Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2010, Page 33
 35Föstudagur 11. júní 2010 Mótið frá upphafi til enda á fréttavef DV: Allt um HM á DV.is Það missir enginn af einum einasta hlut sem gerist í Suður-Afríku milli 11. júní og 11. júlí, fylgist hann með á DV.is. Sport-undirsíðan hefur verið undirlögð heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu og ætlar DV að fylgj- ast vel með keppninni. Umfjöllun verður um alla leiki, þeim gerð skil á meðan þeir standa yfir og viðtöl við leikmenn og þjálfara eftir leikina. Þá hafa stöðutöflurnar verið settar upp á einfaldan og aðgengilegan hátt þannig að mjög auðvelt verður fyrir alla að fylgjast með hvaða lið eru að komast upp úr hvaða riðli. Auðvitað verður einnig litið á léttu og skemmtilegu hlutina. Mikið verður sett inn af myndböndum eins og hefur tíðkast á DV.is við frá- bærar undirtektir og skemmtilegar úttektir um hluti tengda HM settar inn á vefinn. Þá verða leikmenn sem skara fram úr teknir í nærmyndir sem birtast í DV og einnig á vefnum, DV.is Fréttaveitan verður frá morgni til kvölds og öllum leikjum fylgt eftir. Keppnin hefst 11. júní með leik Suður-Afríku og Mexíkó í Jóhannesar borg en að kvöldi þess dags mætast lið Úrúgvæ og Frakk- lands. Með þeim tveimur leikjum lýkur fyrstu umferð í A-riðli en eftir það verða leiknir þrír leikir á dag þar til fyrsta og önnur umferð klárast. Í lokaumferðinni eru svo báðir leik- ir allra riðla leiknir á sama tíma og verða því alls fjórir leikir spilaðir á dag þá umferðina. En DV verður á tánum allan tímann og þú missir ekki af neinu, sértu með stillt á DV.is í júní og júlí. Allt á DV.is Þú getur fylgst með öllu sem gerist í Suður-Afríku á HM-vef DV.is soccer city Jóhannesarborg Sætafjöldi: 88.460. Byggður: 1987 (miklar endurbætur). Stærsti leikur á HM: Úrslitaleikurinn. n Aðalsmerki keppninnar er sjálfur Soccer City-völlurinn sem fékk mikla andlitslyftingu fyrir mótið. Stórkostlegur völlur sem tekur tæplega 90.000 manns í sæti. Það verða 22 útvaldir einstaklingar sem ganga þarna inn 11. júlí. Vellirnir á HM Á HM í fótbolta þarf auðvitað einhverja staði til þess að keppa á. Margir höfðu áhyggjur af því að Suður-Afríkumenn yrðu ekki klárir með velli fyrir mótið og var oft talað um að varaáætlun yrði að vera til staðar. Heimamenn tróðu því ofan í kok á efasemdar- mönnum og bjóða fram tíu glæsilega velli sem keppt verður á. green point höFðaborg Sætafjöldi: 64.100. Byggður: 2009. Stærsti leikur á HM: Annar undanúrslitaleikurinn. n Stórglæsilegur nýr völlur sem var byggður sérstaklega fyrir heimsmeistarakeppnina. Mikið kapp var lagt í að klára samgöngur að vellinum, sem tókst, og er þessi völlur eitt af kennimerkjum mótsins. DurbAn durban Sætafjöldi: 62.760. Byggður: 2009. Stærsti leikur á HM: Annar undan- úrslitaleikurinn. n Stórkostlegt mannvirki sem var reist fyrir HM. Þarna fer fram annar undanúr- slitaleikur mótsins en Suður-Afríkumenn eru hagsýnir og verður hægt að nota völlinn í hreinlega allt þegar keppninni er lokið. Ekki bara fótbolta. ellis pArk Jóhannesarborg Sætafjöldi: 55.686. Byggður: 1982 (litlar endurbætur). Stærsti leikur á HM: Átta liða úrslit. n Kannski ekki sá fallegasti en ruðnings- völlurinn í Jóhannesarborg hefur fengið smá endurbætur. Við hann var bætt sætum og komast þar nú að tæplega 56.000 manns. loftus VersfelD pretoria Sætafjöldi: 42.858. Byggður: 1906 (miklar endurbætur). Stærsti leikur á HM: 16 liða úrslit. n Elsti