Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2009, Blaðsíða 22
22 mánudagur 23. nóvember 2009 næring
Baldur guðmunds
son blaðamaður skrifar:
möndlur
n Í International Journal of
Obesity, alþjóðlegu tímariti um
offitu, var fjallað um rannsókn sem leiddi í ljós að fólk sem
borðaði átta til níu grömm á dag af möndlum, lækkaði lík-
amsmassastuðull sinn (Body Mass Index) um heil 18 prósent.
Líkamsmassastuðull samanburðarhópsins, sem ekki fékk
möndlur, lækkaði um 11 prósent. Möndlur, eins og hnetur,
eru stútfullar af næringarefnum á borð við E-vítamín,
fólínsýru, magnesíum, kopar og trefjar. Í þeim er mikið af
andoxunarefnum. Möndlur innihalda töluvert magn af hollri
fitu; aðallega ein- og fjölómettuðum fitusýrum. Fjölmargar
rannsóknir benda til þess að daglegur lítill skammtur af
hnetum eða möndlum geti dregið úr líkum á hjartasjúk-
dómum og átt þátt í að lækka blóðfitu.
Appelsínur, sætar k
artöflur, möndlur o
g
sojabaunir eru á me
ðal matvæla sem ým
ist
auka fitubrennslu e
ða koma í veg fyrir
að
fita safnist á líkama
nn. DV tók saman u
pp-
lýsingar um 10 mat
artegundir sem ekk
i eru
aðeins hollar heldu
r geta beinlínis unn
ið á fitu.
Kanill
n Hið gómsæta krydd kanill er sagt geta gert kraftaverk fyrir mittismálið.
Sá sem dreifir 1/4 teskeið af kanil yfir matinn kemur í veg fyrir að
blóðsykur hækki eftir máltíð. Blóðsykurinn hækkar oft eftir máltíðir
og gefur líkamanum til kynna að hann eigi að geyma fituna
frekar en að brenna henni. Þetta segir Lauren Slayton,
löggiltur næringarráðgjafi í New York. Notaðu kanil
með hafragrautnum, út í jógúrtina eða í kaffið.
sinnep
n Túrmerik, efnið sem gerir
sinnepið gult, getur komið í
veg fyrir að fituvefur myndist.
Frá þessu greinir bandarískt
tímarit sem sérhæfir sig í
innkirtlafræðum. Þar kemur
fram að gott sé að blanda
svolitlu léttmæjonesi við
sinnep, ásamt dass af túrme-
rik. Blönduna sé gott að setja
á blómkál og steikja á pönnu
skamma stund. Hafið í huga
að þessi uppskrift er miðuð
við „bandaríska“ bragðlauka.
appelsínur
n Þessi gómsæti sítrusávöxtur er sagður góður til að
koma í veg fyrir þyngdaraukningu. Appelsínur innihalda
fosfór sem virkar eins og andoxunarefni, sem eru
heilsusamleg fyrir líkamann. Viðamikil rannsókn á vegum
American Journal of Clinical Nutritions finds, bandarísks
næringarfræðitímarits, sýndi að konur sem neyttu appels-
ína og annarra matvæla sem innihalda mikið fosfór, bættu
mun síður á sig fitu yfir það 14 ára tímabil sem rannsóknin náði.
Appelsínusafi gerir ekki sama gagn nema aldinkjötið sé með.
sojabaunir
n Þessi græni gimsteinn inniheldur mikið
magn kólíns; sameindar sem kemur í veg
fyrir upptöku fitu í líkamanum og brýtur
niður þá fitu sem fyrir er. Gott er að hafa
sojabaunir með út í salatið.
sætar kartöflur
n Keyptu frekar sætar kartöflur en
venjulegar. Þær eru fitusnauðar og
ákaflega trefjaríkar sem heldur insúl-
ínsveiflum í lágmarki og kemur þannig
í veg fyrir fitusöfnun á líkamann. Bak-
aðu sæta kartöflu í ofni og borðaðu
með fitusnauðri kotasælu. Hollari og
einfaldari máltíð er vandfundin.