirtækinu.
Ragnheiður er einn af stofnend-
um Fríkirkjunnar Kefas og er öflug-
ur liðsmaður í safnaðarstarfinu.
Fjölskylda
Eiginmaður Ragnheiðar er Bragi
Sigurjónsson bifvélavirkjameistari,
frá Geirlandi í Kópavogi. Þau gengu
í hjónaband 20. júní 1959 og fögn-
uðu því gullbrúðkaupi fyrr í sumar.
Börn Ragnheiðar og Braga eru
Árni Brynjar, f. 1959, kvæntur Þur-
íði Ketilsdóttur og eru börn þeirra
Ketill Gauti, Bragi Heiðar, Ólafur
Geir og Ragnheiður; Helga Björk,
f. 1963, en sambýlismaður henn-
ar er Friðrik Örn Egilsson og þeirra
sonur er Ísak Örn; María, f. and-
vana 1970; Sigurjón Rúnar, f. 1972,
kvæntur Sigrúnu Sveinbjörnsdóttur
og eru börn þeirra Heiða Rún, Arn-
ar Máni og Lilja Rún; Guðrún Hlín,
f. 1979, gift Narfa Ísaki Geirssyni og
eiga þau soninn Brynjar Inga.
Systur Ragnheiðar eru Björg
Ragnheiður, f. 1931 gift Ármanni
J. Lárussyni; Ingibjörg, f. 1935, en
fyrrv. eiginmaður hennar er Jón Ól-
afsson.
Foreldrar Ragnheiðar voru Árni
Kristinn Hansson, f. 1907, d. 2006,
húsasmíðameistari, og k.h., Helga
K. S. Tómasdóttir, f. 1908, d. 1990,
húsmóðir. Þau hjón voru bæði
fædd og uppalin í Fróðárhreppi á
Snæfellsnesi.
Ragnheiður Dóróthea Árnadóttir
húsmóðir og gjaldkeri í kópavogi
70 ára í dag
30 ára
n Chuan Thongkham Gullengi 13, Reykjavík
n Suphanai Snitburut Furugrund 48, Kópavogi
n Anna Zanchi Grettisgötu 20b, Reykjavík
n Fidajete Bujupi Ásbraut 9, Kópavogi
n Sara Bianchi Úthlíð 4, Reykjavík
n Sigurgeir Árni Ægisson Hraunbraut 19, Kópavogi
n Elfa Svanhildur Hermannsdóttir Heiðarbæ 2,
Reykjavík
n Árný Elsa Lemacks Dofraborgum 15, Reykjavík
n Kristín Jórunn Magnúsdóttir Ásakór 3, Kópa-
vogi
n Viðar Þorsteinsson Bræðraborgarstíg 43,
Reykjavík
n Baldvin Freysteinsson Efstalandi 20, Reykjavík
n Kristmundur Magnússon Strandgötu 15a,
Eskifirði
n María Hjaltadóttir Vöglum, Varmahlíð
n Edda Fransiska Kjarval Kirkjubraut 48, Akranesi
40 ára
n Anna Podolskaia Álftamýri 14, Reykjavík
n Ky Khac Tran Háaleitisbraut 153, Reykjavík
n Eyjólfur B Eyjólfsson Baldursgötu 6a, Reykjavík
n Íris Arthúrsdóttir Kirkjubraut 21, Akranesi
n Anna Jóna Guðmundsdóttir Grenivöllum 20,
Akureyri
n Eiríkur Skarphéðinsson Djúpadal, Varmahlíð
n Hulda Kristjánsdóttir Ölduslóð 30, Hafnarfirði
n Olga Kristjánsdóttir Stórakrika 53, Mosfellsbæ
n Halldór Pálsson Safamýri 56, Reykjavík
n Guðrún Jóna Þráinsdóttir Akurgerði 50,
Reykjavík
50 ára
n Bozena Bialobrzeska Nýlendugötu 12, Reykjavík
n Kristín Halldórsdóttir Gautavík 29, Reykjavík
n Árni Egilsson Skagfirðingabraut 43, Sauðárkróki
n Sigríður Guðrún Sigmundsdóttir Helluhrauni
18, Mývatni
n Helgi Friðjónsson Rauðalæk 10, Reykjavík
n Steinn Logi Björnsson Háholti 3, Garðabæ
n Hulda Unnur Halldórsdóttir Raftahlíð 32,
Sauðárkróki
n Halla Margrét Óskarsdóttir Þúfubarði 15,
