Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2010, Síða 4
4 fréttir 8. nóvember 2010 mánudagur
Sætta sig ekki
við forsendur
Hollvinasamtök Háskólans á Bif-
röst segja þær forsendur sem uppi
séu í viðræðum á milli Háskólans
á Bifröst og Háskólans í Reykja-
vík óásættanlegar. Þær felist í því
að annars skólinn víki hinum út af
sviðinu. Það samrýmist ekki þeim
markmiðum sem upphaflega hafi
verið lagt af stað með. Þetta segir
efnislega í tilkynningu frá samtök-
unum en fram hefur komið í frétt-
um en á meðal þess sem viðræð-
urnar hafa skilað er að til greina
kemur að við sameinguna verði öll
háskólakennsla flutt frá Bifröst og
til Reykjavíkur. Samtökin leggja til
breyttar áherslur í viðræðunum og
að tryggt verði að: „ Háskólinn á Bif-
röst geti sinnt sínu mikilvæga hlut-
verki í íslensku samfélagi og þjóðlífi
til framtíðar.“
Fyrrum starfsmenn
krefjast launa
Tveir fyrrum starfsmenn Kaffi
Parísar sendu fjölmiðlum bréf um
helgina þar sem þau segjast hafa
fengið minna greitt en kjarasamn-
ingar kveða á um. „Eins og stendur
hafa forsvarsmönnum Kaffi París
borist launakröfur frá Eflingu sem
hljóða samanlagt upp á tæpar 2
milljónir. Kröfurnar voru gerðar þar
sem okkur hafa ekki verið borguð
laun samkvæmt kjarasamningum,“
segir í bréfinu en þar segir að fimm
starfsmenn eigi hver á bilinu 110
þúsund til 870 þúsund krónur inni
hjá fyrirtækinu. RÚV hefur eftir
Tryggva Marteinssyni hjá Eflingu
að kvartanir vegna of lágra launa
hafi aukist. Gjarnan séu greidd
svokölluð jafnaðarlaun en þau séu
ekki til í kjarasamningum og séu
ólögleg.
Launin trúnaðarmál
Eins og fram hefur komið þá fékk Hall-
dór Ásgrímsson tveggja ára framleng-
ingu á ráðningu í starf framkvæmda-
stjóra Norrænu ráðherranefndarinnar.
Ekki hefur komið fram hver laun Hall-
dórs eru hjá ráðherranefndinni og
samkvæmt upplýsingum frá utanríkis-
ráðuneytinu þá eru þau trúnaðarmál.
Lögin segi til um að þeir alþjóðlegu
samningar sem við Íslendingar höfum
samþykkt gangi framar upplýsingalög-
unum.
Snjólaug Ólafsdóttir, skrifstofustjóri
Norðurlandaskrifstofu ráðuneytisins,
sagði við blaðamann DV að þegar Hall-
dór tók við framkvæmdastjórastöð-
unni hafi hann gengið inn í samn-
ing forvera síns. Jafnframt benti hún
blaðamanni á að hafa samband við
upplýsingaskrifstofu ráðherranefndar-
innar til að fá staðfestingu á þessu. Þar
fengust einnig þau svör að laun Hall-
dórs væru trúnaðarmál og var þar vitn-
að í dönsk lög sem segja til um að ekki
sé heimilt að gefa upplýsingar um laun
einstakra starfsmanna. Framlenging
á ráðningu Halldórs hefur vakið hörð
viðbrögð í þjóðfélaginu þar sem hann
er harðlega gagnrýndur fyrir hlut sinn í
einkavæðingu bankanna á sínum tíma.
