Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Síða 6
6 | Fréttir 4. maí 2011 Miðvikudagur
Myndi missa málflutningsréttindi yrði hann gerður gjaldþrota:
Karl Georg vill greiðsluaðlögun
Hæstaréttarlögmaðurinn Karl
Georg Sigurbjörnsson hefur sótt um
greiðsluaðlögun hjá embætti um-
boðsmanns skuldara. Frá þessu er
greint í Lögbirtingablaðinu. Um leið
og fólk sækir um greiðsluaðlögun ein-
staklinga hefst tímabundin frestun
greiðslna. Karl Georg vildi lítið ræða
um ástæður og sagði málið snúast um
sín persónulegu fjármál og með þessu
væri hann að reyna að fá tækifæri til
að setjast niður með kröfuhöfum og
ræða við þá. Karl Georg vildi ekki svara
því hvaða kröfuhafar væru á eftir hon-
um né hvaða upphæðir væru í spil-
unum. Karl Georg viðurkenndi þó að
umsóknin snérist einnig um að reyna
að halda málflutningsréttindum, en
á meðan fólk er í greiðsluaðlögun er
ekki hægt að ganga að því og gera það
gjaldþrota. Verði lögmenn gjaldþrota
missa þeir málflutningsréttindi sín og
því má segja að málið snúist bæði um
hans eigin fjármál og framtíðarstarfs-
möguleika í lögmennsku.
Fjármál Karls Georgs hafa ver-
ið fyrir dómstólum að undanförnu.
Þann 26. janúar á þessu ári féllst Hér-
aðsdómur Reykjavíkur á kröfu þrota-
bús Baugs Group um að rifta samtals
9,9 milljóna króna greiðslum, sem
hann fékk frá félaginu í lok árs 2008.
Hann hafði fengið þessa upphæð sem
bætur vegna vinnutaps, álitshnekk-
is og kostnaðar sem hann varð fyrir
vegna starfa fyrir dótturfélag Baugs.
Í haust vann Arion banki svo mál
sem hann höfðaði gegn Karli Georg
og viðskiptafélaga hans vegna láns
sem tekið var hjá Sparisjóði Mýra-
sýslu árið 2005 að jafnvirði 17,6 millj-
óna króna. Lánið var ekki greitt, en á
gjalddaga var lántakanda fyrir mistök
send greiðslukvittun. Dómurinn féllst
á að greiðslukvittunin hefði ekki verið
gild og lánið hafi því ekki verið greitt
til baka.
valgeir@dv.is
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum - Flúðum
Gæða glersteinn
– ótal lausnir
Fasteignafélag Lambeyra ehf. og
Lambeyrar ehf. hafa stefnt Lambeyra-
búinu ehf. vegna ógreiddrar leigu. Um
tvö aðskilin mál er að ræða og voru þau
bæði tekin fyrir í Héraðsdómi Vest-
urlands mánudaginn 2. maí. Félagið
Lambeyrar er í eigu Daða Einarsson-
ar, föður Ásmundar Daða Einarsson-
ar þingmanns, sem nýlega sagði sig úr
þingflokki Vinstri grænna, og sjö systk-
ina hans, en Lamb eyrarbúið er 100
prósent í eigu Daða. Hvert systkinanna
á 12,5 prósenta hlut í Lambeyrum.
Lambeyrar búið á jafnframt 40 pró-
senta hlut í Fasteignafélagi Lambeyra
á móti 60 prósenta hlut Lambeyra. Þó
Ásmundur Daði sé ekki skráður eig-
andi Lamb eyrarbúsins er hann vara-
maður í stjórn félagsins. Hann titlar
sig bónda á Lambeyrum í Dalasýslu
og rekur búið ásamt föður sínum. Þar
stunda þeir sauðfjár- og geitarækt og
um stórbýli er að ræða.
Deilt um skiptingu dánarbús
Samkvæmt heimildum DV hafa
systkinin staðið í illvígum deilum og
málaferlum í nokkurn tíma vegna
skiptingar á dánarbúi föður þeirra og
málin sem nú eru komin fyrir dóm-
stóla eru sprottin upp úr þeim deil-
um. Samkvæmt upplýsingum af
heimasíðu Héraðsdóms Vesturlands
er um skuldamál að ræða, en heim-
ildir DV herma að málið snúist aðal-
lega um túlkun á leigusamningi og
að ekki sé um verulegar fjárhæðir að
ræða. Ásmundur Einar og Daði, faðir
hans, sem búa á umræddri jörð, eru
því væntanlega ekki sammála túlkun
systkina Daða á þeim ákvæðum leigu-
samningsins er varða leigugreiðslur.
