Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Qupperneq 21
Umræða | 21Miðvikudagur 4. maí 2011 Við getum stöðvað þá 1 „Við vorum alltaf að reyna að hjálpa henni“ Vinkona Hörpu Bjartar og fyrrverandi samherji á vellinum. 2 Róma-fólk beitt skelfilegu ofbeldi Öfgahópar sem ofsækja Róma-fólk njóta vaxandi fylgis í Ungverjalandi. 3 Myndaði Ásdísi Rán í svefniÁsdís Rán lenti í óþægilegri lífs- reynslu á leið sinni til Búlgaríu. 4 Grét af gleði yfir dauða Osama og rakaði sig Bandaríkjamaður strengdi þess heit að raka sig ekki fyrr en búið væri að handsama bin Laden. 5 Obama horfði á bin Laden deyja í beinni útsendingu Forsetinn fylgdist með aðgerðum bandarísku sérsveitarinnar. 6 Assange segir Facebook ógeðfellda njósnavél Assange segir að með Facebook sé fólk í raun að vinna frítt fyrir bandarísku leyniþjónustuna. 7 Vinir Sjonna tóku lagið í Dusseldorf Fyrsta æfing hópsins fór fram á mánudaginn. Sigríður Björnsdóttir er formaður samtakanna Blátt áfram. Blátt áfram eru sjálfstæð félagasamtök og er tilgangur samtakanna að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi. Nú á dögunum settu samtökin af stað öflugt forvarnarátak sem miðar að því að stöðva gerendur og styðja foreldra í því að vera vakandi fyrir hættum í umhverfi barnsins. Hver er konan? „Ég heiti Sigríður Björnsdóttir og er framkvæmdastjóri Blátt áfram.“ Hvað er á döfinni? „Við settum nýverið af stað nýtt for- varnarátak sem beinist að gerendum. Við sýnum þær aðstæður sem gerendur nýta sér til þess að brjóta á börnum. Staðreyndin er sú að 93 prósent þeirra sem verða fyrir kyn- ferðisofbeldi þekkja gerendurna. Gerendur eru því í reglulegum samskiptum við barnið heima hjá sér eða ættingjum, í skólum og á æfingum í þeim tómstundum sem það stundar.“ Hvernig hegðar ábyrgt foreldri sér? „Ábyrgt foreldri gerir sér grein fyrir því að það er ekki nóg að fræða börnin. Það þarf að skoða samskiptin sem börn þeirra eiga í á hverjum degi. Ef foreldri sér til dæmis að fullorðinn einstaklingur, það getur verið maki eða afi eða hver sem er, er of nærgöng- ull og hegðar sér þannig að þú upplifir það á óþægilegan máta þá er ekki nóg að hugsa um hveru óþægileg upplifunin er. Það þarf að stöðva slíkt með afgerandi hætti. Þessi fullorðni einstaklingur gæti til dæmis alltaf viljað heilsa barninu með of þéttu faðm- lagi og stroku sem þér finnst óþarfi. Þá á foreldrið að segja: „Ég vil ekki að þú snertir barnið mitt á þennan máta. Hættu því.“ Ef sá fullorðni bregst við með því að hunsa þetta þá má foreldrið ekki láta bugast.“ Hverjir eru gerendur? „70 prósent gerenda eru karlmenn, 30 prósent þeirra eru kvenmenn. Við skiptum þeim í tvo flokka; ætlunarsinna og tækifærissinna. Tækifærissinnar eru þeir sem brjóta af sér, nást, fara á sakaskrá, jafnvel í fangelsi. Stærstur hluti þeirra brýtur ekki af sér aftur. Þetta er hins vegar minnstur hluti þeirra. Stærsti hlutinn er ætlunarsinnar, þeir vilja ekki nást og ætla ekki að nást. Er hægt að stöðva þá? „Já, við eigum að geta stöðvað þá. Við getum komið í veg fyrir að brotið sé á börnum okkar með því að vera vakandi og vera ákveðin. Við eigum að segja hvað okkur finnst og standa með börnunum okkar, setja skýr mörk og vera ábyrg.“ Hvernig hafa viðbrögðin við auglýsing- unni verið? „Fólk er reitt yfir því að við séum að gera gerendur úr öllum. En börnin eiga að njóta vafans, við erum að segja sannleikann. Þetta eru aðstæðurnar og svona gerist þetta.“ „Já, ég trúi því.“ Daníel Ari Leningham 19 ára nemi „Já, hann er dauður.“ Egill Björgvinsson 21 árs nemi „Já, steindauður.“ Arndís Benediktsdóttir 22 ára dansari „Já, en ekki á mánudag. Hann hefur verið dáinn lengi.“ Anna Kolfinna Kúran 21 árs dansari „Nei, ég trúi því ekki.