Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Blaðsíða 40
40 föstudagur 11. júní 2010 helgarblað
Pétur fæddist á Ísafirði. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR 1940, guð-
fræðiprófi frá HÍ 1944, framhalds-
prófi í guðfræði frá prestaskólan-
um Mt. Airy Seminary í Fíladelfíu
1945 og stundaði framhaldsnám í
blaðamennsku og biblíufræðum
við Stanford-háskóla í Kaliforníu
1945.
Pétur starfaði á vegum Hins
Evangelíska-Lútherska kirkju-
félags Íslendinga í Vesturheimi
sumarið 1945, vann við ritstjórn
Kirkjublaðsins í Reykjavík 1946-47,
flutti guðsþjónustur á ensku fyr-
ir varnar liðið á Keflavíkurflugvelli
1946-47, var aðstoðarprestur séra
Friðriks Rafnars á Akureyri 1947-
48, sóknar prestur á Akureyri 1948-
81 með aukaþjónustu í Grímsey
1953-81, vígslubiskup Hólabisk-
upsdæmis hins forna 1969-81 og
biskup Íslands 1981-89.
Pétur stofnaði Sunnudagaskól-
ann á Akureyri og Æskulýðsfélag
Akureyrarkirkju haustið 1947, var
stundakennari við Gagnfræðaskól-
ann á Akureyri 1947-81, við MA
1953-62, og við Glerárskóla 1973-
81.
Pétur sat í stjórn Dýra-
verndunar félagsins um skeið, sat
í stjórn Akureyrardeildar Rauða
kross Íslands um skeið, sat í stjórn
Barnaverndarfélags Íslands og var
formaður Barnaverndarnefndar
Akureyrar, var formaður Æskulýðs-
sambands kirkjunnar í Hólastifti
1959-69, formaður Prestafélags
hins forna Hólastiftis 1970-81, sat
í Kirkjuráði hinnar íslensku þjóð-
kirkju frá 1970, kirkjuráðs maður
frá 1970, kirkjuþingsmaður frá
1972, forseti Kirkjuráðs 1981-89,
forseti Hins ísl. biblíufélags 1981-
89 og hefur setið í stjórn Listasafns
Einars Jónssonar.
Sem biskup Íslands hóf Pétur
undirbúning að kristnitökuhátíð,
ásamt Heimi Steinssyni þjóðgarðs-
verði, Jónasi heitnum Gíslasyni
vígslubiskup og þáverandi forset-
um Alþingis.
Pétur samdi bækurnar Litli-
Hárlokkur og fleiri sögur, barna-
bók, útg. 1952; Grímsey, útg. 1971,
samdi hirðisbréfið Kirkjan öll-
um opin, útg. 1986; bókina Líf og
trú, - endurminningar og hug-
leiðingar Péturs Sigurgeirssonar,
útg. 1997. Hann ritstýrði Sunnu-
dagaskólablaðinu 1948, Æskulýðs-
blaðinu 1949-60, sat í útgáfustjórn
Áfengis varnar 1956, í ritnefnd Tíð-
inda Prestafélags hins forna Hóla-
stiftis 1971, gaf út Söngbók sunnu-
dagaskóla Akureyrarkirkju 1948 og
Unga kirkjan, sálmar og messu-
skrá, 1967, og hljómplötu með
trúar söngvum.
Pétur og Sigurgeir, faðir hans,
eru fimmtu feðgar á biskupsstóli
frá upphafi kristni á Íslandi. Pétur
var sæmdur riddarakrossi íslensku
fálkaorðunnar 1972, stórriddara-
krossi fálkaorðunnar 1983 og stór-
riddarakrossi með stjörnu 1990.
Fjölskylda
Pétur kvæntist 3.8. 1948 Sólveigu
Ásgeirsdóttur, f. 2.8. 1926, fyrrv.
skrifstofumanni og húsmóður. For-
eldrar hennar voru Ásgeir Ásgeirs-
son, f. 11.8. 1885, d. 25.5. 1972,
kaupmaður í Reykjavík, og k.h.,
Kristín Matthíasdóttir, f. 9.8. 1891,
d. 7.5. 1931, húsmóðir.
