Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Síða 12
12 föstudagur 11. júní 2010 fréttir
Sparisjóðabanki Íslands hefur gert
áætlun um endurheimtur vegna
áhættufjárfestinga bankans með Ól-
afi Garðarssyni lögfræðingi og slita-
stjórnarmanni í Kaupþingi og Magn-
úsi Jónatanssyni viðskiptafélaga hans
í eignarhaldsfélaginu Lindberg ehf.
Bankinn er til slitameðferðar og er á
ábyrgð slitastjórnar, þeirra á með-
al Tómasar Jóns-
sonar lög-
fræðings og
meðeiganda
Ólafs í Lög-
fræðistofu
Reykjavíkur.
Lind-
berg hafði
lagt í gríðar-
leg uppkaup
og uppbygg-
ingu í Örfirisey í Reykjavík. Spari-
sjóðabankinn, öðru nafni Icebank,
hafði upphaflega lánað félagi Ólafs og
Magnúsar 1,2 milljarða króna til upp-
kaupa á fasteignum við Fiskislóð á um
2,5 hekturum lands. Með síðari lána-
samningum við Lindberg stóðu lán
Sparisjóðabankans í tæpum 4 millj-
örðum króna snemma á þessu ári.
Ólafur gerður að huldumanni
Ætlunin var að byggja íbúðir á svæð-
inu. Umrædd uppkaup
hófust árið 2006 í þá
tíð þegar Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálms-
son og Björn Ingi
Hrafnsson voru
oddvitar borgar-
stjórnarmeirihlut-
ans.
Sparisjóðabank-
anum er nú stýrt af
slitastjórn en hana
skipa lögfræðing-
arnir Tómas
Jóns-
son, Berglind Svavarsdóttir og Andri
Árnason. Í nafni slitastjórnarinn-
ar hefur að undanförnu verið unnið
að því að verja hagsmuni kröfuhaf-
anna, meðal annars með áætlunum
um framtíð Lindbergs. Félagið er nú
í 35 prósenta eign Sparisjóðabankans
og 20 prósenta eign Grettisstiklna.
Magnús Jónatansson er nú skrifaður
einn fyrir Lindbergi sem á 45 prósenta
hlut í félaginu. Í gögnum sem DV hef-
ur undir höndum kemur fram að Ól-
afur hafi selt Magnúsi, viðskiptafélaga
sínum, sinn helming í Lindbergi. Ól-
afur hefur í samtali við blaðamann
DV neitað því að vera aðili að Lind-
bergi ehf. lengur.
Það stenst ekki því bæði er gert
ráð fyrir að Ólafur fái helmingshlut í
framtíðarhagnaði félagsins nái félagið
sér á strik. Sömuleiðis er í samning-
um við Sparisjóðabankann gert
ráð fyrir að Ólafur og Magnús fái allt
að fjórðung í sinn hlut rætist úr Ör-
firiseyjarverkefni Lindbergs og end-
urheimtur batna. Þannig kemur fram
í gögnum Sparisjóðabankans að við-
skiptafélagarnir Ólafur og Magnús fái
nærri einn milljarð í sinn hlut endur-
heimtist 5 milljarðar úr verkefninu.
Ólafur Garðarsson er alltaf nefnd-
ur á nafn þótt nafn hans hafi verið
þurrkað út úr hluthafaskrá Lindbergs.
Góð tengsl við
pólitíkusa áskilin!
Í kynningargögnum um Lindberg,
sem merkt eru Sparisjóðabankan-
um, segir að efnahagshrunið hafi
sett verkefnið í óvissu og lán félagsins
hafi hækkað um 144 prósent með falli
krónunnar fram í janúar síðastliðinn.
Þá ríki frost á fasteignamarkaðnum og
lóðaverð hafi lækkað mikið.
Ljósið í myrkrinu virðist vera að
nýlega hafi lokið hugmyndasam-
keppni á vegum Faxaflóahafna um
framtíðarskipulag gömlu hafnarinnar
og borgaryfirvöld hafi lýst áhuga á að
í Örfirisey rísi íbúðabyggð.