Eins var mörgum misboðið þegar frétt-
ist af því að fyrirtæki í eigu Skinneyj-
ar-Þinganess, sem er að stórum hluta
í eigu fjölskyldu Halldórs Ásgrímsson-
ar hafi fengið afskrifaða 2,5 milljarða á
sama tíma og eigendur tóku út hundr-
uð milljóna króna í arð. gunnhildur@dv.is
Halldór Ásgrímsson Laun
Halldórs sem framkvæmdastjóra
Norrænu ráðherranefndarinnar eru
trúnaðarmál. Mynd Bragi Þór Jósefsson
Már Guðmundsson seðlabankastjóri
ræddi við Heiðar Má Guðjónsson,
fjárfesti og einn hugsanlegan kaup-
enda tryggingafélagsins Sjóvár, um
viðskipti þess síðarnefnda með af-
landskrónur á fundi í Seðlabanka Ís-
lands í næstsíðustu viku. Tilgangur
Heiðars með fundinum, sem hann
kom á ásamt tveimur lögmönnum,
var að reyna að ganga frá kaupunum
á tryggingafélaginu Sjóvá en Seðla-
banki Íslands er stærsti hluthafi þess
í gegnum eignarhaldsfélag sitt, Eigna-
safn Seðlabanka Íslands. Heiðar Már
vill eignast um þriðjung þeirra hluta-
bréfa sem eru til sölu í tryggingafé-
laginu en það er rúmlega 80 prósenta
hlutur.
Líkt og Viðskiptablaðið og DV
hafa greint frá hefur Seðlabanki verið
með viðskipti Heiðars Más og eignar-
haldsfélags hans, Ursus capital ehf., til
skoðunar frá því í sumar. Heiðar ákvað
að Ursus færi í skuldabréfaútboð upp
á nærri hálfan milljarð króna og ætlaði
síðan líklega að nota aflandskrónur til
að festa kaup á þessum skuldabréf-
um. Um var að ræða 490 einingar sem
gefnar voru út í skuldabréfaútboð-
inu og var hver þeirra verðlögð á eina
milljón króna. Viðskipti með aflands-
gjaldeyri ganga út á að menn kaupi sér
gjaldeyri á lægra verði, á aflandsmark-
aði í útlöndum, en í landinu þar sem
viðkomandi gjaldmiðill er notaður.
Algengt er að menn geti sparað sér 10
til 40 prósent af verði gjaldeyris með
því að kaupa hann á aflandsmarkaði.
Seðlabankinn kom hins vegar í veg
fyrir þessi viðskipti vegna gruns um
að þau væru brot á reglum um gjald-
eyrismál sem sett voru í kjölfar efna-
hagshrunsins haustið 2008 en sam-
kvæmt þeim er miklum annmörkum
háð hvenær má koma með slíkar af-
landskrónur til landsins. Afar líklegt er
að Heiðar Már hafi ætlað að nota af-
landskrónurnar til að greiða fyrir Sjó-
vá.
Löglegar eða ólöglegar
aflandskrónur
DV sendi spurningar til Seðlabankans
um fund Más og Heiðars en fékk það
svar að bankinn gæti ekki tjáð sig um
einstaka mál. Bankinn neitaði því hins
vegar ekki að fundurinn hefði átt sér
stað: „Eins og fram hefur komið get-
ur seðlabankastjóri ekki tjáð sig um
einstaka þætti í söluferli Sjóvár. Seðla-
bankastjóri getur heldur ekki stað-
ið í því að hafna eða staðfesta tilgátur
og sögusagnir um möguleg mál sem
kunna að vera í ferli hjá gjaldeyriseft-
irliti bankans. Þegar söluferli Sjóvár
lýkur er hægt að greina frá niðurstöð-
unni og ekki er vani að greina frá mál-
um sem kunna að vera í rannsókn hjá
gjaldeyriseftirliti.“
Líkt og Viðskiptablaðið greindi
fyrst fjölmiðla frá í sumar var Heiðar
Már einungis einn af nokkrum inn-
lendum aðilum sem ætluðu sér að
koma aflandskrónum til Íslands með
þessum hætti. Undanþága var í regl-
unum um gjaldeyrismál sem gerði er-
lendum fjármálafyrirtækjum heimilt
að kaupa skuldabréf íslenskra fyrir-
tækja með aflandskrónum sem teknar
voru út af reikningum sem kallast Vos-
tro. Íslenskir aðilar, sem eru með starf-
semi erlendis, byrjuðu hins vegar að
notfæra sér þessa undanþágu í aukn-
um mæli með því að kaupa skuldabréf
innlendra fyrirtækja með aflands-
krónum. Seðlabankinn fékk veður af
þessu og herti reglurnar um gjaldeyr-
ismál í kjölfarið þar sem slík viðskipti
fara gegn anda reglnanna.
