Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Síða 16
16 | Erlent 4. maí 2011 Miðvikudagur
Niðurstöður allsherjarmanntals
sem kínverska hagstofan fram-
kvæmdi í lok síðasta árs voru kynnt-
ar nú á dögunum. Manntöl sem
þetta hafa verið framkvæmd á tíu
ára fresti í Kína síðan árið 1980 og
er þetta það yfirgripsmesta hingað
til. Safnað var upplýsingum um
fólksfjöldaþróun, aldursskiptingu,
menntunarstig, fæðinga- og dánar-
tíðni svo fátt eitt sé nefnt og komu
tíu milljón starfsmenn að vinnslu
þess á einn eða annan hátt.
Niðurstöðurnar leiða í ljós að
þó Kínverjar séu enn þann dag í
dag fjölmennasta ríki heims, þar
sem fólksfjöldinn er um það bil
1,37 milljarðar, hefur verulega
dregið úr fólksfjölgun í landinu síð-
an eins barns reglan tók gildi í lok
áttunda áratugarins. En samfara
hertum reglum um barneignir og
ofuráherslu á að halda fólksfjölgun
í skefjum hefur annað samfélags-
legt vandamál og öllu erfiðara við-
ureignar fengið að dafna óáreitt.
Brenglað kynjahlutfall barna
fæddra eftir 1979 er að mati margra
ráðamanna innan kommúnista-
stjórnarinnar orðið að aðsteðjandi
vandamáli og ein af brýnni sam-
félagslegum áskorunum sem stjórn-
völd standa frammi fyrir í dag.
Mun fleiri sveinbörn
Frú Chen er farandverkakona sem
vinnur í lítilli verslun í norðvestur-
hluta Beijing-borgar. Þó svo að dóttir
hennar sé ekki enn orðin eins árs er
frú Chen barnshafandi í annað sinn.
Eins og milljónir annarra Kínverja
nýtir hún sér lagaheimild sem gerir
foreldrum sem eignast stúlkubarn
kleift að eignast annað barn, í von um
að eignast son.
Samkvæmt niðurstöðum mann-
talsins fæðast 118 sveinbörn í Kína
fyrir hver 100 fædd stúlkubörn.
Eðlilegt hlutfall samkvæmt mann-
fjöldastofnun Sameinuðu þjóðanna
er talið vera 103 til 107 sveinbörn fyrir
hver 100 stúlkubörn. Í fátækari byggð-
um í sunnan- og vestanverðu landinu
er hlutfallið allt að 135 sveinbörn fyrir
hver 100 fædd stúlkubörn. Ef fer sem
horfir, verða karlar á giftingaraldri um
30 til 40 milljónum fleiri en konur árið
2020 í Kína og talið er að einn af hverj-
um fimm karlmönnum muni ekki
geta fundið sér konuefni.
Það er því ekki nema eðlilegt að
ráðamenn í Kína hafi áhyggjur af
þessari þróun en meðal afleiðinga
sem talið er að svo brenglað kynja-
hlutfall geti haft í för með sér eru fjölg-
un kynferðisglæpa, aukið mansal og
það sem Kommúnistaflokkurinn hef-
ur yfirleitt verið hvað hræddastur við,
aukinn óróleiki í samfélaginu.
Menningarlegar ástæður
Ástæður þess að kínversk hjón leggja
svo ríka áherslu á að eignast strák
frekar en stelpu eru bæði menning-
arlegar og félagslegar. Konfúsíusar-
hyggjan, sem enn er ríkjandi í hug-
myndafræði Kínverja, boðar jöfnum
höndum yfirburði karlmanna og
mikilvægi þess að heiðra og virða
foreldra sína. Á einum stað segir
Konfús íus að mesta skömm sem hver
einstaklingur geti kallað yfir foreldra
sína sé að eignast ekki sveinbarn, en
slíkt hefur í för með sér dauða ættar-
nafnsins (konur taka upp ættarnafn
eiginmannsins eftir giftingu í Kína).
Kínverska almannatrygginga-
kerfið er einnig afar ófullkomið og
aðeins lítill hluti þjóðarinnar á rétt
á ellilífeyrisbótum sem eru auk þess
mjög lágar. Algengast er að börn sjái
fyrir foreldrum sínum í ellinni og þar
sem Kínverjar líta svo á að stúlkur
sameinist fjölskyldu brúðgumans
eftir giftingu er ekki nema eðlilegt
að sveinbörn séu álitin arðvænlegri
kostur. Synirnir eru enn sem komið
er ríkari trygging fyrir fjárhagslegum
stöðugleika þegar á efri ár er komið.