Börn Péturs og Sólveigar eru
Pétur, f. 19.2. 1950, doktor í fé-
lagsfræði og guðfræði, prófess-
or við HÍ, var kvæntur Þuríði Jónu
Gunnlaugsdóttur sjúkraliða og
fóta aðgerðarfræðingi og eiga þau
fjögur börn og fjögur barnabörn;
Guðrún, f. 25.5. 1951, d. 27.3. 1986,
stúdent, flugfreyja og veitingastjóri
í Reykjavík; Kristín, f. 31.5. 1952,
húsmóðir á Akureyri, gift Hilmari
Karlssyni, lyfjafræðingi við Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri og eiga
þau tvö börn; Sólveig, f. 21.6. 1953,
félagssálfræðingur hjá Fjölskyldu-
miðstöðinni, var gift Borgþóri
Kjærnested, fréttamanni og leið-
sögumanni og eiga þau tvö börn og
eitt barnabarn en sambýlismaður
Sólveigar er Ásgrímur Halldórsson
sem starfar hjá Vélum og skipum.
Systkini Péturs: Sigurður, f.
6.7. 1920, d. 9.11. 1986, deildar-
stjóri í Útvegsbankanum í Reykja-
vík; Svanhildur, f. 18.3. 1925, d.
5.10.1998, deildarstjóri í utanríkis-
ráðuneytinu; Guðlaug, f. 16.2.
1927, fyrrv. næringarráðgjafi við
Landspítalann í Reykjavík.
Foreldrar Péturs voru Sigurgeir
Sigurðsson, f. 3.8. 1890, d. 13.10.
1953, biskup Íslands, og k.h., Guð-
rún Pétursdóttir, f. 5.10. 1893, d.
20.7. 1979, húsmóðir.
Ætt
Sigurgeir var sonur Sigurðar, reglu-
boða Góðtemplarareglunnar
Eiríks sonar, b. á Ólafsvöllum
Eiríkssonar, dbrm. á Reykjum,
bróður Katrínar, ömmu Ásmundar
Guðmundssonar biskups og ömmu
Sigríðar, móður Ólafs Skúlasonar
biskups. Eiríkur var sonur Eiríks,
ættföður Reykjaættar Vigfússonar.
Móðir Sigurgeirs var Svanhildur
Sigurðardóttir, formanns í Neista-
koti á Eyrarbakka Teitssonar.
Móðir Sigurðar var Guðrún, syst-
ir Ólafar, langömmu Jóns, föður
Hannesar Jónssonar sendiherra,
föður Hjálmars sendiherra. Guð-
rún var dóttir Sigurðar, b. á Hrauni
í Ölfusi Þorgrímssonar, b. í Holti
í Stokkseyrarhreppi Bergssonar,
ættföður Bergsættar Sturlaugs-
sonar.
Guðrún var systir Sigurðar,
skipstjóra á Gullfossi, föður Pét-
urs, forstjóra Landhelgisgæslunn-
ar. Guðrún var dóttir Péturs, odd-
vita í Hrólfsskála á Seltjarnarnesi
Sigurðssonar. Móðir Péturs var
Sigríður Pétursdóttir, b. í Engey
Guðmundssonar, föður Guðfinnu,
ömmu Bjarna Jónssonar vígslu-
biskups. Önnur dóttir Péturs í Eng-
ey var Guðrún, langamma Bjarna
Benediktssonar forsætisráðherra,
föður Björns, fyrrv. ráðherra, og
Valgerðar alþm. en bróðir Bjarna
var Sveinn, afi Bjarna Benedikts-
sonar, formanns Sjálfstæðisflokks-
ins. Móðir Guðrúnar var Guðlaug
Pálsdóttir, b. í Hörgsdal Pálssonar,
prófasts í Hörgsdal Pálssonar, föð-
ur Valgerðar, ömmu Sigurðar Páls-
sonar vígslubiskups.
Útför herra Péturs verður gerð
frá Hallgrímskirkju föstudaginn
11.6. kl. 15.00. Þeim sem vildu
minnast hans er bent á Hjálpar-
stofnun kirkjunnar.
minning
Herra Pétur
Sigurgeirsson
biskup
minning
Hávarður Olgeirsson
skipstjóri í bolungarvík
Fæddur 2.6. 1919 - Dáinn 4.6. 2010
Fæddur 8.1. 1925 - Dáinn 6.6. 2010
Hávarður fæddist í Bolungarvík.