Seðlabankinn hefur verið að skoða
þessi viðskipti Ursus, og annarra eign-
arhaldsfélag, frá því þau áttu sér stað.
Meðal þess sem örugglega er eitt af
aðalatriðum rannsóknar Seðlabank-
ans er að athuga hvort aflandskrón-
urnar sem notaðar voru til að kaupa
skuldabréf Ursus hafi verið löglegar
eða ólöglegar. Löglegar aflandskrónur
eru þær sem keyptar voru fyrir setn-
ingu gjaldeyrishaftalaganna í kjöl-
far efnahagshrunsins 2008 á meðan
ólöglegar aflandskrónur eru þær sem
keyptar voru eftir þennan tíma.
aðkoma Heiðars
Eftir því sem DV kemst næst sýndi Már
Heiðari gögn á fundinum sem bendl-
uðu hann við umrædd viðskipti með
aflandskrónur sem hægt er að túlka
sem svo að fari gegn tilganginum með
reglum Seðlabankans um gjaldeyr-
ismál. Hugsanlegt er að Seðlabank-
inn vilji ekki selja Heiðari Má Sjóvá
vegna þessara viðskipta hans en ekki
er hægt að fullyrða neitt um það að
svo stöddu.
Líklegt má telja að Heiðar Már hafi
notað rök eins og þau að hann sé bú-
settur erlendis og með lögheimili þar
til að útskýra að viðskipti Ursus hafi
verið innan þess ramma sem und-
anþágan frá gjaldeyrisreglum Seðla-
bankans felur í sér en hún var gerð til
að liðka til fyrir fjárfestingu erlendra
aðila. Heiðar náði hins vegar ekki því
markmiði sínu með fundinum að
ganga frá sölunni á Sjóvá og hélt hann
af landi brott og til Sviss skömmu eftir
fundinn.
Ljóst er hins vegar, alveg sama
hvernig salan á Sjóvá fer, að þessi við-
skipti Heiðars Más hafa sett ákveð-
ið strik í reikninginn í söluferlinu um
Sjóvá og kunna að vera skýringin á því
af hverju salan hefur dregist á langinn.
Heiðar Már gaf það út fyrir tveimur
vikum að hann byggist við að gengið
yrði frá sölunni á Sjóvá næstu tvo til
þrjá dagana þar á eftir. Þetta hefur enn
ekki gerst.
Heiðar Már guðjónsson og Már guðmundsson funduðu um söluna á Sjóvá fyrir skömmu.
Á fundinum var rætt um viðskipti Heiðars með aflandskrónur. Heiðar vildi ganga frá kaup-
um á Sjóvá en það gekk ekki eftir. Viðskipti Heiðars með aflandskrónur í sumar hafa aug-
ljóslega sett strik í reikninginn varðand söluna á Sjóvá til Heiðars og félaga en hugsanlegt
er að viðskiptin fari þvert gegn anda gjaldeyrishaftalaga Seðlabankans.
RÆDDI VIÐ HEIÐAR UM
AFLANDSKRÓNURNAR
ingi f. viLHJÁLMsson
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Þegar söluferli Sjóvár lýkur er
hægt að greina frá nið-
urstöðunni
óvíst með sjóvá Már fundaði með
Heiðari skömmu áður en Heiðar fór
aftur til Sviss. Á fundinum mun hafa
verið rætt um viðskipti Heiðars með
aflandskrónur og söluna á Sjóvá.
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is
Slakaðu á heima
• Stillanlegt Shiatsu herða- og baknudd
• Djúpslökun með infrarauðum hita
• Sjálfvirkt og stillanlegt nudd
Verið velkomin í verslun okkar
prófið og sannfærist!
Úrval nuddsæta
Verð frá 23.750 kr.
Opið virka daga kl. 9 -18
og á laugardögum kl. 11 - 16