Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Side 12
12 | Fréttir 4. maí 2011 Miðvikudagur „Ókunnugi perrinn ekki algengur“ „Barnaníðingar líta oft á að þeir séu ekki að gera barninu neitt til miska. Þeir telja sig vera barngóða menn og það sem þeir eru að gera hafi ekki neinar slæmar afleiðingar í för með sér fyrir barnið. Þetta eru viðhorf sem oft hafa komið fram hjá þeim sem brjóta kynferðislega gegn börnum,“ segir dr. Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Blekking og vörn Helgi segir þessa afneitun vera varnarhátt sem einstaklingar með barnagirnd komi sér upp til að komast hjá því að horfast í augu við afleið­ ingar glæpa sinna. „Þetta eru afbrot sem flest­ ir telja þau verstu sem hægt er að gera ann­ arri manneskju, að ráðast gegn varnarlausum börnum. Barnaníðingar upplifa þetta ekki þannig, heldur frekar eins og þeir séu jafnvel einu vinir barnanna og séu að gera barninu eitthvað gott. Þetta er því ákveðin blekking líka og með því ná þeir að líta í spegil á morgn­ ana og verjast ásökunum samfélagsins því for­ dæmingin er eðlilega mikil.“ Erfitt verkefni Meðferð við barnagirnd snýst að mörgu leyti um að láta gerandann gera sér grein fyrir af­ leiðingum gjörða sinna en samkvæmt Helga reynist það stundum erfitt verkefni. „Það eru ákveðnar hvatir þarna að baki sem getur ver­ ið erfitt að draga úr eða stemma stigu við. Það verður að vinna samtímis með hneigðina og svo hugarfarið sem hvílir þarna að baki og þetta er stundum mikil glíma. Ég myndi þó ekki segja að það væri ómögulegt, þó svo að ýmislegt bendi til að svæsnustu barnagirndar­ einstaklingarnir séu ólæknandi. Ýmislegt er samt hægt að gera og okkur ber að gera allt til að vernda börnin okkar. Það hefur þó ver­ ið álitið erfiðara meðhöndlunar eftir því sem einstaklingar eldast og þessi hneigð er orðin fastari í persónuleika viðkomandi. Við megum samt ekki gleyma að langflestir þeirra sem leita á börn tengjast barninu fjölskylduböndum eða þekkja það persónulega. Ókunnugi perr­ inn sem leitar á börn á skólalóðinni er sem betur fer ekki algengur.“ Síbrotamenn sérkapítuli Helgi bendir á að kynferðisbrot séu af marg­ víslegu tagi og rannsóknir sýni að séu þau bor­ in saman við önnur afbrot sýni einstaklingar sem eru dæmdir fyrir kynferðisbrot minnstu ítrekunartíðnina. „Brotamenn sem sífellt eru uppvísir að því að leita á börn eru svo alveg sérkapítuli og þarf klárlega að taka á með ein­ hverjum öðrum hætti en við gerum að öllu jöfnu með brotamenn.“ Aðspurður hvernig væri hægt að meðhöndla þessi sérstöku til­ felli bendir Helgi á að eftirfylgni þyrfti að vera meiri með þessum aðilum og að nýta verði refsitímann með markvissari hætti gagnvart þeim mönnum sem vitað er að eru síbrota­ menn. „Það er ekki auðvelt en alls ekki óvinn­ andi vegur að halda meira aftur af þessum að­ ilum en okkur hefur hingað til tekist.“ Erfitt verkefni Helgi Gunnlaugsson prófessor segir barnaníðinga koma sér upp varnarhætti til að komast hjá því að horfast í augu við afleiðingar glæpa sinna. „Ef barn dettur af bryggjunni og ég sting mér í sjóinn og bjarga barninu þá er það misskilið,“ seg­ ir Steingrímur Njálsson sem þrætir enn fyrir að hafa misnotað eitt ein­ asta barn, þrátt fyrir að hafa ítrekað sætt ákærum og verið dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn börnum. Langur brotaferlill Árið 1962 hlaut Steingrímur dóm fyrir að nauðga ungum blaðburðar­ dreng sem hann lokkaði inn í bíl sinn í Reykjavík. Á næstu árum hlaut hann fjölda dóma fyrir fleiri brot gegn ungum drengjum sem hann ýmist nauðgaði eða beitti öðru alvar­ legu kynferðisofbeldi. Samtals hefur Steingrímur hlotið dóma fyrir slík brot gegn þrettán ungum drengjum og einum þroskaheftum manni um þrítugt. Hann hlaut síðast dóm fyrir kynferðisbrot árið 1995 en árið 2000 var hann dæmdur til að greiða sekt fyrir að hafa í fórum sínum barna­ klám. DV greindi frá því á mánudag að Steingrímur og annar dæmdur barnaníðingur, Ágúst Magnússon, búa