Það skal þó tekið fram að hér er
alls ekki um sérkínverskt vandamál
að ræða, heldur miklu frekar sér-
asískt. Svipaða tilhneigingu má sjá í
öðrum Asíulöndum eins og til dæm-
is Suður-Kóreu, Taívan og Indlandi.
Eins barns stefnan í Kína gerir það
hins vegar að verkum að hlutföll-
in þar eru mun öfgafyllri en annars
staðar í Asíu.
Útburður tíðkast enn
Bættar efnahagslegar aðstæður hafa
tryggt almenningi í landinu aðgang
að betri heilbrigðisþjónustu, og þar
með talið tækifæri til ómskoðun-
ar. Þó svo að bannað sé samkvæmt
lögum að láta barnshafandi foreldr-
um í té upplýsingar um kyn barns
eru refsingar við slíkum brotum þó
óljósar. Vitað er að víðs vegar um
landið eru starfræktar læknastofur
með það eina yfirlýsta markmið að
upplýsa barnshafandi foreldra um
kyn fósturs með ómskoðunartækni.
Foreldrarnir taka svo ákvörðun um
hvort þau eiga barnið eða eyða fóstr-
inu í framhaldi af því. Á fátækustu
svæðunum upp til sveita heyrast
enn fréttir af útburði stúlkubarna og
einnig má ætla að einhverjum hluta
stúlkufæðinga sé haldið leyndum frá
stjórnvöldum með það að leiðarljósi
að gera aðra tilraun til barneigna.
Vilja styrkja foreldra
Aðgerðir stjórnvalda til að sporna
við þróuninni hafa hingað til að-
allega snúist um að koma á bein-
um mánaðarlegum peninga-
greiðslum í formi styrkja til þeirra
fjölskyldna upp til sveita sem eign-
ast stúlkubörn. Markmiðið er að
breyta þeirri víðtæku skoðun fólks
að það sé fjárhagslega hagkvæm-
ara að eignast stráka en stelpur.
Sú þumalputtaregla hefur einn-
ig verið lengi við lýði að eignist
hjón stúlkubarn fá þau leyfi til að
eignast eitt barn til viðbótar. Þetta
gildir þó ekki fyrir þær tæplega 700
milljónir Kínverja sem eru skráð-
ir í þéttbýli. Einnig hafa stjórn-
völd uppi fyrirætlanir um að herða
verulega refsiramma þeirra laga
sem banna ómskoðun í því skyni
að greina kyn fósturs, en sú leið
hefur gefið góða raun í Suður-Kór-
eu.
Jafnrétti kynjanna nauðsynlegt
Sérfræðingar eru þó sammála um
að ef að raunverulegur árangur
eigi að nást þurfi að ráðast beint
að rót vandans; hugsunarhætti
fólks. Svo lengi sem hjón vilja frek-
ar eignast stráka en stelpur mun
brenglað kynjahlutfall vera viðvar-
andi vandamál í kínversku sam-
félagi. Margir telja að það verði
ekki fyrr en fullkomið jafnrétti
kynjanna sé orðið að veruleika í
Kína, hvort sem um er að ræða í
stjórmála-, efnahags- eða félags-
legum skilningi, sem alvöru árang-
urs sé að vænta.
Skrifar frá Kína
Sveinn Kjartan Einarsson mun fram-
vegis skrifa reglulegar greinar frá Kína,
hinu ört vaxandi heimsveldi. Sveinn lauk
BA-prófi í kínversku árið 2007 en hann
hefur búið í Kína, fyrst í Beijing og nú í
Sjanghæ, síðastliðin sex ár. Hann starf-
aði meðal annars við verkefnisstjórn
fyrir íslenska utanríkisráðuneytið vegna
heimssýningarinnar sem fram fór í
Sjanghæ á síðasta ári. Hann hefur einnig
starfað við ráðgjöf hjá kínverskum fyrir-
tækjum og fengist við þýðingar.
Fjörutíu milljón
piparsvei ar
Sveinn Kjartan Einarsson
blaðamaður skrifar frá Kína
„Synirnir eru enn
sem komið er
ríkari trygging fyrir fjár-
hagslegum stöðugleika
þegar á efri ár er komið.
n Allsherjarmanntal var gefið út í Kína á
dögunum, en 10 milljón manns komu að
gerð þess n Mun fleiri sveinbörn fæðast
og veldur það stjórnvöldum áhyggjum
Kínverskir feðgar Þessi ungi maður sem borinn er á baki gæti lent í vandræðum með
kvonfang miðað við mannfjöldaspár Kínverja.
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun