Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2010, Síða 13
FRÉTTIR 12. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR 13
ÞAR SEM SLÓÐIRNAR ENDA
Það liggur fyrir að afskrifa þarf þessar upphæðir sem
finnast ekki – hvað svo varð um
peningana í raun veit enginn.
Paul Cristian Radu er rúmensk-
ur rannsóknarblaðamaður sem
hefur um árabil unnið að rann-
sóknum tengdum fjármálaspill-
ingu og glæpastarfsemi. Paul er
margverðlaunaður rannsóknar-
blaðamaður og hlaut meðal annars
alþjóðleg verðlaun Knight-stofn-
unarinnar fyrir afbragðs blaða-
mennsku á alþjóðlegum vettvangi
árið 2004. Hann stundar nú nám
við Stanford-háskóla í Bandaríkj-
unum. Hann hefur starfað við ýmsa
fjölmiðla í Rúmeníu en einnig í Evr-
ópu og Bandaríkjunum hjá með-
al annars fréttaskýringaþættinum
20/20 sem sýndur er á ABC-sjón-
varpsstöðinni, auk annarra sjón-
varpsstöðva svo sem NBC, BBC
og CBS. Paul er ritstjóri fréttavefj-
ar sem fjallar um skipulagða og al-
þjóðlega glæpastarfsemi í löndum
Austur-Evrópu og hefur á þeim vett-
vangi komið að ritstjórn fjölmargra
verkefna á sviði rannsóknarblaða-
mennsku.
Margföld lagskipting
Paul segir að það sé mjög erfitt og
vandasamt að feta sig eftir slóð
peninganna hjá fólki sem vill fela
þá slóð. „Það er ekki bara erfitt fyr-
ir blaðamenn sem eru að skoða
þessi mál heldur einnig lögregluyf-
irvöld. Aflandssvæði gera mönnum
það kleift að fela sig bak við stað-
gengla, lögfræðinga og leyndarlög.
Það er heill her af lögmönnum sem
eru sérhæfðir í að veita viðskipta-
mönnum ráðgjöf um að fela eign-
arhald á fyrirtækjum með marg-
faldri lagskiptingu af fyrirtækjum
og leyndarhjúpum. Skjöl og önnur
gögn frá þessum svæðum eru mjög
takmörkuð og þegar þau finnast
leiða þau oftast til staðgengils en
ekki raunverulegs eiganda fyrir-
tækisins,“ segir Paul en hann hefur
gefið út bækling fyrir rannsóknar-
blaðamenn þar sem bent er á leið-
ir til að þræða slóð raunverulegra
eigenda fyrirtækja.
Fela peninga og eignarhald
Að mati Pauls er ástæða þess að fólk
og fyrirtæki stundi viðskipti á af-
landseyjum í fyrsta lagi sú að með
því sé komist hjá því að greiða skatta
í heimalandi viðkomandi. „Önn-
ur ástæða, og þá sérstaklega þeg-
ar horft er til skipulagðrar glæpa-
sarfsemi, er sú að þá vilja menn
fela peninga og leyna eignarhaldi
á fyrirtækjum og öðrum eignum.
Í báðum tilvikum er um spillingu
að ræða sem leiðir til fjárhagslegra
erfiðleika hjá þjóðum viðkomandi,“
segir Paul.
Reynt að opna
Á síðustu misserum hafa stjórnvöld
á mörgum aflandssvæðum skrif-
að undir alþjóðlega samninga um
að veita upplýsingar. „Það er mikill
þrýstingur núna á aflandssvæðin frá
ýmsum löndum innan Evrópusam-
bandsins og í Bandaríkjunum um
að veita upplýsingar. Hins vegar vilja
mörg þessara svæða sem minnstar
upplýsingar veita þar sem fjárhags-
leg innkoma vegna aflandsfélaga er
mikilvægur þáttur í efnahag svæð-
anna,“ segir Paul. johanneskr@dv.is
Margverðlaunaður rúmenskur blaðamaður hefur rannsakað
slóð peninga um allan heim með góðum árangri. Hann segir
flétturnar sem notaðar eru til að fela slóð peninga mjög flóknar.
Flóknar fléttur
Rekur slóðir Paul Radu hefur skrifað fjölmargar fréttir um alþjóðlega glæpastarf-
semi í Austur-Evrópu þar sem honum hefur tekist að rekja slóð eignarhalds og
fjármagns til glæpaforingja, spilltra stjórnmálamanna og kaupsýslumanna.
