Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Síða 14
14 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 4. maí 2011 Miðvikudagur „Topp5“ endurmerktur Í frétt DV á mánudaginn sagði að Matvælastofnun hefðu borist upp- lýsingar um innköllun á Topp5-ís frá Emmessís vegna vanmerktra of- næmis- og óþolsvalda. Í innihalds- lýsingum á umbúðum varanna hefði ekki komið fram að þær inni- héldu hnetur og sojalesitín en hvort tveggja er á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Forsvarsmaður Emmessíss hafði samband við blaðamann og vildi koma því á framfæri að starfsmenn fyrirtækisins hefðu brugðist hratt við ábendingum og hefðu þegar hafist handa við að leiðrétta innihalds- upplýsingar á umbúðum varanna. Topp5 hefur því verið endurmerktur í öllum verslunum. Leiðrétting Í grein DV á mánudaginn var viðtal við Árna Stefán Árnason lögfræðing, þar sem fjallað var um aðbúnað hænsna og reglugerð um vistvæna vottun. Þar segir rang- lega að Árni Stefán sé meðlimur í samtökunum Velbú sem berjast fyrir bættum aðbúnaði búdýra. Árni Stefán hætti fyrir nokkru í sam- tökunum og er því í raun ekki talsmaður þeirra eins og skilja mætti af greininni. E ld sn ey ti Verð á lítra 241,1 kr. Verð á lítra 242,3 kr. Bensín Dísilolía Verð á lítra 240,9 kr. Verð á lítra 242,1 kr. Verð á lítra 242,8 kr. Verð á lítra 242,3 kr. Verð á lítra 240,8 kr. Verð á lítra 242,0 kr. Verð á lítra 240,9 kr. Verð á lítra 242,1 kr. Verð á lítra 241,1 kr. Verð á lítra 242,3 kr. Algengt verð Algengt verð Algengt verð Höfuðborgin Melabraut Algengt verð Kostnaðar­ áætlun stóðst n Macland á Klapparstíg fær hrósið að þessu sinni en hæstánægður við- skiptavinur vildi koma eftirfarandi á framfæri. „Ég fór með tölvuna í við- gerð og þeir sáu strax að harði disk- urinn var farinn. Þeir gáfu mér upp verð og sögðust mundu láta mig vita ef eitthvað meira kæmi í ljós. Tölvan var til- búin eftir sólarhring og kostnaðaráætlunin stóðst algjörlega. Auk þess fékk ég fullt af góð- um „tölvuheilsuráðum“.“ Léleg þjónusta n Lastið fær Tal en fyrir tveimur mán- uðum fór viðskiptavinur að eiga í vandræðum með símakortið sitt. „Fólk náði ekki í mig og ég gat ekki hringt úr símanum. Ég bað þjónustu- fulltrúa Tals um aðstoð, heimsótti þá og hringdi en þeir vísuðu þessu frá sér á allan hátt. Eftir tveggja mánaða vesen fékk ég loks þær upplýsingar að jú, vissu- lega væri eitthvað að kortinu og fékk þá loks nýtt. Þetta er með ólík- indum léleg þjónusta og eiginlega ótrúlegt að ég hafi ekki skipt um símafélag meðan á öllu þessu stóð.“ SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last „Það er auðveldara að gera vorverk- in núna en seinna, svo ég hvet fólk til að byrja sem fyrst,“ segir Valborg Ein- arsdóttir, framkvæmdastjóri Garð- yrkjufélags Íslands. Hún segir að fólk ætti að fara að kíkja út um gluggann og hugsa málin, þrátt fyrir að veðrið um síðustu helgi hafi aðeins dregið úr því stuðið fyrir vorverkin. Það er að ýmsu að huga áður en hafist er handa og blaðamaður ræddi við Val- borgu sem veitir lesendum hér nokk- ur góð ráð. Nú er ekkert því til fyrir- stöðu að skella sér í vinnufötin og hefjast handa í garðinum. Hreinsun er fyrsta skrefið Valborg segir að byrja þurfi á því að hreinsa lóðina en ótrúlegt sé hve mikið drasl safnist þar fyrir yfir vetur- inn, svo sem greinar og lauf. „Það er í góðu lagi að klippa limgerðin ef það er ekki búið og snyrta tré og runna. Eins þarf að klippa burtu kal, þar sem kalið hefur á trjám og runnum,“ segir hún. Nú er einnig kominn tími til að hreinsa flötina en það er gert með því að raka vel yfir grasið og reyna að ná mosanum í burtu. Valborg segir að henni reynist best að nota laufhrífur til þess. Ef mikill mosi er í grasinu sé gott að setja kalk á grasið en það má gera strax. Auk þess sé hægt að stinga í grasið með venjulegum garðgaffli en með því eykst loftflæðið í jarð- veginum. Grasfræjum skal hins veg- ar ekki sá fyrr en það er orðið örlítið hlýrra, til dæmis í byrjun júní, en Val- borg segir að það standi oftast utan á pakkningunum. Pottar eins og lítil gróðurhús Hvað varðar beðin segir hún að óhætt sé að hreinsa þau á þeim stöðum á landinu þar sem snjór er farinn. Helst þurfi að passa allra viðkvæmustu plönturnar. „Ef ég hef tekið ofan af öllu og er með litl- ar eðalplöntur þá hvolfi ég yfir þær litlum blómsturpottum ef það kem- ur hret. Með því myndast eins og lítil gróðurhús yfir plönturnar. Oft- ast ganga þessi hret yfir á tveimur til þremur dögum og pottarnir mynda skjól fyrir plönturnar rétt á með- an.