Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2009, Page 42
Miðvikudagur 14. október 200942 norðurland
Ætlaði að
Kristján Lúðvík Möller samgönguráðherra á síðasta
orðið að þessu sinni. Hann sér eftir því að hafa ekki
farið í lögfræði eftir að hafa lokið íþróttakennaraprófi
og langaði til þess að verða lögreglumaður eins og
afi hans þegar hann var strákur. Kristján segir leið Ís-
lands liggja í gegnum Evrópu. Fullkomið laugardags-
kvöld að hans mati er í faðmi fjölskyldunnar.
SÍðaSta ORðið
1. Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Lesa blöðin og hlusta á útvarpið og fer síðan í góða sturtu.“
2. Hver er sérgrein þín í eldhúsinu?
„Að setja í uppþvottavélina.“
3. Hvaða kvikmyndahetju lítur þú upp til?
„Engrar sérstakrar.“
4. Hvar ólst þú upp?
„Á Siglufirði og alltaf í sól og blíðu á sumrin og kyrrlátri tunglskins-
og stjörnubirtu á veturna, í minningunni.“
5. Ef ekki þingmaður, hvað þá?
„Lögfræðingur.“
6. Hvað drífur þig áfram?
„Áhugi á starfinu.“
7. Hvaða lag kemur þér alltaf í gott skap?
„Það eru mörg bítlalög sem koma mér í gott skap, enda bítlaunn-
andi frá fyrstu tíð.“
8. Hver er uppáhaldsborgin þín?
„Kaupmannahöfn.“
9. Hvað hefur Norðurland fram yfir aðra landshluta?
„Á Norðurlandi er alltaf gott veður, nema bara rétt á meðan vonda
veðrið gengur yfir.“
10. Hver er þín helsta fyrirmynd?
„Það eru foreldrar mínir.“
11. Hverju sérðu mest eftir?
„Að hafa ekki farið í lögfræði að loknu íþróttakennaraprófi.“
12. Ef þú mættir gefa íslensku þjóðinni gjöf, hvað mynd-
irðu gefa henni?
„Bjartsýni og góðar framtíðaróskir.“
13. Hvar líður þér best?
„Í faðmi fjölskyldunnar.“
14. Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?
„Ég geri ekki upp á milli Ásbyrgis, Mývatnssveitar og Siglufjarðar.“
15. Hver er fremsti stjórnmálamaður heims fyrr og síðar?
„Olof Palme, leiðtogi jafnaðarmanna í Svíþjóð.“
16. Hvenær felldir þú síðast tár?
„Það voru gleðitár þegar alnafni minn og fyrsta barnabarnið var
skírt.“
17. Hvernig er heimilisverkunum skipt?
„Konan gerir allt sem gera þarf og ég hjálpa stundum til.“
18. Stundar þú líkamsrækt?
„Já já. Fer oft í ræktina en ekki nógu oft.“
19. Hvert er takmark þitt í lífinu?
„Gera betur í dag en ég gerði í gær.“
20. Hvaða bók getur þú lesið aftur og aftur?
„Engin sérstök sem kemur upp í hugann og tími fyrir bókalestur
hefur ekki verið mikill undanfarin ár.“
21. Hver voru áhugamál þín sem unglingur?
„Íþróttir, aðallega skíði og fótbolti.“
22. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?
„Lögregluþjónn eins og afi minn.“
23. Hvernig er fullkomið laugardagskvöld?
„Kvöldverður og kvöldstund með fjölskyldunni.“
24. Hver er þinn helsti kostur?
„Það verða aðrir að dæma um það.“
25. Hvern hefur þig alltaf dreymt um að hitta?
„Ég á engan slíkan draum.“
26. Áttu gæludýr?
„Nei, en þegar ég var ungur átti fjölskyldan kött sem hét Perla og
var 18 ára þegar hún dó.“
27. Finnst þér gaman í vinnunni?
„Já, ég hlakka til hvers dags.“
28. Hvaða skref væri mest til heilla íslenskri þjóð?
„Innganga Íslands í Evrópusambandið og upptaka evru.“
29. Hvernig veður hentar best til göngutúra?
„Fallegt og stillt veður og um 15 gráðu hiti.“
30. Síðasta orðið?
„Við verðum að einbeita okkur að framtíðinni því þar verðum við
það sem eftir er ævinnar. – Mark Twain.“
verða lögga