á Skúlagötunni, nálægt hvor öðr­ um. Nágrannar Steingríms eru ósátt­ ir við veru hans í húsinu en árið 2005 var greint frá því að hann hefði ráðist á nágrannakonu sína. Þrátt fyrir að hafa verið sviptur ökuréttindum ævi­ langt vegna ítrekaðs ölvunaraksturs ekur Steingrímur um á rauðri vespu sem hann geymir í kjallarageymslu blokkarinnar þrátt fyrir að það sé bannað samkvæmt húsreglum. Blokkin þar sem Steingrímur býr er efst á Skúlagötu en þar eiga félagsbústaðir áttatíu íbúðir. Nafn Steingríms er ekki að finna við dyra­ bjöllu. Póstkassi í andyri hússins er merktur Steingrími en þó án föður­ nafns. Í stigaganginum búa engin börn og eru flestir íbúarnir einstæðir karlmenn. Segist saklaus Blaðamaður DV bankaði upp á hjá Steingrími sem bauð honum og ljósmyndara að koma inn fyrir. Inni í íbúðinni er loftið rykmettað og þungt. Íbúðin er lítil og raðir af bók­ um, gömlum tímaritum og mynd­ bandsspólum fylla hvern krók og kima. Á litlum skemmtara í stofunni eru tvær gamlar fjölskyldumyndir og málverk af skipum og sjómönn­ um prýða veggi. Steingrímur sest í gulan gamlan sófa sem hefur af mik­ illi notkun mótast af setu manns­ ins. Hann fær sér einn bjór úr kippu sem er á gólfinu og hellir í stóra bjórkrús. Hann er orðinn gamall og hrumur og erfitt er að heyra orða­ skil vegna mæði. Blaðamaður fær sér sæti á stólbrún og spyr Steingrím hvað hann sé að aðhafast þessa dag­ ana. Hann segist vera búinn að fá sér bát og stefni á að fara á veiðar. „Ég er skipstjóri og mig langar að fara á sjó, á handfæraveiðar. En ég er ekki með nein réttindi.“ Hann segist aðspurður ekki vita til þess að hann hafi kom­ ist í kast við lögin nýlega en þegar blaðamaður spyr út þá glæpi sem Steingrímur hefur orðið uppvís að í gegnum tíðina tekur hann af honum orðið og segir:„Bíddur róleg. Er það þannig? Nú ætla ég að biðja ykkur um að gera eitt. Að doka við áður en þið dæmið.“ Aðspurður hvort hann haldi fram sakleysi sínu svarar hann því játandi en spyr síðan: „Saklaus af hverju?“ Blaðamaður bendir honum á að hann hafi hlotið fjölmarga dóma fyrir að áreita unga stráka kynferðis­ lega og eftir stundarþögn spyr Stein­ grímur af hverju hann eigi ekki að hafa áreitt stelpur líka. Hann muldr­ ar ofan í bringu og segist ekki vilja ræða þetta frekar. „Það á að gera mig að vitleysingi. Það er allt misskilið sem ég geri.“ Einmana Steingrímur sýnir enga iðrun og svo virðist sem hann sé í mikilli afneitun þegar kemur að kynferðisbrotum sínum. Í stað þess að svara spurn­ ingum blaðamanns bendir hann ítrekað á aðra einstaklinga og meint brot sem þeir eiga að hafa framið. Það eru helst einstaklingar sem hafa komið að skrifum í fjölmiðlum um brot hans í gegnum árin sem hann vill meina að séu glæpamenn upp til hópa. Að lokum segist Steingrím­ ur vera að leita sér að konu. „Veistu um einhverja sem er tilkippileg,“ spyr hann og hlær. „Ég er svo andskoti einmana.“ Barna- níðingur iðrast ekki n Steingrímur Njálsson heldur fram sakleysi þrátt fyrir fjölda dóma n Sviptur ökurétt- indum ævilangt en ekur um á rauðri vespu n Segist einmana og langar að kynnast konu „Það á að gera mig að vitleysingi. Það er allt misskilið sem ég geri. Afneitun Steingrímur Njálsson hefur hlotið dóma fyrir alvarleg kynferðisbrot gegn þrettán ungum drengjum og einum þroskaheftum manni um þrítugt. Hann segist ekki kannast við að hafa framið nokkurn glæp. MyNd RÓBERt REyNiSSoN Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is Steingrímur Njálsson og Ágúst Magnússon Hér búa þeir Eitt húsnúmer aðskilur Steingrím Njálsson og Ágúst Magnússon sem búa báðir á Skúlagötu. Steinsnar frá heimili þeirra er lögreglustöðin á Hverfisgötu. Lögreglan hefur enga heimild til að fylgjast með ferðum þeirra án þess að rökstuddur grunur sé um að þeir hafi framið glæp eða séu að undirbúa slíkt. Ágúst Magnússon býr á Skúlagötu 68. Steingrímur Njálsson býr á Skúlagötu 64. Lögreglustöðin er á Hverfisgötu 113.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.