Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Blaðsíða 42
ic organism. Vinir, vandamenn, vísindamenn og
læknar sendu bréf til stofnunarinnar til stuðn-
ings Harbisson.
Eftir margra vikna japl, jaml og fuður var op-
inber niðurstaða breskra yfirvalda að Neil Har-
bisson væri cyborg. Í kjölfarið fékk hann nýtt
vegabréf með mynd af sér með rafeindadótið,
sem fylgir Eyeborg, á höfðinu.
Bylting fyrir svart-hvítan mann
Áður en Eyeborg var fest við höfuð Harbissons
málaði hann aldrei nema í svart-hvítu. Þegar
búnaðurinn opnaði loksins skilningarvitin og
Harbisson uppgötvaði liti varð bylting í listalífi
hans.
Árið 2007 fór
hann á puttan-
um um 50 borg-
ir í Evrópu. Hann
grannskoðaði
hverja borg áður
en hann skil-
greindi hverjir
væru tvö megin-
litbrigði þeirra. Í
Mónakó voru það
himinblár og laxa-
bleikur; í Brati-
slava gulur og
ljósgrænblár og
í Andorra dökk-
grænn og purp-
urarauður.
málar
tónlist
„Þegar ég mála, er
það líkt og að semja
tónlist á striga,“ segir Neil Harbisson. Þar sem
hann skynjar liti með heyrn getur hann snúið
dæminu við og málað tónlist. Fyrir honum tengj-
ast öll hverdagsleg hljóð litum, til dæmis hringi-
tónar í símum, sírenuvæl og auðvitað öll tónlist. Í
málverkaröðinni Color Scores málaði Harbisson
fyrstu 100 nóturnar í frægum tónverkum eftir til
dæmis Bach og Rachmaninoff.
Í verkinu Sound Portraits gerir Harbisson
hljóðverk af frægu fólki sem hann skapaði með
því að hlusta á litina í andlitum þeirra. Til að ná
því þarf Harbisson að standa fyrir framan um-
rædda manneskju og beina Eyeborg að andlit-
inu. Um leið skrifar hann niður nóturnar sem
hljóðbylgjur Eyeborg gefa til kynna. Hann hef-
ur frá árinu 2005 „hljóðmálað“ andlitsmyndir af
Karli Bretaprins, Gael Garcia Bernal, Leonardo
di Caprio, Nicole Kidman og Woody Allen, svo
fáeinir séu nefndir.
helgihrafn@dv.is
42 föstudagur 11. júní 2010
Hvernig hljóma litir? Hvernig eru hljóð á litinn? Spænsk-breski listamaður-inn Neil Harbisson hefur svarið við því. Hann fæddist með sjaldgæfan
augnsjúkdóm, allitblindu (e. achroma topsia).
Sjúkdómurinn gerir Neil Harbisson ókleift að sjá
liti, heimur hans er svart-hvítur.
„Þegar ég var lítill átti ég til að rugla saman
appel sínusafa og eplasafa. Ég þurfti að spyrja
fólk hvaða matur væri á borðum, eða þefa af
honum fyrst, sem mörgum fannst nokkuð furðu-
legt,“ segir Neil Harbisson sem er 28 ára gamall.
Fyrir nokkrum árum uppgötvaði hann liti í fyrsta
sinn á ævinni.
Árið 2004 var tölvubúnaður festur við höf-
uð Harbissons, með myndavél og heyrnartól-
um. Það var uppfinningin „Eyeborg“ eftir Adam
Montandon, nema í stýrifræði (e. cybernetics)
við Plymouth-háskóla, sem hann þróaði í sam-
starfi við Harbisson. Eyeborg nemur liti með
myndavél og breytir þeim í hljóðbylgjur.
Með aðstoð Eyeborg gat listamaðurinn loks-
ins notað liti í verkum sínum. Og það sem meira
er; Neil Harbisson getur málað tónlist!
„Ég er
cyborg
og heyri liti“órjúfanlegur hluti líkamansLíf Neils Harbissons tók miklum stakkaskiptum eftir kynnin af Adam Montandon og tilkomu Eye borg. Allar götur síðan hefur hann borið tölvubúnaðinn á höfðinu, sem hann lítur á sem
framlengingu af sjálfum sér, órjúfanlegan hluta
af líkamanum.
Eins og áður segir eru það hljóðin sem Eye-
borg reiknar út sem gefa Harbisson til kynna
hvaða lit myndavélin á höfði hans nemur. Hann
þurfti því í upphafi að leggja á minnið hvaða
hljóð táknuðu samsvarandi litblæ. Í dag hef-
ur hann hins vegar vanist þessu og skynjar því
stöðugt liti í formi hljóðbylgja.
Neil notar Eyeborg alla daga. „Ég hef vanist
öllum hljóðunum,“ segir hann. „Þetta er hávært,
en líklega ekki mikið háværara en hljóðin við
mjög fjölfarna götu í borg.“
Neil Harbisson vill ekki lengur nota heitið al-
litblinda, achromatopsia, um líkamsástand sitt.
Þess í stað segist hann vera með sonochromat-
opsiu. Sono- er latína fyrir hljóð, -chromat- er
gríska fyrir lit og -opsia gríska fyrir sjónrænt
ástand.
OpinBerlega viður -
kenndur cyBOrg
Árið 2004 lenti hann upp á kant við bresk yfir-
völd sem vildu ekki endurnýja vegabréfið hans
þar sem meðfylgjandi passamynd af Harbisson
var hafnað. Ástæðan var að Harbisson bar Eye-
borg á höfðinu á myndinni en lögum samkvæmt
er bannað að nota hatta eða aðra aðskotahluti á
slíkum myndum. Harbisson skrifaði viðkomandi
stofnun til baka og krafðist þess að Eyeborg-tæk-
ið væri skilgreint sem hluti af líkamanum. Har-
bisson fullyrti að hann væri nú orðinn að „cy-
borg“ sem er enska orðið yfir blöndu manns (eða
dýrs) og vélar, og er stytting á heitinu cybernet-
1 Linsan skoðar litinn sem Neil horfir á.
2 Tölvubúnaður greinir litinn og
reiknar út samsvarandi
hljóðtíðni.
3 Heyrnartól gefa Neil til kynna hvaða
lit hann horfir á.
4 Neil hefur lagt á minnið hvaða hljóð
tilheyra hverjum lit
fyrir sig.
Hvernig virkar Eyeborg?
Spænsk-breski myndlistar-
maðurinn Neil Har-
bis son sá aðeins í svart-
hvítu fram á þrítugsaldur
vegna sjaldgæfs augnsjúk-
dóms. Frá árinu 2004 hefur
hann hins vegar borið
uppfinninguna Eyeborg
á höfðinu, en hún breytir
litum í hljóð. Harbisson
lítur á Eyeborg sem órjúf-
anlegan hluta líkama síns.
Bresk yfirvöld skjalfestu að
Harbisson væri „cyborg“,
eða blanda manns og vélar.
johann sebastian Bach Litirnir
sem Neil Harbisson heyrir í Toccötu
og fúgu í D-moll eftir Bach.
rachmaninoff Litir hundrað
fyrstu nótnanna í Píanókon-
serti nr. 2 eftir Rachmaninoff.
skrýtið