Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2009, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2009, Side 2
2 mánudagur 23. nóvember 2009 fréttir Listi með nöfnum þeirra starfsmanna deCODE sem halda starfinu hjá fyrir- tækinu eftir væntanleg eigendaskipti lak á netið í síðustu viku. Þeir starfs- menn sem munu missa starf sitt hjá deCODE á næstu mánuðum komust því að því að á netinu þar sem nöfn þeirra voru ekki á listanum. Á milli 20 til 30 starfsmenn deCODE af 170 verður sagt upp í kjölfar eigenda- skiptanna ef marka má listann. Þetta stríðir gegn því sem kom fram í síð- ustu viku þegar sagt var frá greiðslu- stöðvuninni. Þá kom fram að enginn starfsmaður myndi missa vinnuna eftir eigendaskiptin. Meðal þeirra sem komu að því að setja þennan lista saman voru Kári Stefánsson, forstjóri deCODE, og Jakob Sigurðsson, framvæmda- stjóri viðskiptasviðs hjá fyrirtækinu. Listinn er vistaður á léni hjá yahoo. com þar sem rætt er um starfsemi deCODE. Óánægja meðal starfsmanna Félag sem heitir Saga Investments mun eignast fyrirtækið hér á landi, DeCODE Genetics Limited, en móð- urfélag þess, DeCODE Genetics Inc., fór í greiðslustöðvun í Delaware í Bandaríkjunum í síðustu viku. Eig- endur Saga Investments eru Polar- is Venture Partners, Arch Venture Partners Partners og Illumina Inc. Félagið skilur eftir sig tæplega 40 milljarða króna skuldir á móti rúm- lega 8 milljarða króna eignum. Ekki er vitað hverjir stærstu lánardrottnar félagsins eru. Mikil óánægja ríkir meðal starfs- manna deCODE út af málinu en Sigríður Ella Guðlaugsdóttir, starfs- mannastjóri fyrirtækisins, hefur gengist við því að starfsmönnum verði fækkað hjá fyrirtækinu þó svo hún hafi hvorki viljað játa því né neita að reka ætti þá starfsmenn sem ekki eru nefndir á nafn á listanum. Starfsmennirnir munu væntanlega láta af störfum hjá deCODE snemma á næsta ári. Tíðindin komu starfs- mönnum félagsins í opna skjöldu þar sem þeir töldu að ekki yrði fækk- að frekar í starfsliðinu eftir miklar uppsagnir frá efnahagshruninu. Listinn lak í gegnum banda- ríska lögfræðiskrifstofu Listinn með nöfnum þeirra starfs- manna sem halda vinnunni hjá de- CODE lak á netið í gegnum banda- rísku lögfræðiskrifstofuna sem vinnur að samkomulaginu um kaupin á milli deCODE Genetics Inc., móður- félagsins sem komið er í greiðslu- stöðvun, og Saga Investments LLC. Starfsmenn deCODE fréttu af listan- um á fimmtudaginn, tveimur dögum eftir að greint var frá greiðslustöðvun móðurfélagsins í Bandaríkjunum. Listinn er í PDF-skjali sem ber yf- irskriftina: „Áætlun um samkomulag um kaup á eignum á milli deCODE Genetics Inc. og Saga Investments LLC“ þar sem fjallað er um nokkur atriði í samingum móðurfélagsins og Saga Investments. Dauðalistinn með nöfnum þeirra starfsmanna sem halda vinnunni ber aftur yfirskriftina: „Áframhaldandi starfsmenn félagsins á Íslandi. Ein- staklingar sem nefndir eru í viðauka A, sem fylgir hér með, sem staðsettir eru Íslandi eru áframhaldandi starfs- menn félagsins á Íslandi.