Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2009, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2009, Blaðsíða 15
fréttir 23. nóvember 2009 mánudagur 15 kynferðisbrot gegn börnum enda segir hún málefnið sér afar hug- leikið. Hún telur helst þrjár ástæð- ur liggja að baki auknum fjölda til- kynninga á kynferðisbrotum gegn börnum. „Í fyrsta lagi hefur aukin fræðsla um þessi mál leitt til þess að til- kynningum hefur fjölgað. Umræð- an er miklu opnari og opinskárri en áður. Fjölmiðlar eiga stóran þátt í því ásamt ýmsum samtökum og áhugahópum eins og Blátt áfram. Önnur skýring getur verið að kynferðislegur lágmarksaldur var hækkaður úr fjórtán árum í fimm- tán vorið 2007. Í þriðja lagi hefur afnám fyrn- ingarfrests vegna alvarlegra kyn- ferðisbrota gegn börnum ekki síst gefið þau skilaboð út í samfélagið að þessi brot eigi ekki að líða. Okk- ar refsipólitíska stefna hefur fram til þessa verið sú að fækka ófyrn- anlegum brotum, en með því að afnema fyrningarfrest sakar vegna alvarlegra kynferðisbrota gegn börnum höfum við sveigt af þeirri braut. Þetta felur í sér ótvíræð skila- boð löggjafans til samfélagsins um að við ætlum að reyna allt sem við getum til að uppræta þetta þjóðfé- lagsmein sem þessi brot eru. Kyn- ferðisbrot gegn börnum eru oft og á tíðum gróf og alvarleg, sem geta haft alvarlegar og langvarandi af- leiðingar fyrir þolendurna, jafnvel til æviloka. Þá hafa auknar rann- sóknir á afleiðingum brotanna á brotaþolana, áherslan á brotaþol- ann og sú athygli sem hann hefur fengið haft sitt að segja í þessari vitundarvakningu.“ Jafna við manndráp Í bók sinni tekur Svala meðal ann- ars viðtöl við sex starfandi dómara sem hafa víðtæka reynslu af með- ferð kynferðisbrota gegn börnum. „Ég fékk þá til að afklæðast dóm- araskikkjunni og segja skoðun sína á þessum brotum og refsingum við þeim. Þessi viðtöl leiddu ýmislegt í ljós. Einn þeirra taldi að ævilangt fangelsi ætti að liggja við brotum af þessu tagi og annar taldi að jafna mætti þeim við manndráp. Með af- námi fyrningarfrests alvarlegustu kynferðisbrota gegn börnum losna menn aldrei undan því að eiga á hættu að þurfa að svara til saka fyrir þau. Aftur á móti verður sönnunar- staðan erfiðari eftir því sem lengra líður frá broti.“ Dómstólar taka við sér Hún segir einnig að íslenska dóms- kerfið hafi brugðist skjótt við þegar kemur að refsiákvörðun vegna kyn- ferðisbrota gegn börnum síðastlið- in ár og ekki síst á þessu ári. „Þessi brot eru litin mun alvar- legri augum en áður og refsingar eru tvímælalaust að þyngjast. Þeir tveir hæstaréttardómar sem hafa fallið á þessu ári, þar sem stjúp- feður voru dæmdir annars vegar í sex ára og hins vegar í 8 ára fang- elsi, fyrir kynferðislega misnotk- un á stjúpdætrum sínum, eru þeir þyngstu sem fallið hafa í Hæstarétti. Það leikur ekki vafi á að dómstólar hafa tekið við sér í kjölfar lagabreyt- inganna 2007 og þeirra upplýsinga sem rannsóknir hafa leitt í ljós um alvarleika afleiðinga brotanna á börn.“ Fyrirlitinn hópur Spurð um forvarnir segir Svala að þær þurfi einnig að beinast að al- menningi svo hægt sé að hjálpa þeim sem girnast börn. „Forvarnir eru góðar og gildar og við verðum að gera börn með- vituð um hvar mörkin liggja en ég tel að forvarnir þurfi líka að bein- ast að almenningi. Nú snýst um- ræðan mikið um unga gerendur. Hvernig er hægt að koma þeim til hjálpar og koma þannig í veg fyrir að þeir fremji brot? Við getum ekki kallað þetta fólk öllum illum nöfn- um og um leið ætlast til að það gefi sig fram og leiti hjálpar við kennd- um sínum. Með forvörnum viljum við koma í veg fyrir að brot verði framin. Við getum ekki búist við að þessi hópur, sem gjarnan er fyrirlitinn og vekur ímugust hjá fólki, gefi sig fram.“ ÞYNGSTU DÓMARNIR FÉLLU Á ÞESSU ÁRI 22. október 2009 Sýndi kynfærum annarra óeðlilegan áhuga Hæstiréttur þyngdi dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir karlmanni, sem misnotaði barnunga dóttur sína, um þrjú ár. Dæmdi Hæstiréttur manninn í fimm ára fangelsi fyrir að hafa í mörg skipti nauðgað dóttur sinni sem var tveggja og þriggja ára þegar brotin voru framin. Þá var honum gert að greiða eina og hálfa milljón króna í miskabætur til telpunnar. Maðurinn hafði samræði og önnur kynferðismök við dóttur sína, meðal annars með því að sleikja kynfæri hennar. Á tímabilinu 24. október til 18. nóvember fóru fram tvö könnunarviðtöl og tvær dómsyfirheyrslur yfir barninu í Barnahúsi. Í einu viðtali