Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.2009, Side 12
12 miðvikudagur 2. september 2009 fréttir
Katie Callaway Hall skalf í fjórar
klukkustundir eftir að hún heyrði að
Phillip Garrido hefði verið handtekinn
í tengslum við mannrán og hræðilegar
nauðganir á Jaycee Lee Dugard. Hún
kannaðist heldur betur við manninn og
hafði vonast til að heyra aldrei á hann
minnst framar þótt hún hefði hugsað
um hann daglega frá því 22. nóvember
1976. Katie Callaway Hall var nauðgað
af Phillip Garrido og hún hefur nú sagt
sögu sína. Í þætti Larry King á CNN
sagði Hall að hún hefði öskrað upp
yfir sig þegar hún sá fréttirnar af Gar-
rido. „Ég öskraði: Guð minn góður, guð
hjálpi mér, þetta er hann!“
Örlagaríkur greiði
Þann 22. nóvember árið 1976 bað
Garrido hana um far heim fyrir utan
matvöruverslun í Kaliforníu. Það átti
eftir að reynast Hall örlagaríkt góðverk
að sjá aumur á skrímslinu því hann
handjárnaði hana, múlbatt og nauðg-
aði henni í litlu vöruhúsi í Reno í Nev-
ada-ríki. Garrido var árið 1977 fund-
inn sekur um mannrán og nauðgun
og dæmdur í fimmtíu ára fangelsi fyrir
ódæðið gegn Hall. Honum var sleppt á
reynslulausn eftir tíu ár og settur á skil-
orð til lífstíðar. Nú eru allar líkur á að
hann hafi brotið gegn því skilorði.
Lifað í ótta
„Á marga vegu hefur handtaka Garr-
idos lokað þeim kafla í lífi mínu. Ég
þarf ekki að læðast meðfram veggj-
um lengur. Ég þarf ekki að lifa hvern
einasta dag í ótta um líf mitt, eða í að
hugsa hvort hann sé að leita að mér.
Ég er loksins laus við þennan ótta sem
hefur elt mig allar götur síðan honum
var sleppt,“ segir Hall.
Óttinn á rökum reistur
Hall segir að þrátt fyrir að hún eigi
að finna fyrir létti yfir að Garrido hafi
verið handsamaður segir hún að sig
langi enn til að öskra. „Öskra því að
ótti minn reyndist á rökum reistur.
Hann lét aftur til skarar skríða,“ seg-
ir Hall sem hjá Larry King rifjaði upp
hið örlagaríka kvöld þegar hún bauð
Garrido far.
„Maður bankaði á gluggann hjá
mér og bað um far,“ minnist hún í
viðtalinu og segir að hún hafi sam-
þykkt. En þegar hún stöðvaði bifreið-
ina til að hleypa Garrido út reif hann
lyklana úr kveikjulásnum. Garrido,
sem þá var 25 ára, sagði þá við Hall
að það hefði ekki verið með vilja gert
að hann ákvað að taka hana. Það væri
henni sjálfri að kenna því hún væri
svo aðlaðandi.
„Áður en ég vissi af var ég hand-
járnuð, bundin, kefluð og færð í lítið
vöruhús. Ég hef bælt niður minning-
ar um flest smáatriði þess sem gerðist
inni í þessu vöruhúsi eftir það,“ seg-
ir Hall sem haldið var fanginni í átta
klukkustundir. „Ég hélt ég væri dauð-
ans matur.“
Hjálpin berst
Klukkan þrjú um nóttina var loks
barið að dyrum á vöruhúsinu, að því
er virðist fyrir nánast algjöra tilviljun.
Hall hélt að vinir Garridos væru að
koma en svo reyndist ekki vera. Gar-
rido fór til dyra og á meðan náði Hall,
sem var laus úr fjötrunum, að læð-
ast út á eftir honum, kviknakin. „Ég
sá lögreglumann og Garrido standa
þarna fyrir utan. Þeir litu báðir á mig
eins og ég væri eitthvað klikkuð. Ég
sá ekki lögreglubíl og hugsaði: Ó, nei,
hann er ekki lögga.“
Hún er kærastan mín
Garrido reyndi að sannfæra lögreglu-
manninn um að Hall væri kærasta
hans. Hall öskraði að hún væri það
ekki og grátbað um hjálp.
„Löggan sagði mér að fara aft-
ur inn og klæða mig. En þegar ég fór
inn hlýtur Garrido að hafa sannfært
lögguna um að við værum á dópi því
hann leyfði Garrido að fara aftur inn
í bygginguna einum. Ég hafði hálf-
klætt mig þegar Garrido kom aftur
inn og grátbað mig um að láta lögg-
una ekki vita af því sem hann hefði
gert,“ minnist Hall sem hlustaði ekki
á hann og skipaði lögreglumannin-
um að bjarga sér frá manninum. Lög-
reglumaðurinn spurði Hall því næst
hvort hún hefði verið færð þangað
gegn vilja sínum. Hún sagði svo vera.
„Hann beindi vasaljósi sínu á úln-
liði mína og sá hversu illa leiknir þeir
voru eftir handjárnin. Þá handtók
hann Garrido.“
8 tímar ekkert á við 18 ár
Katie Callaway Hall varð aldrei söm
eftir lífsreynsluna. Þrátt fyrir það sem
hún lenti í segist hún ekki geta gert
sér í hugarlund hvernig Jaycee Lee
Dugard líði og hvað þá börnunum
tveimur sem hún átti með Garrido.
„Hann hélt mér í átta tíma, hann
hélt henni í átján ár,“ segir Hall. „Ég
var fullorðin og gat einhverja björg
mér veitt. Hún var aðeins barn. Þetta
mun fylgja henni alla hennar ævi. Ég
óska henni alls hins besta.“
Katie Callaway Hall var svo brugðið að hún skalf þegar hún
heyrði að Phillip Garrido hefði verið handtekinn í tengslum við
ránið á Jaycee Lee Dugard. Hún kannaðist við nafn mannsins
sem hafði ásótt hugsanir hennar í rúm 30 ár. Árið 1976 nauðgaði
Garrido henni í litlu vöruhúsi í Nevada og var dæmdur í 50 ára
fangelsi. Hann sat inni í tíu ár en sögu hans þekkja nú flestir.
„Hann Hélt mér
í átta tíma
- Henni í átján ár“
„Áður en ég vissi af var
ég handjárnuð, bund-
in, kefluð og færð í lítið
vöruhús.“
SiGurður MiKaeL JÓnSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
Fórnarlamb skrímslis
Katie Hall Callaway sagði
sögu sína í þætti Larry King
á CNN. Henni var nauðgað
árið 1976 af Phillip Garrido.
MynD SKJáSKot úr þætti Larry KinG
Handtekin hjón Phillip og Nancy
Garrido eru í haldi vegna mannráns og
nauðgana á Jaycee Lee Dugard. MynD aFP
Sérverslun með
FÁKAFENI 9 - (við hliðina á ísbúðinni)
Sími: 553 7060 - Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16
Skór & töskur
www.gabor.is
GenGisfall í ÁGÚsT
Allar pizzur á matseðli
1.500 kr
miðað við sóttar pizzur
568-6868