Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2010, Qupperneq 25
Þrátt fyrir eilíft vesen utan vallar hef-
ur Andy Carroll, leikmaður New-
castle, hafið leiktíðina á Englandi af
miklum krafti. Hann varð hetja New-
castle í gær þegar liðið lagði Arsen-
al á útivelli, 1-–0, en Carroll skor-
aði eina mark leiksins með skalla á
45. mínútu. Ljóst er að markvarð-
arvandamálum Arsenal er hvergi
nærri lokið en Pólverjinn Lukasz Fa-
bianski sem stóð vaktina í ramman-
um hjá Lundúnaliðinu hefði átt að
gera betur í markinu.
Carroll hefur svarað hverju ves-
eninu utan vallar á fætur öðru með
frábærri frammistöðu inni á vellin-
um en í gær, að morgni leikdags, birt-
ist enn ein fréttin um drykkju hans
og fíflagang. Sögðu breskir miðlar
frá því að um þarsíðustu helgi, eft-
ir sigur Newcastle á erkifjendunum
í Sunderland, hafi hann sængað hjá
tveimur konum, klæddur í kattar-
búning heima hjá Kevin Nolan.
Carroll býr einmitt heima hjá
Nolan samkvæmt réttarúrskurði en
honum var sleppt úr haldi gegn því
að fyrirliðinn myndi hýsa hann eitt-
hvað fram á veturinn. Var Carroll þá
fyrir rétti fyrir að hafa ráðist á fyrr-
verandi kærustu sína en framherj-
inn hávaxni á mjög erfitt með að
fara út á lífið án þess að berja ein-
hvern.
„Andy sýndi í þessum leik hversu
góður hann er. Hann er framar öll-
um í þessari deild þegar kemur að
því að skalla boltann í netið. Andy
hefur átt í miklum vandræðum í
haust og það er ráðist á hann í fjöl-
miðlum dag eftir dag. Hann er samt
andlega sterkur þrátt fyrir að vera
svona ungur og nýtir hvert tæki-
færi til að læra af mistökum sínum,“
sagði hæstánægður stjóri New-
castle, Chris Houghton, um Carroll
eftir leikinn.
tomas@dv.is
Newcastle vann frækinn sigur á Arsenal:
Vandræðagemsinn varð hetjan
Hetjan Andy Carroll skoraði
sigurmark Newcastle gegn
Arsenal. mynd ReuteRs
Viktor Unnar kominn heim Íslandsmeist-
arar Breiðabliks lönduðu sínum öðrum leikmanni seint á laugar-
dagskvöldið þegar Viktor Unnar Illugason skrifaði undir samning
við Kópavogsfélagið. Viktor er uppalinn Bliki og spilaði með liðinu í
Landsbankadeildinni 2006 áður en hann var keyptur til Reading. Þar
gekk honum lítið og ekki var gengið betra hjá Val sem fékk hann aftur
heim. Viktor lék með Selfossi sem lánsmaður síðari hluta sumars en
ákvað nú að snúa aftur heim. Auk Viktors hefur hinn eldfljóti Arnar
Már Björgvinsson samið við Breiðablik en hann kom frá Stjörnunni.
DaVíð Þór slapp Við fall Davíð
Þór Viðarsson og félagar í sænska 1. deildar liðinu Öster
björguðu sér frá falli niður í 2. deild um helgina. Öster lék
umspilsleiki gegn Qviding FIF og vann fyrri leikinn, 2–0.
Um helgina lenti Öster undir, 1–0, en kom sterkt inn á loka-
mínútum, skoraði tvö mörk og bjargaði sér frá falli. Davíð
Þór, sem var gerður að fyrirliða liðsins í sumar, lék allan
leikinn. Davíð var að klára sitt fyrsta tímabil hjá Öster en
hann gekk í raðir sænska liðsins frá FH síðastliðinn vetur.
mánudagur 8. nóvember 2010 sport 25
Úrslit
Enska úrvalsdEildin
Bolton - tottenham 4-2
1-0 Kevin Davies (31.), 2-0 Grétar Rafn Steinsson (56.), 3-0 Kevin
Davies (76. víti), 3-1 Alan Hutton (79.), 3-2 Roman Pavlyuchenko
(87.), 4-2 Martin Petrov (90.).
Birmingham - West Ham 2-2
0-1 Freddy Piquionne (48.), 0-2 Valon Behrami (58.), 1-2
Cameron Jerome (64.), 2-2 Liam Ridgewell (73.).
