Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2011, Page 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 4. maí 2011 Miðvikudagur
Fjórði úrslitaleikur Akureyrar og FH:
„Stígandi í þessu hjá okkur“
„Þetta er alveg ótrúlega jafnt og við
erum bara ánægðir að vera inni í þessu
ennþá,“ segir Atli Hilmarsson, þjálfari
handboltaliðs Akureyrar, en fjórði úr
slitaleikur liðsins gegn FH fer fram í
Kaplakrika í kvöld, miðvikudagskvöld.
FH vann fyrstu tvo leikina og gat tryggt
sér titilinn á Akureyri á sunnudaginn
en þá komu heimamenn sterkir til
leiks og tryggðu sér mikilvægan sigur
og héldu einvíginu á lífi.
„Mér finnst vera stígandi í þessu
hjá okkur. Við erum betri í leik þrjú
en við erum í leik eitt, það skiptir
máli. Það er samt ekkert sem skil
ur á milli þessara liða. Hér heima á
sunnudaginn komumst við í fyrsta
skipti eitthvað afgerandi yfir þegar
við náðum þriggja marka forystu.
En það hvarf eins og dögg fyrir sólu.
Það má ekki einn leikmaður vera
rekinn út af í þessu einvígi þá fer
öll forysta,“ segir Atli en er ekki erf
itt að mæta liði með breidd á borð
við FH?
„Jú, jú, það má vel vera. Mér finnst
samt mínir menn hafa staðið þetta
vel af sér og slaka aldrei á undir lok
leikja. Það sýnir bara hvað þeir eru
í fínu standi. Hjá FH skoruðu þrír
menn 19 mörk af 22 í síðasta leik.
Mér finnst það nú ekki merki um
mikla breidd,“ segir Atli.
Gamla brýnið Heimir Árnason
hefur heilt yfir verið mjög góður í ein
víginu og á Akueyri í síðasta leik fór
hann hreinlega á kostum, kastandi
sér á eftir boltum í vörn eins og tví
tugur maður og skorandi mikilvæg
mörk. Atli dregur hvergi undan tal
andi um hversu mikilvægur hann er
liðinu.
„Heimir er algjör lykilmaður hjá
okkur, bæði í vörn og sókn. Hann
er búinn að vera frábær í allan vet
ur og hefur verið driffjöðrin í þessu
hjá okkur. Það er bara virkilega
gaman að sjá hversu hungraðir
menn eru í titil og eru í fínu formi
þegar tímabilið er alveg að klárast,“
segir Atli en er einhver sérstakur
undirbúningur fyrir leik fjögur?
„Nei, nei. Við mætum bara í okkar
flugferð, fáum okkar kjúkling á BK og
mætum svo í leikinn. Allt hefðbundið,“
segir Atli Hilmarsson. tomas@dv.is
Holyfield vill
titilbardaga
n Gamla hnefaleikabrýnið Evander
Holyfield er ekki dauður úr öll
um æðum og vill fá annan séns til
þess að verða
heimsmeist
ari í þungavigt,
takist honum að
leggja Danann
Brian Nielsen
næstkomandi
laugardag. Holy
field, sem er 48
ára, var eitt sinn
heimsmeistari og á óopinberan
bardaga gegn Nielsen sem er hvað
frægastur fyrir að hafa mætt Mike
Tyson á Parken. „Sigur sannar að ég
get þetta ennþá. Ég vonast til að fá
bardaga gegn mönnum sem bera
titla,“ segir Holyfield.
Argentínumaður
til Liverpool
n Enska úrvalsdeildarliðið Liver
pool hefur verið látið vita af því að
það getur gert tilboð í argentínska
vængmanninn
Diego Perotti í
sumar. Sevilla
hefur nú þegar
gert samning við
þýska landsliðs
manninn Piotr
Trochowski og
hefur ekki lengur
not fyrir Perotti.
Liverpool hefur horft til Argentínu
mannsins í nokkurn tíma og þykir
ekki ólíklegt að hann endi á Anfield.
Talið er að Liverpool geti fengið
vængmanninn á fínum prís sem
muni flýta fyrir kaupum í maí.
Ver sína menn
n Pep Guardiola, þjálfari Barcelona,
hefur komið sínum mönnum til
varnar eftir allt það sem á undan
hefur gengið síðustu vikur í kring
um leikina gegn
Real Madrid. Nú
síðast komst upp
um kynþátta
níð hataðasta
fótboltamanns
Evrópu, Sergio
Busquets. „Ég
þekki mína leik
menn vel og þeir
eru allir heiðarlegir og sannir at
vinnumenn. Auðvitað geta þeir gert
mistök í leikjum, þeir eru nú bara
mannlegir. Það sem gerðist í for
tíðinni á að geyma þar, ekki tala um
aftur og aftur,“ segir Pep.
Fjölskyldumaðurinn
Federer
n Svissneski tenniskappinn Roger
Federer hefur ekki átt sjö dagana
sæla á tennisvellinum undanfarin
misseri og er dottinn niður í þriðja
sæti heimslistans. Heima fyrir geng
ur þó öllu betur en tvíburarnir hans
sem eru tveggja ára vaxa og dafna.
„Fyrir svona ári var erfitt að fara með
þá í flugvél því þeir höfðu svo hátt.
Núna eru þeir öllu rólegri og heim
ilislífið að róast. Það er alveg yndis
legt að vera fjölskyldufaðir,“ segir
Federer.
