Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 4. maí 2011 Miðvikudagur
n Leiðtogi Vítisengla í Noregi hefur höfðað
skaðabótamál á hendur ríkinu n Lögregla vísaði
honum frá landi í fyrra n Vítisenglar hafa áður
fengið bætur frá ríkinu vegna ólögmætra að-
gerða lögreglu n Þeir boða fleiri málshöfðanir
Vítisenglar herja á ríkið
Leif Ivar Kristiansen, leiðtogi Vítis-
engla, Hells Angels, í Noregi hefur
höfðað skaðabótamál á hendur ís-
lenska ríkinu vegna frávísunar úr
landi. Annar meðlimur samtakanna,
Jan Anfinn Wahl, hefur einnig stefnt
ríkinu vegna hliðstæðs máls.
Vítisenglar hafa áður stefnt ríkinu
fyrir ólögmætar aðgerðir og haft erindi
sem erfiði. Sjö meðlimum Fáfnis (for-
vera Hells Angels MC Iceland) voru í
fyrra dæmdar bætur frá ríkinu vegna
ólögmætrar handtöku. Þá boðar for-
ingi samtakanna á Íslandi, Einar
„Boom“ Marteinsson, fleiri málshöfð-
anir á hendur ríkinu – næst fyrir meið-
yrði. Þannig gæti farið að Vítisenglar
hafi ríkið að féþúfu.
Kom sem „ferðamaður“
Það var í febrúar í fyrra sem Leif Ivar
kom hingað til lands. Með í för var
lögfræðingur hans Morten Furuhol-
men, sem í kjölfar heimsóknarinn-
ar sakaði íslensk stjórnvöld um ger-
ræðisleg vinnubrögð og fyrir að brjóta
EFTA-samninginn við Norðmenn.
„Ef íslensk stjórnvöld ætla að gera
undantekningu á reglum um frjálsa
fólksflutninga, þá verður það að vera
hrein og klár ógnun við öryggi lands-
ins og þjóðar. Það að vera meðlimur í
Hells Angels er ekki nægileg ástæða til
að vísa manni úr landi,“ sagði hann við
vefmiðilinn Pressuna. Hann bætti því
raunar við að Leif Ivar væri einfaldlega
að koma til Íslands sem ferðamaður
en ætlaði þó einnig að hitta meðlimi
MC Iceland, nú Hells Angels MC Ice-
land.
Vill skaðabætur frá ríkinu
Ljóst er að Leif Ivar ætlar að leita rétt-
ar síns vegna þess að lögregla vísaði
honum úr landi við komuna. Hann
hefur stefnt ríkinu og verður málið
tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur
klukkan 10 í dag, miðvikudag. Odd-
geir Einarsson héraðsdómslögmaður
sækir málið fyrir Leif Ivar. Hann sagð-
ist í samtali við DV ekki mega tjá sig í
smáatriðum um efni stefnunnar en
að um væri að ræða mál vegna frávís-
unar í fyrra, bæði í tilfelli Leifs Ivars og
Jans Anfinns. Hann staðfesti að farið
væri fram á skaðabætur en sagði að
þar væri um óverulegar upphæðir að
ræða, án þess að geta gefið þær upp.
Óskar Thorarensen hæstaréttar-
lögmaður ver ríkið en hann gat eng-
ar frekari upplýsingar veitt um málið
þegar DV fór þess á leit.
Rýmri rannsóknar-
heimildir lögreglu
Lögregluyfirvöld hafa lengi grunað
MC Iceland, áður Fáfni en nú Hells
Angels, um græsku og reynt með öll-
um tiltækum ráðum að sporna við
fótfestu samtakanna hér á landi. Sú
viðleitni birtist meðal annars í að er-
lendum vítisenglum hefur ítrekað
verið vísað úr landi þegar þeir hafa
komið hingað í hópum.
„Við munum beita öllum mögu-
legum ráðum til að losa Ísland við
glæpahópa og sporna af alefli gegn
því að slíkum hópum, sem reyni að
brjótast inn í íslenskt samfélag, tak-
ist það ætlunarverk. Í undirbúningi
er lagafrumvarp sem auðveldar lög-
reglunni að glíma við glæpamenn en
ég tek fram að við munum gæta þess
rækilega að rýmkaðar rannsóknar-
heimildir verði háðar dómsúrskurði
og eftirliti,“ sagði Ögmundur Jónas-
son innanríkisráðherra í samtali við
DV þegar nýtt lagafrumvarp var kynnt
fyrir fáeinum vikum.
Hafa áður fengið bætur
Ekki virðist vanþörf á rýmri lagaheim-
ildum lögreglu til að sporna við starfi
meintra glæpahópa. Til viðbótar við
dómsmálið sem foringi Hells Angels í
Noregi hefur nú höfðað gegn íslenska
ríkinu er þess skemmst að minnast að
MC Iceland hefur haft betur gegn yfir-
völdum fyrir dómstólum. Þannig voru
í fyrra sjö núverandi og fyrrverandi
félagsmönnum dæmdar bætur sem
hljóðuðu samtals upp á 700 þúsund
krónur fyrir ólöglega handtöku í þá-
verandi félagsheimili Fáfnis árið 2007.
Þá fór lögregla á vettvang og handtók
mennina eftir að ábending barst um
að þar væri verið að berja mann.