Blackburn - Wigan Athletic 2-1
1-0 Martin Pedersen (58.), 2-0 Jason Roberts (67.), 2-1 Charles
N´Zogbia (74.).
Blackpool - everton 2-2
1-0 Neil Eardley (10.), 1-1 Tim Cahill (13.), 2-1 David Vaughan
(48.), 2-2 Seamus Coleman (50.).
Fulham - Aston Villa 1-1
0-1 Mark Albrighton (42.), 1-1 Brede Hangeland (90.).
man. united - Úlfarnir 2-1
1-0 Ji-Sung Park (45.), 1-1 Sylvan Ebanks-Blake (66.),
2-1 Ji-Sung Park (90.).
sunderland - stoke 2-0
1-0 Asamoah Gyan (9), 2-0 Asamoah Gyan (87.).
RAUTT: Ryan Shawcross, Stoke (82.).
Asenal - newcastle 0-1
0-1 Andy Carroll (45.).
RAUTT: Laurent Koscielny, Arsenal (90.).
WBA - man. City 0-2
0-1 Mario Balotelli (20.), 0-2 Mario Balotelli (26.).
RAUTT: Mario Balotelli, Man. City (63.), Youssuf Mulumbu,
WBA (82.).
Liverpool - Chelsea 2-0
1-0 Fernando Torres (11.), 2-0 Fernando Torres (44.).
staðan
Lið L u J t m st
1. Chelsea 11 8 1 2 27:5 25
2. Man. Utd 11 6 5 0 24:13 23
3. Arsenal 11 6 2 3 22:11 20
4. Man. City 11 6 2 3 15:10 20
5. Newcastle 11 5 2 4 20:14 17
6. Bolton 11 3 6 2 17:16 15
7. Tottenham 11 4 3 4 13:14 15
8. Sunderland 11 3 6 2 11:12 15
9. Liverpool 11 4 3 4 12:14 15
10. WBA 11 4 3 4 14:19 15
11. Everton 11 3 5 3 12:10 14
12. Blackpool 11 4 2 5 17:23 14
13. Fulham 11 2 7 2 13:12 13
14. Aston Villa 11 3 4 4 10:14 13
15. Birmingham 11 2 6 3 12:14 12
16. Blackburn 11 3 3 5 11:13 12
17. Stoke City 11 3 1 7 10:16 10
18. Wigan 11 2 4 5 8:20 10
19. Wolves 11 2 3 6 11:18 9
20. West Ham 11 1 4 6 9:20 7
Enska b-dEildin
Barnsley - Leicester 0-2
Bristol C. - Preston 1-1
Coventry - Leeds 2-3
doncaster - millwall 2-1
Hull - scunthorpe 0-1
middlesbrough - Crystal Palace 2-1
norwich - Burnley 2-2
QPR - Reading 3-1
sheff. united - Ipswich 1-2
Watford - nott. Forest 1-1
derby - Portsmouth 2-0
staðan
Lið L u J t m st
1. QPR 15 9 6 0 29:6 33
2. Cardiff 15 10 2 3 28:13 32
3. Swansea 15 9 2 4 21:12 29
4. Derby 15 7 3 5 27:17 24
5. Coventry 15 7 3 5 23:19 24
6. Ipswich 15 7 3 5 19:16 24
7. Norwich 15 7 3 5 22:20 24
8. Leeds 15 7 2 6 26:28 23
9. Burnley 15 5 7 3 24:18 22
10. Reading 15 6 4 5 23:17 22
11. Watford 15 6 4 5 27:23 22
12. Doncaster 15 6 4 5 25:24 22
13. Portsmouth 15 6 3 6 21:21 21
14. Nottingham F. 15 4 8 3 17:15 20
15. Scunthorpe 15 6 2 7 19:21 20
16. Millwall 15 5 4 6 19:19 19
17. Leicester 15 5 3 7 19:27 18
18. Barnsley 15 4 4 7 18:27 16
19. Sheffield Utd 15 4 3 8 10:20 15
20. Hull 15 3 5 7 10:19 14
21. Preston 15 4 2 9 21:31 14
22. Bristol City 15 3 5 7 15:25 14
23. Middlesbro 15 4 2 9 15:25 14
24. Cr. Palace 15 3 2 10 15:30 11
FOrMúla 1
stIGAKePPnI ÖKumAnnA
Ökumaður Lið stig
1. Fernando Alonso Ferrari 246
2. Mark Webber Red Bull 238
3. Sebastian Vettel Red Bull 231
4. Lewis Hamilton McLaren 222
5. Jenson Button McLaren 199
stIGAKePPnI BÍLAsmIÐA
Lið stig
1. Red Bull 469
2. McLaren 421
3. Ferrari 389
Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea,
hefur átt mögnuðu gengi að fagna
gegn hinum þremur liðunum af
þeim fjóru stóru, Manchester Un-
ited, Arsenal og Liverpool. Átta
leikja sigurgöngu Chelsea gegn
hinum stórliðunum lauk í gær
þegar liðið lá gegn Liverpool, 2–0,
á Anfield. Spænski markahrókur-
inn Fernando Torres sá um marka-
skorun eins og svo oft áður gegn
Chelsea. Sigurinn gerði erkifjend-
unum í Manchester United mikinn
greiða en nú munar aðeins tveim-
ur stigum á Chelsea og United á
toppnum. Stigin þrjú lyftu Liver-
pool aftur á móti upp í níunda sæt-
ið en liðið hefur nú fimmtán stig
og nálgast baráttuna um Meistara-
deildarsæti óðfluga.