Aflandssvæði gera mönnum
það kleift að fela sig
bak við staðgengla, lög-
fræðinga og leyndarlög.
Eitt af þeim verkefnum sem Paul
Radu hefur unnið að er að skrifa
bækling fyrir rannsóknarblaða-
menn sem ber heitið „Að rekja
slóð peningana“ og hægt er að
nálgast frítt á netinu. Þar eru
raktar sögur af blaðamönn-
um sem hafa rannsakað flókn-
ar fyrirtækjafléttur þar sem ver-
ið er að leyna eignarhaldi eða
fela fjármagn. Það getur reynst
mjög erfitt að finna raunveruleg-
an eiganda fyrirtækisins og hafa
blaðamenn í fyrrverandi ríkjum
Júgóslavíu rakið raunverulegan
eiganda fyrirtækis í gegnum tut-
tugu fyrirtæki sem öll voru notuð
til að leyna eignarhaldi.
Flækjurnar flóknar
Í bæklingnum kemur fram að
forsprakkar glæpahópa notist
oft við sömu lögmennina í fyr-
irtækjafléttunum. Það geri þeir
til að blanda sem fæstum inn í
glæpastarfsemina. En þetta hef-
ur þann kost í för með sér að
blaðamenn sem hafa rannsak-
að þessi mál finna oft mörg fyrir-
tæki undir viðkomandi lögmanni,
jafnvel allt upp í hundrað. Þegar
eignarhald hvers og eins fyrirtæk-
is er skoðað koma oft í ljós teng-
ingar við alþjóðlega glæpa-
starfsemi.
Eignarhlutir faldir
Þeir sem eru í forsvari glæpa-
samtaka og eru þekktir hjá bæði
lögregluyfirvöldum og blaða-
mönnum hafa reynt ýmsar að-
ferðir við að leyna eignarhaldi á
fyrirtækjum sem þeir koma ná-
lægt. Slíkt dæmi er rakið í bæk-
lingnum þegar ungverskt fyr-
irtæki, Eural TransGas, fékk
samning um sölu á gasi fyrir
rússneska fyrirtækið Gazprom í
Austur-Evrópu. Viðskiptin námu
hundruð milljónum evra á hverju
ári. Blaðamenn fóru að kanna
eignarhaldið á Eural TransGas og
sýndi hluthafaskráin að þrír rúm-
enskir ríkisborgarar voru eigend-
ur fyrirtækisins. Blaðamenn fóru
og heimsóttu eigendurna sem
voru fyrrverandi leikkona á átt-
ræðisaldri og ungt bláfátækt par
sem bjó í foreldrahúsum. Ekkert
þeirra hafði heyrt um Eural Trans-
Gas og þá síður að þau væru skráðir
eigendur.
Alltaf tengingar
Umdeildir rússneskir viðskipta-
menn sem vildu fela eignarhald
sitt á fyrirtækinu fengu ungverskan
lögmann til að finna fólk sem gæti
„leppað“ fyrirtækið og orðið eig-
endur á blaði. Ungverski lögmað-
urinn þekkti dóttur öldruðu leik-
konunnar sem aftur þekkti unga
parið, sem bjó í íbúðinni við hlið-
ina. Þeim var greidd smáþóknun
gegn því að fá leyfi til að nota vega-
bréf þeirra í Ungverjalandi. Í bæk-
lingnum segir að það séu alltaf
tengingar sem hægt sé að rekja sig í
gegnum í málum sem þessum.
johanneskr@dv.is
Bæklingur sem skrifaður er fyrir rannsóknarblaðamenn um allan heim:
„Að rekja slóð peninganna“
FRAMHALD
Á NÆSTU
SÍÐU
hafa það eftir sér að það sé alltaf hægt
að rekja slóðir peningana. Rannsókn-
arblaðamönnum víða um heim hef-
ur einnig tekist að rekja slóðir eign-
arhalds og peninga til yfirmanna
alþjóðlegra glæpasamtaka í gegnum
fjölmörg félög á aflandseyjum. Fé-
lög sem nota bankastofnanir þar sem
bankaleyndin er mikil.
Follow the Money:
A Digital Guide
for Tracking Corruption
By Paul Cristian Radu
Follow the money Í
bæklingnum er bent á leiðir
til að rekja slóðir peninga og
eignarhalds.