Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Page 3
Fréttir | 3Miðvikudagur 4. maí 2011 Vítisenglar herja á ríkið „Ef þeir vilja stríð getum við mætt þeim af fullri hörku,“ sagði Leif Ivar Kristiansen um hörku íslenskra lögregluyfirvalda í samtali við DV í júlí 2008 en þá var hann staddur hér á landi. „Mér þykir reyndar leitt að þeir skuli vera hræddir við okkur, við erum kurteisir menn og viljum bara ferðast um á mótorhjólunum okkar,“ sagði Leif en hann er talinn stofnandi Hells Angels í Noregi og forsprakki samtakanna þar í landi, þó hann hafi sjálfur aldrei gengist við þeirri nafnbót. Hann sagði þó að stríð væri ekki það sem norsku vítis- englarnir vildu. Þeir væru fjölskyldumenn sem hefðu gaman af mótorhjólum. Leif Ivar er 48 ára gamall og hefur margoft komið til Íslands. Stundum hefur honum verið meinuð innkoma en stundum hefur hann fengið að fara inn í landið óáreittur. Hann hlaut fyrir nokkrum árum níu ára fangelsisdóm fyrir að smygla 350 kílóum af hassi frá Danmörku til Noregs en var í hæstarétti sýknaður, eftir að hafa setið 13 mánuði í varðhaldi. Átta menn voru handteknir vegna málsins og hlutu þeir samtals 57 ára fangelsisdóm. Leif Ivar sagði sjálfur í viðtali við DV árið 2008 að hann hefði fimm sinnum verið dreginn fyrir dóm. „Ég hef alltaf gengið út sem frjáls maður,“ sagði hann um erfitt líf vítisengils. „Mér líkaði mjög vel við Ísland þegar ég heimsótti landið,“ sagði Leif í eitt skiptið sem hann kom hingað. Í það skiptið var hann ekki stöðvaður þrátt fyrir að lögreglan hafi lagt sig í líma við að snúa meðlimum gengisins við til síns heima. Hann segir að þvert á móti hafi lögreglan verið mjög vinaleg á meðan hann dvaldi hér á landi. Hann segist hafa notið landsins gæða á meðan hann dvaldi hér og hefur ekkert illt um þjóðina að segja. Honum finnst aftur á móti viðbrögð lögreglunnar hafa verið heldur hörð þegar þeir hafa komið í hópum. Litlar upplýsingar fundust um hinn manninn sem hefur stefnt ríkinu, Jan Anfinn Wahl. Eftir því sem DV kemst næst er hann 38 ára gamall og er búsettur í Noregi. Tilbúinn í stríð við lögregluna Samtökin Hells Angels voru fyrst stofnuð á Norðurlöndunum í Danmörku árið 1980. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og eru skotárásir tíðar. Ástandið er svo slæmt í sumum hlutum Kaupmannahafnar að venjulegt fólk þarf að klæðast skotheldum vestum. Í tveggja ára gamalli skýrslu frá dönsku lögreglunni um það sem hún kallar rokkaraklúbba og -gengi kemur fram að lögreglan hafi skráð allt í allt 167 atvik þar sem skotvopn voru notuð á almannafæri árið 2008. Talið er að 76 af þessum atvikum tengist rokkaragengjum á borð við Hells Angels. Um 120 meðlimir voru í dönsku Vítisenglunum í lok síðasta árs og 113 í stuðnings- hópi þeirra, AK81. Á síðasta ári voru 87 ákærur um alvarlega glæpi gefnar út á hendur meðlimum Hells Angels og 61 dómur féll í málum sem varða meðal annars ofbeldi, vopnaða glæpi og fíkniefnaviðskipti. Árið 2009 voru átján meðlimir settir í fangelsi, tólf afplánuðu dóma og sex voru í gæsluvarðhaldi. Á sama tíma voru sextán meðlimir á skilorði og sex biðu afplánunar. Tíðni glæpa er mun hærri meðal meðlima AK81 og voru 314 ákærur um alvarlega glæpi gefnar út á hendur meðlimum klúbbsins árið 2008 og 164 dómar féllu. 113 meðlimir – 314 ákærur 6. ágúst 2010 9. ágúst 2010 4. mars 2011 n Félögin Hafnarhóll og Línuskip töpuðu milljörðum við fall Straums og Landsbankans n Þorsteinn Már Baldvinsson segir 14,5 milljarða króna kaup Samherja í Brimi gerð á viðskiptalegum forsendum Útgerðarfélagið Brim gekk frá 14,5 milljarða króna sölu á eignum sín- um til Samherja um síðustu helgi. Um er að ræða sölu á 5.900 tonnum af aflaheimildum, fiskvinnslu Brims á Akureyri, dótturfélagið Lauga- fisk hf. og ísfisktogarana Sólbak og Mars. Landsbankinn veitir nýja fé- laginu 11 milljarða króna í lán og mun Samherji síðan reiða fram um 3,6 milljarða króna. Samherji stofn- ar nýtt dótturfélag utan um þessar eignir sem fær nafnið Útgerðarfélag Akureyringa. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hyggst Brim nýta þá 3,6 milljarða króna sem Samherji leggur fram í eigið fé til að greiða nið- ur skuldir við skilanefnd Glitnis. Brim keypti Útgerðarfélag Akur- eyringa af Eimskipi árið 2004 á níu milljarða króna og má segja að Brim sé nú að selja stóran hluta þeirra eigna. Þó er ljóst að Brim mun halda einhverjum hluta af þeim aflaheim- ildum sem félagið keypti af Eimskipi árið 2004. Má í því samhengi nefna að árið 2004 hafði ÚA um 19.000 þorskígildistonn til yfirráða. Brim heldur þremur frystitogurum Þrátt fyrir að Brim selji 5.900 þorsk- ígildistonn heldur félagið áfram um 5.300 tonnum. Auk þess á félagið um 1.600 þorskígildistonn utan íslenskrar lögsögu en þær veiðheim- ildir eru í úthafskarfa og síðan þorski í Barentshafi. Brim heldur áfram frystitogurunum Guðmundi í Nesi, Brimnesinu og Kleifaberginu en þessi þrjú skip skiluðu um sex millj- arða króna aflaverðmæti í fyrra. Heimildarmaður sem DV ræddi við sagði að líklega myndi Guð- mundur Kristjánsson ekki sjá eftir landvinnslunni á Akureyri. Hann hafi meira litið á það sem samfélags- lega skyldu sína að halda rekstri hennar gangandi undanfarin ár. Það sé þó ljóst að Brim hefði ekki látið af hendi jafn mikið af kvóta sínum og raun ber vitni nema vegna þess að Landsbankinn hafi þrýst á félagið að létta á skuldum sínum. Brim hefur ekki skilað ársreikningi síðan árið 2007 en þá skuldaði félagið nærri 14 milljarða króna sem nær alfarið var í erlendri mynt. Þorsteinn Már telur kaupin góð Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, segir í samtali við DV að hann líti ekki svo á að með þessum kaupum hafi Samherji ver- ið að hjálpa Guðmundi Kristjáns- syni og félögum hans við skuldaupp- gjör hjá Landsbankanum. „Viðskipti Samherja eru gerð á viðskiptalegum forsendum,“ segir hann. Aðspurður segir Þorsteinn Már að Samherji hafi keypt þær eignir sem boðnar voru til sölu. Það hafi ekki komið til tals að Samherji reyndi að kaupa meira af aflaheimildum Brims eða eitthvað af frystitogurum félagsins. „Þetta eru að okkar mati góðar eignir og með þeim munum við nýta fullkomna vinnslu og þekkingu sem byggð hef- ur verið upp með áratugastarfi ÚA á Akureyri,“ segir Þorsteinn Már. Mikið tap hjá félögum Guðmundar DV hefur nokkrum sinnum fjallað um Guðmund Kristjánsson, forstjóra Brims, og skuldastöðu félaga hans á síðustu mánuðum. Í lánabók Lands- bankans frá 31. mars 2008 kemur fram að þá hafi félög Guðmundar skuldað bankanum 23,4 milljarða króna. Má áætla að þessar skuldir væru um 33 milljarðar króna í dag. Eignarhaldsfélagið Línuskip, sem fer með 95 prósenta hlut í Brimi, var í ábyrgðum fyrir 2,8 milljörð- um króna af skuldum Hafnarhóls. Þessari ábyrgð var síðar aflétt en DV sagði frá því í mars að Fjármálaeftir- litið væri með Hafnarhól til skoðun- ar. Einnig átti Línuskip 0,85 prósenta hlut í Landsbankanum sem bankinn lánaði fyrir. Gera má ráð fyrir því að Landsbankinn þurfi að afskrifa um 14 milljarða króna vegna lána sem veitt voru til Hafnarhóls og Línuskips. Hvorki hafa fengist svör frá Lands- bankanum né frá Guðmundi sjálf- um um hvort 14,5 milljarða króna sala á eignum Brims til Samherja sé tengd uppgjöri á þessum skuldum Hafnar hóls og Línuskips. Þegar DV fór í prentun höfðu blaðinu ekki bor- ist svör við fyrirspurnum sem sendar voru á Guðmund. Kristján Kristjánsson, upplýs- ingafulltrúi Landsbankans, segir að sala Brims á eignum upp á 14,5 millj- arða króna til Samherja sé ekki hluti af skuldauppgjöri Brims og annarra félaga Guðmundar Kristjánssonar við Landsbankann. Afskriftir á skuld- um Hafnarhóls ehf. og Línuskips ehf. hafi ekki verið hluti af þessu sam- komulagi. Keypti 4,2 prósenta hlut í Vinnslustöðinni Fjárfestingafélagið Horn, dótturfélag Landsbankans, seldi Guðmundi Kristjánssyni 4,2 prósenta hlut í Vinnslustöðinni í fyrra. Guðmundur hefur ekki viljað svara spurningum DV um þessi viðskipti og því liggur ekki enn ljóst fyrir hvernig þau voru fjármögnuð. Samkvæmt heimildum DV er talið að Horn hafi lánað Guð- mundi fyrir kaupunum með veði í bréfunum en það hefur ekki fengist staðfest. Hvorki frá Landsbankanum né Guðmundi sjálfum. Það skýtur þó skökku við að Guðmundur hafi eina stundina fengið að kaupa eignir af Landsbankanum en stuttu síðar hafi útgerðarfélagið Brim þurft að losa sig við eignir upp á 14,5 milljarða króna sem fóru til Samherja um helgina. Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar as@dv.is Óumflýjanleg sala hjá Brimi „Viðskipti Samherja eru gerð á við- skiptalegum forsendum. Heldur þremur frystitogurum Eftir söluna á Brim ennþá þrjá frysti- togara, þá á meðan Brimnesið sem sést á myndinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.