Hafnarfirði
60 ára
n Þorsteinn Einarsson Jörfagrund 42, Reykjavík
n Gústaf Kristinsson Fitjasmára 5, Kópavogi
n Karl Erlendsson Rauðumýri 7, Akureyri
n Ruth Árnadóttir Þrastarási 11, Hafnarfirði
n Kristín Björnsdóttir Unufelli 33, Reykjavík
n Guðný Irene Aðalsteinsdóttir Tjarnarmýri 8,
Seltjarnarnesi
70 ára
n Dagbjört Jóna Guðnadóttir Álfaskeiði 84,
Hafnarfirði
n Guðmundur Þorsteinsson Straumsölum 11,
Kópavogi
n Hrönn Jóhannsdóttir Lækjasmára 4, Kópavogi
n Slavko Helgi Bambir Blómvangi 8, Hafnarfirði
n Sverrir Sigfússon Haðalandi 22, Reykjavík
75 ára
n Kjartan Sólberg Júlíusson Sogavegi 131,
Reykjavík
n Skarphéðinn Lýðsson Burknavöllum 17b,
Hafnarfirði
n Sigríður Bachmann Grandavegi 47, Reykjavík
n Ketill A Larsen Vesturlbr Tjarnarengi, Reykjavík
n Anna María Franksdóttir Stóru-Vatnsleysu,
Vogum
80 ára
n Gissur Þorvaldsson Kópalind 2, Kópavogi
n Eva Pálmadóttir Greniteigi 10, Reykjanesbæ
n Alma Stefánsdóttir Brekkugötu 38, Akureyri
n Hinrik Ólafsson Baugsstöðum 2, Selfossi
n Áslaug Guðmundsdóttir Háholti 23, Hafnarfirði
n Ragnar Stefán Halldórsson Laugarásvegi 12,
Reykjavík
n Ingibjörg Halldórsdóttir Hólmgarði 41,
Reykjavík
85 ára
n Karl Guðmundsson Garðatorgi 7, Garðabæ
Til
hamingju
með
afmælið!
60 ára í dag
16 þriðjudagur 1. september 2009 ættfræði
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf
auglýsingasíminn er
512
70
50
merkir íslendingar
Matthías Jónasson prófessor fædd-
ist í Reykjarfirði í Vestur-Barða-
strandasýslu. Foreldrar hans voru
Jónas Ásmundsson, bóndi í Reykj-
arfirði, og k.h., Jóna Ásgeirsdóttir
húsfreyja.
Matthías stundaði nám í upp-
eldisfræði, sálfræði, heimspeki, fé-
lagsfræði og mannkynssögu við
Háskólann í Leipzig og lauk þaðan
doktorsprófi 1936. Hann stundaði
þar framhaldsnám í upp-
eldis- og sálfræði á árun-
um 1936-45 en var auk
þess lektor við Háskólann
í Leipzig á árunum 1936-
40 og settur prófessor 1940-
45.
Matthías var stundakennari
í uppeldisfræði við Háskóla Íslands
1952-57, og prófessor við skólann
1957-73. Han var forgöngumað-
ur um stofnun Barna-
verndarfélags Reykja-
víkur 1949 og síðar níu
annarra slíkra félaga. Þá
var hann frumkvöðull að
stofnun Landssambands
íslenskra barnaverndarfé-
laga og stofnun Heimilissjóðs
taugaveiklaðra barna.
Eftir Matthías liggur fjöldi rita
um sálfræði og uppeldismál, á
þýsku og íslensku. Gefið var út af-
mælisrit, helgað honum í tilefni
af áttræðisafmæli hans. Hann var
kjörinn félagi í Vísindafélagi Ís-
lendinga 1959, heiðurfélagi ís-
lenskra sálfræðinga 1972 og riddari
íslensku fálkaorðunnar 1973.
Matthías kvæntist Gabriele Jón-
asson, f. Graubner, cand. mag. og
húsfreyju, f. 16.2. 1912. Börn þeirra:
Sigrún, Björn, Margrét og Dagbjört.
Matthías Jónasson
f. 2. september 1902, d. 13. mars 1990