Hann var aðeins tveggja ára er hann
missti móður sína og ólst upp eftir
það hjá föðurömmu sinni, Ingunni
Jóhannsdóttur, f. 1865, d. 1959.
Hávarður lauk hefðbundinni
skólagöngu í Bolungarvík, en hann
þótti afburða náms- og íþrótta-
maður. Hann lauk skipstjóra- og
stýrimannanámskeiði á Ísafirði fyrir
120 tonna báta 1955 og lauk síðan
skipstjóra- og stýrimannaprófum frá
Sjómannaskólanum í Reykjavík.
Hávarður hóf sjómennsku um
fimmtán ára aldur og stundaði þá at-
vinnugrein alla tíð síðan. Hann var
um sautján ár með Jakobi Þorláks-
syni sem annar vélamaður og loks
stýrimaður, var skipstjóri á Hugrúnu
ÍS 7, gömlum trébáti hjá Einari Guð-
finnssyni, og síðan skipstjóri á nýju
og glæsilegu 500 tonna togveiðiskipi
útgerðar Einars Guðfinnssonar hf,
Dagrúnu ÍS-9 á árunum 1975-92 er
hann lét af störfum hjá Einari Guð-
finnssyni hf.
Hávarður hóf þessu næst trillu-
útgerð á 1,5 tonna bát - Hugrúnu ÍS
1, og réri honum af mikilli eljusemi
næstu árin, eða allt þar til hann var
orðinn 77 ára gamall. Hann átti ein-
staklega farsælan feril sem skip-
stjóri og ávann sér traust og virð-
ingu áhafna sinna, sem og annarra
er honum kynntust, með geðprýði
sinni, yfirvegun og æðruleysi.
Fjölskylda
Hávarður kvæntist 5.4. 1947 Sól-
eyju Magnúsdóttur, f. 10.4. 1925, d.
13.1. 2005, húsmóður. Þau byrjuðu
ung búskap saman í Bolungarvík og
áttu þar alla tíð heimili sitt, lengst af
á Skólastíg 9. Foreldrar hennar voru
Magnús Þórarinn Einarsson, f. 1885,
d. 1951, og Kristín Lárusdóttir, f.
1895, d. 1953.
Hávarður og Sóley eignuðust sex
börn sem eru Erna, f. 13.7. 1943,
maki Finnbogi Jakobsson, f. 1.2. 1941
en synir þeirra eru Hávarður, Jakob
Valgeir og Ægir; Sveinfríður, f. 29.1.
1946, maki Veturliði Veturliðason,
f. 4.6. 1944, d. 21.2. 2002 en dætur
þeirra eru Sveinfríður Olga, Sóley
og Hulda Björk; Hildur, f. 14.3. 1948,
maki Hreinn Eggertsson, f. 27.1. 1945
en synir þeirra eru Birkir og Óttar;
Ingunn, f. 3.1. 1951, fyrrv. maki Krist-
inn Þór Þorsteinsson, f. 17.10. 1951
og eru börn þeirra Svanborg Þóra og
Andri Þór; Olgeir, f. 4.8. 1955, maki
Stefanía Birgisdóttir, f. 1.3. 1957 en
synir þeirra eru Olgeir Stefán sem
lést nýfæddur, Hávarður, Birgir og
Valdimar; Magnús Kristján, f. 5.11.
1962, maki Guðný Sóley Kristins-
dóttir, f. 20.4. 1967 en sonur þeirra er
Magnús Orri.
Afkomendur Hávarðar og Sóleyj-
ar eru fjörutíu og tveir talsins.
Hálfbróðir Hávarðar var Harald-
ur Olgeirsson, f. 5.6. 1937, d. 10.10.
1964.
Foreldrar Hávarðar voru Olgeir
Ísleifur Benediktsson, f. 26.9. 1902, d.
11.11. 1959, sjómaður, og Sveinfríður
Pálína Gísladóttir, f. 14.12. 1905, d.
12.3. 1926, húsmóðir.
Útför Hávarðar fer fram frá Hóls-
kirkju í Bolungarvík laugardaginn
12.6. kl. 14.00.