“ Gígja Jónsdóttir 19 ára nemi Mest lesið á dv.is Maður dagsins Trúir þú að Osama bin Laden sé dáinn? Lokafrágangur Hörpunnar Iðnaðarmenn voru í óða önn að leggja lokahönd á tónlistarhúsið Hörpu á þriðjudag. Tónlistarfólk var við æfingar en húsið verður formlega tekið til notkunar í dag, miðvikudag. MynD SiGtryGGur Ari JóHAnnSSon Myndin Dómstóll götunnar S amtök atvinnulífsins og Landssamband íslenskra útvegsmanna fóru með þá möntru daglega að alrangt væri að þau hefðu tekið kjarasamn- inga í gíslingu vegna breytinga sem stjórnarflokkarnir vilja gera á fisk- veiðistjórnunarkerfinu. Stjórnar- andstæðingar, eins og Einar K. Guð- finnsson, fóru mikinn og sögðu að ríkisstjórninni hefði verið í lófa lagið í allan vetur að draga úr spennunni en kysu að nota málið til að efla sam- stöðu í eigin röðum. Þetta er mikil einföldun. „Þekktu óvin þinn,“ segir einhvers staðar, en varla er að sjá að Einar Kristinn geri það. Tafirnar sem orðið hafa á fram- kvæmd sjávarútvegsstefnu ríkis- stjórnarinnar síðan samráðsnefnd Jóns Bjarnasonar sjávarúatvegs- og landbúnaðarráðherra skilaði niður- stöðum sínum síðastliðið haust eiga sér ýmsar skýringar. Viðkvæm staða Í fyrsta lagi  var rík nauðsyn til þess að kanna það sérstaklega hvernig það legðist í flokksmenn Samfylk- ingar og VG, grasrótarinnar einnig,  að hverfa frá afdráttarlausri fyrning- arleið og innlausn ríkisins á kvót- anum á 20 árum eins og kveðið er á um í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar. Sannleikurinn er sá að engin sérstök eining er um það í hvorugum stjórn- arflokknum að breyta frá stefnuyfir- lýsingunni, en hún kveður á um að ríkið innleysi kvótann sem þjóðar- eign og bjóði á markaði eftir tiltekn- um útfærðum leiðum.  Málið er satt best að segja á afar viðkvæmu stigi þar sem þeir telja sig nú svikna sem vilja halda sig í meginatriðum við upphafleg áform. Einnig má nefna að Jón Bjarna- son lagði fram frumvarp í ríkisstjórn snemma vetrar um aukningu afla- heimilda og að ríkið fengi að leigja út að lágmarki 15 þúsund tonn af þorski og ýsu og öðru eins yrði út- hlutað beint samkvæmt hlutdeildar- reglum kvótakerfisins. Þetta var vitanlega eitur í beinum stórútgerð- arinnar meðal annars vegna þess að með slíku frumvarpi hefði verið far- ið þvert gegn grundvallarsjónarmiði LÍÚ um að enginn megi ráðstafa kvóta eða hirða arð af kvótaleigu aðr- ir en kvótahafar. Jafnvel þótt fiskifræðileg rök mæltu með aukningu kvóta gat LÍÚ ekki af þessum sökum stutt aukn- inguna og þar með stuðlað að meiri tekjum fyrir ríkissjóð og þjóðarbúið. Þannig var komin upp sú ein- kennilega staða að LÍÚ gat ekki mælt með kvótaaukningu sem skilað hefði þjóðarbúinu milljarða króna auka- tekjum. Vér einir megum leigja öðrum kvóta Í öðru lagi var fullkomlega óvíst hvað yrði um stjórnlagaþing og tillögur um þjóðareign náttúruauðlindum eftir að Hæstiréttur ógilti stjórnlaga- þingskosningarnar. Nú hefur hins vegar tekist að koma á fót stjórnlaga- ráði sem vinnur að endurskoðun stjórnarskrárinnar. Hafið er upp yfir allan vafa að ráðið mun leggja til að náttúruauðlindir verði þjóðareign samkvæmt stjórnarskrá hver svo sem umgjörð þess ákvæðis verður. Í þriðja lagi  höfðu útvegsmenn skellt hurðum og hlaupið á dyr úr framangreindri samráðsnefnd Jóns Bjarnasonar vegna þess að hann dirfðist að auka skötuselskvóta um tvisvar sinnum 2.000 tonn til út- leigu af hálfu almannavaldsins. Það var brot gegn „eignarrétti“ sægreif- anna. Útvegsmenn gerðu reyndar betur og kærðu Jón Bjarnason þegar hann með „svívirðilegum hætti“ að mati útvegsmanna ákvað að kvóta- setja ekki úthafsrækju í fyrra þar eð útgerðirnar höfðu ekki hirt um að veiða rækjuna mörg árin á undan. Með þessu töldu útvegsmenn að Jón hefði eyðilagt bókhald útgerðanna sem höfðu fínan verðmiða á rækju- kvóta í ársreikningum sínum. En var ákvörðun Jóns ekki rökrétt þótt hún passaði ekki Einari Kristni og LÍÚ? Töpuðu sægreifarnir ekki málinu fyrir dómi? Hápólitísk kjarabarátta LÍÚ Í fjórða lagi, eftir að hafa skellt hurð- um og kært sjávarútvegsráðherra, brugðu útvegsmenn sjálfir á það ráð að taka kjarasamninga í gíslingu og setja fyrir vara um að ríkisstjórn- in yrði að hlýða þeim í einu og öllu.  Þann fyrir vara höfðu þeir fram í rauðan dauðann þótt í óefni stefndi á vinnumarkaði. Þessi barátta Vil- hjálms Egilssonar hjá SA í þágu LÍÚ varð til þess að fulltrúar ferðaþjón- ustunnar og fleiri atvinnugreina innan vébanda Samtaka atvinnu- lífsins fengu sig fullsadda á því að vera fallbyssufóður í pólitískri bar- áttu 30 sægreifa fyrir óbreyttu kvóta- kerfi. Hvað hefðu SA og LÍÚ gert ef þeir hefðu fengið verktaka í virkjunar- framkvæmdum, stóriðjuna og orku- fyrirtækin einnig upp á móti sér? Voru þeir ekki búnir að mála sig út í horn? Launafólk sem skjöldur LÍÚ „Þannig var komin upp sú einkenni- lega staða að LÍÚ gat ekki mælt með kvótaaukn- ingu sem skilað hefði þjóðarbúinu milljarða króna aukatekjum. Kjallari Jóhann Hauksson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.