sagðist hún „tyggja“ með pabba sínum og sýndi hvað hún ætti við með því að leggja tússpenna undir rassinn og notaði annan tússpenna til að sýna hvernig hann fór fram og aftur hjá kynfærum hennar. Í öðru viðtali vildi hún teikna typpi og þegar hún var spurð hver ætti typpið sagði hún að pabbi sinn „gera það“. Þá var hún spurð hvernig hún „tyggði“ með pabba sínum og vildi stúlkan sýna það. Hún fór úr öllum fötum nema nærfötum og fékk viðtalandann niður á fjóra fætur og ætlaði því næst að afklæða viðtalandann en var stöðvuð. Hún var þá spurð hvernig hún „tyggði“. Þá tók stúlkan niður nærbux- urnar, settist á gólfið og ætlaði að stinga fingrum í kynfæri sín en var stoppuð. 22. Janúar 2009 Misnotuð á alla mögulega vegu Hæstiréttur staðfesti dóm yfir karlmanni sem dæmdur var í sex ára fangelsi fyrir hrottafengin kynferðisbrot gegn ellefu ára gamalli stjúpdóttur sinni. Dómurinn var þyngsti dómur sem nokkur barnaníðingur hefur fengið á Íslandi og miskabæt- urnar þær hæstu þar til annar maður var dæmdur í átta ára fangelsi í maí. Skoðun á stjúpdóttur mannsins hjá kvensjúkdómalækni leiddi í ljós að það væri eins og stúlkan stundaði reglulegt kynlíf. Fram kemur í dómnum að maðurinn hafi reglulega stundað kynlíf með stjúpdóttur sinni og misnotað hana á alla mögulega vegu. Í dómnum segir: „Brot ákærða voru einstaklega gróf og ófyrirleitin, en hann hafði á um fjögurra mánaða tímabili m.a. margsinnis samræði við stúlkuna í endaþarm.“ Hinn ákærði bar það fyrir sig að hafa verið misnotaður sjálfur í æsku þegar hann var sex ára gamall og segist hafa lagst inn á geðdeild. Ákærði var dæmdur í 6 ára fangelsi og dæmdur til að greiða stjúpdóttur sinni tvær og hálfa milljón krónur í skaðabætur, ásamt vöxtum. 28. Maí 2009 Á sér engar málsbætur Hæstiréttur Íslands staðfesti dóm Héraðsdóms Suðurlands, frá því í desember, yfir stjúpföður stúlku sem var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að misnota hana á þriggja ára tímabili. Þetta mun vera þyngsti dómur sem fallið hefur hér á landi í kynferðisbrotamáli. Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa samræði við stúlkuna tvisvar til þrisvar í viku á árunum 2004 - 2007, þegar að stúlkan var á aldrinum ellefu til fjórtán ára. Hæsta rétti þótti fullsannað að hann hafi framið þann verknað sem var lýst í ákæru, með trúverðugum framburði stúlkunnar, vitnisburði og vottorði læknis um líkamlegt ástand stúlkunnar og forstöðumanns Barnahúss um andlegt ástand hennar auk þess sem vitnisburður móður stúlkunnar um andlegt ástand hennar og samskipti hennar við stjúpföður sinn. Í dómi Hæstaréttar segir, að maðurinn eigi sér engar málsbætur. Hann hafi með háttsemi sinni brotið alvarlega gegn barni sem honum var treyst og trúað fyrir í mörg ár með þeim afleiðingum að hann hafi rúið barnið æsku sinni og þeim möguleika að lifa eðlilegu lífi í sátt við sjálfa sig, aðra og umhverfi. Hann hafi misnotað þann trúnað sem stúlkan hafi sýnt honum og þá virðingu sem hún hafi borið fyrir honum sem uppalanda. Manninum var einnig gert að greiða stúlkunni tvær og hálfa milljón króna í skaðabætur auk þess að greiða allan málskostnað. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn til þess að greiða stúlkunni þrjár milljónir króna í skaðabætur og var sú upphæð lækkuð. Tveir dómarar skiluðu sératkvæði í málinu og vildu þeir hafa skaðabæturnar óbreyttar. Stúlkan sagði skólastjóra sínum fyrst frá málinu síðla árs 2007 og hafði hann í kjölfarið samband við lögreglu sem hóf rannsókn strax. Jákvætt Sigríður telur tilkynningaraukningu jákvæða og benda til þess að umræða um kynferðisbrot gegn börnum sé opnari. MynD Sigtryggur ari JóhannSSon almenningsforvarnir Til að fyrir- byggja kynferðisbrot gegn börnum telur Svala mikilvægt að barnaníðingum sé ekki úthúðað í fjölmiðlum því það sporni gegn því að þeir leiti sér hjálpar. Jólablað DV Stórglæsilegt og veglegt sérblað um jólin fylgir DV föstudaginn 27. nóvember. Auglýsendur! Pantið fyrir klukkan 16:00, mánudaginn 23. nóvember í síma 512 7050 eða í gegnum tölvupóst á auglysingar@dv.is ::: ::: ::: ::: ::: ::: ::: ::: ::: ::: Meðal efnis er: Ásamt öllu hinu sem fylgir jólahátíðinni. Jólaskraut og frumlegt föndur Óhefðbundinn jólamatur og glöggið Jóla-, kvikmyndir, tónlist og bækur Lifandi tré eða gervi Jólabakstur og börnin Jólagjafahugmyndir Heimagerðar jólagjafir Fjölskylduleikir Gæludýr og jól Desemberdagatal

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.