Á meira inni
Mikið hefur verið rætt um leikform
Fernando Torres það sem af er
leiktíðinni en Roy Hodgson, stjóri
liðsins, hefur ávallt afsakað slaka
frammistöðu hans með því að
Spánverjinn sé ekki kominn í sitt
besta form. Torres virkaði þó flott-
ur gegn Chelsea og skoraði auðvit-
að mörkin tvö. Hann segist samt
eiga meira inni og vonandi geti
hann farið að spila eins og hann á
að sér.
„Við vorum einfaldlega ekki
nægilega góðir sem lið í byrjun
tímabilsins. En nú erum við farnir
að vinna leiki og við þurfum tíma
til þess að bæta okkur enn meira.
Það þýðir ekki að spila bara svona
vel gegn Chelsea og slaka svo á
gegn liðunum um miðja deild.
Persónulega hefur þessi leiktíð
verið mér erfið vegna meiðslanna.
Ég æfi samt mikið á hverju degi og
vonandi get ég farið að spila eins
vel og ég get. Hvort það verði fljót-
lega veit ég samt ekki,“ sagði Fern-
ando Torres eftir sigurinn.
Þakkar slánni og Reina
Chelsea sótti stíft í seinni hálfleik
og átti liðið bæði skot í slána, og þá
bjargaði Pepe Reina eitt sinn með
frábærri markvörslu, og í algjöru
dauðafæri. „Ég vil þakka Reina og
slánni fyrir að við héldum hreinu.
Ég er virkilega ánægður með
hvernig liðið spilaði. Strákarnir eru
alltaf að fá meira og meira sjálfs-
traust og trú á það sem ég legg upp
með. Við erum að verða lið núna,“
sagði Roy Hodgson, stjóri Liver-
pool, eftir leikinn.
„Liverpool var mjög sterkt varn-
arlega í leiknum,“ sagði niðurlútur
Carlo Ancelotti eftir leikinn. „Það
var erfitt að vinna pláss á vallar-
helmingi þeirra þrátt fyrir að mínir
menn spiluðu vel og voru með rétt
hugarfar. Torres spilaði frábærlega
og skoraði tvö glæsileg mörk. Við
verðum samt að vera jákvæðir. Það
er ómögulegt að vinna hvern ein-
asta leik. Við spiluðum vel í seinni
hálfleik og það þurfum við að taka
með okkur inn í næsta leik,“ sagði
Ancelotti.
Torres
opnaði
titilbar-
áttuna
Liverpool vann sinn fjórða leik í röð í öll-
um keppnum í gær þegar liðið lagði Chel-
sea, 2–0, á Anfield. Fyrir leikinn hafði
Chelsea unnið átta leiki í röð gegn stóru
liðunum. Nú munar aðeins tveimur stig-
um á Chelsea og Manchester United, en
Liverpool er komið upp í níunda sæti.
tómAs ÞóR ÞóRÐARson
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Hetjan á Anfield Fern-
ando Torres skoraði bæði
mörk Liverpool gegn
Chelsea. myndIR ReuteRs
Fyrirliðinn flottur Steven Gerrard fór
fyrir sínum mönnum gegn toppliðinu.