Borgið það sem þurfið
n Heitasti markvörður Evrópu um
þessar mundir er án efa Manuel Neu-
er, markvörður Schalke. Hann fór
algjörlega á kost
um í Meistara
deildinni gegn
Manchester Uni
ted í síðustu viku
og vakti mikla
umræðu um að
United myndi
jafnvel stela hon
um af Bayern en
Neuer á að ganga til liðs við Bæjara í
sumar. „Þetta er markvörður sem ver
ótrúlega trekk í trekk. Lið sem vilja
hann verða að borga almennilega
og ekki hika við að borga 50 millj
ónir evra sé það uppsett verð,“ segir
þýska goðsögnin Franz Beckenbauer
við þýska blaðið Bild.
Molar
Fjölhæfur Hornamaðurinn Oddur Grétarsson leysti skyttuna með prýði í síðasta leik. MyND SiGTRyGGuR ARi
n Liverpool hefur leikið betur án Stevens Gerrard n Hefur hlotið 33 stig frá áramótum
n Gerrard misst af 14 leikjum á tímabilinu n Markatalan 15–2 í síðustu fimm heimaleikjum
Árið 2011 hefur verið viðburðaríkt
hjá Liverpool í ensku úrvalsdeild
inni. Fyrir áramót gekk ekkert upp
sem varð til þess að forráðamenn
liðsins ákváðu að taka til hendinni.
Roy Hodgson var rekinn, Kenny
Dalglish tók við, Fernando Torres var
seldur fyrir 50 milljónir punda og lið
ið fjárfesti í tveimur rándýrum leik
mönnum, Andy Carroll og Luis Sua
rez. Upp á síðkastið hefur allt annað
verið að sjá liðið sem um miðbik
tímabils var líklegra til að vera í botn
baráttunni en í baráttu um Evrópu
sæti. Endurreisn Liverpool er hafin
og athyglisvert er að sjá að liðið hef
ur aldrei leikið betur á leiktíðinni en
einmitt þegar Steven Gerrard, fyrir
liði liðsins, hefur verið frá keppni.
Rakað inn stigum frá áramótum
Aðeins Chelsea (36) og Manchester
United (35) hafa hlotið fleiri stig frá
áramótum en Liverpool í ensku úr
valsdeildinni. Menn Kennys Dalg lish
hafa í 17 leikjum frá áramótum hal
að inn 33 stig, þar af 13 stig úr síðustu
sex leikjum. Steven Gerrard hefur
ekkert leikið í þessum leikjum. Fjór
ir sigrar, eitt jafntefli og eitt tap. Gerr
ard hefur raunar misst af tíu leikjum
af þessum sautján sem liðið hefur
leikið frá áramótum. Það má því með
sanni segja að endurreisn Liverpool
hafi verið fyrirliðalaus með hjálp frá
ungum, efnilegum og uppöldum
leikmönnum og léttleikandi sóknar
boltahugmyndafræði Kennys Dalg
lish. Með þessu er þó ekki verið að
draga úr þeim áhrifum sem Steven
Gerrard hefur á liðið sem besti leik
maður þess, heldur fremur að benda
á hversu vel liðið hefur brugðist við
fjarveru hans undir stjórn Dalgl
ish. Til að mynda er markatala liðs
ins í síðustu 5 heimaleikjum 152, og
Steven Gerrard lék aðeins í einum
þeirra. Á móti hefur komið að leik
menn eins og Hollendingurinn Dirk
Kuyt hefur stigið upp í fjarveru fyrir
liðans og axlað aukna ábyrgð og leik
ið eins og sá sem valdið hefur. Í síð
ustu 7 leikjum hefur Kuyt skorað 8 af
12 mörkum sínum á tímabilinu og
lagt upp þrjú fyrir félaga sína.
Martröð varð að Evrópudraumi
Þann 5. janúar, þremur dögum áður
en Roy Hodgson var rekinn sem
knattspyrnustjóri liðsins, sat Liver
pool í 12. sæti deildarinnar eftir 20
leiki með aðeins 25 stig, fimm stigum
frá neðsta sæti deildarinnar. Í dag,
þegar aðeins 3 leikir eru eftir af tíma
bilinu, situr Liverpool í 5. sæti deild
arinnar eftir hagstæð úrslit undan
farnar vikur og jafnvel þótt félagið
komist ekki í Meistaradeild Evrópu
yrði sæti í Evrópudeildinni klárlega
sárabót á tímabili sem stuðnings
menn Liverpool álíta algjöra mar
tröð í heildina.
En það eru bjartari tímar fram
undan ef liðið heldur áfram á sömu
braut og Kenny Dalglish svarar kalli
stuðningsmanna um að halda áfram
með félagið á næsta tímabili. Að því
gefnu að Steven Gerrard finni sitt
gamla form á næstu leiktíð á Liver
pool mikið inni og gæti orðið feyki
lega sterkt.
Tímabilið hjá Gerrard og Liverpool
21 leikur - 4 mörk - 5 stoðsendingar
Með Gerrard (21 leikur)
n Sigrar: 9
n Jafntefli 4
n Töp: 8
n Stig: 31
n Markatala liðsins: 24-26
Án Gerrards: (14 leikir)
n Sigrar: 7
n Jafntefli: 3
n Töp: 4
n Stig: 24
n Markatala liðsins: 30-13
Tímabilið
Fyrirliðalaus
endurreisn
liverpool
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is