“ Eftir að starfsmenn deCODE sáu listann á fimmtudaginn óskuðu þeir eftir skýr- ingum á málinu frá forsvarsmönnum félagsins og fengu þá þau svör að ein- ungis væri um að ræða uppkast en ekki endanlegan starfsmannalista. Greiðslustöðvun og sala á sama tíma Samkomulagið á milli móðurfé- lagsins og Saga Investments vekur nokkra athygli þar sem í því felst að stjórnendur móðurfélagsins, sem verður gjaldþrota, gera samkomu- lag við væntanlega nýja eigendur fé- lagsins á Íslandi áður en móðurfé- lagið fer í gjaldþrotameðferð og áður en það liggur ljóst fyrir hvort einhver muni yfirbjóða Saga Investments. Heimildir DV herma að undirbún- ingur að kaupum Saga Investments að deCODE hafi staðið yfir í nokkurn tíma og að meðal annars hafi lög- fræðiskrifstofan Lex gert athugun á félaginu fyrir hönd Saga Investments fyrir skömmu auk þess sem menn á vegum félagsins hafi ítrekað komið í höfuðstöðvar deCODE. Eitt af því sem rennir stoðum und- ir þetta er að um leið og tilkynnt er um að móðurfélagið fari í greiðslu- stöðvun er tilkynnt um væntanlega framtíðareigendur dótturfélagsins, áður en móðurfélagið hefur farið í slitameðferð. Meirihluti tæplega 40 milljarða skulda móðurfélagsins verður hins vegar að öllum líkindum afskrifaður og um 20 prósentum af starfsmönnum félagsins hér heima verður sagt upp. Helstu topparnir áfram Allir helstu toppar fyrirtækisins verða hins vegar áfram starfandi hjá því samkvæmt listanum á netinu verð- ur Kári starfandi þar áfram, eins og áður segir, þó svo hann hljóti að taka á sig launaskerðingu - hann var með 140 milljónir króna í árslaun í fyrra. Sonur Kára, Ari Kárason líffræðingur, heldur einnig starfi sínu. Sömuleiðis verður Jakob Sigurðsson áfram sem og aðrir framkvæmdastjórar eins og Hákon Guðbjartsson og Augustine Kong. DeCODE byrjar því starfsemi sína eftir eigendaskiptin með nýjan og fá- mennari starfsmannalista, nýjan for- stjóra og væntanlega skuldítið miðað við það sem áður var þegar móðurfé- lagið skuldaði 40 milljarða. Saga Investmenst tekur við Mjög viðkvæmar erfðafræðiupplýs- ingar um fjölda manns sem hafa far- ið í erfðapróf verða nú færðar und- ir nýtt eignarhald eftir að deCODE genetics varð gjaldþrota í vikunni. Bandarískt áhættufjárfestingarfyrir- tæki að nafni Saga Investments mun framvegis ráða yfir þessum gögnum. Fyrirtækið greiddi 14 milljónir doll- ara, eða sem samsvarar rúmum 1,7 milljörðum króna á gildandi gengi, fyrir félagið sem á að duga til að reka það í tvö ár. Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu sjálfu er útilokað að þessar upplýsingar fari á flakk, sama hver eignist fyrirtækið. Gagnabanki deCODE verði alltaf bundinn ís- lenskum lögum. Gjaldþrot deCODE er risastórt, samkvæmt bandarískum dómsskjölum voru eignir félagsins metnar á 70 milljónir dollara, eða um 8,7 milljarða króna. Skuldir félagsins námu hins vegar 314 milljónum doll- ara, eða tæpum 39 milljörðum króna. Kári Stefánsson segir þó tjón sitt fyrst og fremst vera tilfinningalegt. Hagnaður 2011 „Þarna eru meirihlutaeigendur áhættufjárfestar sem fjármögn- uðu stofnun fyrirtækisins. Þetta eru menn sem ég er búinn að vinna með í 13 ár,“ segir Kári Stefánsson um nýja eigendur félagsins. „Það sem er gaman fyrir okkur er að þetta eru menn sem hafa trúað á þessa sýn hvernig nota megi erfða- fræði,“ segir hann. En fyrst fjárfest- arnir eru mikið til þeir sömu og í upphafi, kemur Kári sjálfur að eig- endahópnum? „Nei, ég er ekki einn eigenda í Saga Investments,“ svarar hann og bætir því við að það komi sér ekki á óvart að slíkur orðróm- ur sé á kreiki, miðað við andann í samfélaginu. Kári segir það vera mat fjárfest- anna að fyrirtækið verði farið að skila hagnaði árið 2011. Aðspurð- ur hvað þurfi til að það gerist ítrek- ar Kári að það sé mat fjárfestanna. Í framtíðinni mun fyrirtækið ekki leggja áherslu á rannsóknir til lyfja- þróunar. „Fyrirtækið, eins og það er