Þess má geta að meðlimir vél-
hjólasamtakanna hafa alltaf haldið
fram sakleysi sínu og bent á að sam-
tökin hafi, þrátt fyrir mikið eftirlit lög-
reglu hérlendis, aldrei hlotið dóm fyrir
neitt – jafnvel þó einstaklingar innan
samtakanna hafi persónulega hlotið
dóma.
Ætla í meiðyrðamál gegn Ögmundi
Einar „Boom“ Marteinsson, foringi
Hells Angels MC Iceland á Íslandi,
segir í samtali við DV að fleiri dóms-
mál á vegum Vítisengla kunni að vera
í farvatninu. Þannig hafi hann sjálfur
óskað eftir skýringum lögreglu á síma-
hlerunum í hans garð. Þær hafi hann
ekki fengið en lögmaður sinn sé að
vinna í því máli. Þá íhugi Vítisenglar
nú að kæra Ögmund Jónasson innan-
ríkisráðherra fyrir meiðyrði. „Hann
hefur látið ýmislegt út úr sér um okk-
ur, meðal annars á blaðamannafund-
inum um daginn, sem ekki stenst,“
segir Einar og bætir við að samtökin
íhugi meiðyrðamál gegn ríkinu vegna
fleiri ummæla ríkisstarfsmanna sem
fallið hafi.
Því er ekki ósennilegt að sjá megi
fleiri dómsmál Vítisengla gegn ríkinu
á næstunni.
Aðspurður hvort samtökin á Ís-
landi komi með einhverjum hætti að
máli Leifs Ivars gegn ríkinu segir Ein-
ar: „Auðvitað. Bræður standa alltaf
saman.“ Hann vill þó ekki fara nánar
út í það í hverju sú aðstoð sé fólgin.
Uppgjör í vændum
DV greindi frá því í mars að ríkislög-
reglustjóri óttist mjög að í hörð átök
stefni í undirheimum Reykjavíkur, en
sú hætta er sögð meginástæða þess að
lögregla sé nú að fá rýmri rannsóknar-
heimildir. Í DV kom fram að lögregl-
an óttist um eigið öryggi ekki síður
en öryggi almennings ef til uppgjörs
komi á milli glæpahópa sem skot-
ið hafi rótum á Íslandi. Blaðið hafði
leyniskjöl undir höndum þar sem
fram kemur að lögreglan telur raun-
verulega hættu á því að átökin gætu
brotist út á stöðum þar sem almennir
borgarar gætu lent á milli. Fram kom
líka að Jón Trausti Lúthersson, sem
hætti í vélhjólasamtökunum MC Ice-
land, áður en þau hlutu inngöngu í
Hells Angels, hygði á hefndir. Sjálfur
hefur hann í samtali við DV hafnað því
en hefur þó farið fyrir stofnun annarra
vélhjólasamtaka, MC Black Pistons
á Íslandi og í Haugasund í Noregi.
Black Pistons er áhangendaklúbbur
Outlaws, en meðlimir samtakanna og
Hells Angels hafa víða um heim eldað
grátt silfur. Lögregla óttast að uppgjör
sé í vændum.
Báðir klúbbar hafa hafnað því að
átök séu yfirvofandi.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Traustar rannsóknir
„Það er enn í burðarliðnum enda þarf að vanda mjög til
þeirrar löggjafar. Frumvarpið er væntanlegt innan tíðar,“
segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um frum-
varpið sem hann boðaði á blaðamannafundi í byrjun mars,
þar sem lögreglu yrðu veittar rýmri rannsóknarheimildir til
að fylgjast með skipulegri glæpastarfsemi.
Ögmundur segir að frumvarpið verði lagt fram á þessu þingi.
Aðspurður hvort málshöfðanir Vítisengla, bæði íslenskra og
norskra gegn íslenskum stjórnvöldum, sýni að lögregla þurfi rýmri heimildir til að athafna
sig segist Ögmundur ekki vilja tengja þetta tvennt saman. Hugmyndin með frumvarpinu
sé aðeins að ákæruvaldið geti byggt á traustum rannsóknum um meinta glæpastarfsemi
og hafi aðgang að þeim upplýsingum sem til þurfi. „Ef þessir menn telja sig með öllu
vammlausa þá er það ekki mitt að kveða upp neina dóma. Það verður að hafa sinn gang
fyrir dómstólum. Mín viðleitni miðast að því að hægt verði að rannsaka framferði meintra
glæpamanna,“ segir Ögmundur við DV.
Umfjallanir DV um Vítisengla
2. júlí 2008 3.
júlí 2008
28. október 2009
2. nóvember 2009 5. mars 2010 9. júní 2010
Krefst bóta frá íslenska ríkinu Leif
Ivar, foringi Hells Angels í Noregi, hlaut
í undirrétti níu ára dóm fyrir stórfellt
fíkniefnasmygl en var sýknaður í hæsta-
rétti. Hann vill nú bætur frá íslenska ríkinu.
Stefnir ríkinu Litlar upplýsingar er að
finna um Jan Anfinn Wahl, hinn vítisengilinn
sem hefur stefnt ríkinu. MyNd bygdepoSteN.No
einar „boom“ Marteinsson hler-
aður? Foringi Hells Angels MC Iceland á Ís-
landi segir lögmann sinn skoða réttarstöðu
hans vegna hlerana.