völlur keppninnar en þarna hefur verið leikið síðan 1903, sem er nokkuð magnað því völlurinn var ekki klár fyrr en 1906. Hann hefur verið mikið endurbættur og er afi hinna vallanna í keppninni. Jafnvel langafi. port elizAbeth nelson Mandela bay Sætafjöldi: 42.486. Byggður: 2009. Stærsti leikur á HM: Leikurinn um þriðja sætið. n Þessi glæsilegi völlur var byggður fyrir keppnina. Þakið á honum þykir einstaklega fallegt og ekki er staðsetn- ingin verri, alveg við Norðurendavatnið í Suður-Afríku. Völlur með öllu. peter MokAbA polokwane Sætafjöldi: 41.733. Byggður: 2010 Stærsti leikur á HM: Riðlakeppnin . n Verkfræðin á þessum nýja velli þykir einkar mögnuð en ekki er landslagið verra. Völlurinn er byggður nánast á sléttum Suður-Afríku og stendur fyrir allt sem landið og heimsmeistara- keppnin eiga að snúast um. MboMbelA nelspruit Sætafjöldi: 40.929. Byggður: 2009. Stærsti leikur á HM: Riðlakeppnin. n Mbombela þýðir á siSwati-tungu- málinu „Mikið af fólki á litlum stað“ en það á svo sannarlega við á þessum velli sem byggður var sérstaklega fyrir HM. Þarna á eftir að myndast frábær stemn- ing og hana munu lið eins og Chile, Ítalía og Fílabeinsströndin upplifa. free stAte Mangaung Sætafjöldi: 40.911. Byggður: 1952 (miðlungs endurbætur). Stærsti leikur á HM: 16 liða úrslit. n Þessi fallegi völlur var notaður í hinum magnaða undanúrslitaleik Bandaríkjanna og Spánar í Álfu- keppninni fyrir tveimur árum. Hans aðalsmerki er hversu auðvelt er að mynda frábæra stemningu á honum en við hann var bætt 2.000 sætum. royAl bAfokeng rustenburg Sætafjöldi: 38.646. Byggður: 1999 (litlar endurbætur). Stærsti leikur á HM: 16 liða úrslit. n Líklega mest óspennandi völlurinn á HM enda með hlaupabraut og þær á auðvitað að banna á fótboltaleikjum. Íbúar í Rustenburg fá þó einn leik í 16 liða úrslitum keppninnar til þess að verða vitni að. sterkir leikMenn Missa aF hM MicHael essien n Einn albesti leikmaður Afríku missir af HM, sem í fyrsta skipti er haldið í álfunni. Essien hefur lítið sem ekkert spilað fótbolta síðan í desember vegna þrálátra meiðsla á hné og ökkla. Vonast var til að hann næði HM en ljóst varð fyrir nokkru að ekki yrði af því. Gana verður ekki sama liðið án hans. MicHael Ballack n Þýski fyrirliðinn fær ekki tækifæri til þess að vinna sinn fyrsta stóra titil með Þjóðverjum. Ballack meiddist á fæti skömmu fyrir mótið og verður því frá eins og markvörðurinn Rene Adler og miðjumaðurinn sterki Simon Rolfes. DaViD BeckHaM n Leikjahæsti landsliðsmaður í sögu Englands var kominn vel á veg með að tryggja sér sæti í lokahópi Englands með fínni frammistöðu hjá AC Milan á Ítalíu. Draumar hans urðu hins vegar að engu þegar hann sleit hásin í mars. Hann verður sérstakur aðstoðarmaður liðsins á HM í sumar. rio FerDinanD n Þrátt fyrir slakt tímabil á Englandi var Rio Ferdinand bjartsýnn og kátur fyrir rúmri viku. Enska landsliðið var mætt til Suður-Afríku, hann var fyrirliði og að fara leiða þjóð sína á HM. Á fyrstu æfingu liðsins tæklaði tröllið Emile Heskey Rio svo illa að hann missir af HM vegna meiðsla á hné. nani n Portúgalski vængmaðurinn er kannski ekki í uppáhaldi hjá öllum stuðnings- mönnum Manchester United en hann leikur stórt hlutverk í portúgalska landsliðinu. Það verður þó að bjarga sér án hans þar sem hann braut viðbein í undirbúningi mótsins og þarf að horfa á félaga sína úr stúkunni í Suður-Afríku í sumar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.