Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Page 15
an áburð en þar megi nefna hrossa- skít, þörungamjöl og hænsnaskít. Hvað skal varast Aðspurð hvað eigi að varast þegar kemur að vorverkunum í garðin- um segir Valborg að mestu mistök- in séu gerð við trjáklippingar. „Það versta sem fólk gerir er að klippa stór tré sem eiga í rauninni ekki að vera klippt. Það er ekki ráðlagt að klippa ofan af til dæmis hlyn, ösp, gullregni og reynitré. Það er hægt að forma öll tré ef það er gert frá unga aldri en maður tekur ekki stór tré og styttir um marga metra. Ef það er nauðsyn á maður að panta fagmann í verk- ið. Fólk á ekki að gera það sjálft því það getur eyðilagt tréð sem jafnar sig aldrei. Ef fólk vill breytingar á göml- um, stórum trjám þá þarf það að fá álit fagmanns,“ segir hún. Fáum börnin með okkur í garðinn Valborg segir að mikilvægt sé að kenna börnum strax í upphafi að borða ekki gróðurinn þegar hún er spurð um plöntur sem við ættum að varast og geta verið hættulegar börnum og dýrum. Síðan læri þau smám saman að þekkja matjurt- ir frá öðrum plöntum. „Það er ekki eingöngu garðagróðurinn sem yfir- leitt er óæskilegur til neyslu, heldur einnig afskornu blómin, pottablóm- in og ýmsar plöntur úti í náttúrunni. Börn hafa sérstaklega mikla ánægju af allri matjurtaræktun, sérstaklega þegar kemur að því að útbúa eitt- hvað gott úr uppskerunni og strax mjög lítil eru þau mjög hjálpleg þeg- ar þau fá að sulla með litlar vökvun- arkönnur og vökva blómin,“ segir hún að lokum Neytendur | 15Miðvikudagur 4. maí 2011 Hafna óbeinum blekkingum Forsvarsmenn fyrirtækisins Brúnegg ehf. gera athugasemd vegna umfjöllunar í DV á mánudag um aðbúnað hænsna. „Brúnegg ehf. hefur leyfi til að nota merkið „Vistvæn landbúnaðarafurð“ á vörur sínar og vinnur eftir reglugerð um vistvæna vottun,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Auk þess taki Matvælastofnun út starfsemi fyrirtækisins á hverju ári og hafi eftirlit með því að reglur um aðbúnað og heilbrigðiseftirlit séu virtar. Eins að það hafi legið fyrir árið 2005 þegar fyrirtækið hóf framleiðslu að ekki hefði verið hægt að hafa hænurnar utandyra þar sem bannað var á þeim tíma að hafa alifugla úti við vegna hættu á smiti af fuglaflensu af völdum farfugla. „Því er algerlega hafnað að Brúnegg ehf. hafi staðið í óbeinum blekkingum varðandi aðbúnað hænsnanna. Aldrei hefur verið gefið í skyn að þær gangi úti eða bíti gras. Hollusta afurðanna veltur ekki síst á gæði fóðursins sem hænurnar eru aldar á og þar njóta hænur Brúneggja hins besta. Aðbúnaður hænsnanna hjá Brúneggjum er í samræmi við reglugerð um vistvæna vottun að öðru leyti en því að ekki er hægt að koma því við að hleypa hænunum úr húsi.“ Kristinn Gylfi Jónsson, hjá Brúneggjum, segir að hænunum líði mjög vel hjá sér og að grundvallaratriðið í vistvænni vottun sé að hænurnar séu ekki í búrum. „Við höfum áhuga á að koma þeim út og æskilegt væri að vera með einhvers konar útiaðstöðu fyrir dýrin. Það kemur kannski í framtíðinni,“ segir hann. Garðurinn bíður vorverkanna Ráð varðandi sumarblóm og verkfæri n Tegunda- og litaúrval sumarblóma er orðið gríðarlega mikið og oftar en ekki er eitthvað nýtt í boði á sumrin. Töluverðar tískusveiflur eru í gróðurvali en margir láta tískuna engin áhrif hafa á sig og kaupa eða sá allaf fyrir sömu blóm- unum. Aðrir búa á vindasömum stöðum, þannig að stjúpur og fjólur og jafnvel silfurkambur eru einu sumarblómin sem eru nógu harðger til að standast vindálagið. Enn aðrir velja blómaliti í stíl við litinn á húsinu. n Af hengiblómum eru sennilega algengust eða vinsælust blóm eins og brúðaraugað (lobelia), snædrífan er einnig dugleg sem og hengijárnurtin sem ber nafn vissulega með rentu. Skjaldfléttan er sívinsæl til að hafa með kryddjurtunum, en það er mjög smart að vera með kryddjurtir í hengikörfu til dæmis nálægt grillinu eða eldhúsinu. Surfina, hengitóbakshorn er alltaf stórglæsileg í hengikörfu sem og stjörnuklukkan (betlehem- stjarnan) og ýmislegt fleira. n Plöntur til að setja í ker og beð eða jafnvel með hengiblómum í körfur geta til dæmis verið: Brúðarstjarna (cosmos) sem þolir ágætlega vind, hádegisblóm, dalíur í ýmsum stærðum og gerðum, meyjarblómi, aftanroðablóm, sólblóm, sólboði sem er ótrúlega duglegur, flauelsblóm að ógleymdri möggubránni (margaríta) sem gárungarnir segja að dragi nafn sitt af Margréti Danadrottningu, en þetta mun vera uppáhaldsblómið hennar. n Í sambandi við garðverkfærin kemst byrjandinn ansi langt með litlu handsetti sem innheldur yfirleitt klóru, skóflu og illgresisjárn. Ef viðkomandi á meira en svalagarð bætist yfirleitt við hrífa, jafnvel tvær, og jafnvel gaffall og skófla. Auk þess þurfa flestir garðeigendur venjulega að eiga sláttuvél og hekkklippur, þó það fari eftir hönnun garðsins. Skjaldflétta Hægt er að borða blóm og lauf skjaldfléttunnar og nota í salat. Litskrúðugur garður Ef vel er staðið að gróðursetningu stuðlum við að fallegri görðum í sumar. Fagleg ráðgjöF Tilboð á 10 Tíma korTum l Hljóðbylgjur vinna gegn verkjum l Örvar starfsemi sogæða (hreinsun) l Örvar vökvaflæði sogæðakerfisins l Eyðir vökvasöfnun - bjúg l Eyðir margskonar bólgum l Eykur orkuflæði líkamans l Dregur úr gigtareinkennum l Formar fótleggi og línur l Gefur góða líðan l Detox hreinsun Rauðarárstíg 41 l 105 Reykjavík l Sími 533-3100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.