“ Hún segir að nú sé góður tími til að hreinsa í burtu allt illgresi og eftir um það bil hálfan mánuð get- ur fólk byrjað að kantskera. „Það er ekki gott að gera það of snemma eða á meðan jarðvegurinn er of blaut- ur. Um leið og það byrjar að þorna má alveg kantskera meðfram beð- unum.“ Forsáning matjurta innandyra Valborg bendir á að þeir sem eru með matjurtargarð ættu að fara að huga að því að stinga hann upp og gott væri að ná sér í útsæði og láta það spíra. Það er gert inni og talað er um að forspírun á kartöflum taki tvær til fjórar vikur. Útsæðið skal geyma á björtum stað við 14 til 18 gráður en bílskúrar eru hentugir staðir til þess. Hún segir að nú sé til úrval af útsæði hjá öllum helstu garðplöntuverslun- um. „Það er hægt að forsá einhverju af grænmetinu inni, svo sem salati og káli. Það er alveg upplagt að taka nokkur fræ og sá þeim inni en með þessu getur fólk dreift aðeins upp- skerutímanum. Núna er um það bil mánuður í að við getum byrjað að sá út en það fer einnig eftir hver hlý- indi og lofthiti verður í maí og júní. Í venjulegu árferði ætti það að vera hægt um mánaðamótin maí/júní,“ segir hún en bætir við að auðvitað geti það verið mismunandi frá ári til árs. Blóm fyrir 17. júní Sumum tegundum sumarblóma á að sá fyrir janúar/febrúar, svo sem stjúpum en Valborg segir að enn sé tími til að sá fyrir þeim blómum þar sem sáningartími er í apríl/mars. „Ef þetta er gert allra næstu daga þá ætti það að sleppa og þá koma upp blóm fyrir 17. júní en markmiðið hjá flest- um er að garðurinn sé kominn í gott stand fyrir þjóðhátíðardaginn.“ Hún bendir sérstaklega á eina tegund blóma sem heitir skjaldflétta vegna þess hve einfalt er að sá fyrir henni. „Skjaldfléttan er skemmtileg að því leytinu að þótt hún sé sumar- blóm er hún einnig kryddjurt. Það er hægt að borða af henni bæði lauf og blóm og gott að nota þau í salat. Hún er virkilega flott og fæst í gulu og appel sínugulu.“ Sumarblómin fara niður í júní Hún segir að yfirleitt sé hægt að setja fyrstu sumarblómin niður um mán- aðamótin maí/júní ef tíð er þokka- lega góð. Margir setji fyrst í körfur eða ker við útidyrnar og séu tilbúnir að kippa þeim inn í forstofu yfir eina eða tvær nætur ef hitastig fellur eða jafnvel að skella plastpoka yfir pott- ana. Gott er að fylgjast með veður- spánni fram í tímann því stundum sé hægt að setja fyrstu sumarblómin niður aðeins fyrr. Valborg vill einnig benda fólki á að upplagt sé að færa til plöntur í garðinum áður en þær laufgast. Besti tíminn til þess sé ann- aðhvort á vorin eða eftir að þær fella lauf á haustin. Áburður Hvað varðar áburð og hvenær hann skal borinn á segir hún að upp úr miðjum maí sé besti tíminn. Ef spá- in fram undan er góð sé óhætt að bera á allan garðinn, bæði gras og beð. Hún segist þó ekki geta mælt með ákveðnum áburði. „Það er gíf- urlegt úrval og val á áburði ætti að fara eftir aldri garðanna og hvað er í þeim. Best er að fá ráðgjöf þegar maður kaupir hann. Það ætti ekki að vera vandamál að fá góðar ráðlegg- ingar í búðunum.“ Eins sé misjafnt hvort fólk vilji nota einungis lífræn- n Tími vorverka í garðinum er hafinn n Gott er að byrja á að hreinsa garð­ inn og beð n Nú má byrja að stinga upp matjurtagarða og hreinsa mosa úr grasi n Tilvalið að virkja börnin með sér í garðvinnuna Garðurinn bíður vorverkanna Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Valborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Garðyrkjufélags Íslands Segir að byrja þurfi á því að hreinsa grasbletti og blómabeð. MYND: FRIÐRIK BALDURSSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.