Stefnir sjálfum sér
Þrátt fyrir að bæði Lambeyrar og
Fasteignafélag Lambeyra séu að
hluta til í eigu Daða sjálfs hafa
systkini hans, sem eiga meirihluta
félaganna tveggja, greinilega ekki
séð annan kost í stöðunni en að
fara með málið fyrir dómstóla og út-
kljá það þar. Heimildir DV herma að
málið sé töluvert viðkvæmt eins og
oft vill verða þegar um fjölskyldu-
erjur er að ræða. Þá er málið einn-
ig töluvert snúið því Daði er að
vissu leyti að stefna sjálfum sér sem
meðeigandi í félögunum. DV hef-
ur ekki upplýsingar um það hvort
Lambeyrar búið, í eigu Daða, greiði
hinum eigendum jarðarinnar hluta
af leigunni, eða hvort hann neiti al-
farið að greiða hana.
Tap á rekstrinum
Ef tekið er mið af árskýrslu Lamb-
eyrarbúsins virðist rekstur þeirra
feðga vera í nokkrum erfiðleikum,
en samkvæmt ársskýrslu félags-
ins fyrir árið 2009 var tap á rekstri
félagsins 10.587.733 krónur og eigið
fé þess var neikvætt um 75.933.867
krónur í árslok árið 2009. Uppsafnað
tap félagsins var því 83.397.997 í árs-
lok það ár. Hlutafé félagsins í árslok
var 11.540.000 krónur.
Fjölskylduerjur
fyrir dómstóla
n Föðursystkini Ásmundar Einars Daðasonar stefna Lambeyrarbúinu ehf. í eigu föður hans
n Deilt um túlkun á leigusamningi n Sprottið upp úr deilum um dánarbú n Ásmundur
Einar rekur búið ásamt föður sínum og er varamaður í stjórn
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
„Heimildir DV
herma að málið
snúist aðallega um túlk-
un á leigusamningi.
Bóndi á Lambeyrum Ásmundur er
varamaður í stjórn Lambeyrabúsins ehf.
og rekur búið ásamt föður sínum.
Karl Georg Sigurbjörnsson Fjármál hans hafa
verið fyrir dómstólum að undanförnu og hann hefur
orðið fyrir tugmilljóna fjárhagstjóni.
Fjárdráttur
leystur með sátt
Upp komst um fjárdrátt starfsmanns
hjá fyrirtækinu Egilsson/Office 1 á
dögunum. Samkvæmt heimildum
DV dró viðkomandi starfsmaður sér
umtalsverða fjárhæð á nokkurra ára
tímabili. Málið var tilkynnt til lög-
reglunnar en forstjóri Egilsson/Of-
fice 1, Kjartan Örn Sigurðsson, segir
í samtali við DV að unnið sé að sátt
í málinu þannig að kæra í málinu
verði dregin til baka og það fari ekki
lengra. Vilji fyrirtækið með því reyna
að leysa málið í sátt þar sem það sé
erfitt fyrir alla aðila málsins.
Síbrotamaður dæmdur:
Stal bíl en lofaði
að skila honum
Maður um þrítugt var á þriðjudag
dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir
rán, þjófnaði, fíkniefnabrot og brot
gegn valdstjórninni. Maðurinn var
meðal annars dæmdur fyrir að slá
lögreglumann í andlitið með þeim
afleiðingum að mar og bólga mynd-
aðist við auga. Í dómnum kemur
fram að maðurinn hafði verið í mik-
illi neyslu fíkniefna fyrir atburðinn
og verið vakandi í átta til tíu daga.
Maðurinn hélt því fram fyrir dómi
að hann hefði leitast við að verða
handtekinn til að fá gistingu í fanga-
geymslu þegar hann sló lögreglu-
manninn en lögregla hafði hann
grunaðan um að hafa brotist inn í
bíla. Þá var hann einnig dæmdur
fyrir að fara inn í bifreið sem lagt
var í Elliðaárdalnum en í aftur-
sæti hennar sváfu tveir ungir menn.
Hann settist undir stýri og ók af stað
stuttan spöl þangað til annar farþeg-
anna sló til hans. Þeir fóru þá út úr
bílnum og greip maðurinn þá barefli
og hótaði þeim áður en hann tók bíl-
inn ófrjálsri hendi með því loforði að
hann myndi skila henni aftur.
Maðurinn á sakaferil að baki allt
frá árinu 1998. Hann hefur alls sautj-
án sinnum verið dæmdur fyrir brot
gegn almennum hegningarlögum,
lögum um ávana- og fíkniefni og
umferðarlögum. Þá hefur hann alls
sjö sinnum gengist undir dómssátt
vegna brota á lögum um ávana- og
fíkniefni og umferðarlögum.