Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2010, Blaðsíða 29
SVIÐSLJÓS 28. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR 29
Tímaritið Star Magazine hefur komist yfir dóms-skjöl frá árinu 2003 úr máli fyrirsætunnar Kim Kardashian gegn fyrrverandi eiginmanni hennar
Damon Thomas. Þar kemur fram að Kim hafi orðið fyr-
ir hrottalegu ofbeldi af hálfu Damons en þau giftu sig í
janúar árið 2000 þegar Kim var aðeins 19 ára.
Damon Thomas er tónlistarframleiðandi og upp-
tökustjóri en hann hefur unnið með heimsfrægum
listamönnum á borð við 2Pac, Beyoncé, Britney Spears,
Chris Brown, Justin Timberlake, Snoop Dogg, Toni
Braxton og Victoriu Beckham. Í dómsskjölunum segir
að Damon hafi oft slegið Kim hnefahöggum í andlit,
lamið henni í veggi og kastað til og frá. Þá krafðist
hann þess að vita ætíð hvar Kim væri niðurkomin
og reyndi að fá hana til að fara í fitusog því hann
vildi að Kim væri „fullkomin“ í útliti. Þá þurfti
hún að biðja
um leyfi til að
yfirgefa hús-
ið ef níðing-
urinn var ekki
heima.
Í skjölunum
segir Kim frá
einu sérstaklega
slæmu atviki þeg-
ar hún og Damon
voru á leiðinni
í fallhlífarstökk
með Justin Tim-
berlake. „Áður
en við fórum að
heiman kýldi Da-
mon mig í and-
litið og ég fékk
skurð á vörina.
Ég datt á rúmgafl-
inn og lenti illa á
hnénu. Ég halt-
raði því í fallhlífarstökkinu,“ segir Kim þegar hún lýsir
ofbeldinu.
Einnig kemur fram að Kim hafi verið of hrædd við
Damon til að yfirgefa hann. Hún lét þó verða af því á
endanum en þá hótaði hann henni, fjölskyldu hennar
og öllum karlmönnum sem nálægt henni komu.
Kim hefur heldur betur rétt úr kútnum síðan þá og
er nú orðin heimsfræg raunveruleikasjónvarpsstjarna
og fyrirsæta. Hún hætti nýlega með kærasta sínum til
langs tíma, Reggie Bush, og er nú sögð vera að hitta
sjálfan Cristiano Ronaldo, leikmann Real Madrid.
Kim Kardashian var fórnarlamb hrottalegs heimilisofbeldis:
LAMIN OG
Þokkagyðjurnar Gwyneth Paltrow og Scarlett Johans-son voru báðar hvítklædd-
ar á heimsfrumsýningu mynd-
arinnar Iron Man 2 á mánudag.
Þær stöllur leika aðalskvísurnar í
myndinni sem frumsýnd verður
hér á landi innan skamms.
Gwyneth var klædd í stutt-
buxnadragt frá Giorgio Armani
en það var Harry Josh sem sá
um hárið og Pati Dubroff sem sá
um förðunina. Scarlett var líka í
klæðnaði frá Armani. Bæði kjól
og skóm.
Þær fara með ólík hlutverk í
myndinni en báðar keppast þær
um hylli hins grjótharða og snjalla
Tony Starks sem er leikinn af Ro-
bert Downey Jr.
Það fer ekki á milli mála að Paris Hilton er einhleyp á ný. Að-eins nokkrum vikum eft-
ir að hún sleit trúlofun sinni
og Dougs Reinhardt er hún
farin að sjást æ oftar í hin-
um ýmsu samkvæmum.
En það er ekkert nýtt fyr-
ir Paris. Áður en hún
festi ráð sitt var hún eitt
helsta andlit skemmt-
analífsins vestra og
gerði lítið annað en að
fara út á lífið.
Paris virðist vera
himinlifandi yfir end-
urfundunum við sinn
fyrri lífsstíl.
Hún saknar í það
minnsta ekki Dougs en
hún lét hafa eftir sér í ný-
legu viðtali að hún ætti
betra skilið. „Þú veist, ég er
bara svo komin yfir það. Mér
gæti ekki verið meira sama,“
sagði Paris um sambandsslitin í
samtali við Us Magazine. „Ég man ekki
einu sinni eftir þeim kafla í lífi mínu,“ bætti
Paris við en hún og Doug voru saman í 14 mánuði.
NIÐUR-
LÆGÐ
Kim Kardashian Giftist Damon aðeins 19 ára.
Damon Thomas Er sakaður um að
hafa beitt Kim grófu ofbeldi.
Gwyneth Paltrow og Scarlett Johansson:
FALLEGAR Á
FRUMSÝNINGU
Gwyneth Paltrow Er gift
Chris Martin, söngvara Cold-
play, og vill eignast fleiri börn.
Scarlett Johansson
Hefur gaman af
hasarnum í Iron Man 2.
Paris Hilton einhleyp og áberandiMÆTT AFTUR TIL LEIKS
Paris Hilton Er einhleyp
og hatar það ekki.
Kann að skemmta sér Paris
er með svarta beltið í djammi.