Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2009, Blaðsíða 14
14 mánudagur 23. nóvember 2009 fréttir
BÖRNIN
SEGJA
FREKAR
FRÁ
Alls voru 368 kynferðisbrot til-
kynnt til lögreglu í fyrra sem er átj-
án prósentum fleiri brot en voru að
meðaltali á árunum 2003 til 2007.
Gríðarleg fjölgun varð á tilkynnt-
um kynferðisbrotum gegn börnum
yngri en fimmtán ára. Á síðasta ári
voru þau 102 sem er 81 prósents
aukning miðað við meðaltal áranna
2003 til 2007. Árið 2007 voru brot-
in 79, 55 árið 2006 og 57 árið 2005.
Þetta kemur fram í skýrslu um af-
brotatölfræði ársins 2008 frá emb-
ætti ríkislögreglustjóra.
Óásættanleg hegðun
Þessar tölur koma Sigríði Björns-
dóttur hjá Blátt áfram ekki á óvart.
Hún segir það mikinn misskilning
að kynferðisbrotum gegn börnum
hafi fjölgað. Ástæðan fyrir auknum
fjölda tilkynninga sé að umræðan er
mun opnari en áður.
„Málin eru til staðar og nú er fólk
meðvitað um þau. Samfélagið er
farið að taka ábyrgð á því að óeðli-
leg hegðun er óásættanleg og bregst
við. Mér finnst þetta jákvætt þó að
það sé erfitt að horfast í augu við
það,“ segir Sigríður.
Þarf að vernda börn
Sigríður segir að þessi tala muni ef-
laust hækka á komandi árum. Hún
hvetur foreldra sem grunar að ver-
ið sé að brjóta á barni þeirra til að
hringja í Barnahús. Ef ekkert er
að gert gætu afleiðingarnar orðið
skelfilegar.
„Hvað gera þessi börn sem fá
ekki hjálp? Þau leggja önnur börn í
einelti, beita öðruvísi ofbeldi, leiðast
út í áfengis- og vímuefnaneyslu eða
vændi. Ef við hjálpum ekki börnum
sem hafa orðið fyrir ofbeldi þá finna
þau sér farveg eða finna sér leið til
að lifa af. Það þarf að vernda börn.
Það er hluti af uppeldi. Af hverju eru
foreldrar svona litlir baráttumenn
fyrir börnin sín? Við, fullorðna fólk-
ið, erum að fá yfir okkur kreppu og
mótmælum en það þarf líka styðja
við börnin. Við þurfum að finna
leiðir til að fræða börnin okkar svo
þau verði ekki fyrir ofbeldi.“
Uppræta þjóðfélagsmein
Svala Ísfeld Ólafsdóttir, lögfræð-
ingur og sérfræðingur við lagadeild
Háskólans í Reykjavík, gaf út bókina
Auðginnt er barn í bernsku sinni
fyrir skömmu. Í bókinni er gerð
grein fyrir refsipólitískum sjónar-
miðum sem lágu að baki breyting-
um á fyrningarreglum almennra
hegningarlaga vorið 2007. Svala
hefur einnig skrifað töluvert um
Tilkynningum til lögreglu um kynferðisbrot gegn börnum hefur fjölgað um rúmlega
áttatíu prósent. Sigríður Björnsdóttir hjá Blátt áfram telur að málum hafi ekki fjölg-
að heldur sé umræðan opnari. Svala Ísfeld Ólafsdóttir lögfræðingur segir íslenska
dómskerfið taka mun alvarlegar á slíkum málum en áður. Hún tók viðtal við sex
dómara og líkti einn þeirra kynferðisbrotum við manndráp.
NoKKuR EINKENNI
KyNFERðISoFBEldIS:
1. Tilfinningaleg einkenni. Lýsa sér
í kvíða, þunglyndi, sektarkennd og
jafnvel reiði.
2. Afleiðingar sem hafa áhrif á
hegðun barnsins. Kemur fram í
hegðunarerfiðleikum og stjórnleysis-
hegðun vegna vanlíðunar, árásargirni
og einangrun. Börnin draga sig í
hlé og láta lítið fyrir sér fara sem
endurspeglar slaka sjálfsmynd.
Börnin eiga erfitt með að mynda
tilfinningaleg og félagsleg tengsl við
aðra. Á táningsárum kunna börnin
sér engin mörk í kynhegðun og vita
ekki hvar eðlileg mörk liggja.
3. Líkamleg einkenni. Kemur fram
í höfuðverk og taugaveiklun. Börnin
þola illa óvæntar uppákomur, til
dæmis óvænt hljóð.
„Þetta eru gróf og al-
varleg brot sem oft á
tíðum hafa alvarlegar
og langvarandi afleið-
ingar fyrir þolendurna,
jafnvel ævina á enda.“
lilja KatrÍn gUnnarSdÓttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
Jan. Feb. Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst Sept. Okt. Nóv. Des.
Flest brot í febrúar 47 prósent skráðra kynferðisbrota sem tilkynnt voru árið 2008 voru
framin á fjórum mánuðum, í janúar, febrúar, maí og ágúst. Flest brotanna, fjórtán prósent,
voru framin í febrúar en hlutfallslega fæst í nóvember, eða fimm prósent.
-4,5
55,4
81,5
106,3
15,7
Nauðgun - Þvingun
Nauðgun - Misneyting
Kynferðisbrot gegn yngri en 15 ára
Sifjaspell
Kynferðisbrot, blygðunarsemisbrot
Frávik frá meðaltali 2003 - 2007
-150 -100 -50 0 50 100 150
HlUtFallSlegt FráviK árið 2008 Frá
meðaltali KynFerðiSBrota 2003 - 2007
HlUtFallSleg dreiFing
KynFerðiSBrota eFtir
mánUðUm árið 2008