Í gögnunum er berum orðum sagt
að Ólafur og Magnús sem vinna að
endurheimtum í þágu Sparisjóða-
bankans og Lindbergs, eigi að reyna
SérhagSmunir SlitaStjórnarmanna
Í samningum Ólafs Garðarssonar og Magn-
úsar Jónatanssonar við Sparisjóðabank-
ann, sem DV hefur undir höndum, er bók-
staflega tekið fram að reynt verði að „efla
tengsl við pólitíska aðila“ til þess að tryggja
framtíð stórverkefnis þeirra og bankans við
uppbyggingu í Örfirisey. Tómas Jónsson,
slitastjórnarmaður í Sparisjóðabankanum,
og Ólafur eiga saman Lögfræðistofu Reykja-
víkur ásamt fleiri lögfræðingum í skila-
nefndum og slitastjórnum. Sjálfur á Ólafur
sæti í slitastjórn Kaupþings.
JÓhann hauksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Héraðsdómur Reykjavíkur skip-
aði slitastjórn yfir VBS fjárfesting-
arbanka í byrjun apríl eins og áður
segir, sömu einstaklinga og Gunn-
ar Andersen, forstjóri FME, hafði
skipað áður í bráðabirgðastjórn
bankans, þeirra á meðal Hróbjart
Jónatansson og Friðbjörn Björns-
son. Héraðsdómur skipaði einn-
ig slitastjórn yfir Kaupþingi en í
stjórninni situr Ólafur Garðars-
son hæstaréttarlögmaður og með-
eigandi Steinars Þórs Guðgeirs-
sonar í Lögfræðistofu Reykjavíkur.
Steinar er formaður skilanefndar
Kaupþings. Fleiri menn frá þeirri
lögfræðistofu fara fyrir slitastjórn-
um og skilanefndum: Lárentsínus
Kristjánsson lögfræðingur fer fyrir
skilanefnd Landsbankans og Tóm-
as Jónsson lögfræðingur var að-
stoðarmaður við greiðslustöðvun
Sparisjóðabankans, Icebank, og
tók síðar sæti í slitastjórn bank-
ans. Hagsmunatengsl hans við Ólaf
Garðarsson í slitastjórn eru augljós
þar sem Tómas þarf að semja við
Ólaf um milljarðaskuldir Lindbergs
við bankann.
Lögsagan yfir slitastjórnum
Helgi I. Jónsson, dómstjóri Héraðs-
dóms Reykjavíkur, segir að dóm-
stóllinn hafi boðvald yfir slita-
stjórnum rétt eins og öðrum sem að
lögum eru skipaðir af dómstólnum
eins og skiptastjórar þrotabúa.
„Héraðsdómur getur kvatt
skiptastjóra og slitastjórnarmenn
fyrir dóminn til þess að tjá sig um
ávirðingar, vanhæfismál eða því
um líkt.“
Helgi segir að slitastjórnirnar
starfi sjálfstætt eins og skiptastjór-
ar og farið sé að ákvæðum gjald-
þrotalaga. Hann segir að ekki hafi
borist erindi um ávirðingar eða
möguleg brot slitanefndarmanna
enn sem komið er, en kvartanir hafi
borist til dómstólsins meðal ann-
ars vegna tafa á skiptameðferð.
„Ef Héraðsdómur Reykjavíkur á að
taka til meðferðar mál sem snerta
ávirðingar slitastjórnarmanna þarf
dómnum að berast um það beiðni
frá einhverjum sem hefur lögvarðra
hagsmuna að gæta,“ segir Helgi.
Samkvæmt lögum um fjár-
málafyrirtæki frá árinu 2002 skip-
ar héraðsdómari slitastjórn þeg-
hinir ósnertanlegu
Þótt héraðsdómarar hafi lögsögu yfir skiptastjórum og slitanefnd-
um vegna gjaldþrota banka og sparisjóða er enginn sem fylgist
reglulega með því hvort þeir vinni störf sín í samræmi við lög.
Áburður um vanhæfi eða aðrar ávirðingar þeirra þurfa að berast
frá fyrirtækjum eða einstaklingum sem hafa hagsmuna að gæta.
Dómstjórinn „Héraðsdómur getur kvatt
skiptastjóra og slitastjórnarmenn fyrir dóminn
til þess að tjá sig um ávirðingar, vanhæfismál
eða því um líkt,“ segir Helgi I. Jónsson.
slitastjórnarmað-
ur í viðskiptum
Ólafur Garðarsson
seldi hlut sinn í
Lindberg að nafninu
til enda kemur nafn
hans ævinlega fyrir í
gögnum um framtíð
félagsins.
Viðskiptafélaginn
Magnús Jónatansson
er viðskiptaélagi Ólafs.
Hann og Ólafur reyndu
á dögunum að komast
yfir hálfbyggðar glæsi-
íbúðir á Seltjarnarnesi
sem Arion banki hefur
leyst til sín.