skipulagt þegar það kemur út úr þessu ferli, verður fókuserað á að búa til greiningartæki, það byggist á að selja greiningartæki og þjón- ustu,“ segir Kári. Áhættufjárfestar Saga Investments mun strax leggja fram 11 milljónir dollara til de- CODE til þess að fjármagna félagið til skamms tíma. Aðrir áhugasamir fjárfestar hafa frest til 17. desember til þess að skila inn tilboðum í fyr- irtækið. Uppboð á svo að fara fram 21. desember og staðfesting á sölu fyrirtækisins mun þá liggja fyrir degi seinna. Á bak við félagið eru tvö áhættufjárfestingarfélög, Polar- is Venture Partners og Arch Venture Partners. DeCODE verður í fram- haldinu leyst upp og samkvæmt Bloomberg-fréttastofunni er mjög ólíklegt að hluthafar í félaginu muni endurheimta eitthvað af peningum sínum. Stærstu hluthafar í deCODE voru T. Rowe Price Associates Inc. og Kári Stefánsson. Enn fremur var Landsbankinn skráður fyrir hluta í fyrirtækinu. Breytt hlutverk Kára Breytingarnar á eignarhaldi félags- ins munu einnig hafa í för með sér breytingar á högum Kára, sem lætur af starfi forstjóra. Í stað hans kemur Earl Collier, en Kári verður starfandi stjórnarformaður. „Þetta er ekki al- veg eins mikil aðför að mínu starfi og leit út fyrir í uppafi,“ segir Kári, sem mun einbeita sér að vísindun- um og búa til greiningartæki félags- ins. „Hann mun svo sjá um að selja þau, svo við munum snúa bökum saman,“ segir hann um samstarfið við nýja forstjórann. Kári segir það misskilning að Nýi Landsbankinn hafi verið ann- ar stærsti eigandi deCODE, þó að hann hafi verið skráður fyrir eign- arhluta í honum. „T. Rowe Price var stærsti hluthafinn og ég var næsts- tærsti einstaki hluthafinn,“ segir hann. Tilfinningalegt tjón Aðspurður hversu mikið fjárhags- tjón hann beri af gjaldþroti deC- ODE svarar Kári: „Ég hef ekki lit- ið á þennan eignarhluta sem fé sem ég tel frá degi til dags. Þetta er hins vegar það sem ég hef sett sam- an og vann við og þótti vænt um. Mitt sjónarmið er tilfinningalegt. En þess ber að geta að þó að þetta séu ekki góðar fréttir, þá eru kaflar í þessari sögu sem eru góðir. Meðal annars sá að þetta er fyrsta erlenda fjárfestingin sem kemur inn eft- ir hrunið. Það hefur ekkert annað fyrirtæki sem lenti í hremmingum eftir hrunið fengið inn nýtt fé, það er jákvæði punkturinn. Á 13 árum erum við búin að flytja til landsins 100 milljarða í erlendum gjaldeyri,“ segir Kári. Átti að standa undir sér 1997 Jafnvel þó að flestir vongóðir fjár- DAUÐALISTI DECODE LAK Á INTERNETIÐ Á milli 20 og 30 starfsmenn deCODE komust að því á netinu í síðustu viku að þeir myndu missa vinnuna hjá félaginu eftir eigendaskiptin. Listi með nöfnum þeirra starfsmanna sem halda starfinu lak á netið í gegnum bandaríska lögfræðistofu sem vinnur að eigendaskiptunum. Mikil óánægja með málið innan deCODE. Helstu topp- arnir verða áfram hjá deCODE, til að mynda Kári Stefánsson og Jakob Sigurðsson. Kári segir sitt tjón fyrst og fremst tilfinningalegt og hafnar þeim orðrómi að hann komi sjálfur að nýjum hluthafahópi. vaLGEIR ÖRN RaGNaRSSON blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is „Áætlun um samkomulag um kaup á eignum á milli Decode Genetics Inc. og Saga Investments LLC.“ 20 til 30 missa vinnuna Á milli 20 og 30 starfsmenn munu missa vinnuna samkvæmt framtíðarstarfsmannalista deCODE sem lak á netið í síðustu viku. Mikil óánægja er meðal starfsmanna Decode vegna málsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.